Morgunblaðið - 22.05.2021, Page 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021
Öðlingur sem
snerti strengi í
hjörtum okkar sem
tengdumst honum
fjölskylduböndum
er fallinn frá. Fyrstu minningar
um hann tengjast heimsóknum
vestur, vestur í Stykkishólm á
heimili þeirra Birnu frænku okk-
ar. Allir voru velkomnir í húsið til
þeirra sem hann hafði byggt fyrir
fjölskylduna, bjart, nútímalegt
og rúmgott. Hörður var glaðvær,
heilsaði alltaf með brosi.
Seinna eftir að Herði hafði
verið falið nýtt starf í Reykjavík
tengjast fleiri minningar heim-
sóknum þeirra Birnu og Harðar
á Nýbýlaveg til foreldra okkar á
sjöunda og áttunda áratugum.
Hörður hafði hannað innrétting-
arnar, meðal annars eldhúsinn-
réttinguna með rúmgóðum eld-
húskrók. Þar var kringlótt borð
sem alltaf mátti bæta við einum
stól þegar glatt var á hjalla.
Hörður var sérlega útsjónarsam-
ur, fylgdist vel með nýjungum og
kom hugmyndum sínum í fram-
kvæmd. Móðir okkar kunni vel að
meta þær sem voru til að bæta
vinnuumhverfið í eldhúsinu. Til
dæmis var bakarofninn í augn-
hæð, neðri skápur geymdi hræri-
vélina á þar til gerðu útdragan-
legu lyftiborði og við hliðina á
ruslaskápnum var mjó en há
skúffa með slá fyrir viskustykkin
og hillu fyrir uppþvottalöginn.
Húsasmíðameistaranum
Herði var fleira til lista lagt.
Hann kunni ekki aðeins að hanna
og smíða, heldur var hann einnig
listfengur. Allt lék í höndum
hans, hvort sem hann var að
sníða, skera, skrifa, teikna eða
mála. Í fjölskyldunni eru mál-
verk, lampar og ýmsir aðrir hlut-
ir sem hann skapaði, gjafir til
okkar sem allir bera vott um
framúrskarandi handbragð.
Hörður var einstaklega bóngóð-
ur og örlátur á hjálp og ráð um
allt sem hús, viðhald og viðgerðir
snerti.
Hörður Agnar
Kristjánsson
✝
Hörður Agnar
Kristjánsson
fæddist 26. apríl
1936. Hann lést 9.
maí 2021.
Útför Harðar
var 18. maí 2021.
Hörður og Birna
voru nánir vinir for-
eldra okkar. Fjöl-
skyldurnar ferðuð-
ust saman, fyrst um
landið okkar. Við í
Skoda og með tjald
en þau í „rúgbrauð-
inu“. Eftir að börnin
voru flogin úr
hreiðrunum ferðuð-
ust þau einnig sam-
an erlendis.
Okkur þótti afar vænt um að
þau Hörður komu og fögnuðu
með okkur á lengsta degi síðasta
árs, þegar faðir okkar hefði orðið
100 ára. Hörður var brosmildur
og glaðsinna að vanda. Hann
kemur okkur í hug þegar góðs
manns er getið, af minningu hans
stafar hlýju, birtu og gleði. Við
sendum Birnu frænku okkar,
sonum þeirra Bjarna Lárusi,
Kristjáni og fjölskyldum þeirra
hugheilar samúðarkveðjur.
Sigríður Ella, Bjarni Pétur
og Sigrún Kristín
Magnúsar- og Pollubörn.
Í dag þegar við kveðjum elsku-
legan frænda og vin streyma
fram í hugann ljúfar minningar
frá liðnum árum. Harðar verður
sárt saknað af mörgum, enda
einkar gæskuríkur og glaðsinna,
samt í allri hógværð sinni, og
manni leið vel í návist hans.
Hjálpsemi hans og velvilja var
einnig viðbrugðið og nutum við
þess eins og margir aðrir.
Heimili Harðar og Birnu var
rómað fyrir gestrisni, sem engin
takmörk hafði, þau voru samhent
í öllu og studdu hvort annað í
blíðu og stríðu. Það var í senn
aðdáanlegt og lærdómsríkt, í
miklum veikindum þeirra beggja
síðustu árin, að verða vitni að því
hvernig þau, hönd í hönd, tóku
mótlætinu. Baráttuna skyldi
heyja með bjartsýni og hressu
viðmóti að vopni. Í heimsóknum
til Harðar og Birnu, eftir að þau
fluttu suður, kom ávallt í ljós
hvaða sess Hólmurinn átti í huga
þeirra og þau ræktuðu tengslin
vel. Fólkið þeirra hefur alltaf
haldið vel saman, og sótt styrk
hvert frá öðru, en sjálf voru
Hörður og Birna í aðalhlutverki á
þessu sviði.
Í minningunni voru árin fyrir
vestan skemmtileg í stórum hópi
ættingja og vina, þar stofnuðu
þau heimili sitt og byggðu sér,
kornung, glæsilegt einbýlishús
sem Hörður teiknaði sjálfur. Það
kom fáum á óvart að Hörður
legði smíðarnar fyrir sig, völund-
argenin bönkuðu upp á og hæg
voru heimatökin þar sem faðir
hans og bróðir höfðu félagsskap
um smíðar og verkstæðisskúrinn
á lóðinni þeirra, og reynslubank-
inn efldist við smíðar af ýmsum
toga.
Þarna varð síðar til Trésmiðj-
an Ösp þar sem Hörður var einn
stofnenda og lykilmaður fyrir-
tækisins. Eitt af stóru verkum
Asparinnar var bygging Laugar-
gerðisskóla, en þar var Hörður
eftirlitsmaður og byggingastjóri
alls verksins. Skipulagt verklag
hans og lempni féll vel að slíku
stjórnunarstarfi og svo fór að
hann varð einn af eftirlitsmönn-
um með byggingum hins opin-
bera. Í Hólminum tók Hörður
virkan þátt í félagsmálum og sat
m.a. tvö kjörtímabil í bæjar-
stjórn. Það voru ár mikilla um-
svifa og byggingarframkvæmda
hjá bænum, og því ekki ónýtt að
hafa reynslu hans og þekkingu
þar innanborðs. Honum voru
skipulagsmál sérlega hugleikin
og var hann, í þeim efnum, fram-
sýnn en líka raunsær, og þótt
Hörður væri fylginn sér flutti
hann mál sitt ætíð af eðlislægri
kurteisi og virðingu fyrir öðrum
skoðunum. Með slíkum er gott og
árangursríkt að vinna.
Hörður sýndi ungur að árum
listræna hæfileika með pensil og
blýant og þessa meðfæddu hæfi-
leika þróaði hann með árunum,
og liggja eftir hann mörg falleg
málverk og teikningar og oftar
en ekki var Hólmurinn hans
myndefnið. Og í tæplega sjötíu ár
hafa félagar í Snæfelli borið, með
stolti, merkið sem Hörður gaf
þeim, en merkið fallega og stíl-
hreina hannaði hann og valdi lit-
ina, þar er Snæfellsjökull baðað-
ur í sólskini séður frá sælu-
reitnum, Ytra-Skógarnesi.
Á kveðjustundu þökkum við
fyrir að hafa átt Hörð að frænda
og vini og víst er að gleði hans og
hlýja mun lifa áfram með okkur.
Við biðjum góðan Guð að blessa
elsku Birnu, Bjarna Lárus,
Kristján Þór og fjölskyldur
þeirra og veita þeim styrk.
Takk fyrir allt, Hörður minn.
Jóhanna og Ellert.
Elsku besti Hörður er nú fall-
inn frá. Minningarnar streyma
fram og ég reyni að skrifa niður
nokkur saknaðarorð. Þegar ég
hugsa um farinn veg, þá hrein-
lega man ég einungis eftir honum
í góðu skapi. Hörður hafði ein-
staklega hlýja nærveru og erfitt
væri að finna jafn umburðarlynd-
an og góðhjartaðan mann. Hörð-
ur var hæfileikabúnt, handlaginn
smiður og listamaður við strig-
ann. Hann var einkar skilnings-
ríkur og hjálpsamur allri stórfjöl-
skyldunni. Hörður var stoð og
stytta Biddu frænku og það var
fallegt að sjá hvað þau hjónin
voru samheldin alla tíð.
Þau hjónin hafa alltaf sýnt
okkur afkomendum Ellu ömmu
mikinn kærleik. Þeirra dyr hafa
ævinlega staðið okkur opnar,
kaffibollinn og kræsingarnar
dregnar fram á borðið í snatri og
svo var spjallað um allt milli him-
ins og jarðar. Ég má til með að
minnast þess þegar Bidda bakaði
eða réttara sagt ofbakaði hjóna-
bandssæluna í eitt skiptið, en
kakan var svo hörð að ég gant-
aðist með að rota mætti mann
með henni. Við hlógum dátt sam-
an og gerðum grín en honum
fannst auðvitað hjónabandssælan
best þegar hún var mikið bökuð.
Hörður sýndi áhugamálum af-
komenda sinna mikinn áhuga og
iðulega fékk maður að heyra af
afrekum þeirra allra, stórum sem
smáum.
Veikindin settu auðvitað strik í
reikninginn undir það síðasta.
Þótt heilsunni hrakaði vantaði
samt aldrei jákvæðnina og æðru-
leysið, hann Hörður kunni ekki
að kvarta.
Ég kveð nú með miklum trega
en þakklæti fyrir allar góðu
stundirnar. Minni kæru frænku
Biddu, sem og öllum aðstandend-
um, votta ég mína dýpstu samúð.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Málfríður Eva (Lillý).
Elsku Hörður, það er margt
sem mig langar að segja en á erf-
itt með að koma orðum að. Þú
hefur ávallt verið stór hluti af lífi
mínu og fjölskyldunnar. Mamma
sagði að ég hefði verið lítil stelpa
þegar ég sagðist vera stelpan þín,
mér fannst vænt um að heyra það
því ég lít alltaf á mig sem stelp-
una ykkar Birnu. Ég á margar
minningar af góðum samveru-
stundum. Ég var heimalningur í
Æsufellinu þar sem ég fékk að
gista og vera í góðu yfirlæti, ein
með ykkur Birnu og fékk að skot-
tast með í sumarbústaðinn ykk-
ar, Lágholt. Ég man líka eftir
laufabrauðsgerð í Æsufellinu þar
sem þið Birna skiptust á að útbúa
listaverk úr laufabrauði og sama
hversu klaufsk ég var, þá fannst
þér ég standa mig vel. Þegar ég
var lítil var ég líka heppin að fá að
fara með ykkur til Stykkishólms,
ferðir á rauða kagganum, Volvo-
inum, sem mér fannst mjög flott-
ur og þú í gráa jakkanum og oftar
en ekki með penna í brjóstvas-
anum. Það var spennandi að fara
með ykkur því þá fékk ég peru-
brjóstsykur og brenni á leiðinni
og auðvitað ís í Borgarnesi.
Ég er innilega þakklát fyrir að
síðustu 13 árin bjuggum við ná-
lægt ykkur og börnin mín fengu
að sjá ykkur nánast daglega
fyrstu ár ævi þeirra og þú tókst
að þér að vera afi þeirra. Lilja
Þórdís mín átti erfitt með að
segja Hörður afi svo þú gekkst
undir nafninu Bidda afi fyrstu ár-
in hjá krökkunum. Þú átt stóran
hlut í hjarta þeirra og minnist
Lilja Þórdís þín sem afa sem var
svo góður og elskaðir Biddu
ömmu mikið. Bjarki Örn sagði að
afi hefði verið eitt af því besta í
lífi sínu og þú gafst Bryndísi
Láru minni mikinn innblástur,
hana langar að mála eins og afi
og eru til margar myndir eftir
hana hérna heima þar sem hún
var að herma eftir myndum sem
þú varst að vinna að. Okkur
fannst gaman að fá að sjá mynd-
irnar sem þú varst að mála og sjá
breytingarnar sem þær tóku dag
frá degi. Þú varst handlaginn og
vandvirkur og ég geymi öll um-
slög og kort sem þú hefur skraut-
skrifað fyrir börnin í tilefni
skírna og afmæla.
Þú varst stoltur af strákunum
þínum og barnabörnum og það
var gaman að heyra frá því hvað
fjölskyldan var að gera. Við Guð-
jón munum sakna spjallsins, þú
varst alltaf jákvæður með góðan
húmor, hnyttinn og með ljúfan
hlátur. Öllum leið vel í kringum
þig.
Við munum ávallt sakna þín og
í hvert sinn sem við sjáum fallegt
sólarlag þá vitum við að þú hefur
verið fenginn til að mála á sjálfan
himnastrigann með þinni ein-
stöku snilli.
Berglind Lóa Sigurðardóttir.
Stapahrauni 5, Hafnarfirði
Sími: 565 9775
www.uth.is - uth@uth.is
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Kristín
699 0512
Sálm. 86.7
biblian.is
Þegar ég er í
nauðum staddur
ákalla ég þig
því að þú
bænheyrir mig.
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát elskulegrar móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
MATTHILDAR ÓSKARSDÓTTUR,
Njarðarvöllum 2, Reykjanesbæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Nesvalla fyrir hlýju og umhyggju
í hennar garð.
Anna Pálína Árnadóttir Karl Einar Óskarsson
Þuríður Árnadóttir Rúnar Helgason
Kolbrún Árnadóttir Jóhann Bjarki Ragnarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi
okkar,
EINAR BJÖRGVIN KRISTINSSON,
Strikinu 2, Garðabæ,
lést á hjartadeild Landspítalans
þriðjudaginn 11. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug.
Steinunn Sigþórsdóttir
Auður Einarsdóttir Ásbjörn Gíslason
Einar Snær Ásbjörnsson Katrín Káradóttir
Andri Steinn Ásbjörnsson
Viktor Orri Ásbjörnsson
Ásdís Eva Ásbjörnsdóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýndan hlýhug
og samúð vegna andláts og útfarar okkar
yndislegu og elskuðu eiginkonu, móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGRÍÐAR GÍSLADÓTTUR,
Sléttuvegi 31, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks og gesta í
Múlabæ, dagþjónustu aldraðra, Guðfinnu Björnsdóttur
sjúkraþjálfara og starfsfólks Heilsugæslunnar í Efstaleiti, fyrir
einstaka alúð og umönnun.
Vilhjálmur Þór Ólafsson
Ólafur Vilhjálmsson Anna Erla Þorsteinsdóttir
Rúnar Þór Vilhjálmsson Jóna Rán Ingadóttir
Gísli Már Vilhjálmsson Þórdís Einarsdóttir
Eva Vilhjálmsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu, langömmu og
langalangömmu,
MÖRTU KRISTÍNAR
BÖÐVARSDÓTTUR,
Akurtröðum, Eyrarsveit.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Fellaskjóli fyrir hlýju og umhyggju í
hennar garð.
Már Hinriksson Jóhanna Guðrún Gissurard.
Finnur Magni Hinriksson Jónheiður Guðrúnard. Haralds
Þorkell Gunnar Þorkelsson Olga Sædís Einarsdóttir
Sigurður Þorkelsson Dagný Jeremíasdóttir
Gerður Jensdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn
Þökkum innilega samúð og vináttu við
andlát og jarðarför dóttur minnar, systur
okkar, stjúpsystur og mágkonu,
HALLVEIGAR FRÓÐADÓTTUR.
Hólmfríður Kofoed-Hansen
Ragna Fróðadóttir
Björn Fróðason Lovísa V. Bryngeirsdóttir
Hólmfríður Fróðadóttir
Ingólfur Þorsteinsson Þorbjörg Kristinsdóttir
Hanna Valdís Þorsteinsdóttir Sheer El-Showk
Okkar ástkæra móðir, dóttir, tengdamóðir,
systir, mágkona og amma,
SIGRÍÐUR KATRÍN
ÞORBJÖRNSDÓTTIR,
Mýrarvegi 113, Akureyri,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 18. maí.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 28. maí
klukkan 13. Athöfninni verður einnig streymt, hlekk á streymi
má nálgast á mbl.is/andlat.
Guðrún Vala Árnadóttir
Stefán Vilberg Leifsson Helga Bogadóttir
Sandra Dís Leifsdóttir Hafþór Jónasson
Díana Ósk Leifsdóttir Anton Sigurðsson
Þorbjörn Ásgeirsson
Guðrún Jensdóttir
Linda Antonsdóttir Bjarni Valtýsson
Jens Þorsteinsson Hrafnhildur Þórisdóttir
Ásgeir Þorbjörnsson Guðrún Maronsdóttir
og barnabörn