Morgunblaðið - 22.05.2021, Síða 21

Morgunblaðið - 22.05.2021, Síða 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021 Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 & "!(%'$# "$&'%#! "-+ ! !" &,'*)%(!$# Kæli- & frystiklefar í öllum stærðum Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til í gær áætlun upp á 50 milljarða bandaríkjadala til að binda enda á heimsfaraldur Covid-19, en í henni felst meðal annars að búið verði að bólusetja að minnsta kosti 40% jarð- arbúa í árslok 2021. Þá verði búið að bólusetja minnst 60% við lok næsta árs. „Tillaga okkar setur markmið, áætlar fjármögnunarkröfur og mæl- ir fyrir raunsæjum aðgerðum,“ sagði Kristalina Georgieva, yfirmaður Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins, á Alþjóða- heilbrigðisráðstefnunni sem haldin var í Róm. Höfundar skýrslunnar segja að enginn raunverulegur endir verði á efnahagskreppunni án þess að heimsfaraldrinum ljúki. Það sé því í þágu allra þjóða að binda enda á hann. „Í nokkurn tíma höfum við varað við hættulegum frávikum í efnahagslegum örlögum,“ sagði Georgieva. „Það mun aðeins versna eftir því sem bilið breikkar milli auð- ugra ríkja, sem hafa aðgang að bólu- efnum, og fátækra ríkja, sem ekki hafa aðgang.“ Í lok aprílmánaðar höfðu innan við 2% íbúa Afríku verið bólusett á með- an rúmlega 40% íbúa í Bandaríkj- unum og rúmlega 20% Evrópubúa höfðu fengið að minnsta kosti einn skammt af bóluefni gegn kórónu- veirunni. Það er því í forgangi hjá stjórn sjóðsins að flýta bólusetning- um. Sagði Georgieva markmiðið að hjálpa til við að koma heimsfaraldr- inum undir stjórn alls staðar, í þágu allra. Gert er ráð fyrir að 50 millj- arða áætlunin verði samblanda af að minnsta kosti 35 milljörðum dala í styrkjum frá ríkari löndum og einka- aðilum og svo um 15 milljörðum frá öðrum ríkjum með aðstoð lána frá þróunarbönkum sem beri litla eða enga vexti. rli@mbl.is Vilja 50 milljarða í baráttuna - Enginn efnahagsbati nema heimsfaraldrinum ljúki AFP Markmið Stefnt er að því að búið verði að bólusetja 40% jarðarbúa í árslok. Þjóðverjar gátu á föstudag farið á stjá í fyrsta skiptið í marga mánuði. Þá voru m.a. sundlaug- ar, barir og veitingastaðir opnuð aftur, eftir að Þýskalandi frá því í nóvember í tilraun til að minnka útbreiðslu kórónuveirunnar. Því mátti sjá ánægða Þjóðverja að spóka sig um í gær. afléttingar tóku gildi víðs vegar í landinu vegna lítils fjölda smita og aukinnar bólusetningar. Samkomutakmarkanir og lokanir hafa verið í AFP Skálað fyrir afléttingum á berlínskum bar Japanskur lestar- stjóri á yfir höfði sér refsingu fyrir að yfirgefa stjórnklefa lestar til þess að fara á salernið. Athæfið var refsivert af þeim sökum að lestin kom einni mínútu of seint á áfangastað. Seinkunin leiddi til rannsóknar en mikil áhersla er lögð stundvísi almenn- ingssamgangna í Japan. Um var að ræða svokallaða há- hraðalest sem var á 150 kílómetra hraða þegar maðurinn skrapp frá. Lestarstjórinn viðurkenndi að hafa yfirgefið stöð sína í þrjár mín- útur til þess að fara á salernið vegna kviðverkja og skilið starfsmann, sem hafði ekki réttindi, eftir við stjórn- völinn. Reglur kveða á um að lest- arstjórinn hefði átt að láta stjórn- stöð vita af salernisferðinni. Hann gerði það hins vegar ekki þar sem honum þótti það pínlegt. Refsað fyrir að fara á salernið í vinnunni Lestarstjórinn var frá í þrjár mínútur. JAPAN Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Vopnahlé Ísraelsríkis og Hamas- samtakanna á Gaza-svæðinu hélt í gær, þrátt fyrir að óeirðir brytust út í Jerúsalem og á Vesturbakkanum. Kom til átaka milli ísraelskra lög- reglumanna og Palestínumanna við al Aqsa-moskuna í Jerúsalem að loknum föstudagsbænum, en svipuð átök voru ein helsta kveikja átak- anna á Gaza-svæðinu fyrir tveimur vikum. Benjamín Netanyahu, forsætis- ráðherra Ísraels, sagði í gær að loft- árásir Ísraelshers á Gaza-svæðið hefðu skilað miklum árangri, og að Ísraelsmenn hefðu varið sig gegn „óþolandi árásargirni“, en leiðtogar Hamas-samtakanna lýstu sömuleiðis yfir „sigri“ í átökunum. Loftárásir Ísraela eru sagðar hafa fellt 243 á Gaza-svæðinu og voru 66 börn sögð þar á meðal af heilbrigð- isráðuneyti svæðisins, sem lýtur stjórn Hamas. Netanyahu sagði hins vegar að nærri 200 vígamenn hefðu verið felldir í loftárásum Ísraela. Á sama tíma skutu Hamas-sam- tökin og aðrir vígamenn rúmlega 4.300 eldflaugum að Ísrael, en mikill meirihluti þeirra náði ekki í gegnum loftvarnarkerfi Ísraela, „járnhvelf- inguna“ svonefndu. Hins vegar féllu tólf manns í heildina, þar af eitt barn, og 357 særðust í eldflaugaárásunum. „Alvörutækifæri“ til friðar Helstu þjóðarleiðtogar heims lýstu yfir ánægju sinni með að vopnahléið, sem Egyptar höfðu milli- göngu um, hefði tekið gildi. „Ég trúi að við höfum nú alvörutækifæri til að ná árangri, og ég mun vinna stað- fastlega að því markmiði,“ sagði Joe Biden Bandaríkjaforseti. Fulltrúar Evrópusambandsins sögðu að eina varanlega lausnin á málefnum Ísraels og Palestínu væri hin svonefnda tveggja ríkja lausn, og Rússar og Kínverjar hvöttu báða að- ila til þess að hefja friðarviðræður á ný. Antony Blinken, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, hyggst funda með utanríkisráðherrum beggja ásamt fulltrúum annarra ríkja í heimshlutanum á næstu dögum til þess að kanna hvernig hægt sé að búa til betri framtíð fyrir bæði Ísr- aela og Palestínumenn. Vopnahléið haldið í heiðri - Ísraelar og Hamas-samtökin lýsa bæði yfir „sigri“ í átökunum á Gaza-svæðinu - Vopnahléið hélt velli þrátt fyrir óeirðir - Kanna möguleika á varanlegum friði AFP Óeirðir Í brýnu sló á milli lögreglunnar í Jerúsalem og mótmælenda við al- Aqsa-moskuna, einn helgasta reit múslima, en nýsamið vopnahlé hélt. Breska ríkis- stjórnin íhugar hvort leggjast þurfi í pólitískar aðgerðir gegn BBC eftir nið- urstöðu rann- sóknar Dysons lávarðar á um- deildu viðtali við Díönu prinsessu. Viðtalið birtist í þætti Panorama árið 1995 og kom fram í niðurstöðum Dysons að það hefði verið tryggt með blekkingum og fölsunum.Viðtalið vakti gríðar- lega athygli á sínum tíma þar sem prinsessan ræddi meðal annars vandamálin í hjónabandi sínu og Karls Bretaprins. Sonur Díönu og Karls, Vilhjálmur Bretaprins, ásakaði BBC fyrir að hafa brugðist móður hans og al- menningi. Hann sagði viðtalið hafa leitt til þess að samband foreldra hans versnaði. Þá sagði Vilhjálmur að sér þætti sorglegast að móðir hans hefði aldrei fengið að vita að ráðskast hefði verið með hana. BBC hefur beðið Vilhjálm og Harry bróður hans formlega afsök- unar á vinnubrögðunum. Íhuga aðgerðir gegn BBC - Vilhjálmur fordæmir viðtalið Díana, prinsessa af Wales.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.