Morgunblaðið - 22.05.2021, Side 38
38 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021
Scholl
fyrir gönguna
& hlaupin
Scholl vörurnar fást í apótekum, Hagkaup, Fjarðarkaup, Stoð og á Heimkaup.is
80 ÁRA Torfi
Birningur Gunn-
laugsson verður
áttræður á annan
í hvítasunnu.
Hann fæddist á
Akureyri 24. maí
1941 og ólst þar
upp.
Foreldrar hans
voru Steinunn
Sveinhelga Stef-
ánsdóttir sauma-
kona og Gunn-
laugur Torfason
málarameistari.
Hann bjó á Akureyri ásamt eiginkonu sinni og börnum allt til ársins 2002
þegar þau hjónin fluttu til Reykjavíkur með annan fótinn.
Torfi Birningur fór ungur að læra til flugs og byrjaði starfsferilinn sem flug-
maður hjá Norðurflugi 1965-1974. Torfi Birningur var einn af stofnendum
Flugfélags Norðurlands. Hann var yfirflugstjóri hjá Flugfélagi Norðurlands
og síðar Flugfélagi Íslands 1974-2006, ásamt því að vera þjálfunarflugstjóri
1985-2001. Hann sinnti líka flugkennslu hjá Flugskóla Akureyrar öll þessi ár.
Hann lauk flugumferðarstjóraprófi 1974 og starfað sem flugumferðarstjóri á
Akureyrarflugvelli 1974-2002.
Guðfinna Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 1943, er eiginkona hans.
Foreldrar hennar voru Málfríður Gísladóttir húsmóðir og Gunnar Jóhann-
esson póstfulltrúi.
Börn þeirra eru: 1) Vilborg Birningur, f. 1966, ferðafræðingur, gift Kolbeini
Jóhannessyni, stöðvarstjóra hjá Icelandair. Vilborg á einn son, Torfa Birning
Birgisson flugvirkja. Unnusta hans er Viktoría Mjöll læknir; 2) Helga Stein-
unn, f. 1969, fiðluleikari, gift Örnólfi Kristjánssyni sellóleikara og börn þeirra
eru: a) Kristján Torfi læknir, kvæntur Deliu Mariu hjúkrunarfræðingi. b) Guð-
finna Margrét, nemi við Háskóla Íslands. c) Tómas Orri, nemi við Mennta-
skólann í Reykjavík; 3) Gunnlaugur Torfason, f. 1975, fyrrverandi starfsmaður
hjá Íslandspósti.
Torfi Birningur fagnar deginum í faðmi eiginkonu sinnar, barna og barna-
barna.
Torfi Birningur Gunnlaugsson
Hjónin Torfi Birningur og Guðfinna stödd fyrir framan
Cessnu 150 á flugvellinum á Sauðárkróki.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú átt auðvelt með að ræða við
annað fólk og hafa áhrif á það. Að stökkva
af stað án undirbúnings er ekki góð hug-
mynd.
20. apríl - 20. maí +
Naut Ekki bíða eftir hinum fullkomna vett-
vangi, taktu af skarið núna. Einhver hefur
tekið hlut sem þú átt traustataki, láttu vita
að þú sért ekki sátt/ur.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þú munt rekast á gamlan félaga
þar sem þú áttir síst von á honum svo það
verða fagnaðarfundir. Sinntu vinunum þótt
mikið sé að gera.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú finnur hjá þér hvöt til þess að
rétta öðrum hjálparhönd. Það kveður við
nýjan tón í ástarsambandi.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Planaðu skemmtikvöld eða hvers
kyns afþreyingu með fjölskyldunni um
helgina. Þú ert með öll tromp á hendi í
vinnunni.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Taktu því vel ef einhver finnur að
framkomu þinni því allt slíkt er vel meint.
Farðu vel með það vald sem þér er falið.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Það er kominn tími til að slaka á og
hafðu engar áhyggjur því heimurinn ferst
ekki rétt á meðan. Þér vefst tunga um tönn
þegar þú færð spurningu sem kemur þér
mjög á óvart.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Einhver í fjölskyldunni kemur
þér á óvart. Láttu ekki segja þér það tvisvar
að skipta um stefnu í lífinu.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Fólk þolir illa þá sem þykjast
vita allt. Það duga engin vettlingatök í upp-
eldinu. Teldu samt upp að tíu áður en þú
opnar munninn.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Það getur verið óþægilegt að
láta róta of mikið upp í málum sem þú telur
að þú hafir afgreitt fyrir löngu. Skyndilega
gefst tækifæri til þess að skipta um starfs-
vettvang.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú munt komast að því að hæfi-
leikar þínir liggja á mörgum sviðum.
Komdu vitinu fyrir vin.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Það er hugsanlegt að þú segir fleira
en þú ætlaðir þér í dag. Um leið og þú
hættir að hafa áhyggjur af hlutunum verður
líf þitt svo miklu auðveldara.
tímanum ver ég mest með henni. Við
hlæjum mikið saman, húmor er lyk-
ilatriði í fjölskyldulífi. Ég er mikil fé-
lagsvera, er í ýmsum félagsskap og
stunda einnig sund og líkamsrækt
árið um kring. Læt mér aldrei leið-
ast.“
Kolbrún segist hafa ákveðið að
halda upp á daginn með litlu fjöl-
skylduboði en börnin hafi einnig
samstarfsfólki innan og utan Há-
skóla Íslands.“ Róbert, eiginmaður
hennar, starfar einnig við Háskóla
Íslands. „Við erum samhent í leik og
starfi, og vorum nýlega að koma
okkur fyrir í draumaíbúðinni á Kárs-
nesi. Við vegum hvort annað ágæt-
lega upp, ég er mátulega afslöppuð
og Róbert ákaflega ábyrgur. Gæfa
mín er að eiga góða fjölskyldu og frí-
K
olbrún Þorbjörg Páls-
dóttir fæddist 22. maí
1971 í Leuven í Belgíu
þar sem fjölskylda
hennar bjó á árunum
1965 til 1971. „Ég fæddist á fimm-
tugasta afmælisdegi Arndísar, móð-
urömmu minnar, sem hefði því orðið
100 ára í dag.“
Kolbrún ólst upp í Hlíðunum í
Reykjavík, sótti leikskólann Hlíða-
borg, síðan Ísaksskóla og Hlíða-
skóla. „Öskjuhlíðin var ævintýraland
okkar krakkanna og þá voru enn þá
hesthús við Valsheimilið. Ég hef allt-
af verið mikið fyrir dýr, átti
hamstra, fugla og hest enda sótti ég
reiðskólann í Saltvík nokkur sumur.
Þá á ég margar góðar minningar frá
litlum sumarbústað við Þingvalla-
vatn þar sem við fjölskyldan áttum
saman góðar stundir. Foreldrum
mínum á ég mikið að þakka. Ég varð
ung móðir og þau studdu mig gegn-
um þykkt og þunnt.“
Hún varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Hamrahlíð árið 1991,
lauk BA-prófi í heimspeki árið 1997
og meistaraprófi í menntunar-
fræðum vorið 2001. Kolbrún starfaði
hjá Reykjavíkurborg við uppbygg-
ingu og þróun frístundaheimila á ár-
unum 2002 til 2008. „Ég áttaði mig á
því að það vantaði rannsóknir á mik-
ilvægi þess óformlega náms sem átti
sér stað í frístundastarfinu og
smellti mér í doktorsnám.“
Kolbrún lauk doktorsprófi í
menntunarfræðum frá Háskóla Ís-
lands árið 2012 og fjallaði doktors-
ritgerð hennar um starfsemi og
menntagildi frístundaheimila fyrir
sex til níu ára börn. „Það er sífellt að
koma betur í ljós hve mikilvægt er
að efla félagslega stöðu barna og
virkni þeirra í jafningjahópnum.
Markvisst starf á frístundaheimilum
og félagsmiðstöðvum og gott sam-
starf við skóla getur skipt sköpum til
að styðja við velferð barna og ung-
menna.“
Hún segist leggja mikið upp úr
því að njóta lífsins með fjölskyldu,
vinum og traustu samstarfsfólki.
„Ég er dálítill vinnufíkill en ég er
svo lánsöm að vinna að verkefnum
sem ég brenn fyrir og með öflugu
skipulagt óvissuferð. „Þau vita að
það er stutt í barnið í mér, ég hef
mjög gaman af ævintýrum, leikjum
og gleðistundum í góðra vina hópi.“
Kolbrún hefur birt fræðigreinar
bæði á innlendum og erlendum vett-
vangi og tekið virkan þátt í stefnu-
mótun innan menntakerfisins.
„Uppeldi, menntun og þroski ein-
staklinga hafa átt hug minn alla tíð,“
segir hún, „og það er lykilatriði fyrir
farsæld einstaklinga og framþróun
samfélaga að tryggja grunnstoðir í
lífi barna og ungmenna. Hver mann-
eskja á skilið að fá stuðning og
hvatningu til að láta drauma sína
rætast og taka þátt í samfélaginu.
Ég hef unnið víða í skóla- og frí-
stundastarfi og kynnst mörgum fyr-
irmyndum, kennurum, frístundaráð-
gjöfum og öðru fagfólki, sem snerta
við lífi einstaklinga.“ Kolbrún bendir
á að menntun sé ævilangt ferli. „Við
erum alltaf að læra og þroskast,
hver manneskja er gerð til þess. Í
raun er lífið eitt allsherjar ævintýri
og kraftaverk gerast á hverjum
degi. Mér finnst afskaplega gaman
að fá að vera til.“
Fjölskylda
Eiginmaður Kolbrúnar er Róbert
H. Haraldsson, f. 5.10. 1959, sviðs-
Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti menntavísindasviðs Háskóla Íslands – 50 ára
Fjölskyldan Kolbrún, Róbert og börn í lok tónleika hjá Kvennakór Garðabæjar vorið 2017.
Lífið er eitt allsherjar ævintýri
Hjónin Á hlaupamóti í New York-
ríki, en þau bjuggu þar 2015-2016.
Amma Arndís Nýstúdent frá MR
1941 en hún hefði orðið 100 ára í dag.
Til hamingju með daginn