Morgunblaðið - 22.05.2021, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Borgarráð samþykkti á fundi sínum
á fimmtudaginn drög að samkomu-
lagi á milli Knattspyrnufélags
Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar.
Samkomulagið felur í sér uppbygg-
ingu á svæði KR við Frostaskjól auk
þátttöku borgarinnar í byggingu nýs
fjölnota íþróttahúss, knatthúss.
Er þessi samþykkt með vísan til
samþykktar borgarráðs 3. sept-
ember 2020 um forgangsröðun
íþróttamannvirkja í borginni, sem
höfð yrðu til hliðsjónar í fjárfesting-
aráætlun til ársins 2030. Þar var
svæði KR-inga framarlega.
Gylfi Dalmann Aðalsteinsson for-
maður KR og Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri skrifuðu í hádeginu á
fimmtudaginn undir samning um
samkomulag vegna fyrirhugaðrar
uppbyggingar á KR-svæðinu þar
með talið byggingu fjölnota knatt-
húss. Einnig verður unnið að breyt-
ingu á heildarskipulagi KR-
svæðisins í Frostaskjóli.
Stjórn KR hefur kynnt opin-
berlega mikla uppbyggingu á svæð-
inu í framtíðinni, þar sem verða
íþróttamannvirki, þjónustustarfsemi
af margvíslegum toga og íbúðir.
„Tilkoma fjölnota knatthúss mun
gerbylta allri aðstöðu og starfsemi á
KR-svæðinu. Samningur þessi
byggir á mikilli skipulags- og hug-
myndavinnu sem forsvarsmenn KR
hafa unnið með arkitektunum
Bjarna Snæbjörnssyni, Snædísi
Bjarnadóttur og Páli Gunnlaugssyni
síðustu ár. Það er ljóst að þessi
samningur er mikil lyftistöng fyrir
allt íþrótta- og félagsstarf í Vest-
urbænum og telst til stærri áfanga í
122 ára sögu félagsins,“ segir meðal
annars í frétt á heimasíðu KR.
Síðasta embættisverk Gylfa
Undirritun samningsins var síð-
asta verk Gylfa Dalmanns sem for-
maður KR. Hann lét af embætti á
aðalfundi á fimmtudagskvöld, eftir
átta ára starf. Lúðvík S. Georgsson
var kjörinn formaður KR á aðal-
fundinum. Lúðvík hefur starfað fyrir
KR í áratugi og verið í stjórn KSÍ.
Þá samþykkti borgarráð á sama
fundi að ráðist verði í endurbætur á
aðalvelli Þróttar og gerð á nýjum
gervigrasvelli í Laugardal í sam-
ræmi við bréf sviðsstjóra íþrótta- og
tómstundasviðs Reykjavíkurborgar
til borgarstjóra, dags. 29. apríl sl.
Þetta er í samræmi við samþykkt
borgarráðs frá 18. febrúar sl. og nið-
urstöðu sameiginlegs starfshóps
Reykjavíkurborgar, Þróttar og Ár-
manns.
Fjármála- og áhættustýring-
arsviði verði falið að útbúa viðauka
vegna breytinganna með tilfærslum
innan gildandi áætlunar og leggja
fyrir borgarráð til samþykktar.
Fulltrúar meirihlutaflokkanna í
borgarráði bókuðu að Þróttur væri
með eina fjölmennustu knattspyrnu-
deild landsins og mikilvægt væri að
búa vel að iðkendum með góðri að-
stöðu. Þá röðuðust íþróttamannvirki
í Laugardal efst á lista í forgangs-
röðun íþróttamannvirkja.
Þróttarar hafa um nokkra hríð
kvartað yfir óviðunandi æfingaað-
stöðu í Laugardalnum. „Vetrar-
aðstaða knattspyrnumanna og
-kvenna í Þrótti sé vægast sagt öm-
urleg. Yfir 1.000 iðkendur deila lé-
legu, útslitnu gervigrasi, einum velli
með ónýtum hitalögnum,“ sagði m.a.
í grein formannsins, Finnboga Hilm-
arssonar, sem birtist í jólablaði fé-
lagsins í desember sl.
Ljósmynd/Erling Ó. Aðalsteinsson
Brugðið á leik Gylfi Dalmann formaður og Dagur borgarstjóri að lokinni undirskriftinni hjá KR í Frostaskjóli.
Knatthús mun rísa á
svæði KR í Frostaskjóli
- Þróttarar fá nýjan gervigrasvöll í Laugardalnum
Sveitarstjórn Árneshrepps á
Ströndum hefur auglýst tillögu að
breytingu á aðalskipulagi hrepps-
ins vegna frístundabyggðar í landi
Dranga. Landeigandi Dranga,
Fornasel ehf., hefur óskað eftir að
heimilt verði að byggja allt að 14
frístundahús á svæðinu. Í greinar-
gerð kemur fram að frístundahúsin
verði innan tæplega 10 hektara
svæðis við Drangabæinn.
Samhliða er unnið að gerð deili-
skipulags og er jörðin í friðlýsing-
arferli hjá Umhverfisstofnun.
Markmiðið er að uppbygging á
svæðinu fari einungis fram á því
svæði sem þegar er búið að byggja
á og hlífa þar með hinum hluta
jarðarinnar fyrir uppbyggingu.
Svæðið er grasi vaxið og þakið sól-
eyjum á sumrin og hvönn setur
einnig mikinn svip á umhverfið.
Skipulagstillagan verður til sýnis í
húsnæði Kaupfélagsins í Norður-
firði, á vef Árneshrepps og hjá
Skipulagsstofnun. Athugasemdir
þurfa að berast eigi síðar en 29.
júní.
Lóðir fyrir frístunda-
hús í landi Dranga
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Miðnætursól Víða er fagurt á Ströndum, ekki síst við Drangaskörð.
Komdu í BÍLÓ!
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is – ALLTAF VIÐ SÍMANN 771 8900 –
Þessir síungu strákar eru klárir
í að selja bílinn þinn
Kíktu við, hringd
eða sendu okkur
skilaboð!
Hlökkum til!
Indriði Jónsson
og Árni Sveinsson
u
Nýskráður 10/2019, ekinn 29 þkm, bensín & rafmagn (plug in hybrid,
drægni 60 km), 292 hö, sjálfskiptur (8 gíra). M-sport innan og utan.
Raðnúmer 252497
BMW 330e SKODA SUPERB IV SKODA SUPERB IV LAURIN & KLEMENT
(LM sport
Nýskráður 01/2020, ekinn 13 þkm, bensín & rafmagn (plug in
hybrid, 57 km drægni), sjálfskiptur. Alcantara sportsæti, 19“ álfelgur,
stafrænt mælaborð. Bakkmyndavél, dráttakrókur og miklu meira.
Raðnúmer 252430
SPORTLINE
VERÐ 6.890.000
Nýskráður 03/2020, ekinn 9 þkm, bensín & rafmagn (plug in hybrid,
57 km drægni), sjálfskiptur. Leðursæti, 19“ álfelgur, stafrænt
mælaborð, hiti og kuldi í sætum. 360° bakkmyndavél og miklu meira.
Raðnúmer 252399
&K)
VERÐ 6.190.000VERÐ 6.490.000
Geðheilbrigðisþjónusta
fyrir börn og ungmenni
Sjúkratryggingar Íslands auglýsa eftir áhugasömum
aðilum til viðræðna um þverfaglega geðheilbrigðis-
þjónustu fyrir börn og ungmenni.
Eftirfarandi kröfur eru gerðar:
• Að fyrirtækið/starfsstofan uppfylli skilyrði heilbrigðisyfirvalda til
rekstursins
• Að á stofunni starfi þverfaglegt teymi geðheilbrigðisstarfsmanna
sem hafi a.m.k. tveggja ára starfsreynslu sem klínískir
heilbrigðisstarfsmenn
• Að þjónustan sé veitt, með þverfaglegum hætti, af heilbrigðis-
starfsmönnum með sérþekkingu á greiningu og gagnreyndri
meðferð geðheilbrigðisvanda barna og ungs fólks
• Að þjónustan sé veitt börnum og ungmennum
allt að 25 ára aldri
• Að þjónustan sé veitt bæði á starfsstofu og í formi
fjarheilbrigðisþjónustu
Um er að ræða tímabundið átak sem gildir út árið 2021.
Áhugasamir aðilar eru beðnir um að senda tölvupóst á netfangið
innkaup@sjukra.is þar sem fram kemur stutt kynning á fyrirtækinu,
lýsing á gæðastefnu og hvernig ofangreindir þættir eru uppfylltir
og eftir atvikum umfram þær kröfur.
Frestur til að lýsa yfir áhuga til viðræðna er til og með 31. maí nk.
Markmið með innkaupum skv. auglýsingu þessari er að kaupa
sem mest af þverfaglegri geðheilbrigðisþjónustu, fyrir þá fjárveit-
ingu sem til verkefnisins er ætluð, að teknu tilliti til þeirra þátta sem
tilteknir eru í 3. mgr. 40. gr. laga nr. 112/2208 um sjúkratryggingar.