Morgunblaðið - 22.05.2021, Síða 41
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021
alla ákvað deildin í samvinnu við
leikmenn, að gefa liðunum í níunda
og tíunda sæti tækifæri á að kom-
ast í úrslitakeppnina. Ákvörðun
sem er í anda stóru atvinnu-
íþróttadeildanna hér vestra um að
fjölga leikjum sem mest til að búa
til nýtt sjónvarpsefni fyrir fjöl-
miðlaheiminn.
Því stóra vandamálið í okkar
heimi í dag er of fáir NBA-leikir
fyrir úrslitakeppnina.
Fyrir utan Los Angeles Lakers
var ekkert lið í þessu umspili sem
átti endilega erindi í úrslitakeppn-
ina. Í staðinn fengum við NBA-
eðjótar vikuhvíld fyrir alvöru-
úrslitakeppnina.
Mekka körfuboltans að vakna
Philadelphia, Brooklyn og Mil-
waukee virðast skera sig úr í Aust-
urdeildinni en fyrir undirritaðan er
saga keppnistímabilsins persónuleg
varðandi árangur New York
Knicks. Í borg oft nefnd Mekka
körfuboltans hérna vestra.
Í aldarfjórðung hefur ákaft
stuðningsfólk Knicks og Nets mátt
þola hvert hörmungarleiktímabilið
af öðru. Nú eru aðrir tímar í New
York, þar sem bæði Knicks og
Nets verða loks með í toppbarátt-
unni svo seint á keppnistímabilinu.
Þessi lið mætast í fyrstu umferð
í Austurdeildinni:
Philadelphia 76ers – Washington
Brooklyn Nets – Boston Celtics
Milwaukee Bucks – Miami Heat
New York Knicks – Atlanta
Utah, Phoenix og Denver voru
yfirburðarliðin í Vesturdeildinni, en
meiðsl settu stórt strik í reikning-
inn hjá Kaliforníuliðunum LA La-
kers, LA Clippers og Golden State.
Meistarar Lakers binda miklar
vonir við að James og Davis hafi
nú náð sér nógu vel á strik eftir
meiðsl undanfarnar vikur til að
geta varið titilinn, en það er alls
ekki gefið. Mér finnst leikur liðsins
um þessar mundir ekki sýna meist-
aratakta.
Þessi lið mætast í fyrstu umferð
í Vesturdeildinni:
Utah – Golden State/Memphis
Phoenix Suns – LA Lakers
Denver Nuggets – Portland
LA Clippers – Dallas Mavericks
_ Mun ítarlegri útgáfa af grein-
inni er á mbl.is/sport/korfubolti.
gval@mbl.is
Margar stórar spurningar
- Úrslitakeppni NBA hefst í dag eftir
óvenjulegt tímabil og umspil
AFP
Lakers Ef Anthony Davis og LeBron James ná sér vel á strik eftir meiðslin
gætu meistararnir í Los Angeles Lakers farið langt í úrslitakeppninni.
NBA
Gunnar Valgeirsson
Los Angeles
Úrslitakeppnin í NBA-deildinni
hefst í dag eftir deildakeppni sem
var óvenjuleg að mörgu leyti.
Leikjaröðinni var pakkað saman af
deildinni og hvíld sumra liðanna
milli tveggja tímabila var styttri en
að venju, sérstaklega fyrir liðin
sem voru að berjast lengst í „kúl-
unni“ svokölluðu síðasta vetur.
Afraksturinn af þessu öllu urðu
fleiri langvarandi meiðsl margra
lykilleikmanna en að venju, þannig
að mörg lið eru að koma inn í
þessa úrslitakeppni með stórar
spurningar um getu og liðsheild á
vellinum. Lið með lykilleikmenn í
langvarandi meiðslum ákváðu að
fórna sigrum til að halda liðs-
mannahópnum saman og vona að
leikmenn eins og LeBron James,
James Harden og Kevin Durant
nái að komast í toppform á réttum
tíma. Af þessum sökum eru
kannski fleiri spurningar en svör
nú varðandi möguleika liðanna í úr-
slitakeppninni en venjulega.
Til að gera hlutina flóknari fyrir
Már Gunnarsson hafnaði í fimmta
sæti í 100 metra baksundi í flokki
S11 á EM fatlaðra í sundi á portú-
gölsku eyjunni Madeira í gærkvöld.
Már, sem fékk næstbesta tímann í
undanrásunum í gær, synti vega-
lengdina á 1:11,81 mínútu og var
aðeins hálfri sekúndu frá brons-
verðlaununum. Mykhailo Serbin frá
Úkraínu fékk gullið á 1:10,28, Woj-
ciech Makowski frá Póllandi varð
annar á 1:10,61, Oleksander Ar-
tiukhov frá Úkraínu þriðji á 1:11,31
og Marco Meneses frá Portúgal
fjórði á 1:11,40 mínútu.
Már fimmti í bak-
sundinu á EM
Ljósmynd/ÍF
Fimmti Már Gunnarsson var í bar-
áttu um verðlaun í gærkvöld.
Snæfríður Sól Jórunnardóttir hafn-
aði í 52. sæti í 100 metra skriðsundi
og Jóhanna Elín Guðmundsdóttir í
58. sæti á Evrópumótinu í Búdapest
í gær en keppendur voru 69. Snæ-
fríður synti á 56,63 sekúndum og
Jóhanna náði sínum besta árangri
þegar hún synti á 57,35 sekúndum.
Jóhanna Elín mætir aftur til leiks
á mótinu í dag og syndir 50 metra
flugsund og þá syndir Dadó Fenrir
Jasmínuson 50 metra skriðsund,
auk þess sem blönduð boðsunds-
sveit Íslands í 4x100 metra skrið-
sundi mætir til leiks.
Jóhanna með
besta árangur
Ljósmynd/Hörður J. Oddfríðarson
EM Jóhanna Elín Guðmundsdóttir
bætti árangur sinn í Búdapest.
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Kaplakriki: FH – KR ............................. L16
Norðurálsvöllur: ÍA – Breiðablik .... M19.15
Samsung-völlur: Stjarnan – KA ...... M19.15
HS Orkuvöllur: Keflavík – Valur..... M19.15
1. deild karla, Lengjudeildin:
Vivaldi-völlur: Grótta – Vestri............... L14
2. deild karla:
Ólafsfjarðarv.: KF – Leiknir F.............. L16
3. deild karla:
Würth-völlur: Elliði – Tindastóll........... L14
Fífan: Augnablik – Sindri ...................... L14
Dalvíkurv.: Dalvík/Reynir – Ægir ........ L14
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Ásvellir: Haukar – Víkingur R .............. L13
Kópavogsvöllur: Augnablik – FH ......... L14
Varmá: Afturelding – HK...................... L14
2. deild kvenna:
Extra-völlur: Fjölnir – Einherji............ L13
OnePlus-völlur: Álftanes – FHL........... L14
Sindravellir: Sindri – Fram ................... L14
Borginn: Hamrarnir – SR...................... L16
Vodafone-völlur: Völsungur – KH ....... M15
HANDKNATTLEIKUR
Undanúrslit kvenna, fyrsti leikur:
KA-heimilið: KA/Þór – ÍBV .............. S13.30
Framhús: Fram – Valur ......................... S15
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Hleðsluhöll: Selfoss – Haukar .............. M16
Framhús: Fram – Grótta ...................... M16
Austurberg: ÍR – FH ............................ M16
TM-höllin: Stjarnan – Þór..................... M16
Eyjar: ÍBV – Afturelding...................... M16
Origo-höll: Valur – KA .......................... M16
KÖRFUKNATTLEIKUR:
8-liða úrslit karla, þriðji leikur:
MG-höllin: Stjarnan – Grindavík (1:1).. L15
Blue-höllin: Keflavík – Tindastóll (2:0). L17
IG-höllin: Þór Þ. – Þór Ak. (1:1)........ S18.15
Origo-höll: Valur – KR (1:1) .............. S20.15
Umspil karla, undanúrslit, þriðji leikur:
Hveragerði: Hamar – Selfoss ......... M19.15
Ísafjörður: Vestri – Skallagrímur ... M19.15
Umspil kvenna, undanúrslit, annar leikur:
Kennarahásk.: Ármann – Njarðv. (0:1) L18
HS Orkuhöll: Grindavík – ÍR (1:0)... L18.30
BLAK
Oddaleikur kvenna um titilinn:
Fagrilundur: HK – Afturelding (1:1).... L14
Fyrsti úrslitaleikur karla:
Hveragerði: Hamar – KA....................... S15
UM HELGINA!
Úrslitakeppni kvenna
Undanúrslit, þriðji leikur:
Valur – Fjölnir ...................................... 78:74
_ Valur vann einvígið 3:0.
Haukar – Keflavík ................................ 80:50
_ Haukar unnu einvígið 3:0.
Umspil karla
Undanúrslit, annar leikur:
Selfoss – Hamar ................................... 97:77
_ Staðan er 1:1
Skallagrímur – Vestri .......................... 68:75
_ Staðan er 2:0 fyrir Vestra.
Spánn
B-deild, 8-liða úrslit, fyrsti leikur:
Leyma Coruna – Oviedo ..................... 74:76
- Sigtryggur Arnar Björnsson tók 2 frá-
köst og spilaði í 4 mínútur með Coruna.
NBA-deildin
Umspil Vesturdeildar, úrslitaleikur:
Washington – Indiana...................... 142:115
_ Washington mætir Philadelphia í fyrstu
umferðinni.
>73G,&:=/D
Sviss
Annar úrslitaleikur:
Zug – Bruhl .......................................... 24:22
- Harpa Rut Jónsdóttir skoraði ekki fyrir
Zug.
_ Staðan er 2:0 fyrir Zug.
Þýskaland
B-deild:
Rimpar – Bietigheim........................... 21:25
- Aron Rafn Eðvarðsson varði 16/1 skot í
marki Bietigheim, 43% markvarsla.
%$.62)0-#
Fram og Fjölnir eru bæði með níu
stig eftir þrjár umferðir í 1. deild
karla í fótbolta eftir góða sigra í
gærkvöld en Ólafsvíkingar sitja eft-
ir stigalausir á botninum.
Fram vann Þór 4:1 í Safamýri.
Indriði Þorláksson skoraði tvö
mörk, Kyle McLagan og Fred Sa-
raiva eitt hvor en Bjarni Guðjón
Brynjólfsson gerði mark Þórs í blá-
lokin.
Ragnar Leósson og Hilmir Rafn
Mikaelsson tryggðu Fjölni góðan
útisigur í Grindavík, 2:0.
Eyjamenn fengu sín fyrstu stig
þegar þeir burstuðu Aftureldingu
5:0 í Mosfellsbæ. Guðjón Pétur
Lýðsson skoraði fyrst og síðan
gerðu José Sito og Gonzalo Zamor-
ano tvö mörk hvor.
Kórdrengir unnu sinn fyrsta 1.
deildar leik, 3:1 í Ólafsvík. Davíð
Þór Ásbjörnsson gerði tvö mörk og
Loic Ondo eitt en Harley Willard
svaraði fyrir Víkinga undir lokin.
Þróttur fékk sín fyrstu stig með
3:1 sigri gegn Selfossi. Jón Guð-
bergsson, Lárus Björnsson og Haf-
þór Pétursson skoruðu fyrir Þrótt
en Hrvoje Tokic fyrir Selfoss.
Ljósmynd/Kristinn Steinn Traustason
Tvenna Davíð Þór Ásbjörnsson fagnar eftir að hafa skorað annað marka
sinna fyrir Kórdrengi gegn Víkingum í Ólafsvík í gærkvöld.
Fram og Fjölnir efst
Valur og Haukar leika til úrslita
um Íslandsmeistaratitil kvenna í
körfuknattleik eftir að hafa gert út
um undanúrslitaeinvígin gegn
Fjölni og Keflavík í gærkvöld, bæði
3:0.
Deildarmeistararnir í Val þurftu
að hafa fyrir sigrinum gegn nýlið-
um Fjölnis í öðrum og þriðja leikn-
um en unnu stórsigur í þeim fyrsta.
Lokatölur í gærkvöld urðu 78:74
á Hlíðarenda þar sem Kiana John-
son tryggði sigur Vals í lokin.
Skyttan Hallveig Jónsdóttir átti
stóran þátt í sigri Vals en hún setti
niður sex þriggja stiga skot og not-
aði aðeins átta tilraunir. Alls skor-
aði Hallveig 22 stig. Dagbjört Dögg
Karlsdóttir heldur áfram að leika
vel og skoraði 16 stig auk þess að
gæta Ariel Hearn í vörninni.
Litháíski miðherjinn Lina Pik-
ciuté skoraði 22 stig fyrir Fjölni og
tók 12 fráköst.
Yfirburðasigur Hauka
Haukar voru hinsvegar ekki í
nokkrum vandræðum með Keflavík
á Ásvöllum og unnu öruggan sigur,
80:50.
Haukakonur stungu af strax í
fyrsta leikhluta en staðan var 23:8
að honum loknum. Bilið breikkaði
enn, var 41:20 í hálfleik og 70:35
eftir þriðja leikhluta, en Keflavík
lagaði stöðuna örlítið í þeim fjórða.
Sara Rún Hinriksdóttir skoraði
22 stig fyrir Hauka og Bríet Sif
Hinriksdóttir systir hennar 15 en
Alyesha Lovett skoraði 13 stig.
Daniela Wallen skoraði 17 stig fyrir
Keflvíkinga. vs@mbl.is
Valur og Haukar fara
í úrslitaeinvígið
Morgunblaðið/Eggert
Drjúg Sara Rún Hinriksdóttir skor-
aði 22 stig fyrir Hauka í gær.
Frá og með næsta þriðjudegi, 25.
maí, geta fleiri áhorfendur en áður
mætt á íþróttaviðburði en þá tekur
gildi ný reglugerð heilbrigðis-
ráðherra þar sem dregið verður úr
samkomutakmörkunum. Frá og með
þeim degi hækkar hámarksfjöldi í
hverju sóttvarnahólfi úr 150 í 300
manns. Þar með getur áhorfendum
fjölgað úr 300 í 600 þar sem um tvö
sóttvarnahólf er að ræða og úr 450 í
900 þar sem hægt er að koma við
þremur sóttvarnahólfum.
Fleiri áhorfendur
frá þriðjudegi