Morgunblaðið - 22.05.2021, Síða 36

Morgunblaðið - 22.05.2021, Síða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021 Öðlingur sem snerti strengi í hjörtum okkar sem tengdumst honum fjölskylduböndum er fallinn frá. Fyrstu minningar um hann tengjast heimsóknum vestur, vestur í Stykkishólm á heimili þeirra Birnu frænku okk- ar. Allir voru velkomnir í húsið til þeirra sem hann hafði byggt fyrir fjölskylduna, bjart, nútímalegt og rúmgott. Hörður var glaðvær, heilsaði alltaf með brosi. Seinna eftir að Herði hafði verið falið nýtt starf í Reykjavík tengjast fleiri minningar heim- sóknum þeirra Birnu og Harðar á Nýbýlaveg til foreldra okkar á sjöunda og áttunda áratugum. Hörður hafði hannað innrétting- arnar, meðal annars eldhúsinn- réttinguna með rúmgóðum eld- húskrók. Þar var kringlótt borð sem alltaf mátti bæta við einum stól þegar glatt var á hjalla. Hörður var sérlega útsjónarsam- ur, fylgdist vel með nýjungum og kom hugmyndum sínum í fram- kvæmd. Móðir okkar kunni vel að meta þær sem voru til að bæta vinnuumhverfið í eldhúsinu. Til dæmis var bakarofninn í augn- hæð, neðri skápur geymdi hræri- vélina á þar til gerðu útdragan- legu lyftiborði og við hliðina á ruslaskápnum var mjó en há skúffa með slá fyrir viskustykkin og hillu fyrir uppþvottalöginn. Húsasmíðameistaranum Herði var fleira til lista lagt. Hann kunni ekki aðeins að hanna og smíða, heldur var hann einnig listfengur. Allt lék í höndum hans, hvort sem hann var að sníða, skera, skrifa, teikna eða mála. Í fjölskyldunni eru mál- verk, lampar og ýmsir aðrir hlut- ir sem hann skapaði, gjafir til okkar sem allir bera vott um framúrskarandi handbragð. Hörður var einstaklega bóngóð- ur og örlátur á hjálp og ráð um allt sem hús, viðhald og viðgerðir snerti. Hörður Agnar Kristjánsson ✝ Hörður Agnar Kristjánsson fæddist 26. apríl 1936. Hann lést 9. maí 2021. Útför Harðar var 18. maí 2021. Hörður og Birna voru nánir vinir for- eldra okkar. Fjöl- skyldurnar ferðuð- ust saman, fyrst um landið okkar. Við í Skoda og með tjald en þau í „rúgbrauð- inu“. Eftir að börnin voru flogin úr hreiðrunum ferðuð- ust þau einnig sam- an erlendis. Okkur þótti afar vænt um að þau Hörður komu og fögnuðu með okkur á lengsta degi síðasta árs, þegar faðir okkar hefði orðið 100 ára. Hörður var brosmildur og glaðsinna að vanda. Hann kemur okkur í hug þegar góðs manns er getið, af minningu hans stafar hlýju, birtu og gleði. Við sendum Birnu frænku okkar, sonum þeirra Bjarna Lárusi, Kristjáni og fjölskyldum þeirra hugheilar samúðarkveðjur. Sigríður Ella, Bjarni Pétur og Sigrún Kristín Magnúsar- og Pollubörn. Í dag þegar við kveðjum elsku- legan frænda og vin streyma fram í hugann ljúfar minningar frá liðnum árum. Harðar verður sárt saknað af mörgum, enda einkar gæskuríkur og glaðsinna, samt í allri hógværð sinni, og manni leið vel í návist hans. Hjálpsemi hans og velvilja var einnig viðbrugðið og nutum við þess eins og margir aðrir. Heimili Harðar og Birnu var rómað fyrir gestrisni, sem engin takmörk hafði, þau voru samhent í öllu og studdu hvort annað í blíðu og stríðu. Það var í senn aðdáanlegt og lærdómsríkt, í miklum veikindum þeirra beggja síðustu árin, að verða vitni að því hvernig þau, hönd í hönd, tóku mótlætinu. Baráttuna skyldi heyja með bjartsýni og hressu viðmóti að vopni. Í heimsóknum til Harðar og Birnu, eftir að þau fluttu suður, kom ávallt í ljós hvaða sess Hólmurinn átti í huga þeirra og þau ræktuðu tengslin vel. Fólkið þeirra hefur alltaf haldið vel saman, og sótt styrk hvert frá öðru, en sjálf voru Hörður og Birna í aðalhlutverki á þessu sviði. Í minningunni voru árin fyrir vestan skemmtileg í stórum hópi ættingja og vina, þar stofnuðu þau heimili sitt og byggðu sér, kornung, glæsilegt einbýlishús sem Hörður teiknaði sjálfur. Það kom fáum á óvart að Hörður legði smíðarnar fyrir sig, völund- argenin bönkuðu upp á og hæg voru heimatökin þar sem faðir hans og bróðir höfðu félagsskap um smíðar og verkstæðisskúrinn á lóðinni þeirra, og reynslubank- inn efldist við smíðar af ýmsum toga. Þarna varð síðar til Trésmiðj- an Ösp þar sem Hörður var einn stofnenda og lykilmaður fyrir- tækisins. Eitt af stóru verkum Asparinnar var bygging Laugar- gerðisskóla, en þar var Hörður eftirlitsmaður og byggingastjóri alls verksins. Skipulagt verklag hans og lempni féll vel að slíku stjórnunarstarfi og svo fór að hann varð einn af eftirlitsmönn- um með byggingum hins opin- bera. Í Hólminum tók Hörður virkan þátt í félagsmálum og sat m.a. tvö kjörtímabil í bæjar- stjórn. Það voru ár mikilla um- svifa og byggingarframkvæmda hjá bænum, og því ekki ónýtt að hafa reynslu hans og þekkingu þar innanborðs. Honum voru skipulagsmál sérlega hugleikin og var hann, í þeim efnum, fram- sýnn en líka raunsær, og þótt Hörður væri fylginn sér flutti hann mál sitt ætíð af eðlislægri kurteisi og virðingu fyrir öðrum skoðunum. Með slíkum er gott og árangursríkt að vinna. Hörður sýndi ungur að árum listræna hæfileika með pensil og blýant og þessa meðfæddu hæfi- leika þróaði hann með árunum, og liggja eftir hann mörg falleg málverk og teikningar og oftar en ekki var Hólmurinn hans myndefnið. Og í tæplega sjötíu ár hafa félagar í Snæfelli borið, með stolti, merkið sem Hörður gaf þeim, en merkið fallega og stíl- hreina hannaði hann og valdi lit- ina, þar er Snæfellsjökull baðað- ur í sólskini séður frá sælu- reitnum, Ytra-Skógarnesi. Á kveðjustundu þökkum við fyrir að hafa átt Hörð að frænda og vini og víst er að gleði hans og hlýja mun lifa áfram með okkur. Við biðjum góðan Guð að blessa elsku Birnu, Bjarna Lárus, Kristján Þór og fjölskyldur þeirra og veita þeim styrk. Takk fyrir allt, Hörður minn. Jóhanna og Ellert. Elsku besti Hörður er nú fall- inn frá. Minningarnar streyma fram og ég reyni að skrifa niður nokkur saknaðarorð. Þegar ég hugsa um farinn veg, þá hrein- lega man ég einungis eftir honum í góðu skapi. Hörður hafði ein- staklega hlýja nærveru og erfitt væri að finna jafn umburðarlynd- an og góðhjartaðan mann. Hörð- ur var hæfileikabúnt, handlaginn smiður og listamaður við strig- ann. Hann var einkar skilnings- ríkur og hjálpsamur allri stórfjöl- skyldunni. Hörður var stoð og stytta Biddu frænku og það var fallegt að sjá hvað þau hjónin voru samheldin alla tíð. Þau hjónin hafa alltaf sýnt okkur afkomendum Ellu ömmu mikinn kærleik. Þeirra dyr hafa ævinlega staðið okkur opnar, kaffibollinn og kræsingarnar dregnar fram á borðið í snatri og svo var spjallað um allt milli him- ins og jarðar. Ég má til með að minnast þess þegar Bidda bakaði eða réttara sagt ofbakaði hjóna- bandssæluna í eitt skiptið, en kakan var svo hörð að ég gant- aðist með að rota mætti mann með henni. Við hlógum dátt sam- an og gerðum grín en honum fannst auðvitað hjónabandssælan best þegar hún var mikið bökuð. Hörður sýndi áhugamálum af- komenda sinna mikinn áhuga og iðulega fékk maður að heyra af afrekum þeirra allra, stórum sem smáum. Veikindin settu auðvitað strik í reikninginn undir það síðasta. Þótt heilsunni hrakaði vantaði samt aldrei jákvæðnina og æðru- leysið, hann Hörður kunni ekki að kvarta. Ég kveð nú með miklum trega en þakklæti fyrir allar góðu stundirnar. Minni kæru frænku Biddu, sem og öllum aðstandend- um, votta ég mína dýpstu samúð. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Málfríður Eva (Lillý). Elsku Hörður, það er margt sem mig langar að segja en á erf- itt með að koma orðum að. Þú hefur ávallt verið stór hluti af lífi mínu og fjölskyldunnar. Mamma sagði að ég hefði verið lítil stelpa þegar ég sagðist vera stelpan þín, mér fannst vænt um að heyra það því ég lít alltaf á mig sem stelp- una ykkar Birnu. Ég á margar minningar af góðum samveru- stundum. Ég var heimalningur í Æsufellinu þar sem ég fékk að gista og vera í góðu yfirlæti, ein með ykkur Birnu og fékk að skot- tast með í sumarbústaðinn ykk- ar, Lágholt. Ég man líka eftir laufabrauðsgerð í Æsufellinu þar sem þið Birna skiptust á að útbúa listaverk úr laufabrauði og sama hversu klaufsk ég var, þá fannst þér ég standa mig vel. Þegar ég var lítil var ég líka heppin að fá að fara með ykkur til Stykkishólms, ferðir á rauða kagganum, Volvo- inum, sem mér fannst mjög flott- ur og þú í gráa jakkanum og oftar en ekki með penna í brjóstvas- anum. Það var spennandi að fara með ykkur því þá fékk ég peru- brjóstsykur og brenni á leiðinni og auðvitað ís í Borgarnesi. Ég er innilega þakklát fyrir að síðustu 13 árin bjuggum við ná- lægt ykkur og börnin mín fengu að sjá ykkur nánast daglega fyrstu ár ævi þeirra og þú tókst að þér að vera afi þeirra. Lilja Þórdís mín átti erfitt með að segja Hörður afi svo þú gekkst undir nafninu Bidda afi fyrstu ár- in hjá krökkunum. Þú átt stóran hlut í hjarta þeirra og minnist Lilja Þórdís þín sem afa sem var svo góður og elskaðir Biddu ömmu mikið. Bjarki Örn sagði að afi hefði verið eitt af því besta í lífi sínu og þú gafst Bryndísi Láru minni mikinn innblástur, hana langar að mála eins og afi og eru til margar myndir eftir hana hérna heima þar sem hún var að herma eftir myndum sem þú varst að vinna að. Okkur fannst gaman að fá að sjá mynd- irnar sem þú varst að mála og sjá breytingarnar sem þær tóku dag frá degi. Þú varst handlaginn og vandvirkur og ég geymi öll um- slög og kort sem þú hefur skraut- skrifað fyrir börnin í tilefni skírna og afmæla. Þú varst stoltur af strákunum þínum og barnabörnum og það var gaman að heyra frá því hvað fjölskyldan var að gera. Við Guð- jón munum sakna spjallsins, þú varst alltaf jákvæður með góðan húmor, hnyttinn og með ljúfan hlátur. Öllum leið vel í kringum þig. Við munum ávallt sakna þín og í hvert sinn sem við sjáum fallegt sólarlag þá vitum við að þú hefur verið fenginn til að mála á sjálfan himnastrigann með þinni ein- stöku snilli. Berglind Lóa Sigurðardóttir. Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Sálm. 86.7 biblian.is Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig því að þú bænheyrir mig. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát elskulegrar móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, MATTHILDAR ÓSKARSDÓTTUR, Njarðarvöllum 2, Reykjanesbæ. Sérstakar þakkir til starfsfólks Nesvalla fyrir hlýju og umhyggju í hennar garð. Anna Pálína Árnadóttir Karl Einar Óskarsson Þuríður Árnadóttir Rúnar Helgason Kolbrún Árnadóttir Jóhann Bjarki Ragnarsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi okkar, EINAR BJÖRGVIN KRISTINSSON, Strikinu 2, Garðabæ, lést á hjartadeild Landspítalans þriðjudaginn 11. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug. Steinunn Sigþórsdóttir Auður Einarsdóttir Ásbjörn Gíslason Einar Snær Ásbjörnsson Katrín Káradóttir Andri Steinn Ásbjörnsson Viktor Orri Ásbjörnsson Ásdís Eva Ásbjörnsdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýndan hlýhug og samúð vegna andláts og útfarar okkar yndislegu og elskuðu eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR GÍSLADÓTTUR, Sléttuvegi 31, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks og gesta í Múlabæ, dagþjónustu aldraðra, Guðfinnu Björnsdóttur sjúkraþjálfara og starfsfólks Heilsugæslunnar í Efstaleiti, fyrir einstaka alúð og umönnun. Vilhjálmur Þór Ólafsson Ólafur Vilhjálmsson Anna Erla Þorsteinsdóttir Rúnar Þór Vilhjálmsson Jóna Rán Ingadóttir Gísli Már Vilhjálmsson Þórdís Einarsdóttir Eva Vilhjálmsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, MÖRTU KRISTÍNAR BÖÐVARSDÓTTUR, Akurtröðum, Eyrarsveit. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Fellaskjóli fyrir hlýju og umhyggju í hennar garð. Már Hinriksson Jóhanna Guðrún Gissurard. Finnur Magni Hinriksson Jónheiður Guðrúnard. Haralds Þorkell Gunnar Þorkelsson Olga Sædís Einarsdóttir Sigurður Þorkelsson Dagný Jeremíasdóttir Gerður Jensdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Þökkum innilega samúð og vináttu við andlát og jarðarför dóttur minnar, systur okkar, stjúpsystur og mágkonu, HALLVEIGAR FRÓÐADÓTTUR. Hólmfríður Kofoed-Hansen Ragna Fróðadóttir Björn Fróðason Lovísa V. Bryngeirsdóttir Hólmfríður Fróðadóttir Ingólfur Þorsteinsson Þorbjörg Kristinsdóttir Hanna Valdís Þorsteinsdóttir Sheer El-Showk Okkar ástkæra móðir, dóttir, tengdamóðir, systir, mágkona og amma, SIGRÍÐUR KATRÍN ÞORBJÖRNSDÓTTIR, Mýrarvegi 113, Akureyri, lést á heimili sínu þriðjudaginn 18. maí. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 28. maí klukkan 13. Athöfninni verður einnig streymt, hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat. Guðrún Vala Árnadóttir Stefán Vilberg Leifsson Helga Bogadóttir Sandra Dís Leifsdóttir Hafþór Jónasson Díana Ósk Leifsdóttir Anton Sigurðsson Þorbjörn Ásgeirsson Guðrún Jensdóttir Linda Antonsdóttir Bjarni Valtýsson Jens Þorsteinsson Hrafnhildur Þórisdóttir Ásgeir Þorbjörnsson Guðrún Maronsdóttir og barnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.