Morgunblaðið - 22.05.2021, Qupperneq 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021
V
íkingaklúbburinn er Ís-
landsmeistari skákfélaga
fyrir tímabilið 2019-2020
en Íslandsmótið var til
lykta leitt um síðustu helgi í 1. og 2.
deild. Úrslit fyrri hlutans voru látin
gilda í 3. og 4. deild. Víkingaklúbb-
urinn hlaut 53 vinninga af 72 mögu-
legum, SSON varð í 2. sæti með 48
vinninga, Huginn í 3. sæti með 46½
vinning, Fjölnir og TR (a-sveit) í 4.-
5. sæti með 41 vinning og Skákfélag
Akureyrar varð í 6. sæti með 39
vinninga. Öll þessi lið færast upp í
úrvalsdeild sem hefst á hausti kom-
anda en þar verða tefldar tíu um-
ferðir í þrem hrinum keppninnar.
Í 2. deild sigraði Skákdeild KR,
hlaut 30 vinninga af 42. Taflfélag
Vestmannaeyja varð í 2. sæti með
28½ vinning, Skákfélag Akureyrar
(b-sveit) varð í 3. sæti með 27½ vinn-
ing og Skákfélagið Huginn (b-sveit)
varð í 4. sæti með 25½ vinning. Þessi
lið færast upp í hina nýju 1. deild Ís-
landsmótsins.
Margir náðu góðum úrslitum í
seinni hluta keppninnar um helgina.
Hinn 18 ára gamli Vignir Vatnar
Stefánsson náði lokaáfanga sínum að
alþjóðlegum meistaratitli. Héðinn
Steingrímsson og Alexander Oliver
Mai unnu allar skákir sínar og ný-
bakaður Íslandsmeistari, Hjörvar
Steinn Grétarsson, hlaut 3½ vinning
af 4 á 1. borði Hugins og kemst nú
yfir 2600 elo-stig. Þá náði Guðlaug
Þorsteinsdóttir jafntefli í skák sinni
við Jóhann Hjartarson sem var
nokkuð frá sínu besta eftir að hafa
unnið allar fimm skákir sínar í fyrri
helmingi keppninnar haustið 2019.
Íslandsmótið er stíft keyrt áfram,
fjórar skákir á tveim sólarhringum
er fullmikið finnst mörgum.
Þrátt fyrir margar skemmtilegar
skákir og góð tilþrif vakti ein viður-
eign sennilega meiri athygli en aðrar
og fór hún þó fram á einu af neðri
borðum efstu deildar. Báðir kepp-
endur geta státað af eftirtektar-
verðum árangri við skákborðið, t.d.
var Bergsteinn Einarsson í frægu
liði sem vann ólympíugull á Ólymp-
íumóti 16 ára yngri á Kanaríeyjum
árið 1995. Fimm drottningar sáu
dagsins ljós og er það afar fátítt.
Íslandsmót skákfélaga 2019-
2020; 8. umferð:
- Sjá stöðumynd -
Bergsteinn Einarsson (TR ) – Atli
Freyr Kristjánsson (Huginn)
Hvítur vakti upp drottningu á d8 í
síðasta leik sínum og svartur svar-
aði í sömu mynt a1 í leiknum þar á
undan. Hvítur þarf nú að verjast að-
steðjandi máthótun 46. … Dg1+ 47.
Dxg1 Dxg1+ 48. Kh4 Df2+ 49. Kh5
g6 mát. Í ofanálag þarf hann að
berjast við frípeð svarts og til-
tölulega trausta kóngsstöðu svarts.
Góð ráð eru dýr …
46. Dd2 Dg1+
Þetta lítur auðvitað vel út en
einnig kom til greina að leika 46. …
a3.
47. Dxg1 Dxg1+ 48. Kh4 Db1?
Eftir 48. … a3 getur hvítur ekki
stöðvað för a-peðsins vegna sí-
felldra máthótana, t.d. 49. Dd7
Df2+ 50. Kh5 Dxf3+ 51. Kh4
Dxf4+ 52. Kh5 Dg5 mát.
49. Dd7 a3
Hann er enn með unnið en ein-
faldara var 49. … De1+ 50. Kh5
Dg3 o.s.frv.
50. Df7 a2??
Gáir ekki að sér. Vinninginn var
að hafa með 50. … Dg1 51. Kh5
Dg3! o.s.frv.
51. Kh5! Dg1 52. h4! a1(D)
53. Dxg7+! Daxg7
Patt!
Bestum árangri þeirra sem tefldu
sex skákir eða meira, og er þar mið-
að við árangur reiknaðan upp á stig,
náðu Hjörvar Steinn Grétarsson,
2652, Rússinn Anton Demchenko
sem tefldi fyrir SSON 2616 og
Hannes Hlífar Stefánsson 2603.
Björn Þorfinnsson sem tefldi fyrir
Víkingaklúbbinn náði hæsta vinn-
ingshlutfallinu, hlaut 8 vinninga af 9
mögulegum.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Alþjóðlegur meistari Vignir Vatnar Stefánsson sem er 18 ára náði loka-
áfanganum að alþjóðlegum meistaratitli. Skilyrðinu að hafa náð 2400 elo-
stigum náði hann 13 ára gamall.
Víkingaklúbburinn
Íslandsmeistari
skákfélaga
Mannslífsflóran
eykst á Íslandi og
fólki fjölgar af ólíku
þjóðerni og fjölbreyti-
leikinn eykst – og þar
með talið skoðunum á
ýmsum málefnum.
Það er ágæt þróun ef
hugmyndir fá að tak-
ast á og við varð-
veitum frelsið. Sjálfur
giftist ég konu frá
Úkraínu og fékk þess vegna sér-
staka innsýn í heim rétttrún-
aðarkirkjunnar, menningu hennar
og viðhorf.
Að gefnu tilefni er rétt að gera
grein fyrir aðalatriðum þessa við-
horfs. Á trúarlega sviðinu varðveitir
kirkjan trúna eins og hún hefur ver-
ið óskert frá fyrstu tíð og kemur
fram í trúarjátningunni. Á fé-
lagslega sviðinu aðhyllumst við um-
burðarlyndi og umhyggju fyrir lít-
ilmagnanum. Við virðum fólk af öll
trúarbrögðum, kynþáttum, litarhafti
og kyni. Virðum menningu sér-
hverrar þjóðar, sérhverja tungu, er-
um hlynnt vísindum og skyn-
samlegri notkun þeirra og erum
gegn hvers konar öfgum. Konur og
karlar eru jafnrétthá og konan jafn-
vel ívið betri því hún er kóróna sköp-
unarverksins. Þessa hugsun þekka
allir kristnir menn og þarf naumast
að útskýra.
Sem kristnir menn erum við and-
stæð fóstureyðingum og teljum sér-
hvert líf vera Guðs gjöf og mað-
urinn, hvernig sem hann er gerður,
er óendanlega dýrmætur. Við biðj-
um til Guðs að augu manna opnist
fyrir þessu og þeir verndi lífið.
Mér er heiður sem lækni að hafa
þetta viðhorf enda er það hluti af
eiði lækna, svokölluðum Hippókrat-
esareiði, fyrst að valda ekki skaða.
Enn fremur að hafa frið við alla
menn, uppörva, útskýra og hjálpa.
Rétttrúnaðarkristnir biðja í lit-
úrgíu hvern sunnudag fyrir friði um
allan heim, fyrir velsæld allra þjóða,
fyrir ráðamönnum, fyrir vinum, fjöl-
skyldu og óvinum. Við biðum fyrir
sjúkum, einmana og aðskildum og
þeim sem þjást og syrgja.
Þótt kirkjan lifi lífi Krists er sér-
hver maður frjáls að hugsun sinni og
samvisku og enginn er
þvingaður til viðhorfs
eða skoðana. Kirkjan
hefur enga opinbera al-
þjóðlega pólitíska skoð-
un á félagslega sviðinu
og er í mun að allir hafi
aðgang að henni, hverr-
ar skoðunar sem þeir
eru. Hvaða reynslu sem
þeir hafa og sorgir.
Hún hefur aðeins einn
tilgang, sem er að boða
orð Krists.
Sérhver þjóð hefur sína menn-
ingu og réttmætar ástæður til að
vernda hana, sögu sína og tungu.
Þetta viðhorf er einnig í hávegum
haft og álíka mikilvægt og að heimili
fólks njóti verndar.
Fjölbreytileiki mannlífsins hefur
tilgang, hann er eðlilegur og fal-
legur og Guði þóknanlegur sam-
kvæmt Heilagri ritningu.
Trúin á Krist snýst um veru-
leikann, lífið eins og það er í raun,
sannleikann sem er Kristur sjálfur,
hann er vegurinn og lífið sjálft. Lífið
er ekki endilega falið í ástríðufullri
sannfæringu okkar, þótt við höldum
það. Það er hátíðlega orðað, en það
er sígilt og rétt og undirstrikar að
mönnum er sjaldnast akkur í því að
búa sér til sinn eigin sannleika.
Margar stefnur eru til af því tagi,
sprottnar úr hugsunum og ástríðum
mannsins eða draumi um betra og
réttlátara líf. Það er í sjálfu sér
skiljanlegt en í ljósi sögunnar verð-
ur að fara varlega. Það virðist vera
hin endalausa ástríða manna að
temja náungann svo hann geri, hagi
sér og hugsi eins og maður sjálfur
vill. En í raun þarf engan að sann-
færa, því maðurinn fer sjálfviljugur
þangað sem hann er elskaður og
virtur.
Ég er kristinnar trúar
Eftir Guðmund
Pálsson
»Mér er heiður sem
lækni að hafa þetta
viðhorf enda er það hluti
af eiði lækna, svoköll-
uðum Hippokratesar-
eiði, fyrst að valda ekki
skaða.
Guðmundur Pálsson
Höfundur er heilsugæslulæknir.
Eggert Thorarensen for-
stjóri var fæddur á Móeiðar-
hvoli í Hvolhr., Rang., 26. maí
1921. Foreldrar hans voru
hjónin Óskar Þorsteinsson
Thorarensen, bóndi og hrepp-
stjóri á Breiðabólsstað í Fljóts-
hlíðarhr., Rang., síðar forstjóri
Bifreiðastöðvar Reykjavíkur,
og Ingunn Eggertsdóttir Thor-
arensen húsfreyja.
Eggert útskrifaðist sem
stúdent 1940 frá Mennta-
skólanum í Reykjavík og lauk
fyrri hluta lögfræðiprófs 1944.
Hann starfaði sem leigu-
bifreiðastjóri og síðar skrif-
stofumaður. Árið 1953 tók hann
við starfi forstjóra BSR og
gegndi því til ársins 2000.
Hann reisti m.a. tvennar höf-
uðstöðvar og jók reksturinn
jafnt og þétt.
Eggert lék knattspyrnu með
Víkingi og fótboltafélagi BSR,
sat í stjórn Heimdalls, félags
ungra sjálfstæðismanna í
Reykjavík, frá 1946 til 1951 og
tók virkan þátt í starfi Sjálf-
stæðisflokksins eftir það. Egg-
ert var minnugur og fjölfróður,
farsæll viðskiptamaður og naut
hvarvetna trausts og álits.
Kona Eggerts var Krist-
björg G. Thorarensen hús-
móðir, sonur þeirra er Guð-
mundur Börkur Thorarensen,
framkvæmdastjóri BSR.
Eggert lést 30. mars 2008.
Merkir Íslendingar
Eggert
Thorarensen
SKVÍSAÐU ÞIG UPP
FYRIR SUMARIÐ
STÆRÐIR 1428
Sundkjóll
15.990 kr
Stærðir 42-56
Bikiní haldari
8.990 kr
C-H skálar
Bikiní haldari
8.990 kr
Stærðir 42-54
Verslunin CURVY | Fellsmúla 26 við Grensásveg, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is
Verð