Morgunblaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 40
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021
Finnbogason voru ekki með í þeim
leikjum og eru heldur ekki með í
þessu verkefni.
Viðar Örn Kjartansson, Mikael
Anderson, Jón Guðni Fjóluson, Ar-
on Elís Þrándarson, Andri Fannar
Baldursson og Guðmundur Þór-
arinsson koma inn í hópinn á ný,
eftir mislanga fjarveru.
Af þessum 34 leikmönnum fara
24 til Texas til að spila gegn Mexíkó
en hinir tíu koma inn í hópinn fyrir
tvo seinni leikina. Nánar um þetta á
mbl.is/sport/fotbolti og þar er hóp-
urinn í heild sinni. vs@mbl.is
Arnar Þór Viðarsson, þjálfari
karlalandsliðs Íslands í knatt-
spyrnu, hefur valið 34 leikmenn
fyrir vináttulandsleikina þrjá gegn
Mexíkó, Færeyjum og Póllandi sem
fram fara 30. maí, 4. júní og 8. júní.
Ellefu nýliðar eru í hópnum,
markverðirnir Elías Rafn Ólafsson
frá Fredericia og Patrik Sigurður
Gunnarsson frá Silkeborg, Brynjar
Ingi Bjarnason úr KA, Hörður Ingi
Gunnarsson úr FH, Ísak Óli Ólafs-
son úr Keflavík, Kolbeinn Þórð-
arson frá Lommel, Rúnar Þór Sig-
urgeirsson úr Keflavík, Valgeir
Lunddal Friðriksson frá Häcken,
Gísli Eyjólfsson úr Breiðabliki,
Stefán Teitur Þórðarson frá Silke-
borg og Þórir Jóhann Helgason frá
FH.
Af þeim sem voru í landsliðs-
hópnum í marsmánuði vantar
Hannes Þór Halldórsson, Sverri
Inga Ingason, Hörð Björgvin Magn-
ússon, Guðlaug Victor Pálsson,
Arnór Sigurðsson, Ara Frey Skúla-
son, Jóhann Berg Guðmundsson,
Hólmbert Aron Friðjónsson og
Hólmar Örn Eyjólfsson.
Gylfi Þór Sigurðsson og Alfreð
AFP
Nýr Hörður Ingi Gunnarsson er
einn af nýliðunum í hópnum.
Ellefu nýliðar í 34 manna hópi
KA – VÍKINGUR R. 0:1
0:1 Nikolaj Hansen 61.
M
Steinþór Már Auðunsson (KA)
Þorri Mar Þórisson (KA)
Brynjar Ingi Bjarnason (KA)
Ásgeir Sigurgeirsson (KA)
Þórður Ingason (Víkingi)
Viktor Örlygur Andrason (Víkingi)
Júlíus Magnússon (Víkingi)
Erlingur Agnarsson (Víkingi)
Nikolaj Hansen (Víkingi)
Dómari: Elías Ingi Árnason – 8.
Áhorfendur: 300.
HK – ÍA 1:3
1:0 Arnþór Ari Atlason 8.
1:1 Þórður Þ. Þórðarson 25.(v)
1:2 Viktor Jónsson 72.
1:3 Ingi Þór Sigurðsson 90.
M
Birnir Snær Ingason (HK)
Arnþór Ari Atlason (HK)
Örvar Eggertsson (HK)
Óttar Bjarni Guðmundsson (ÍA)
Viktor Jónsson (ÍA)
Alexander Davey (ÍA)
Brynjar Snær Pálsson (ÍA)
Rautt spjald: Hallur Flosason (ÍA) 90.
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson – 6.
Áhorfendur: Um 300.
BREIÐABLIK – STJARNAN 4:0
1:0 Kristinn Steindórsson 29.
2:0 Viktor Örn Margeirsson 60.
3:0 Árni Vilhjálmsson 74.
4:0 Höskuldur Gunnlaugsson 90.
MM
Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðab.)
M
Damir Muminovic (Breiðabliki)
Viktor Karl Einarsson (Breiðabliki)
Árni Vilhjálmsson (Breiðabliki)
Viktor Örn Margeirsson (Breiðabliki)
Kristinn Steindórsson (Breiðabliki)
Kristófer Konráðsson (Stjörnunni)
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson – 8.
Áhorfendur: Um 450.
FYLKIR – KEFLAVÍK 4:2
0:1 Frans Elvarsson 3
1:1 Djair Parfitt-Williams 14.
2:1 Orri Hrafn Kjartansson 25.
3:1 Orri Sveinn Stefánsson 61.
4:1 Orri Hrafn Kjartansson 60.
4:2 Joey Gibbs 70.(v)
MM
Orri Hrafn Kjartansson (Fylki)
M
Ásgeir Eyþórsson (Fylki)
Unnar Steinn Ingvarsson (Fylki)
Orri Sveinn Stefánsson (Fylki)
Djair Parfitt-Williams (Fylki)
Magnús Þór Magnússon (Keflavík)
Frans Elvarsson (Keflavík)
Joey Gibbs (Keflavík)
Dómari: Pétur Guðmundsson – 8.
Áhorfendur: 443.
VALUR – LEIKNIR R. 1:0
1:0 Patrick Pedersen 86.
M
Johannes Björn Vall (Val)
Patrick Pedersen (Val)
Kristinn Freyr Sigurðsson (Val)
Birkir Már Sævarsson (Val)
Rasmus Christiansen (Val)
Guy Smit (Leikni)
Bjarki Aðalsteinsson (Leikni)
Brynjar Hlöðversson (Leikni)
Gyrðir Hrafn Guðbrandsson (Leikni)
Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 8.
Áhorfendur: Rúmlega 400.
FÓTBOLTINN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Víkingur og Valur eru á toppi Pepsi
Max-deildar karla eftir viðburðaríka
leiki gærkvöldsins, þó Reykjavíkur-
liðin tvö hafi reyndar látið sér nægja
nauma 1:0 sigra gegn KA og Leikni.
Víkingar lögðu KA á Dalvíkurvelli,
1:0, þar sem Nikolaj Hansen skoraði
sigurmarkið, og þar með tapaði KA
sínum fyrsta leik síðan í tólftu um-
ferðinni á síðasta tímabili. Akureyr-
arliðið tapaði því ekki í þrettán deild-
arleikjum í röð en fékk svo
sannarlega tækifæri til að koma í veg
fyrir tap á Dalvík í gærkvöld. KA
fékk vítaspyrnu í uppbótartímanum
en Hallgrímur Mar Steingrímsson
hitti ekki mark Víkinga sem sluppu
með skrekkinn og fóru með stigin
þrjú suður.
Í heildina var sigur Víkinga sann-
gjarn. Þeir náðu að koma KA úr sín-
um leik og voru lengstum með yfir-
höndina. KA-menn naga sig eflaust í
handarbökin fyrir að hafa ekki gripið
stigið sem var í boði í lokin,“ skrifaði
Einar Sigtryggsson m.a. um leikinn
á mbl.is.
Pedersen bjargaði Val
Valsmenn lentu í miklu basli með
nýliða Leiknis á Hlíðarenda en
danski markaskorarinn Patrick Ped-
ersen kom þeim til bjargar með sig-
urmarki á 86. mínútu, 1:0, eftir glæsi-
legan undirbúning sænska
bakvarðarins Johannes Vall.
Pedersen er þar með orðinn sex-
tándi markahæsti leikmaður deild-
arinnar frá upphafi með 73 mörk.
Hann fór uppfyrir tvær gamlar
hetjur með þessu marki en Pétur
Pétursson, Skagamaður og KR-
ingur, og Keflvíkingurinn Steinar Jó-
hannsson gerðu báðir 72 mörk í
deildinni.
Blikar hrukku í gang
Blikar hrukku heldur betur í gang
eftir skellinn gegn Víkingum á dög-
unum og annan heimaleikinn í röð
hrósuðu þeir 4:0 sigri. Nú gegn
grönnum sínum úr Stjörnunni sem
sitja fyrir vikið í botnsæti deildar-
innar með aðeins tvö stig.
Þetta er versta byrjun Stjörn-
unnar í deildinni frá árinu 2000 en þá
fékk Garðabæjarliðið eitt stig úr
fyrstu sex leikjunum og féll að lokum
um haustið en þó með minnsta mun,
á markatölu.
_ Kristinn Steindórsson kom inná
sem varamaður snemma leiks þegar
markaskorarinn Thomas Mikkelsen
fór meiddur af velli. Kristinn kom
Blikum á bragðið eftir hálftíma leik.
_ Árni Vilhjálmsson skoraði sitt
fyrsta mark fyrir Blika eftir endur-
komuna þegar hann kom þeim í 3:0.
Hann varð um leið fjórði leikmað-
urinn í sögu félagsins til að skora 30
mörk í efstu deild karla.
_ Daníel Laxdal, fyrirliði Stjörn-
unnar, spilaði sinn 300. deildaleik á
ferlinum en hann er leikjahæstur
Garðbæinga frá upphafi með 241 leik
í úrvalsdeildinni og 59 í 1. deild.
„Eftir brösuga byrjun á Íslands-
mótinu sýndu Blikar styrkleika sína í
kvöld. Þeir börðust allir sem einn fyr-
ir liðið, sérstaklega í seinni hálfleik,
og var í raunar aldrei spurning hvort
liðið myndi fara með sigur af hólmi
eftir að annað markið kom,“ skrifaði
Stefán Gunnar Sveinsson m.a. í grein
um leikinn á mbl.is.
Baráttuglaðir Skagamenn
Skagamenn kræktu í fyrsta sigur-
inn með sigri á HK í Kórnum, 3:1,
þrátt fyrir að hafa átt í vök að verjast
stóran hluta leiksins. HK-ingar áttu
sláar- og stangarskot í stöðunni 1:1 en
baráttuglaðir Skagamenn komust yfir
með marki Viktors Jónssonar og
vörðust af miklum krafti eftir það.
_ Ingi Þór Sigurðsson skoraði sitt
fyrsta mark í efstu deild þegar hann
innsiglaði sigur ÍA, 3:1, í uppbótar-
tímanum. Ingi er bróðir Arnórs Sig-
urðssonar, landsliðsmanns hjá CSKA
í Moskvu, og foreldrar þeirra, Mar-
grét Ákadóttir og Sigurður Þór Sig-
ursteinsson, léku með ÍA á sínum
tíma og Margrét með íslenska lands-
liðinu.
„Það er áhyggjuefni fyrir HK að
vera búið að leika fjóra heimaleiki í
fyrstu fimm umferðunum án þess að
vinna. Kórinn er ekki lengur það
virki sem hann var áður og liðið er í
basli. HK tókst ekki að vinna þrátt
fyrir að vera miklu betri aðilinn. Hve-
nær kemur þá fyrsti sigurinn?“ skrif-
aði Jóhann Ingi Hafþórsson m.a. í
grein um leikinn á mbl.is.
Enn fjögur gegn Keflavík
Fylkir vann sinn fyrsta leik og
lagði Keflavík 4:2 en Keflvíkingar
þurfa heldur betur að taka til í varn-
arleiknum hjá sér því þeir hafa nú
fengið á sig fjögur mörk í þremur
leikjum í röð.
_ Orri Hrafn Kjartansson skoraði
tvö marka Fylkis en þessi 19 ára
gamli strákur hafði áður skorað eitt
mark í deildinni, gegn KR undir lok
síðasta tímabils.
_ Ástralski framherjinn Joey
Gibbs, sem skoraði 21 mark fyrir
Keflavík í 1. deildinni í fyrra, komst
loksins á blað í efstu deild. Hann
skoraði seinna mark Keflvíkinga úr
vítaspyrnu og minnkaði þá muninn í
4:2.
Víkingur og
Valur eru á
toppnum
Morgunblaðið/Eggert
Kópavogur Oliver Sigurjónsson og Óli Valur Ómarsson í baráttu um bolt-
ann í leik Breiðabliks og Stjörnunnar þar sem Blikar unnu 4:0.
- Akranes og Fylkir unnu fyrstu
sigrana - Stjarnan situr í botnsætinu
Pepsi Max-deild karla
KA – Víkingur R....................................... 0:1
HK – ÍA..................................................... 1:3
Breiðablik – Stjarnan............................... 4:0
Fylkir – Keflavík ...................................... 4:2
Valur – Leiknir R ..................................... 1:0
Staðan:
Víkingur R. 5 4 1 0 9:3 13
Valur 5 4 1 0 10:5 13
FH 4 3 1 0 11:3 10
KA 5 3 1 1 10:3 10
Breiðablik 5 2 1 2 11:8 7
Leiknir R. 5 1 2 2 6:7 5
Fylkir 5 1 2 2 7:10 5
ÍA 5 1 2 2 5:9 5
KR 4 1 1 2 6:7 4
Keflavík 5 1 0 4 5:13 3
HK 5 0 2 3 6:11 2
Stjarnan 5 0 2 3 2:9 2
Lengjudeild karla
Afturelding – ÍBV .................................... 0:5
Fram – Þór................................................ 4:1
Víkingur Ó. – Kórdrengir ........................ 1:3
Grindavík – Fjölnir .................................. 0:2
Þróttur R. – Selfoss.................................. 3:1
Staðan:
Fram 3 3 0 0 10:3 9
Fjölnir 3 3 0 0 6:1 9
Vestri 2 2 0 0 6:1 6
Kórdrengir 3 1 1 1 5:5 4
Afturelding 3 1 1 1 6:7 4
ÍBV 3 1 0 2 6:5 3
Grótta 2 1 0 1 4:4 3
Þór 3 1 0 2 8:9 3
Þróttur R. 3 1 0 2 5:7 3
Grindavík 3 1 0 2 4:7 3
Selfoss 3 1 0 2 4:7 3
Víkingur Ó. 3 0 0 3 4:12 0
2. deild karla
Njarðvík – KV........................................... 1:1
Fjarðabyggð – Magni .............................. 0:4
Reynir S. – Kári........................................ 2:1
ÍR – Þróttur V .......................................... 1:5
Haukar – Völsungur................................. 3:3
Staðan:
KF 2 2 0 0 5:2 6
Reynir S. 3 2 0 1 4:3 6
ÍR 3 2 0 1 5:6 6
Þróttur V. 3 1 2 0 9:5 5
KV 3 1 2 0 8:7 5
Magni 3 1 1 1 8:5 4
Völsungur 3 1 1 1 7:5 4
Haukar 3 1 1 1 8:7 4
Njarðvík 3 0 3 0 6:6 3
Kári 3 0 1 2 7:9 1
Fjarðabyggð 3 0 1 2 1:8 1
Leiknir F. 2 0 0 2 2:7 0
3. deild karla
KFG – KFS............................................... 2:0
ÍH – Víðir .................................................. 1:1
Staðan:
Höttur/Huginn 3 3 0 0 6:3 9
KFG 2 2 0 0 4:0 6
Augnablik 2 1 1 0 4:1 4
Dalvík/Reynir 2 1 1 0 5:4 4
Ægir 2 1 1 0 3:2 4
Víðir 3 1 1 1 5:5 4
Elliði 2 1 0 1 4:4 3
KFS 3 1 0 2 4:6 3
ÍH 3 0 2 1 4:7 2
Tindastóll 1 0 0 1 2:3 0
Sindri 2 0 0 2 2:4 0
Einherji 3 0 0 3 2:6 0
Lengjudeild kvenna
Grótta – Grindavík ................................... 3:1
KR – ÍA ..................................................... 4:1
Staðan:
KR 3 2 0 1 9:4 6
Grótta 3 2 0 1 6:5 6
Afturelding 2 1 1 0 5:3 4
Haukar 2 1 1 0 3:2 4
FH 2 1 0 1 4:3 3
Augnablik 2 1 0 1 3:3 3
ÍA 3 1 0 2 4:7 3
Grindavík 3 0 2 1 4:6 2
Víkingur R. 2 0 1 1 4:6 1
HK 2 0 1 1 4:7 1
2. deild kvenna
Hamar – KM............................................. 6:0
Danmörk
B-deild:
Köge – Esbjerg ........................................ 1:2
- Andri Rúnar Bjarnason kom inn á hjá
Esbjerg á 90. mínútu.
Helsingör – Silkeborg............................. 3:3
- Stefán Teitur Þórðarson var í liði Silke-
borg en Patrik Gunnarsson var ekki með.
Fredericia – Viborg ................................ 0:3
- Elías Rafn Ólafsson varði mark Fre-
dericia.
Frakkland
Bordeaux – Lyon ..................................... 0:1
- Svava Rós Guðmundsdóttir kom inn á
hjá Bordeaux á 82. mínútu.
- Sara Björk Gunnarsdóttir hjá Lyon er í
barneignarfríi.
Le Havre – París FC................................ 1:0
- Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Anna
Björk Kristjánsdóttir léku allan leikinn
með Le Havre sem er fallið úr deildinni.
England
C-deild:
Umspil, undanúrslit, seinni leikur:
Blackpool – Oxford ................................. 3:3
- Daníel Leó Grétarsson lék ekki með
Blackpool sem vann 6:3 samanlagt.
4.$--3795.$