Morgunblaðið - 22.05.2021, Side 29
UMRÆÐAN 29Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021
AKUREYRARKIRKJA | Laugardagurinn 22.
maí:
Fermingarmessur kl. 10.30 og 13.30. Prestur
er Svavar Alfreð Jónsson. Félagar úr Kór Akureyr-
arkirkju syngja. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson.
Hvítasunnudagur 23. maí: Fermingarmessur kl.
10.30 og 13.30. Prestur er Svavar Alfreð Jóns-
son. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Org-
anisti er Eyþór Ingi Jónsson.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta og ferming
kl. 11, sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar
og þjónar fyrir altari. Kór Árbæjarkirkju syngur
undir stjórn Krisztinu Kalló Szklenár organista.
ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta og ferming kl. 11.
Séra Sigurður Jónsson sóknarprestur prédikar
og þjónar fyrir altari ásamt Jóhönnu Maríu Eyj-
ólfsdóttur djákna. Kór Áskirkju syngur, organisti
er Bjartur Logi Guðnason. Guðsþjónusta á hjúkr-
unarheimilinu Skjóli kl. 13.
ÁSTJARNARKIRKJA | Laugardagur 22. maí kl.
11. Fermingarguðsþjónusta.
Hvítasunnudagur. Guðsþjónusta kl. 17. Davíð
Sigurgeirsson leiðir tónlist og sr. Kjartan Jóns-
son annast prestsþjónustu. Grímuskylda.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta
kl. 11. Sr. Magnús Björn Björnsson þjónar. Kór
Breiðholtskirkju syngur, organisti er Örn Magn-
ússon. Alþjóðlegi söfnuðurinn kl. 14. Sr. Toshiki
Toma þjónar.
BÚSTAÐAKIRKJA |
Hvítasunnudagur. Fermingarguðsþjónusta kl.
10.30. Kammerkór Bústaðakirkju syngur undir
stjórn kantors Jónasar Þóris. Vegna aðstæðna
er lítið rými fyrir aðra en fjölskyldur fermingar-
barna. Þennan dag er messan kl. 10.30 en ann-
ars eru messur í sumar kl. 20 á sunnudögum.
DÓMKIRKJAN | Fermingarmessa hvítasunnu-
dag kl. 11. Prestar séra Elínborg Sturludóttir og
Sveinn Valgeirsson. Dómkórinn og Kári Þormar,
dómorganisti. Æðruleysismessa kl. 20, séra
Díana Ósk, séra Fritz Már og séra Sveinn þjóna.
Kristján Hrannar leikur á flygilinn. Á annan í
hvítasunnu er guðþjónusta klukkan 11, séra
Sveinn Valgeirsson prédikar og þjónar, Dómkór-
inn og Kári Þormar er dómorganisti.
FELLA- og Hólakirkja | Æskulýðsguðsþjón-
usta kl. 20 í samstarfi við kristilega skólahreyf-
ingu. Sr. Pétur Ragnhildarson þjónar fyrir altari
og sr. Sigurður Már Hannesson skólaprestur
predikar. Hljómsveit KSS flytur tónlist og leikur
undir söng. Boðið upp á léttar veitingar eftir
stundina.
Fermingaguðsþjónusta kl. 11. Sr. Pétur Ragn-
hildarsson þjónar. Kór kirkjunnar syngur undir
stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fermingarmessur
hvítasunnudag 23. maí kl. 12 og 14. Sr. Hjörtur
Magni Jóhannsson safnaðarprestur þjónar fyrir
altari. Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn við
Tjörnina leiða sönginn ásamt Gunnari Gunnars-
syni.
GLERÁRKIRKJA | Hvítarsunnudagur. Hátíð-
arguðþjónusta kl. 11. Sr. Sindri Geir Óskarsson
þjónar. Kór Glerárkirkju syngur undir stjórn Val-
mars Väljaots organista.
GRAFARVOGSKIRKJA | Hvítasunnudag 23.
maí. Guðsþjónustan kl. 11. Sr. Grétar Halldór
Gunnarsson prédikar og þjónar fyrir altari. Org-
anisti er Hákon Leifsson. Kór Grafarvogskirkju
leiðir söng.
GRENSÁSKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta á
hvítasunnudag kl. 11. Organisti er Ásta Haralds-
dóttir, félagar úr kór Grensáskirkju leiða almenn-
an messusöng. Messuþjónar þjóna ásamt sr.
Evu Björk Valdimarsdóttur. Við minnum á kyrrð-
arstundina alla þriðjudaga kl 12.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Ferming-
arguðsþjónusta hvítasunnudag 23. maí kl.
10.30. Prestur er Leifur Ragnar Jónsson sem
þjónar og prédikar fyrir altari. Organisti er Hrönn
Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju syngur. Kirkju-
vörður er Guðný Aradóttir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Hvítasunnudagur:
Fermingarathafnir kl. 11 og 13. Kristný Rós
Gústafsdóttir, djákni, flytur hugleiðingu. Prestar:
Irma Sjöfn Óskarsdóttir og Sigurður Árni Þórð-
arson. Messuþjónar aðstoða. Forsöngvari:
Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað. Organisti: Björn
Steinar Sólbergsson. Umsjón barnastarfs:
Ragnheiður Bjarnadóttir og Rósa Árnadóttir. 2. í
hvítasunnu: Orgelandakt kl. 11. Grétar Einars-
son flytur hugleiðingu. Prestur: Sigurður Árni
Þórðarson. Björn Steinar Sólbergsson leikur á
orgelið.
HÁTEIGSKIRKJA | Hvítasunnudagur kl. 10.30.
Ferming.
Hvítasunnudagur kl. 13.30. Ferming.
Annar í hvítasunnu kl. 10.30. Ferming.
Í öllum athöfnum syngur Kordía, kór Háteigs-
kirkju og Jón Hafsteinn Guðmundsson leikur á
trompet. Organisti er Guðný Einarsdóttir og
prestar Eiríkur Jóhannsson og Helga Soffía Kon-
ráðsdóttir.
Hjúkrunarheimilið Skjól | Guðsþjónusta kl.
13. Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar
fyrir altari. Organisti er Bjartur Logi Guðnason.
Almennur söngur.
HÓLANESKIRKJA Skagaströnd | Hvíta-
sunnudagur, messa kl. 13. Fermd verður Stein-
unn Kristín Valtýsdóttir. Prestur: Bryndís Val-
bjarnardóttir. Organisti: Hugrún Sif
Hallgrímsdóttir. Söngur: Sigríður Stefánsdóttir,
Halldór Ólafsson og Ingibjörg María Reynisdóttir
KEFLAVÍKURKIRKJA | Fermingarmessa
sunnudaginn 23. maí kl. 11. Arnór Vilbergsson
er organisti og Elmar Þór Hauksson færa okkur
fallega tónlist og söng. Sr. Erla og sr. Fritz Már
þjóna fyrir altari. Fjölskyldur fermingarbarna sér-
staklega velkomnar.
KIRKJUVOGSKIRKJA Höfnum | Guðsþjón-
usta kl. 12.20 þann 23. maí næstkomandi. Sr.
Brynja Vigdís mun þjóna til altaris og félagar úr
kirkjukórnum leiða söng undir stjórna Stefáns H.
Kristinssonar organista.
Við minnum á fjöldatakmarkanir Almannavarna.
KÓPAVOGSKIRKJA | Hátíðarhelgistund á
hvítasunnudag kl. 11 í safnaðarheimilinu Borg-
um. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir þjónar fyrir altari og
félagar úr kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn
Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar.
LANGHOLTSKIRKJA | Fermingarmessa kl. 11
á hvítasunnudag. Ath. enginn sunnudagaskóli,
en fjölskyldumessa og vorhátíð 30.5. kl. 11. Fé-
lagar úr Kór Langholtskirkju syngja undir stjórn
Magnúsar Ragnarssonar organista. Guðbjörg
Jóhannesdóttir og Aldís Rut Gísladóttir prestar
kirkjunnar þjóna.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 20. Kór Lindakirkju leið-
ir lofgjörð undir stjórn Óskars Einarssonar. Sr.
Dís Gylfadóttir þjónar.
NESKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta hvíta-
sunnudag kl. 11. Sungið verður hátíðartón sr.
Bjarna Þorsteinssonar. Félagar úr Kór Neskirkju
syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar
organista. Prestar eru Skúli S. Ólafsson og
Steinunn A. Björnsdóttir.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Tónlistarkvöld-
messa 24. maí, annan í hvítasunnu kl. 20. At-
hugið breyttan messutíma. Séra Pétur Þor-
steinsson þjónar og Krisján Hrannar sér um kór
og tónlist.
SELJAKIRKJA | Fermingarguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 13. Við guðsþjónustuna verða
vígð nýr hökull og stólur sem Margrét Björk Andr-
ésdóttir gaf Seljakirkju til minningar um eigin-
mann sinn Aðalstein Viðar Júlíusson. Aðalsteinn
vann fórnfúst starf í þágu kirkju og kristni á Ís-
landi í mörg ár og átti sæti í sóknarnefnd Selja-
sóknar síðustu æviárin.
Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson þjónar við guðs-
þjónustuna, félagar úr Kór Seljakirkju leiða safn-
aðarsöng og Tómas Guðni Eggertsson leikur á
orgelið.
SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Sóknarprestur þjónar. Organisti kirkjunnar
leikur á orgelið. Félagar úr Kammerkór Seltjarn-
arneskirkju syngja. Safnaðarferð að Fitjum í
Skorradal og í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Lagt af
stað kl. 11.15.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Hátíðar- og ferm-
ingarmessa hvítasunnudag kl. 14. Sjö börn
fermd. Sr. Egill Hallgrímsson annast prestsþjón-
ustuna. Skálholtskórinn syngur. Organisti er Jón
Bjarnason. Sungnir verða hátíðasöngvar sr.
Bjarna Þorsteinssonar.
VÍDALÍNSKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta á
hvítasunnu. Fullskipaður kór Vídalínskirkju flyt-
ur, undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar, þrjá
sálma eftir Jón Ásgeirsson. Sr. Henning Emil
Magnússon prédikar og þjónar. Athöfninni verð-
ur streymt á Facebook-síðu Vídalínskirkju.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Hátíðar-
helgistund á hvítasunnudagskvöld kl. 20. Kór
Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þór-
dísar organista og sr. Gunnlaugur Stefánsson
þjónar með aðstoð messuþjóna kirkjunnar.
Aðalsafnaðarfundur verður haldinn sunnudag-
inn 30. maí kl. 18. Dagskrá: Venjulega aðalfund-
arstörf.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Guðsþjónusta kl. 11
þann 23. maí næstkomandi. Sr. Brynja Vigdís
mun þjóna til altaris og félagar úr kirkjukórnum
leiða söng undir stjórna Stefáns H. Kristinsson-
ar organista. Við minnum á fjöldatakmarkanir Al-
mannavarna.Við munum streyma beint frá guðs-
þjónustunni í Ytri-Njarðvíkurkirkju á Facebook
síðu okkar. https://www.facebook.com/njar-
dvikurprestkall
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Auðkúlukirkja við Svínavatn, Austur-Húnavatnssýslu.
Hörmungar hafa
dunið yfir Palest-
ínumenn á Gaza und-
anfarna daga. Ísrael
mátti að sama skapi
þola linnulausar eld-
flaugaárásir frá Gaza.
Ísraelsmenn svöruðu
eldflaugaárásum af
hörku. Vopnahléi er
fagnað. Fórnarlömb
stríðsrekstrar eru sem
fyrr almennir borgarar. Saklaus
börn liggja í valnum. Í þessum
heimshluta er víða ófriðlegt. Í Jem-
en er rekinn miskunnarlaus stríðs-
rekstur þar sem rúmlega 3.000 börn
hafa látið lífið og ekki sér fyrir end-
ann á stríði sem hefur geisað í sex
ár. Stríð sem fært hefur mestu
hörmungar á síðari tímum yfir eina
þjóð. Sádi-Arabar bera ábyrgð á því
að drepa þar konur og börn og
leggja hungursneyð á heila þjóð.
Á Gaza-ströndinni hafa Hamas-
samtökin haldið um stjórnartaum-
ana síðan 2006. Á 15 ára valdatíma
hafa engar kosningar farið fram. Á
þessum árum hafa Palestínumenn á
Gaza gengið í gegnum þrjú stríð við
Ísrael. Afleiðingarnar eru skelfileg-
ar, mikið mannfall meðal saklausra
borgara og gríðarlegt eignatjón.
Annar hver Palestínumaður þjáist í
dag af áfallastreituröskun. Að sama
skapi búa íbúar í suðurhluta Ísraels
við daglegan ótta um eldflaugar frá
Gaza.
Palestínumenn á Gaza á móti
stefnu Hamas gagnvart Ísrael
Samkvæmt tveimur skoðanakönn-
unum sem gerðar voru meðal Pal-
estínumanna á Gaza fyrir rúmum
tveimur árum er meirihluti íbúanna
á móti stefnu Hamas-samtakanna
gagnvart Ísrael eða 62% þeirra. Að
minnsta kosti helmingur styður frið-
arsamning við Ísrael. Á
sama tíma neitar Ha-
mas að viðurkenna Ísr-
aelsríki. Meirihluti tel-
ur einnig að Hamas eigi
að hætta að kalla eftir
eyðingu Ísraelsríkis en
þess í stað einbeita sér
að tveggja ríkja lausn-
inni til friðar. Þegar
spurt er hver beri
mesta ábyrgð á ástand-
inu á Gaza segir meiri-
hlutinn að Hamas og
palestínsk stjórnvöld í Ramallah
beri mesta ábyrgð. Einungis 27%
segja Ísrael bera mesta ábyrgð. Það
sem kemur sérstaklega á óvart í
þessum könnunum er að meirihluti
Palestínumanna vill að ísraelsk
fyrirtæki hefji starfsemi á Gaza og
ráði Palestínumenn í vinnu. Kann-
anirnar voru gerðar 3.-15. október
2018 af palestínsku stofnuninni Pa-
lestine Center for Public Opinion,
sem er með aðsetur í Betlehem.
Áður en ég tók sæti á Alþingi
haustið 2017 starfaði ég við flótta-
mannahjálp Sameinuðu þjóðanna
fyrir Palestínumenn í Mið-
Austurlöndum. Á Gaza tók ég eitt
sinn eldri Palestínumann tali og
spurði hann um ástandið á Gaza.
Hann svaraði: „Lífið var betra fyrir
tíma Hamas.“
Eftir Birgi
Þórarinsson
Birgir Þórarinsson
» Á Gaza tók ég eitt
sinn eldri Palest-
ínumann tali og spurði
hann um ástandið á
Gaza. Hann svaraði:
„Lífið var betra fyrir
tíma Hamas.“
Höfundur er þingmaður
Miðflokksins.
birgirth@althingi.is
„Lífið var betra
fyrir tíma Hamas“
Allt um sjávarútveg
malbikstodin.is | 864 1220 | Flugumýri 26 | Mosfellsbær
VIÐ ERUMSÉRFRÆÐINGAR Í
MALBIKUN
Malbikunarframkvæmdir eru okkar sérsvið. Við tökum að
okkur malbikun á bílastæðum, stígum, götum, vegum og hvar
sem þarf að malbika. Við tryggjum fyrirtaks þjónustu sem
svarar ýtrustu gæða- og öryggiskröfum. Hafðu samband.
Aðalfundur
Aðalfundur Vörubílastöðvarinnar Þróttar hf. verður haldinn
að Sævarhöfða 12, fimmtudaginn 3. júní 2021 kl. 19:00.
Dagskrá fundarins samkv. samþykktum félagsins.
Vörubílastöðin Þróttur hf.