Morgunblaðið - 22.05.2021, Page 14

Morgunblaðið - 22.05.2021, Page 14
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Loðnuhrogn og svil í nokkrum plast- fötum um borð í tveimur uppsjávar- skipum í byrjun mars eru nú orðin að lífvænlegum lirfum í stöð Haf- rannsóknastofnunar á Stað í Grinda- vík. Þar hafa verið gerðar rann- sóknir á ýmsum tegundum í eldi í áraraðir og nú bætist loðna við hús- dýrin. Vonir standa til að rannsóknir á loðnu í kerjum stöðvarinnar muni skila margvíslegum niðurstöðum á næstu árum. Loðnan er verðmæt, sérstaklega loðnuhrognin, og skila þessar afurð- ir milljörðum í útflutningsverð- mætum. Þegar vel gengur eru veidd hundruð þúsunda tonna af loðnu við landið. Ólíklegt er að eldið muni skila af sér afurðum til útflutnings og það er ekki tilgangurinn með eld- inu. Upplýsingar um þennan mikil- væga fisk fyrir þjóðarbúið og um leið lífríkið í sjónum við Ísland geta hins vegar skipt miklu máli. Nærast vel og stækka hratt Þeir Tómas Árnason sjávarút- vegsfræðingur og Agnar Steinars- son sjávarlíffræðingur halda um þræði í loðnueldinu, en fleiri starfs- menn Hafrannsóknastofnunar koma að verkefninu. Tómas segir að til þessa hafi gengið vel að koma loðnunni á legg. Nú 45 dögum frá klaki syndi hátt í tvö þúsund 25 millimetra loðnur um ker í stöðinni, nærist vel og stækki hratt. Þeir félagar fengu meðal annars aðstoð frá skipverjum á Kap VE og Víkingi AK, sem gáfu sér tíma undir lok loðnuvertíðarinnar í vetur til að kreista hrogn í fötur og dreifa svil- um og sjó yfir. Fötur með efniviðn- um voru síðan settar í kæli um borð og sóttu starfsmenn Hafró hrogn í Landeyjahöfn, Akraneshöfn og Reykjavíkurhöfn og fluttu í eld- isstöðina. Nokkrar fötur með botnfylli „Við fengum nokkrar fötur með botnfylli af hrognum,“ segir Tómas. „Stærsti hlutinn hafði ekki frjóvgast og því var talsverðu hent, en eigi að síður var þarna nokkuð af frjóvguð- um hrognum, sem klöktust við sjö gráðu hita. Á sama tíma gæti hita- stig í Breiðafirði og á Faxaflóa þar sem loðnan hrygndi hafa verið um fimm gráður.“ Fyrsta lirfan klaktist 20 dögum frá frjóvgun. Næstu daga á eftir var hins vegar eins og klakið hefði stöðvast og höfðu sérfræðingarnir nokkrar áhyggjur af því að tilraunin hefði misfarist. Við nánari athugun kom í ljós að það þurfti bara að hreyfa við hrognunum til að koma klakinu af stað. Tómas segir að ekki hafi margir reynt eldi á loðnu. Fyrir um 40 árum hafi verið gerð tilraun til eldis í tjörn eða lóni í Noregi og loðnan þá verið alin á náttúrulegu dýrasvifi. Í því til- viki var hrognum klakið út og lirfum sleppt í tjörnina þar sem náttúran tók við. Í Grindavík verði reynt að hafa stjórn á ferlinu. Hjóldýr og saltvatnsrækja Saga loðnutilrauna í Grindavík er hins vegar ekki alveg ný því fyrir 20 árum var gerð lítil eldistilraun með loðnulirfur í eldisstöðinni. Hrogn og svil voru kreist úr nýdauðri loðnu við löndun í Grindavík, hrognin frjóvguð og klakin í eldisstöðinni. Síðan var prófað að ala lirfurnar á hjóldýrum en í ljós kom að loðnulirf- urnar voru of kjaftsmáar til að geta étið hjóldýrin. Ekki tókst því að ala upp loðnuseiði í þessari fyrstu til- raun. Framan af voru loðnulirfurnar, sem nú eru í stöðinni í Grindavík, einnig aldar á hjóldýrum, en að þessu sinni voru pöntuð sérstaklega smá dýr frá Bandaríkjunum. Þau eru hlýsjávardýr í náttúrunni og eru ræktuð áfram í Grindavík í 28 gráða heitum sjó og auðguð með næring- arefnum með miklu af fitusýrum til að þau verði næringarríkari fyrir loðnuna. Í náttúrunni lifir loðnan á ýmiss konar svifdýrum, m.a. hjól- dýrum, sem finnast í Atlantshafinu. Smám saman var farið að gefa lirf- unum stærri hjóldýr og um þessar mundir er verið skipta hjóldýrunum út í staðinn fyrir nýklakta saltvatns- rækju (artemíu), sem er töluvert stærri fæða. Vel er fylgst með þroska loðnunn- ar, bæði í um þrjú þúsund lítra kari og einnig í gegnum smásjá, jafnvel án þess að drepa lirfuna. Á þessum tímapunkti eru loðnuseiðin nánast glær á litinn og í smásjánni má sjá örsmá hjóldýrin og hvernig melting- arvegurinn vinnur. Ný sjónarhorn við rannsóknir -En hver er tilgangurinn með loðnueldinu? „Fyrsta spurningin sem við vilj- um fá svar við er hvort þetta er yfir höfuð hægt,“ segir Tómas. „Í öðru lagi hyggjumst við búa til rann- sóknaverkefni samhliða eldinu. Ýmsum hugmyndum hefur verið varpað fram í þeim efnum og ein þeirra lýtur að áhrifum súrnunar sjávar á loðnulirfur. Í eldisumhverfi er hægt að gera margt sem ekki er hægt að sjá um borð í rannsókna- skipum og á þennan hátt teljum við að möguleikar skapist á nýju sjón- arhorni við loðnurannsóknir.“ Í samantekt Tómasar og Agnars um loðnuverkefnið segir meðal ann- ars: „Við teljum hins vegar einnig mikilvægt að afla gagna með rann- sóknum undir stýrðum umhverfis- aðstæðum, því þess konar rann- sóknir geta veitt vísbendingar um það hvernig stofnar koma til með að bregðast við breyttum aðstæðum í hafinu t.d. við hækkun sjávarhita. Það er hins vegar mikill skortur á slíkum rannsóknum, sérstaklega í tegundum sem flokkast ekki sem eldistegundir, eins og loðna, makríll og síld. Í grunninn er þetta ástæðan fyrir því að við höfum áhuga á því að rannsaka loðnuna í tilraunastöðinni. Ekki hafa fundist heimildir um ár- angursríkt kerjaeldi á loðnulirfum í erlendum rannsóknastöðvum.“ Þá hafa sérfræðingar í loðnurann- sóknum á uppsjávarsviði Hafrann- sóknastofnunar lýst áhuga á að taka þátt í eldistilraunum með loðnu til þess að styðja við rannsóknir á loðnu í villtri náttúru. Tvö þúsund líflegar eldisloðnur - Loðna bætist við húsdýrin í eldisstöð Hafró - Mikilvægt að afla gagna með rannsóknum undir stýrðum umhverfisaðstæðum - Örsmá hjóldýr pöntuð frá Bandaríkjunum sem fæða fyrir lirfurnar Ljósmynd/Agnar Steinarsson Rannsóknir Tómas Árnason við smásjá þar sem sjá má loðnulirfur, en eldið gæti svarað spurningum um loðnuna. Fimm manns starfa í rann- sóknastöð Hafrannsóknastofn- unar á Stað í Grindavík. Frá því starfsemi hófst í Tilrauna- eldisstöðinni árið 1988 hafa verið stundaðar rannsóknir og fram- leiðsla á ýmsum tegundum sjáv- arfiska, s.s. sandhverfu, lúðu, þorski og hrognkelsi. Tómas segir að síðustu ár hafi áhersla verið lögð á eldistengdar rannsóknir á bleikju og laxi, en einnig steinbít og fleiri tegundum. Núna hefur loðnan bæst við. Undanfarin ár hefur verið tals- verð framleiðsla á grásleppuseið- um á Stað og hafa þau að mestu verið flutt út til Færeyja. Þar hafa seiðin nýst vel til að éta lús af laxi í eldi, en laxalús hefur verið kostnaðarsamt vandamál í Noregi og Færeyjum. Hann reiknar með að í ár verði flutt út um 120 þús- und grásleppuseiði frá Stað, en Benchmark Genetics, áður Stofn- fiskur, er mun stærri í eldi og út- flutningi á grásleppuseiðum frá Íslandi. Rannsóknir og framleiðsla STÖÐ HAFRANNSÓKNASTOFNUNAR Á STAÐ Í GRINDAVÍK Morgunblaðið/Eggert Verðmæti Hrognaloðnu landað úr Víkingi AK hjá Brimi á Akranesi í marsmánuði. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.