Morgunblaðið - 22.05.2021, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 22.05.2021, Qupperneq 40
40 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021 Finnbogason voru ekki með í þeim leikjum og eru heldur ekki með í þessu verkefni. Viðar Örn Kjartansson, Mikael Anderson, Jón Guðni Fjóluson, Ar- on Elís Þrándarson, Andri Fannar Baldursson og Guðmundur Þór- arinsson koma inn í hópinn á ný, eftir mislanga fjarveru. Af þessum 34 leikmönnum fara 24 til Texas til að spila gegn Mexíkó en hinir tíu koma inn í hópinn fyrir tvo seinni leikina. Nánar um þetta á mbl.is/sport/fotbolti og þar er hóp- urinn í heild sinni. vs@mbl.is Arnar Þór Viðarsson, þjálfari karlalandsliðs Íslands í knatt- spyrnu, hefur valið 34 leikmenn fyrir vináttulandsleikina þrjá gegn Mexíkó, Færeyjum og Póllandi sem fram fara 30. maí, 4. júní og 8. júní. Ellefu nýliðar eru í hópnum, markverðirnir Elías Rafn Ólafsson frá Fredericia og Patrik Sigurður Gunnarsson frá Silkeborg, Brynjar Ingi Bjarnason úr KA, Hörður Ingi Gunnarsson úr FH, Ísak Óli Ólafs- son úr Keflavík, Kolbeinn Þórð- arson frá Lommel, Rúnar Þór Sig- urgeirsson úr Keflavík, Valgeir Lunddal Friðriksson frá Häcken, Gísli Eyjólfsson úr Breiðabliki, Stefán Teitur Þórðarson frá Silke- borg og Þórir Jóhann Helgason frá FH. Af þeim sem voru í landsliðs- hópnum í marsmánuði vantar Hannes Þór Halldórsson, Sverri Inga Ingason, Hörð Björgvin Magn- ússon, Guðlaug Victor Pálsson, Arnór Sigurðsson, Ara Frey Skúla- son, Jóhann Berg Guðmundsson, Hólmbert Aron Friðjónsson og Hólmar Örn Eyjólfsson. Gylfi Þór Sigurðsson og Alfreð AFP Nýr Hörður Ingi Gunnarsson er einn af nýliðunum í hópnum. Ellefu nýliðar í 34 manna hópi KA – VÍKINGUR R. 0:1 0:1 Nikolaj Hansen 61. M Steinþór Már Auðunsson (KA) Þorri Mar Þórisson (KA) Brynjar Ingi Bjarnason (KA) Ásgeir Sigurgeirsson (KA) Þórður Ingason (Víkingi) Viktor Örlygur Andrason (Víkingi) Júlíus Magnússon (Víkingi) Erlingur Agnarsson (Víkingi) Nikolaj Hansen (Víkingi) Dómari: Elías Ingi Árnason – 8. Áhorfendur: 300. HK – ÍA 1:3 1:0 Arnþór Ari Atlason 8. 1:1 Þórður Þ. Þórðarson 25.(v) 1:2 Viktor Jónsson 72. 1:3 Ingi Þór Sigurðsson 90. M Birnir Snær Ingason (HK) Arnþór Ari Atlason (HK) Örvar Eggertsson (HK) Óttar Bjarni Guðmundsson (ÍA) Viktor Jónsson (ÍA) Alexander Davey (ÍA) Brynjar Snær Pálsson (ÍA) Rautt spjald: Hallur Flosason (ÍA) 90. Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson – 6. Áhorfendur: Um 300. BREIÐABLIK – STJARNAN 4:0 1:0 Kristinn Steindórsson 29. 2:0 Viktor Örn Margeirsson 60. 3:0 Árni Vilhjálmsson 74. 4:0 Höskuldur Gunnlaugsson 90. MM Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðab.) M Damir Muminovic (Breiðabliki) Viktor Karl Einarsson (Breiðabliki) Árni Vilhjálmsson (Breiðabliki) Viktor Örn Margeirsson (Breiðabliki) Kristinn Steindórsson (Breiðabliki) Kristófer Konráðsson (Stjörnunni) Dómari: Jóhann Ingi Jónsson – 8. Áhorfendur: Um 450. FYLKIR – KEFLAVÍK 4:2 0:1 Frans Elvarsson 3 1:1 Djair Parfitt-Williams 14. 2:1 Orri Hrafn Kjartansson 25. 3:1 Orri Sveinn Stefánsson 61. 4:1 Orri Hrafn Kjartansson 60. 4:2 Joey Gibbs 70.(v) MM Orri Hrafn Kjartansson (Fylki) M Ásgeir Eyþórsson (Fylki) Unnar Steinn Ingvarsson (Fylki) Orri Sveinn Stefánsson (Fylki) Djair Parfitt-Williams (Fylki) Magnús Þór Magnússon (Keflavík) Frans Elvarsson (Keflavík) Joey Gibbs (Keflavík) Dómari: Pétur Guðmundsson – 8. Áhorfendur: 443. VALUR – LEIKNIR R. 1:0 1:0 Patrick Pedersen 86. M Johannes Björn Vall (Val) Patrick Pedersen (Val) Kristinn Freyr Sigurðsson (Val) Birkir Már Sævarsson (Val) Rasmus Christiansen (Val) Guy Smit (Leikni) Bjarki Aðalsteinsson (Leikni) Brynjar Hlöðversson (Leikni) Gyrðir Hrafn Guðbrandsson (Leikni) Dómari: Helgi Mikael Jónasson – 8. Áhorfendur: Rúmlega 400. FÓTBOLTINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Víkingur og Valur eru á toppi Pepsi Max-deildar karla eftir viðburðaríka leiki gærkvöldsins, þó Reykjavíkur- liðin tvö hafi reyndar látið sér nægja nauma 1:0 sigra gegn KA og Leikni. Víkingar lögðu KA á Dalvíkurvelli, 1:0, þar sem Nikolaj Hansen skoraði sigurmarkið, og þar með tapaði KA sínum fyrsta leik síðan í tólftu um- ferðinni á síðasta tímabili. Akureyr- arliðið tapaði því ekki í þrettán deild- arleikjum í röð en fékk svo sannarlega tækifæri til að koma í veg fyrir tap á Dalvík í gærkvöld. KA fékk vítaspyrnu í uppbótartímanum en Hallgrímur Mar Steingrímsson hitti ekki mark Víkinga sem sluppu með skrekkinn og fóru með stigin þrjú suður. Í heildina var sigur Víkinga sann- gjarn. Þeir náðu að koma KA úr sín- um leik og voru lengstum með yfir- höndina. KA-menn naga sig eflaust í handarbökin fyrir að hafa ekki gripið stigið sem var í boði í lokin,“ skrifaði Einar Sigtryggsson m.a. um leikinn á mbl.is. Pedersen bjargaði Val Valsmenn lentu í miklu basli með nýliða Leiknis á Hlíðarenda en danski markaskorarinn Patrick Ped- ersen kom þeim til bjargar með sig- urmarki á 86. mínútu, 1:0, eftir glæsi- legan undirbúning sænska bakvarðarins Johannes Vall. Pedersen er þar með orðinn sex- tándi markahæsti leikmaður deild- arinnar frá upphafi með 73 mörk. Hann fór uppfyrir tvær gamlar hetjur með þessu marki en Pétur Pétursson, Skagamaður og KR- ingur, og Keflvíkingurinn Steinar Jó- hannsson gerðu báðir 72 mörk í deildinni. Blikar hrukku í gang Blikar hrukku heldur betur í gang eftir skellinn gegn Víkingum á dög- unum og annan heimaleikinn í röð hrósuðu þeir 4:0 sigri. Nú gegn grönnum sínum úr Stjörnunni sem sitja fyrir vikið í botnsæti deildar- innar með aðeins tvö stig. Þetta er versta byrjun Stjörn- unnar í deildinni frá árinu 2000 en þá fékk Garðabæjarliðið eitt stig úr fyrstu sex leikjunum og féll að lokum um haustið en þó með minnsta mun, á markatölu. _ Kristinn Steindórsson kom inná sem varamaður snemma leiks þegar markaskorarinn Thomas Mikkelsen fór meiddur af velli. Kristinn kom Blikum á bragðið eftir hálftíma leik. _ Árni Vilhjálmsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Blika eftir endur- komuna þegar hann kom þeim í 3:0. Hann varð um leið fjórði leikmað- urinn í sögu félagsins til að skora 30 mörk í efstu deild karla. _ Daníel Laxdal, fyrirliði Stjörn- unnar, spilaði sinn 300. deildaleik á ferlinum en hann er leikjahæstur Garðbæinga frá upphafi með 241 leik í úrvalsdeildinni og 59 í 1. deild. „Eftir brösuga byrjun á Íslands- mótinu sýndu Blikar styrkleika sína í kvöld. Þeir börðust allir sem einn fyr- ir liðið, sérstaklega í seinni hálfleik, og var í raunar aldrei spurning hvort liðið myndi fara með sigur af hólmi eftir að annað markið kom,“ skrifaði Stefán Gunnar Sveinsson m.a. í grein um leikinn á mbl.is. Baráttuglaðir Skagamenn Skagamenn kræktu í fyrsta sigur- inn með sigri á HK í Kórnum, 3:1, þrátt fyrir að hafa átt í vök að verjast stóran hluta leiksins. HK-ingar áttu sláar- og stangarskot í stöðunni 1:1 en baráttuglaðir Skagamenn komust yfir með marki Viktors Jónssonar og vörðust af miklum krafti eftir það. _ Ingi Þór Sigurðsson skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild þegar hann innsiglaði sigur ÍA, 3:1, í uppbótar- tímanum. Ingi er bróðir Arnórs Sig- urðssonar, landsliðsmanns hjá CSKA í Moskvu, og foreldrar þeirra, Mar- grét Ákadóttir og Sigurður Þór Sig- ursteinsson, léku með ÍA á sínum tíma og Margrét með íslenska lands- liðinu. „Það er áhyggjuefni fyrir HK að vera búið að leika fjóra heimaleiki í fyrstu fimm umferðunum án þess að vinna. Kórinn er ekki lengur það virki sem hann var áður og liðið er í basli. HK tókst ekki að vinna þrátt fyrir að vera miklu betri aðilinn. Hve- nær kemur þá fyrsti sigurinn?“ skrif- aði Jóhann Ingi Hafþórsson m.a. í grein um leikinn á mbl.is. Enn fjögur gegn Keflavík Fylkir vann sinn fyrsta leik og lagði Keflavík 4:2 en Keflvíkingar þurfa heldur betur að taka til í varn- arleiknum hjá sér því þeir hafa nú fengið á sig fjögur mörk í þremur leikjum í röð. _ Orri Hrafn Kjartansson skoraði tvö marka Fylkis en þessi 19 ára gamli strákur hafði áður skorað eitt mark í deildinni, gegn KR undir lok síðasta tímabils. _ Ástralski framherjinn Joey Gibbs, sem skoraði 21 mark fyrir Keflavík í 1. deildinni í fyrra, komst loksins á blað í efstu deild. Hann skoraði seinna mark Keflvíkinga úr vítaspyrnu og minnkaði þá muninn í 4:2. Víkingur og Valur eru á toppnum Morgunblaðið/Eggert Kópavogur Oliver Sigurjónsson og Óli Valur Ómarsson í baráttu um bolt- ann í leik Breiðabliks og Stjörnunnar þar sem Blikar unnu 4:0. - Akranes og Fylkir unnu fyrstu sigrana - Stjarnan situr í botnsætinu Pepsi Max-deild karla KA – Víkingur R....................................... 0:1 HK – ÍA..................................................... 1:3 Breiðablik – Stjarnan............................... 4:0 Fylkir – Keflavík ...................................... 4:2 Valur – Leiknir R ..................................... 1:0 Staðan: Víkingur R. 5 4 1 0 9:3 13 Valur 5 4 1 0 10:5 13 FH 4 3 1 0 11:3 10 KA 5 3 1 1 10:3 10 Breiðablik 5 2 1 2 11:8 7 Leiknir R. 5 1 2 2 6:7 5 Fylkir 5 1 2 2 7:10 5 ÍA 5 1 2 2 5:9 5 KR 4 1 1 2 6:7 4 Keflavík 5 1 0 4 5:13 3 HK 5 0 2 3 6:11 2 Stjarnan 5 0 2 3 2:9 2 Lengjudeild karla Afturelding – ÍBV .................................... 0:5 Fram – Þór................................................ 4:1 Víkingur Ó. – Kórdrengir ........................ 1:3 Grindavík – Fjölnir .................................. 0:2 Þróttur R. – Selfoss.................................. 3:1 Staðan: Fram 3 3 0 0 10:3 9 Fjölnir 3 3 0 0 6:1 9 Vestri 2 2 0 0 6:1 6 Kórdrengir 3 1 1 1 5:5 4 Afturelding 3 1 1 1 6:7 4 ÍBV 3 1 0 2 6:5 3 Grótta 2 1 0 1 4:4 3 Þór 3 1 0 2 8:9 3 Þróttur R. 3 1 0 2 5:7 3 Grindavík 3 1 0 2 4:7 3 Selfoss 3 1 0 2 4:7 3 Víkingur Ó. 3 0 0 3 4:12 0 2. deild karla Njarðvík – KV........................................... 1:1 Fjarðabyggð – Magni .............................. 0:4 Reynir S. – Kári........................................ 2:1 ÍR – Þróttur V .......................................... 1:5 Haukar – Völsungur................................. 3:3 Staðan: KF 2 2 0 0 5:2 6 Reynir S. 3 2 0 1 4:3 6 ÍR 3 2 0 1 5:6 6 Þróttur V. 3 1 2 0 9:5 5 KV 3 1 2 0 8:7 5 Magni 3 1 1 1 8:5 4 Völsungur 3 1 1 1 7:5 4 Haukar 3 1 1 1 8:7 4 Njarðvík 3 0 3 0 6:6 3 Kári 3 0 1 2 7:9 1 Fjarðabyggð 3 0 1 2 1:8 1 Leiknir F. 2 0 0 2 2:7 0 3. deild karla KFG – KFS............................................... 2:0 ÍH – Víðir .................................................. 1:1 Staðan: Höttur/Huginn 3 3 0 0 6:3 9 KFG 2 2 0 0 4:0 6 Augnablik 2 1 1 0 4:1 4 Dalvík/Reynir 2 1 1 0 5:4 4 Ægir 2 1 1 0 3:2 4 Víðir 3 1 1 1 5:5 4 Elliði 2 1 0 1 4:4 3 KFS 3 1 0 2 4:6 3 ÍH 3 0 2 1 4:7 2 Tindastóll 1 0 0 1 2:3 0 Sindri 2 0 0 2 2:4 0 Einherji 3 0 0 3 2:6 0 Lengjudeild kvenna Grótta – Grindavík ................................... 3:1 KR – ÍA ..................................................... 4:1 Staðan: KR 3 2 0 1 9:4 6 Grótta 3 2 0 1 6:5 6 Afturelding 2 1 1 0 5:3 4 Haukar 2 1 1 0 3:2 4 FH 2 1 0 1 4:3 3 Augnablik 2 1 0 1 3:3 3 ÍA 3 1 0 2 4:7 3 Grindavík 3 0 2 1 4:6 2 Víkingur R. 2 0 1 1 4:6 1 HK 2 0 1 1 4:7 1 2. deild kvenna Hamar – KM............................................. 6:0 Danmörk B-deild: Köge – Esbjerg ........................................ 1:2 - Andri Rúnar Bjarnason kom inn á hjá Esbjerg á 90. mínútu. Helsingör – Silkeborg............................. 3:3 - Stefán Teitur Þórðarson var í liði Silke- borg en Patrik Gunnarsson var ekki með. Fredericia – Viborg ................................ 0:3 - Elías Rafn Ólafsson varði mark Fre- dericia. Frakkland Bordeaux – Lyon ..................................... 0:1 - Svava Rós Guðmundsdóttir kom inn á hjá Bordeaux á 82. mínútu. - Sara Björk Gunnarsdóttir hjá Lyon er í barneignarfríi. Le Havre – París FC................................ 1:0 - Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Anna Björk Kristjánsdóttir léku allan leikinn með Le Havre sem er fallið úr deildinni. England C-deild: Umspil, undanúrslit, seinni leikur: Blackpool – Oxford ................................. 3:3 - Daníel Leó Grétarsson lék ekki með Blackpool sem vann 6:3 samanlagt. 4.$--3795.$

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.