Morgunblaðið - 22.05.2021, Page 34

Morgunblaðið - 22.05.2021, Page 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021 Það er hálfóraun- verulegt að setjast niður við tölvuna til að fara að skrifa minningargrein um litlu systur sína. Eftir tiltölulega stutta en hetjulega baráttu við krabbamein hefur hún nú kvatt okkur og gengið á vit ævintýra sem enginn á að þurfa að vitja svo snemma á lífsleiðinni. Edda var oft og tíðum sjálfri sér næg og gat hún setið tímunum saman og látið sig dreyma um allt milli himins og jarðar. Mér er það sérstaklega minnisstætt þegar við áttum páfagauk en einn daginn flaug hann eins og brjálaður væri út um allt. Ég man hvernig ég og vinur minn lokuðum okkur af inni í stofu og þorðum ekki fram. Þeg- ar við komum loks fram var Edda uppi á stól inni í eldhúsi, starði á fuglinn og kyssti hann svo á gogg- inn og brosti. Mér finnst þessi saga svo lýsandi fyrir þann per- sónuleika og góðu nærveru sem Edda hafði alveg frá því hún var lítið barn. Ég hef sagt börnunum mína þessa sögu og mun segja Heru Lind hana þegar hún eldist ásamt fleiri sögum af mömmu hennar. Edda hafði þennan eiginleika að vera róleg og yfirveguð og gef- ast aldrei upp sama hvað gekk á. Hún tæklað allar sínar stærstu hindranir með jákvæðni að leið- arljósi og nýtti öll tækifæri til að fagna og lifa lífinu til fulls. Hún var lík pabba okkar hvað þetta varðar en þau voru í einu og öllu alveg ótrúlega lík og hafði Edda það á orði fyrir stuttu að hún væri nú orðin óþarflega lík honum pabba okkar í útliti. Edda átti þann draum heitast- an að eignast fjölskyldu enda móðureðlið meðfætt. Stuttu eftir að hafa eignast Heru Lind þurfti Edda að takast á við sömu barátt- una við krabbameinið og við höfð- um fylgt pabba okkar í gegnum fyrir rúmum tíu árum. Rétt eins og pabbi hafði gert tókst Edda á Edda Þöll Hauksdóttir ✝ Edda Þöll Hauksdóttir fæddist í Reykjavík 31. júlí 1989. Hún lést 5. maí 2021. Út- för Eddu fór fram 19. maí 2021. við baráttuna við krabbameinið á op- inskáan hátt þar sem hún leyfði ætt- ingjum og vinum að fylgja sér í gegnum ferlið þar sem hún sagði frá upplifun sinni, líðan, áskorun- um, markmiðum og sigrum. Það var aldrei í boði að gef- ast upp, hún ætlaði að rústa þessu. Haraldur eiginmaður Eddu var stoð og stytta við hlið hennar í einu og öllu og voru veikindin þar engin undantekning. Samband þeirra var einstakt og lýsa síðustu orð Eddu til Haraldar, „Þú ert nú meiri sauðurinn,“ á einhvern hátt meiri ást en orðin ég elska þig hefðu nokkurn tímann geta túlkað á þessari stundu. Síðustu mánuði vorum við mörg hver það lánsöm að hafa fengið að vinna heima með Eddu en krabbameinið sem var þá kom- ið í höfuðið og óafvitandi í mænu var þess eðlis að hún mátti ekki vera ein. Þetta var mjög dýrmæt- ur tími sem mér þykir óskaplega vænt um að hafa fengið að njóta með Eddu. Edda sagði reglulega við mig þegar ég var hjá henni: „Þú verður auðvitað að sinna þinni vinnuskyldu.“ Það eru orð að sönnu að fyrir kærleikann sé greitt með sorginni og með sorg og söknuði i hjarta verður að segjast að nú hafir þú Edda mín lokið þinni vinnu- skyldu. Nú tökum við ástvinir þín- ir við keflinu og pössum upp á hana Heru Lind og varðveitum með henni minninguna um þig, þitt fallega hjarta og hlýju nær- veru sem fylgdi þér alla tíð. Hvíl í friði Edda mín. Arinbjörn Hauksson. Elsku yndislega másan mín. Brosmilda og ljúfa Edda. Þau hafa verið þung skrefin síðustu daga í litlu fjölskyldunni okkar. Þetta er svo sárt og svo óréttlátt. Í aðstæðum sem þessum getur maður ekki annað en staldr- að við og hugsað um lífið og til- veruna. Þegar ég geri það er ég þakklát fyrir þann tíma sem við áttum saman, sérstaklega þann tíma þegar við vorum tvær og spjölluðum um heima og geima. Þú varst mikil baráttukona og það var svo aðdáunarvert að sjá þig opna umræðuna fyrir Tilveru að maður fylltist miklu stolti. Bar- áttukona sem ruddi veg fyrir aðra, lét ekki segja sér að gefast upp og gaf af sér. Við ræddum mikið um hvað þig langaði svo að gera þegar endurhæfingu væri lokið og þú varst sannfærð um að nýta þína reynslu til þess að hjálpa öðrum. Þegar maður lítur yfir farinn veg sér maður að þú hefur sennilega nú þegar hjálpað heilmörgum. Samband ykkar Haraldar hef- ur alltaf verið einstakt frá upphafi og ég hef alltaf verið handviss um að þið hafið verið hið fullkomna „match“. Litla ljósið ykkar hún Hera Lind mun fá að heyra allar fallegu sögurnar ykkar. Ein af mínum síðustu og góðu minningum var þegar við horfð- um saman á viðtalið hjá Opruh við Megan og Harry upp á 11-E, en þá vorum við búnar að koma okk- ur vel fyrir og ætluðum að vera tímanlega í að stilla inn á viðtalið þegar við föttum að afruglarinn á Landspítalanum var frosinn. Við reyndum eins og við gátum að finna leið til þess að setja viðtalið á og náðum á endanum að horfa á það saman í ipadinum. Ég er ekki frá því að 3-4 hjúkkur á deildinni hafi kíkt inn til þín til þess að spyrja hvort við værum búnar að redda þessu. Þær voru auðvitað búnar að tengjast þér og sjá roya- listann í þér. En ég held að ég hafi ekki getað fengið betri meðhorf- anda á þáttinn þar sem þú varst alls staðar með á nótunum og eftir þáttinn fórstu enn dýpra með alla söguna en sjálf Oprah og búin að greina þetta allt frá A til Ö. Það var svo gaman að sjá hvernig þú hreifst og snertir við fólki hvar sem þú varst eða hvert sem þú fórst. Edda hafði svo fallega og bjarta sál sem bar mikla virðingu fyrir öllu. Hún var í raun fagmað- ur fram í fingurgóma í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Edda var líka gömul sál sem kunni öll trixin í bókinni hvað varðar þrif, eldamennsku eða önnur heimilis- störf. Í veikindunum fannstu kraftinn í því að geta dundað smá í eldhúsinu, mallað súpu svo tímun- um skipti eða bakað ljúffengar pönnsur svo Hera gæti fengið að njóta dýrindiskaffitíma eftir leik- skóla. Edda bjó yfir ólýsanlegri yfir- vegun og æðruleysi gagnvart líf- inu og krabbameininu. Þú varst okkur hinum sönn fyr- irmynd og hefur kennt okkur svo margt. Ég mun alltaf geyma þig í huga og hjarta mér og veit þú verður alltaf með okkur. Hvíldu í friði elsku Edda mín. Þín Lára. Það er þyngra en tárum taki að þurfa að kveðja þig elsku Edda okkar. Þú varst tekin allt of snemma frá okkur öllum eftir stutta en erfiða baráttu við krabbamein. Þú áttir allt lífið fram undan, aðeins 31 árs gömul. Elsku Hera Lind, þessi litli sól- argeisli sem bræðir alla, er búin að missa mömmu sína og elsku Haraldur er búinn að missa ástina sína. Við sitjum eftir brotin en um leið svo þakklát fyrir allar minn- ingarnar og árin með þér elsku Edda okkar. Þegar þú komst inn í fjölskyld- una fyrir 13 árum var Haraldur búinn að finna hina fullkomnu kærustu að okkar mati. Þú varst ekki aðeins falleg, skemmtileg með yndislega nærveru, heldur varstu líka húsmæðraskólagengin sem gerði það að verkum að hann Haraldur datt sko heldur betur í lukkupottinn að næla í þig. Samband ykkar Haraldar var mjög náið og einkenndist af mikl- um kærleika og ást. Þið voruð ein- faldlega fullkomin fyrir hvort annað og miklir stuðpinnar. Húm- orinn ykkar var einstakur, það var alltaf svo gaman að vera í kringum ykkur og endalaust hægt að fíflast og hlæja með ykk- ur. Það sannaðist mjög fljótt hversu mikil barnagæla þú varst. Strax í upphafi varstu farin að passa börnin okkar systra og þú þráðir ekkert heitar en að eignast sjálf fullt af börnum. Það sýnir hversu lífið getur verið hverfult að þú, sem hafðir barist fyrir því að eignast barn, skyldir svo veikjast af brjósta- krabbameini nokkrum mánuðum eftir að elsku Hera Lind kom í heiminn. Þið Milla systir voruð mjög nánar og styrktuð hvor aðra í sameiginlegri baráttu við þetta illvíga mein. Þú sigraðir að lokum en því miður kom reiðarslag í febrúar þegar þú greindist aftur og var baráttan byrjuð upp á nýtt. Við dáðumst alltaf að styrk og æðruleysi ykkar Haraldar í veik- indunum. Það sem einkenndi þig var já- kvæðni og óbilandi trú á að þú kæmist yfir þessi alvarlegu veik- indi. Þú varst í grunninn einlæg, glaðvær og með risastórt hjarta. Trú og sönn. Það var ofboðsleg harka og dugnaður sem dreif þig áfram í þessari baráttu. Í allri sorginni varstu alltaf svo jákvæð og hamingjusöm. Þú ætlaðir aldr- ei að gefast upp. Mikið erum við þakklátar fyrir þann tíma sem við fengum að hafa þig í fjölskyldunni okkar og fyrir þann tíma sem við áttum með þér. Það er örstutt síðan við sátum saman vongóðar um að þú næðir bata og ræddum framtíðina. Við söknum þín sárt elsku Edda okkar. Þú varst yndisleg vinkona og dýrmætur hlekkur í fjölskyldunni og snertir alla í kringum þig. Við elskum þig og guð geymi þig. Við vitum að þér líður vel núna, sameinuð pabba þínum sem þú saknaðir svo mikið og elsku Millu systur. Við kveðjum þig elsku Edda okkar. Í huga okkar er þér batn- að, þú ert björt og falleg, kemur á móti okkur með opinn faðminn og hlæjandi eins og alltaf. Þú kennd- ir okkur að lífið er núna! Við minnum okkur á það á hverjum degi. Elsku Haraldur, Hera Lind, Hera, Arinbjörn, Lára, Inga Björk, Berglind og Bjössi okkar, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Missir ykkar er mestur og biðjum við Guð að styrkja ykkur í sorg ykkar. Berglind og Birna. Falleg stúlka í næsta húsi þú varst, með liðað hár og augun fag- urblá. Hlátur þinn fangaði hvers manns athygli, því með honum fylgdi ávallt bros. Bros sem gerði myrkan dag að björtum degi, því aldrei var hægt að vita á hvaða uppákomum væri von – á þeim degi. Þú klæddist gjarnan bleiku og með hárið fínt, saklaus út á við og kurteis. Með ákveðni þinni fórstu þínar leiðir, þrátt fyrir að þú vissir oft betur. Hvern dag sástu sem tækifæri til að kanna nýja hluti – helst ein- hverja sem voru bannaðir, í okkar tilfellum. Þú varst vinkona mín, vinkona mín sem ég vildi halda í höndina á alla daga. Við vorum E-in tvö og stóðum við bakið hvor á annarri í blíðu og stríðu. Ég hugsaði ávallt fallega til þín og fann að þú gast skilið mig þeg- ar enginn annar gerði það. Við vorum samferða frá barni í ung- ling – og mættum saman erfið- leikum sem áttu eftir að móta okkur restina af lífinu. Ég er svo vængbrotin því ég sakna þín ólýsanlega mikið. Þú hefur alltaf verið besta vinkona mín þrátt fyrir að lífið leiddi okk- ur sína í hvora áttina með árun- um. Með fögnuði og hlýju tókstu hinu glaðlega í lífinu – með þraut- Lífið gengur sinn vanagang og lífs- klukkan tifar. Dag- ur rennur í kjölfar nætur og þannig heldur lífið áfram. Þrátt fyrir þessar staðreyndir er lífið hverfullt og vissum breytingum undirorpið. Mannlegir máttar- stólpar sem eru aflgjafar og hvat- ar í lífi okkar og hafa gefið lífinu gildi vilja gjarnan verða óhagg- anlegir og eilífir í huga okkar. Hafi þeir verið okkur til gleði og hvatningar reiknum við einfald- lega með návist þeirra án frávika. Þær fréttir bárust 7. febrúar sl. að Ragnheiður Þorvaldsdóttir, ljósmóðir og góð vinkona, hefði kvatt þennan heim. Það er eins og heimurinn haldi niðri í sér andanum um stund meðan við meðtökum þessi sorglegu tíðindi. Lífið mun verða öðruvísi án Ragnheiður Þorvaldsdóttir ✝ Ragnheiður Þorvaldsdóttir fæddist 28. júlí 1957. Hún lést 7. febrúar 2021. Útför Ragnheið- ar fór fram í kyrr- þey 16. febrúar 2021. hennar fyrir svo marga. Mestur er missirinn fyrir fjöl- skyldu hennar og sorglegt að hún fái ekki notið barna- barnanna sinna sem hún eignaðist ný- lega og voru skírð við útför hennar. Sjálf á ég Ragn- heiði margt að þakka. Hún stóð með sínu fólki hvað sem á bjátaði og hopaði hvergi. Það var gott að eiga hana að. Við unnum saman á fæðingar- deildinni í mörg ár og deildum bæði gleði og sorg. Við vissum báðar að við áttum traustan vin hvor í annarri. Nú er Ragheiður horfin úr þessum heimi. Elsku Ragnheiður mín. Ég sakna þín úr vinnunni, sakna sím- talanna, heimsóknanna, kaffihús- anna. Ég vona að þú sért frjáls að taka á móti mér þegar þessari jarðvist lýkur. Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu þinnar sem nú á um sárt að binda. Kristín Sigurðardóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HANNA HALLDÓRSDÓTTIR, Skjóli hjúkrunarheimili, áður Skólavörðustíg 41, lést mánudaginn 3. maí. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 26. maí klukkan 13. Halldór H. Hilmarsson Renata Martincevic Guðmundur Rúnar Þórisson Halldóra K. Mjöll Kristinsdóttir Birgir Heiðar Þórisson Jóhanna Ólöf Jóhannsdóttir Sigríður Ellen Þórisdóttir Ari Jónsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLDÓRA EDDA JÓNSDÓTTIR, Otrateigi 32, Reykjavík, lést sunnudaginn 16. maí umvafin ást og friði. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju 27. maí klukkan 15. Sigurður Þorkell Árnason Jón Viðar Sigurðsson Katrín Dóra Valdimarsdóttir Steinunn Viðar Sigurðard. Páll Hjalti Hjaltason Magnús Viðar Sigurðsson Ilmur Kristjánsdóttir Þorvaldur Sigurðsson Herdís Ástráðsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN G. ÞORLEIFSDÓTTIR frá Þverá, Eyja- og Miklaholtshreppi, lést í Brákarhlíð í Borgarnesi 18. maí. Athöfnin fer fram frá Borgarneskirkju laugardaginn 29. maí klukkan 11. Jarðsett verður í Miklaholtskirkjugarði. Þökkum góða aðhlynningu og auðsýnda samúð. Streymt verður frá athöfninni á slóðinni https://youtu.be/GjD61qoxNhI Ásgeir Gunnar Jónsson Guðrún Anna Gunnarsdóttir Alda Svanhildur Gísladóttir Guðmundur Þ. Jónsson Halldór Kr. Jónsson Áslaug S. Guðmundsdóttir Sigurður R. Jónsson Ragnheiður Lýðsdóttir Súsanna Þ. Jónsdóttir Gylfi Sigurðsson Sólveig Gyða Jónsdóttir Jón Ásgeir Einarsson og fjölskyldur Ástkær faðir okkar og afi, ÓLAFUR INGIMAR JÓNSSON flugvélaviðhaldstæknifræðingur, lést í Ostrava í Tékklandi 3. maí. Útförin fer fram frá Seljakirkju föstudaginn 28. maí klukkan 13 en einnig verður streymt frá seljakirkja.is. Aðstandendur afþakka blóm og kransa en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Elín, Ólafur Jón, Jakob, Ólöf Kristín, Björn Sigþór, Ómar Ari og Justin Leifur Ólafsbörn og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR JÓNATAN JÓHANNSSON sjómaður, Brúarflöt 2, Akranesi, lést sunnudaginn 16. maí á Heilbrigðis- stofnun Vesturlands á Akranesi. Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 25. maí klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verður athöfnin með nánustu aðstandendum og vinum, þeim sem vilja koma er bent á að hafa samband við Jóhann, sími 823-3106 eða Ragnheiði, sími 867-1676. Athöfninni verður streymt af vef Akraneskirkju, www.akraneskirkja.is. Sérstakar þakkir fær starfsfólk lyflækningadeildar HVE fyrir góða umönnun og hlýtt viðmót. Elísabet Karlsdóttir Rúna Björk Sigurðardóttir Björn Olgeirsson Jóhann Þór Sigurðsson Fjóla Lúðvíksdóttir Hrefna Sigurðardóttir Karvel Karvelsson Hulda Ragnarsdóttir Magnús Kristjánsson Sigurður Ragnarsson Elín Rós Sveinsdóttir Magni Ragnarsson Írena Bjarnadóttir Vignir Ragnarsson og afabörnin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.