Morgunblaðið - 22.05.2021, Page 12

Morgunblaðið - 22.05.2021, Page 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021 BÍLABÚÐ BENNA KOLEFNISJAFNAR OPEL benni.is Bílasala Suðurnesja Reykjanesbæ Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330 Ib bílar Selfoss Fossnes A Sími: 480 8080 Bílabúð Benna Reykjavík Krókháls 9 Sími: 590 2020 NÝ RAFMAGNS MOKKA-E NJÓTIÐ HVÍTSUNNUHELGARINNAR SPENNAN LOSNAR Í NÆSTU VIKU! Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is O kkur sýnist að þetta verði gerlegt og við skynjum að fólk sé orðið ansi móta- þyrst,“ segir Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri móta UMFÍ en ákveðið hefur verið að halda unglingalandsmót á Selfossi um verslunarmannahelgina og landsmót UMFÍ fyrir 50 ára og eldri í lok ágúst. „Þessi mót hafa fengið sér- staklega langan undirbúning,“ segir Ómar en öllum mótum og viðburðum UMFÍ var frest- að í fyrra vegna kórónuveirunnar. „Þráðurinn var tekinn upp síð- asta haust og við höfum bara verið vongóð síðan um gott mótshald í sumar,“ segir Ómar og bætir við að fylgst verði vel með sótt- varnareglum næstu mánuði og tekn- ar ákvarðanir eftir þeim. „Við vinnum að sjálfsögðu með heilbrigð- isyfirvöldum og gerum allt í sam- ræmi við sóttvarnaaðgerðir sem mögulega verða í gildi.“ Verður með svipuðu sniði Unglingalandsmótið sem er vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátíð hefur verið haldið frá árinu 1992 og hafa þúsundir ungmenna og fjöl- skyldur þeirra tekið þátt á mótunum á hverju ári. Í ár býður mótið upp á keppni í 24 íþróttagreinum fyrir alla þátttak- endur á aldrinum 11-19 ára. Mótin eru yfirleitt fyrir 11-18 ára en þar sem mótinu var frestað í fyrra var ákveðið að leyfa þeim sem voru 18 ára þá að taka þátt nú. Ómar segir mótið verða með svipuðu sniði og það hefur verið áð- ur, „en auðvitað munu sóttvarnir setja mark sitt á mótshaldið“. Á meðal íþróttagreina eru knattspyrna, körfubolti og frjálsar íþróttir en líka aðrar nýlegri eins og strandhandbolti og standblak. Líka er hægt að skrá sig í hlaupaskotfimi, bogfimi, borðtennis, golf og glímu, kökuskreytingar, rafíþróttir og margar fleiri. Fatlaðir geta eins og á fyrri mótum tekið þátt í fjölda greina. Öll kvöld mótsins verða svo í boði tónleikar fyrir gesti. Ómar segir að búist sé við þús- undum mótsgesta á Selfossi um verslunarmannahelgina og er verið að útbúa risastórt tjaldsvæði við Suðurhóla í útjaðri bæjarins fyrir þátttakendur af öllu landinu. Svæðið er í göngufæri við mótssvæðið og ákveðnar götur verða lokaðar í tengslum við nokkra viðburði. Keppni í pönnukökubakstri Landsmót 50 ára og eldri verð- ur haldið í Borgarnesi helgina 27.- 29. ágúst en áður hefur mótið verið haldið í byrjun júní. Ómar segir mótshaldara viljandi hafa fært það aftar til þess að vera tryggari með samkomutakmarkanir. Mótið hefur farið fram árlega víða um land síðan árið 2011 og er öllum opið sem verða 50 ára á þessu ári og öllum eldri. Í boði er keppni í fjölda greina. Þar á meðal eru boccía, ringó, fjallahlaup og pönnu- kökubakstur. Mikil eftirvænting Skráning fyrir bæði mótin opn- ast um mánuði fyrr og er ekki skil- yrði að vera skráður í íþróttafélag. „Við hlökkum verulega til og sjáum fram á skemmtilegt sumar,“ segir Ómar og bætir við að félagið hafi fundið fyrir mikilli eftirvænt- ingu, ekki síður hjá fullorðna fólk- inu. „Við vitum að þó nokkuð af gist- ingu hefur þegar verið bókað í Borgarnesi.“ Ómar segir gríðarlega mikla og skemmtilega uppbyggingu vera í kringum mótin og þá sérstaklega á Selfossi í kringum íþróttasvæðið sem mun nýtast vel. „Það er komin mikil hreyfigleði í fólk á öllum aldri. Eins og þeir vita sem hafa komið á mótin okkar þá verður þetta svaka- lega skemmtilegur viðburður fyrir alla fjölskylduna,“ segir Ómar. Almenning þyrstir í landsmótin Landsmót UMFÍ fyrir unglinga annars vegar og 50 ára og eldri hins vegar verða haldin á Sel- fossi og í Borgarnesi í ágúst. Mótshaldarar segj- ast vongóðir um fjölmenn mót og góða afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Morgunblaðið/Eggert Gleði Mikil stemning hefur jafnan ríkt á unglingalandsmótum UMFÍ en mótið verður að óbreyttu haldið um verslunarmannahelgina á Selfossi. Ljósmynd/UMFÍ Hörð keppni Landsmót fyrir 50+ verður í Borgarnesi helgina 27.-29. ágúst. Ómar Bragi Stefánsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.