Morgunblaðið - 22.05.2021, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 22.05.2021, Qupperneq 29
UMRÆÐAN 29Messur á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021 AKUREYRARKIRKJA | Laugardagurinn 22. maí: Fermingarmessur kl. 10.30 og 13.30. Prestur er Svavar Alfreð Jónsson. Félagar úr Kór Akureyr- arkirkju syngja. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson. Hvítasunnudagur 23. maí: Fermingarmessur kl. 10.30 og 13.30. Prestur er Svavar Alfreð Jóns- son. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Org- anisti er Eyþór Ingi Jónsson. ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta og ferming kl. 11, sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Árbæjarkirkju syngur undir stjórn Krisztinu Kalló Szklenár organista. ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta og ferming kl. 11. Séra Sigurður Jónsson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Jóhönnu Maríu Eyj- ólfsdóttur djákna. Kór Áskirkju syngur, organisti er Bjartur Logi Guðnason. Guðsþjónusta á hjúkr- unarheimilinu Skjóli kl. 13. ÁSTJARNARKIRKJA | Laugardagur 22. maí kl. 11. Fermingarguðsþjónusta. Hvítasunnudagur. Guðsþjónusta kl. 17. Davíð Sigurgeirsson leiðir tónlist og sr. Kjartan Jóns- son annast prestsþjónustu. Grímuskylda. BREIÐHOLTSKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta kl. 11. Sr. Magnús Björn Björnsson þjónar. Kór Breiðholtskirkju syngur, organisti er Örn Magn- ússon. Alþjóðlegi söfnuðurinn kl. 14. Sr. Toshiki Toma þjónar. BÚSTAÐAKIRKJA | Hvítasunnudagur. Fermingarguðsþjónusta kl. 10.30. Kammerkór Bústaðakirkju syngur undir stjórn kantors Jónasar Þóris. Vegna aðstæðna er lítið rými fyrir aðra en fjölskyldur fermingar- barna. Þennan dag er messan kl. 10.30 en ann- ars eru messur í sumar kl. 20 á sunnudögum. DÓMKIRKJAN | Fermingarmessa hvítasunnu- dag kl. 11. Prestar séra Elínborg Sturludóttir og Sveinn Valgeirsson. Dómkórinn og Kári Þormar, dómorganisti. Æðruleysismessa kl. 20, séra Díana Ósk, séra Fritz Már og séra Sveinn þjóna. Kristján Hrannar leikur á flygilinn. Á annan í hvítasunnu er guðþjónusta klukkan 11, séra Sveinn Valgeirsson prédikar og þjónar, Dómkór- inn og Kári Þormar er dómorganisti. FELLA- og Hólakirkja | Æskulýðsguðsþjón- usta kl. 20 í samstarfi við kristilega skólahreyf- ingu. Sr. Pétur Ragnhildarson þjónar fyrir altari og sr. Sigurður Már Hannesson skólaprestur predikar. Hljómsveit KSS flytur tónlist og leikur undir söng. Boðið upp á léttar veitingar eftir stundina. Fermingaguðsþjónusta kl. 11. Sr. Pétur Ragn- hildarsson þjónar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fermingarmessur hvítasunnudag 23. maí kl. 12 og 14. Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson safnaðarprestur þjónar fyrir altari. Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina leiða sönginn ásamt Gunnari Gunnars- syni. GLERÁRKIRKJA | Hvítarsunnudagur. Hátíð- arguðþjónusta kl. 11. Sr. Sindri Geir Óskarsson þjónar. Kór Glerárkirkju syngur undir stjórn Val- mars Väljaots organista. GRAFARVOGSKIRKJA | Hvítasunnudag 23. maí. Guðsþjónustan kl. 11. Sr. Grétar Halldór Gunnarsson prédikar og þjónar fyrir altari. Org- anisti er Hákon Leifsson. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. GRENSÁSKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta á hvítasunnudag kl. 11. Organisti er Ásta Haralds- dóttir, félagar úr kór Grensáskirkju leiða almenn- an messusöng. Messuþjónar þjóna ásamt sr. Evu Björk Valdimarsdóttur. Við minnum á kyrrð- arstundina alla þriðjudaga kl 12. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Ferming- arguðsþjónusta hvítasunnudag 23. maí kl. 10.30. Prestur er Leifur Ragnar Jónsson sem þjónar og prédikar fyrir altari. Organisti er Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju syngur. Kirkju- vörður er Guðný Aradóttir. HALLGRÍMSKIRKJA | Hvítasunnudagur: Fermingarathafnir kl. 11 og 13. Kristný Rós Gústafsdóttir, djákni, flytur hugleiðingu. Prestar: Irma Sjöfn Óskarsdóttir og Sigurður Árni Þórð- arson. Messuþjónar aðstoða. Forsöngvari: Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað. Organisti: Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón barnastarfs: Ragnheiður Bjarnadóttir og Rósa Árnadóttir. 2. í hvítasunnu: Orgelandakt kl. 11. Grétar Einars- son flytur hugleiðingu. Prestur: Sigurður Árni Þórðarson. Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgelið. HÁTEIGSKIRKJA | Hvítasunnudagur kl. 10.30. Ferming. Hvítasunnudagur kl. 13.30. Ferming. Annar í hvítasunnu kl. 10.30. Ferming. Í öllum athöfnum syngur Kordía, kór Háteigs- kirkju og Jón Hafsteinn Guðmundsson leikur á trompet. Organisti er Guðný Einarsdóttir og prestar Eiríkur Jóhannsson og Helga Soffía Kon- ráðsdóttir. Hjúkrunarheimilið Skjól | Guðsþjónusta kl. 13. Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Bjartur Logi Guðnason. Almennur söngur. HÓLANESKIRKJA Skagaströnd | Hvíta- sunnudagur, messa kl. 13. Fermd verður Stein- unn Kristín Valtýsdóttir. Prestur: Bryndís Val- bjarnardóttir. Organisti: Hugrún Sif Hallgrímsdóttir. Söngur: Sigríður Stefánsdóttir, Halldór Ólafsson og Ingibjörg María Reynisdóttir KEFLAVÍKURKIRKJA | Fermingarmessa sunnudaginn 23. maí kl. 11. Arnór Vilbergsson er organisti og Elmar Þór Hauksson færa okkur fallega tónlist og söng. Sr. Erla og sr. Fritz Már þjóna fyrir altari. Fjölskyldur fermingarbarna sér- staklega velkomnar. KIRKJUVOGSKIRKJA Höfnum | Guðsþjón- usta kl. 12.20 þann 23. maí næstkomandi. Sr. Brynja Vigdís mun þjóna til altaris og félagar úr kirkjukórnum leiða söng undir stjórna Stefáns H. Kristinssonar organista. Við minnum á fjöldatakmarkanir Almannavarna. KÓPAVOGSKIRKJA | Hátíðarhelgistund á hvítasunnudag kl. 11 í safnaðarheimilinu Borg- um. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir þjónar fyrir altari og félagar úr kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar. LANGHOLTSKIRKJA | Fermingarmessa kl. 11 á hvítasunnudag. Ath. enginn sunnudagaskóli, en fjölskyldumessa og vorhátíð 30.5. kl. 11. Fé- lagar úr Kór Langholtskirkju syngja undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar organista. Guðbjörg Jóhannesdóttir og Aldís Rut Gísladóttir prestar kirkjunnar þjóna. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta kl. 20. Kór Lindakirkju leið- ir lofgjörð undir stjórn Óskars Einarssonar. Sr. Dís Gylfadóttir þjónar. NESKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta hvíta- sunnudag kl. 11. Sungið verður hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar. Félagar úr Kór Neskirkju syngja undir stjórn Steingríms Þórhallssonar organista. Prestar eru Skúli S. Ólafsson og Steinunn A. Björnsdóttir. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Tónlistarkvöld- messa 24. maí, annan í hvítasunnu kl. 20. At- hugið breyttan messutíma. Séra Pétur Þor- steinsson þjónar og Krisján Hrannar sér um kór og tónlist. SELJAKIRKJA | Fermingarguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 13. Við guðsþjónustuna verða vígð nýr hökull og stólur sem Margrét Björk Andr- ésdóttir gaf Seljakirkju til minningar um eigin- mann sinn Aðalstein Viðar Júlíusson. Aðalsteinn vann fórnfúst starf í þágu kirkju og kristni á Ís- landi í mörg ár og átti sæti í sóknarnefnd Selja- sóknar síðustu æviárin. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson þjónar við guðs- þjónustuna, félagar úr Kór Seljakirkju leiða safn- aðarsöng og Tómas Guðni Eggertsson leikur á orgelið. SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sóknarprestur þjónar. Organisti kirkjunnar leikur á orgelið. Félagar úr Kammerkór Seltjarn- arneskirkju syngja. Safnaðarferð að Fitjum í Skorradal og í Hallgrímskirkju í Saurbæ. Lagt af stað kl. 11.15. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Hátíðar- og ferm- ingarmessa hvítasunnudag kl. 14. Sjö börn fermd. Sr. Egill Hallgrímsson annast prestsþjón- ustuna. Skálholtskórinn syngur. Organisti er Jón Bjarnason. Sungnir verða hátíðasöngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar. VÍDALÍNSKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta á hvítasunnu. Fullskipaður kór Vídalínskirkju flyt- ur, undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar, þrjá sálma eftir Jón Ásgeirsson. Sr. Henning Emil Magnússon prédikar og þjónar. Athöfninni verð- ur streymt á Facebook-síðu Vídalínskirkju. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Hátíðar- helgistund á hvítasunnudagskvöld kl. 20. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þór- dísar organista og sr. Gunnlaugur Stefánsson þjónar með aðstoð messuþjóna kirkjunnar. Aðalsafnaðarfundur verður haldinn sunnudag- inn 30. maí kl. 18. Dagskrá: Venjulega aðalfund- arstörf. YTRI-Njarðvíkurkirkja | Guðsþjónusta kl. 11 þann 23. maí næstkomandi. Sr. Brynja Vigdís mun þjóna til altaris og félagar úr kirkjukórnum leiða söng undir stjórna Stefáns H. Kristinsson- ar organista. Við minnum á fjöldatakmarkanir Al- mannavarna.Við munum streyma beint frá guðs- þjónustunni í Ytri-Njarðvíkurkirkju á Facebook síðu okkar. https://www.facebook.com/njar- dvikurprestkall Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Auðkúlukirkja við Svínavatn, Austur-Húnavatnssýslu. Hörmungar hafa dunið yfir Palest- ínumenn á Gaza und- anfarna daga. Ísrael mátti að sama skapi þola linnulausar eld- flaugaárásir frá Gaza. Ísraelsmenn svöruðu eldflaugaárásum af hörku. Vopnahléi er fagnað. Fórnarlömb stríðsrekstrar eru sem fyrr almennir borgarar. Saklaus börn liggja í valnum. Í þessum heimshluta er víða ófriðlegt. Í Jem- en er rekinn miskunnarlaus stríðs- rekstur þar sem rúmlega 3.000 börn hafa látið lífið og ekki sér fyrir end- ann á stríði sem hefur geisað í sex ár. Stríð sem fært hefur mestu hörmungar á síðari tímum yfir eina þjóð. Sádi-Arabar bera ábyrgð á því að drepa þar konur og börn og leggja hungursneyð á heila þjóð. Á Gaza-ströndinni hafa Hamas- samtökin haldið um stjórnartaum- ana síðan 2006. Á 15 ára valdatíma hafa engar kosningar farið fram. Á þessum árum hafa Palestínumenn á Gaza gengið í gegnum þrjú stríð við Ísrael. Afleiðingarnar eru skelfileg- ar, mikið mannfall meðal saklausra borgara og gríðarlegt eignatjón. Annar hver Palestínumaður þjáist í dag af áfallastreituröskun. Að sama skapi búa íbúar í suðurhluta Ísraels við daglegan ótta um eldflaugar frá Gaza. Palestínumenn á Gaza á móti stefnu Hamas gagnvart Ísrael Samkvæmt tveimur skoðanakönn- unum sem gerðar voru meðal Pal- estínumanna á Gaza fyrir rúmum tveimur árum er meirihluti íbúanna á móti stefnu Hamas-samtakanna gagnvart Ísrael eða 62% þeirra. Að minnsta kosti helmingur styður frið- arsamning við Ísrael. Á sama tíma neitar Ha- mas að viðurkenna Ísr- aelsríki. Meirihluti tel- ur einnig að Hamas eigi að hætta að kalla eftir eyðingu Ísraelsríkis en þess í stað einbeita sér að tveggja ríkja lausn- inni til friðar. Þegar spurt er hver beri mesta ábyrgð á ástand- inu á Gaza segir meiri- hlutinn að Hamas og palestínsk stjórnvöld í Ramallah beri mesta ábyrgð. Einungis 27% segja Ísrael bera mesta ábyrgð. Það sem kemur sérstaklega á óvart í þessum könnunum er að meirihluti Palestínumanna vill að ísraelsk fyrirtæki hefji starfsemi á Gaza og ráði Palestínumenn í vinnu. Kann- anirnar voru gerðar 3.-15. október 2018 af palestínsku stofnuninni Pa- lestine Center for Public Opinion, sem er með aðsetur í Betlehem. Áður en ég tók sæti á Alþingi haustið 2017 starfaði ég við flótta- mannahjálp Sameinuðu þjóðanna fyrir Palestínumenn í Mið- Austurlöndum. Á Gaza tók ég eitt sinn eldri Palestínumann tali og spurði hann um ástandið á Gaza. Hann svaraði: „Lífið var betra fyrir tíma Hamas.“ Eftir Birgi Þórarinsson Birgir Þórarinsson » Á Gaza tók ég eitt sinn eldri Palest- ínumann tali og spurði hann um ástandið á Gaza. Hann svaraði: „Lífið var betra fyrir tíma Hamas.“ Höfundur er þingmaður Miðflokksins. birgirth@althingi.is „Lífið var betra fyrir tíma Hamas“ Allt um sjávarútveg malbikstodin.is | 864 1220 | Flugumýri 26 | Mosfellsbær VIÐ ERUMSÉRFRÆÐINGAR Í MALBIKUN Malbikunarframkvæmdir eru okkar sérsvið. Við tökum að okkur malbikun á bílastæðum, stígum, götum, vegum og hvar sem þarf að malbika. Við tryggjum fyrirtaks þjónustu sem svarar ýtrustu gæða- og öryggiskröfum. Hafðu samband. Aðalfundur Aðalfundur Vörubílastöðvarinnar Þróttar hf. verður haldinn að Sævarhöfða 12, fimmtudaginn 3. júní 2021 kl. 19:00. Dagskrá fundarins samkv. samþykktum félagsins. Vörubílastöðin Þróttur hf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.