Morgunblaðið - 22.05.2021, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 22.05.2021, Qupperneq 22
Morgunblaðið/RAX Á Reykjavíkurflugvelli Flugvélar Mýflugs flytja hundruð sjúklinga frá landsbyggðinni á Landspítalann ár hvert. BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is F lugvélar eru burðarásinn í sjúkraflugskerfi Íslands. Þær fara mun oftar í sjúkraflug ár hvert en þyrlur Landhelgisgæslunnar, eða í 80% tilvika. Áfangastaður flugsins er langoftast Reykjavíkurflugvöllur, þar sem sjúkling- arnir eru á leið- inni á Landspít- alann, sem er í næsta nágrenni við flugvöllinn. Þetta kemur fram í skýrslu Þorgeirs Páls- sonar, fyrrver- andi flug- málastjóra, sem kom út í ágúst 2017. Jón Gunnarsson, þáverandi samgönguráðherra, fól Þorgeiri að skilgreina og leggja mat á það öryggishlutverk sem Reykjavík- urflugvöllur gegnir, og jafnframt að meta hvernig og hversu vel aðrar staðsetningar flugvallar fyrir höf- uðborgarsvæðið myndu uppfylla þetta hlutverk. Skýrsla Þorgeirs er hér rifjuð upp vegna ummæla Pawels Barto- szeks borgarfulltrúa í blaðinu í gær þess efnis að það væri afstaða Reykjavíkurborgar að flugvöllurinn ætti að víkja úr Vatnsmýrinni. Sagði Pawel að Landhelgisgæslunni yrði ekki leyft að byggja nýtt skýli fyrir flugflota sinn á vellinum, en gamla skýlið er sprungið auk þess sem það uppfyllir í engu kröfur um öryggi og aðbúnað. Pawel bendir á að til skoð- unar sé að útbúa nýjan þyrlupall á vellinum sem þyrlurnar gætu lent á. En hvert færist sjálft sjúkra- flugið? Það er spuringin sem þarf að svara. Til Keflavíkurflugvallar eða á nýjan flugvöll í Hvassahrauni? Fram kemur í skýrslu Þorgeirs að Mýflug hafi um árabil annast sjúkraflug innanlands með aðsetur og miðstöð á Akureyrarflugvelli. Notaðar eru afkastamiklar og hrað- fleygar flugvélar (Beechcraft King Air200), sem henti vel til flugs yfir hálendi Íslands, þar sem þær hafa jafnþrýstibúnað, veita einum til tveimur sjúklingum og áhöfn þægi- legt umhverfi og eru hagkvæmar í rekstri. Flug frá fjarlægustu flug- völlum landsins taki yfirleitt ekki nema eina klukkustund. Árið 2016 voru um það bil 700 sjúklingar fluttir með sjúkraflugi Mýflugs, flestir til Reykjavíkur. Til samanburðar voru 166 sjúklingar fluttir með þyrlum Landhelgisgæslunnar árið 2016. Mikil aukning hefur verið í sjúkraflutningum eða sem nam 50% fimm árin þar á undan, eða um 8,5% á ári. „Reykjavíkurflugvöllur er afar vel í sveit settur við hlið Landspít- alans, sem er oftast endanlegur áfangastaður sjúklinganna. Flugvöll- urinn býður upp á góðar aðflugsleiðir og flugleiðsöguþjónustu auk langra og góðra flugbrauta fyrir þessa stærð flugvéla. Lokun á SV/NA-flugbraut- inni, sem stundum er nefnd neyð- arflugbrautin, hefur þó rýrt verulega möguleikana til að lenda á flugvell- inum í sterkum útsynningi, sem er al- gengur á Suðvesturlandi, sérstaklega á haustin og vorin,“ segir Þorgeir. Gegna veigamiklu hlutverki Hann bendir á að þyrlur Gæsl- unnar gegni veigamiklu hlutverki við flutning á sjúkum og slösuðum. Þær séu fyrst og fremst notaðar þegar aðrar leiðir eru ekki færar til að kom- ast að og sækja sjúkling við erfiðar aðstæður. Þyrlurnar séu fremur hægfleygar og þurfi því nokkurn tíma til að komast á vettvang. Jafn- framt séu þær heftar í blindflugi yfir hálendið vegna takmarkaðrar af- kastagetu ef annar hreyfillinn bilar á flugi. Þyrlur séu einnig mun við- kvæmari fyrir ísingu en flugvélar. „Hins vegar hafa þær ótvíræða kosti þegar sækja þarf slasaðan ein- stakling á torsótta staði eða á vett- vang fjarri nothæfum sjúkraflugvelli auk þess að geta lent við inngang sjúkrahússins. Eðli málsins sam- kvæmt eru þyrlur ekki fyrsti kostur til að koma slösuðum á sjúkrahús frá fjarlægari stöðum á landinu, nema líf liggi við og aðrar leiðir séu ekki fær- ar,“ segir Þorgeir. Flugvélar burðarásar í sjúkraflugskerfinu Þorgeir Pálsson 22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Eigandiónýtshúss við Þórsgötu í Reykjavík hefur í 17 ár leitað leyfis til að rífa það, en án árang- urs. Frásögn hans af við- ureign sinni við Reykjavík- urborg vegna hússins birtist í Morgunblaðinu í gær og er hún líkari skáldskap en veruleika. Guðmundur Kristinsson byggingameistari keypti húsið til þess að rífa það og byggja nýtt árið 2004. Húsið er tæpir 50 fermetrar, klætt bárujárni, og ónýtt. Húsið hefur ugglaust einhvern tímann verið huggulegt, en langt er síðan það var og nú er það blettur á götumynd- inni. Á þessum slóðum hafa mörg ný hús risið og gömul hús vikið fyrir þeim. Sér- staða hússins á Þórsgötu virðist engin vera. Guðmundur lýsir því í samtali við Morgunblaðið hvernig hann hafi lagt fram fjölda fyrirspurna og erinda til borgarinnar. Hann hafi verið með formlegt mat um að húsið væri ónýtt. Aldrei hafi hann þó fengið leyfi til að rífa það. Hann hafi haft hugmyndir um að reisa hús með tíu íbúðum. Þegar teikningarnar þóttu ekki passa inn í götumyndina lét hann laga þær. Þá reyndist gert ráð fyrir of mörgum íbúðum í húsinu að mati borgarinnar, þær mættu ekki vera fleiri en átta. Guð- mundur fækkaði íbúðunum í sjö til að koma til móts við þessar kröfur. Í tvígang hafi hann fengið leyfi til að reisa nýtt hús, en aldrei fengið leyfi til að rífa húsið sem fyrir er. Á meðan hafa árin liðið og húsið drabbast nú niður. Hústökufólk hefur hreiðrað um sig í húsinu. Nú síðast hafði maður sest þar að og safnað að sér gaskútum, olíufötum og bensínbrúsa. Í einu horninu hafði hann komið fyrir kamínu og brenndi í henni pappír og fleira. Afgreiðsla borgarinnar á þessu máli er með ólík- indum. Guðmundur lýsir því að einn embættismaður hafi sagt við sig að hann ætlaði að tefja málið þar til húsið yrði hundrað ára og friðað, en pólitískur fulltrúi sagt í hálfkæringi að hann ætti bara að kveikja í því. „Svona eru móttökurnar sem ég hef fengið hjá þessu liði. Þetta hefur verið tafið fram og til baka og hent til og frá. Það er eins og enginn taki ákvörðun,“ segir Guðmundur í viðtalinu. Það er ekki hægt að una svona afgreiðslu þar sem fólk er látið velkjast í kerf- inu hátt í tvo áratugi án þess að verða neitt ágengt. Það hefur á sér blæ fáránleikans að leyfa byggingu nýs húss, en banna að rífa það sem fyrir er. Hlutverk borgar- kerfisins á að vera að þjóna borgarbúum og það á að vera í fyrirrúmi að gera það hratt og vel. Þetta dæmi vekur þá spurningu hvort ekki eigi einfaldlega að setja mörk á það hversu lengi mál megi velkjast í borgarkerf- inu. Þrautagangan vegna húss- ins á Þórsgötunni er til lítils sóma fyrir borgina, en hún er ekki einsdæmi um þver- girðingshátt og furðulegar uppákomur í borgarkerfinu. Á fimmtudag birtist frétt á mbl.is um íbúa í nýju hverfi í Vogabyggð, sem gert hefur verið að leggja pínulítinn grasblett á einka- lóð sinni. Þessi kvöð á að vera hluti af stefnu borg- arinnar um að leggja áherslu á græn svæði. Þetta mál hef- ur áður verið til umfjöllunar og í fréttinni gagnrýnir Hildur Björnsdóttir, borg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík, skilmála borgarinnar og segir þau skýra birtingarmynd for- ræðishyggju. Fréttinni fylgdi mynd af grasblettinum og virðist hann vera um tveir fermetr- ar bak við grindverk. Gras- blettur þessi er vandræða- legt dæmi um það þegar kerfishyggjan valtar yfir skynsemina. Fyrir nokkrum árum kom skýrsla frá umboðsmanni borgarbúa þar sem rakin voru mörg dæmi um lélega þjónustu. Í skýrslunni kom fram að meira að segja um- boðsmaðurinn var dreginn á svörum í borgarkerfinu. Hér hafa verið nefnd tvö dæmi um það hvernig borg- arkerfið þvælist fyrir í stóru og smáu og menn missa sjónar af tilgangi þess. Það er ekki spurt: „Hvað get ég gert fyrir þig?“ Fremur eru menn látnir bíða í 17 ár og hafa enn ekki fengið svar. Borgarkerfið þvælist fyrir í stóru og smáu} 17 ára bið eftir svari É g hef ákveðið að ráðast í heildar- úttekt á þjónustuferlum, hug- myndafræði, innihaldi og gæðum heilbrigðisþjónustu við ein- staklinga með vímuefna- sjúkdóma. Dr. Helga Sif Friðjónsdóttir mun annast úttektina. Í úttektinni verða einnig skoð- aðir möguleikar á frekari samhæfingu heil- brigðisþjónustu og félagslegrar þjónustu, eink- um með tilliti til endurhæfingar, búsetuúrræða og stuðningsmeðferðar fyrir einstaklinga í bata- ferli. Embætti landlæknis gaf á liðnu ári út sam- antekt um aðgengi að heilbrigðisþjónustu vegna notkunar áfengis og vímuefna. Sam- antektin, sem er byggð á gögnum frá heilbrigð- isstofnunum, undirstrikar fyrst og fremst mik- ilvægi samræmingar í skráningu, viðmiðum og verklagi þegar kemur að meðferð við áfengis- og vímu- efnavanda. Eins og fram kemur í skýrslu embættisins hafa Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin og Sameinuðu þjóð- irnar gefið út viðmið um meðferð vegna vímuefnaneyslu. Þar er m.a. lögð áhersla á að meðferð þurfi að fela í sér þjónustu sem er í boði úti í samfélaginu og nær til jað- arsettra hópa. Ein af tillögum embættis landlæknis er að stefna í áfengis- og vímuvörnum verði endurskoðuð og gildi til ársins 2030 og að stefnunni fylgi tímasett aðgerða- áætlun. Brýnt er að móta nýja stefnu til framtíðar í þessum málaflokki með heildstæðum tillögum um sam- þættingu og samvinnu fyrsta, annars og þriðja stigs heilbrigðisþjónustu þar sem jafnframt yrði skoðaður fýsileiki þess að samþætta heilbrigðis- og félagslega þjónustu gagnvart notendum. Forsenda nýrrar stefnumótunar er heildar- úttekt á núverandi þjónustuferlum, hugmynda- fræði, innihaldi og gæðum heilbrigðisþjónustu við fólk með vímuefnasjúkdóm. Einnig þarf að skoða hvar núverandi heil- brigðisþjónusta byggir á gagnreyndri þekkingu/ klínískum leiðbeiningum og hvar eru brotalamir hvað þetta varðar. Beitt verður aðferðafræði Benchmarking best practice sem nýtist vel til að greina hvaða eiginleikar stofnana/þjónustuveit- enda leiða til hámarksárangurs og einnig til að greina kosti og ókosti núverandi þjónustukerfis og meta hvaða atriði þarf að færa til betri vegar. Hér á landi hefur ekki tekist að stíga nauðsynleg skref í samþættingu heilbrigðis- og félagslegrar þjónustu sem byggist á þeirri hugmyndafræði fíknifræða að vímuefna- vandi hafi lífsálfélagslegar orsakir og því árangursríkast að samþætta og veita heildræna velferðarþjónustu og eft- irfylgd fyrir fólk með vímuefnasjúkdóm. Ég bind miklar vonir við þessa vinnu, sem er löngu tímabær. Úttektin verður svo grundvöllur ákvarðana og aðgerða á þessu mikilvæga sviði velferðarþjónustunnar. Svandís Svavarsdóttir Pistill Úttekt á þjónustu við einstaklinga með vímuefnasjúkdóma Höfundur er heilbrigðisráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.