Morgunblaðið - 22.05.2021, Qupperneq 42
Ó, hvílík gleði, Euro-
vision í kvöld! Gleði,
hlátur, samvera, þjóð-
arstolt og grillpinnar.
Hvernig fer þetta eig-
inlega? Og það sem
meira er um vert,
hvernig er þetta eig-
inlega búið að vera?
Kýpur Gríska söngkonan Elena Tsagrinou fer fyrst á svið í kvöld.
Ljósmynd/Gísli Berg
Best! Daði og Gagnamagnið voru hress í stigagjöfinni í fyrrakvöld og komust auðvitað í úrslit.
AFP
Úkraína Go_A á besta lag keppninnar í ár, að undanskildu lagi Daða Freys, nema hvað.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég var bara að fatta það ívikunni að ég elska Euro-vision miklu meira en ég
hélt. Held alltaf að ég sé svona
hálf-áhugasamur, meira út frá
blaðamannaskyldu en tónlistarást,
en svo þegar þetta fer í gang þá
fer ég líka í gang. Fer á fullt! Ég
var eiginlega utan radars í upphafi
vikunnar, með hugann við verk-
efnayfirferð í háskólanum, er koll-
egi minn kær, Helgi Snær, bað
mig um að taka keppnina út fyrir
laugardaginn. Ég settist því niður
á þriðjudaginn, pollrólegur, en eft-
ir sextán umferðir af missturluðum
uppákomum var ég seldur enn
eina ferðina. Þessi keppni er
snilld! Og, eins og ég hef reyndar
hamrað á í gegnum tíðina, fyrst og
síðast skemmtileg. Gaman, gleði,
stuð, afþreying. Það er bara þann-
ig.
Ég er t.d. farinn að fíla
sviðsatriðin svo vel. Hvað hægt er
að gera með tæknivinnu, hugviti
og listrænu innsæi er dásamlegt,
einhverjir súrrealískir draum-
heimar verða lifandi á sviðinu í
þrjár mínútur, með vindvélum og
sprengingum, flöktandi á milli
hreinnar maurasýru og einlægrar
fegurðar. Það er eitthvað þægilegt
við þennan rússíbana, eitthvað
bernskt jafnvel. Það er hægt að
hlæja, hneykslast og hnussa en
ekki segja að þessi keppni hreyfi
ekki við ykkur á einhvern hátt.
Niðurtúr af sýrutrippi
Fyrra undanúrslitakvöldið var
harla gott. Litháen henti í gulllitað
sprell, Kraftwerk hyllt með flippi
bæði og fjöri. Táknrænt upphaf.
Það voru restar og rusl þarna inn-
an um samt. Englaruglið frá Nor-
egi fannst mér klént og kýpverska
atriðið full glennulegt fyrir minn
smekk. Langverst var þó Írland.
Ég meina, hvað var í gangi eig-
inlega? Lag sem var eins og slæm-
ur niðurtúr af sýrutrippi og manni
leið líkamlega illa við að horfa á
þetta. Það er eins og ég hef sagt,
Írar eru svo góðir í tónlist að þeir
eru líka góðir í lélegri tónlist (þið
munið „Rock‘n‘Roll Kids“). Það
langbest var Úkraína með gjör-
samlega geggjað lag, það besta í
keppninni án efa (fyrir utan Daða
að sjálfsögðu). Það er eitthvað „x“
í þessu lagi sem verður varla út-
skýrt með orðum.
Seinna undanúrslitakvöldið var
síðra. Sjö lög búin og hvert og eitt
algert rusl. Daði og hans fólk kom
svo og gerði vel, þetta stíliseraða
narðapopp þeirra er bara dásemd
og atriðið frábært. Ég fann það að
salurinn var með þeim. Þetta kvöld
heyrði ég bæði besta lag sem ég
hef á ævi minni heyrt (danska lag-
ið) og það versta (Georgía). Ég fæ
því miður aldrei þessar þrjár mín-
útur til baka er Leonard Cohen fá-
tæka mannsins murkaði lífið úr
tónlistinni (takk Gísli fyrir mynd-
líkinguna). En nú fór Eyjólfur að
hressast. Albanar með samslátt af
James Bond og Austurlöndum,
Portúgalar eins og mafíósar í
White Stripes-tökulagabandi og
Búlgaría með Billie Eilish einlægð-
arballöðu (og mjög flotta sviðs-
mynd). Finnarnir klikka svo auð-
vitað aldrei (Korn! Vel gert!).
Lettland setti Beyoncé í þjóðlaga-
búning, Sviss var æði, Perfume
Genius í poppbúningi (flettið þessu
upp) og svo Baunarnir. Ég meina,
öllum mínum níunda áratugar
herðapúðaæskudraumum pakkað
inn í lag sem minnti á Miami Vice,
Sinclair Spectrum og annað hvert
eins smells undur sem ég heyrði í
útvarpinu þegar ég var tíu ára.
Það er glæpur gegn mannkyninu
að þetta lag hafi ekki farið áfram!
Við vinnum þetta!
Örstutt um lögin sem þurftu
ekki að keppa. Spánn og Ítalía í
ruglinu (eins og venjulega), Bret-
land ágætt en Þjóðverjar kunna
ekki að flippa (nema Guildo nátt-
úrulega). Holland hins vegar með
sterkt, ástríðufullt popp og Frakk-
land frábært, stíll og klassi yfir
einslags Piaf-leginni kaffihúsa-
ballöðu.
Kæru landsmenn. Góða skemmt-
un í kvöld. Gangi ykkur vel með
grillpinnana og heimatilbúnu at-
kvæðaseðlana og fyrir alla muni,
njótið skemmtunarinnar í kvöld.
Eurovision er snilld! Og auðvitað
vinnur Ísland. Tími til kominn.
Engar áhyggjur af Gagnamagninu.
Eða eins og Bragi frændi sagði,
það er enginn sem hefur getað
státað af því hingað til að hafa
horft á sjálfan sig vinna Eurovisi-
on.
Rimman mikla í Rotterdam
Aserbaísjan Efendi og dansmeyjar hennar á fyrra undanúrslitakvöldi. Georgía Tornike Kipiani murkaði lífið úr tónlistinni og komst ekki áfram.
Sviss Albanski söngvarinn Gjon Tears syngur fyrir Sviss og gerir vel. Danmörk Fyr & Flamme hrifu pistilritara en komust ekki í úrslit.
Rússland Manizha og vinir í skrautlegu atriði Rússlands í Eurovision.
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021
1. Ísland (döh!)
2. Úkraína
3. Sviss
4. Rússland
5. Danmörk (viss ómöguleiki,
en samt …)
Áfram Ísland!
ARNAR SPÁIR FYRIR
UM EFSTU FIMM SÆTIN
var hins vegar etníska tölvupoppið
sem kveikti mest í mér. Aserbaíd-
sjan og „Mata Hari“ var stórkost-
legt, Rússarnir með óðinn til rúss-
nesku konunnar var gæsahúð en