Morgunblaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 22.05.2021, Blaðsíða 42
Ó, hvílík gleði, Euro- vision í kvöld! Gleði, hlátur, samvera, þjóð- arstolt og grillpinnar. Hvernig fer þetta eig- inlega? Og það sem meira er um vert, hvernig er þetta eig- inlega búið að vera? Kýpur Gríska söngkonan Elena Tsagrinou fer fyrst á svið í kvöld. Ljósmynd/Gísli Berg Best! Daði og Gagnamagnið voru hress í stigagjöfinni í fyrrakvöld og komust auðvitað í úrslit. AFP Úkraína Go_A á besta lag keppninnar í ár, að undanskildu lagi Daða Freys, nema hvað. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Ég var bara að fatta það ívikunni að ég elska Euro-vision miklu meira en ég hélt. Held alltaf að ég sé svona hálf-áhugasamur, meira út frá blaðamannaskyldu en tónlistarást, en svo þegar þetta fer í gang þá fer ég líka í gang. Fer á fullt! Ég var eiginlega utan radars í upphafi vikunnar, með hugann við verk- efnayfirferð í háskólanum, er koll- egi minn kær, Helgi Snær, bað mig um að taka keppnina út fyrir laugardaginn. Ég settist því niður á þriðjudaginn, pollrólegur, en eft- ir sextán umferðir af missturluðum uppákomum var ég seldur enn eina ferðina. Þessi keppni er snilld! Og, eins og ég hef reyndar hamrað á í gegnum tíðina, fyrst og síðast skemmtileg. Gaman, gleði, stuð, afþreying. Það er bara þann- ig. Ég er t.d. farinn að fíla sviðsatriðin svo vel. Hvað hægt er að gera með tæknivinnu, hugviti og listrænu innsæi er dásamlegt, einhverjir súrrealískir draum- heimar verða lifandi á sviðinu í þrjár mínútur, með vindvélum og sprengingum, flöktandi á milli hreinnar maurasýru og einlægrar fegurðar. Það er eitthvað þægilegt við þennan rússíbana, eitthvað bernskt jafnvel. Það er hægt að hlæja, hneykslast og hnussa en ekki segja að þessi keppni hreyfi ekki við ykkur á einhvern hátt. Niðurtúr af sýrutrippi Fyrra undanúrslitakvöldið var harla gott. Litháen henti í gulllitað sprell, Kraftwerk hyllt með flippi bæði og fjöri. Táknrænt upphaf. Það voru restar og rusl þarna inn- an um samt. Englaruglið frá Nor- egi fannst mér klént og kýpverska atriðið full glennulegt fyrir minn smekk. Langverst var þó Írland. Ég meina, hvað var í gangi eig- inlega? Lag sem var eins og slæm- ur niðurtúr af sýrutrippi og manni leið líkamlega illa við að horfa á þetta. Það er eins og ég hef sagt, Írar eru svo góðir í tónlist að þeir eru líka góðir í lélegri tónlist (þið munið „Rock‘n‘Roll Kids“). Það langbest var Úkraína með gjör- samlega geggjað lag, það besta í keppninni án efa (fyrir utan Daða að sjálfsögðu). Það er eitthvað „x“ í þessu lagi sem verður varla út- skýrt með orðum. Seinna undanúrslitakvöldið var síðra. Sjö lög búin og hvert og eitt algert rusl. Daði og hans fólk kom svo og gerði vel, þetta stíliseraða narðapopp þeirra er bara dásemd og atriðið frábært. Ég fann það að salurinn var með þeim. Þetta kvöld heyrði ég bæði besta lag sem ég hef á ævi minni heyrt (danska lag- ið) og það versta (Georgía). Ég fæ því miður aldrei þessar þrjár mín- útur til baka er Leonard Cohen fá- tæka mannsins murkaði lífið úr tónlistinni (takk Gísli fyrir mynd- líkinguna). En nú fór Eyjólfur að hressast. Albanar með samslátt af James Bond og Austurlöndum, Portúgalar eins og mafíósar í White Stripes-tökulagabandi og Búlgaría með Billie Eilish einlægð- arballöðu (og mjög flotta sviðs- mynd). Finnarnir klikka svo auð- vitað aldrei (Korn! Vel gert!). Lettland setti Beyoncé í þjóðlaga- búning, Sviss var æði, Perfume Genius í poppbúningi (flettið þessu upp) og svo Baunarnir. Ég meina, öllum mínum níunda áratugar herðapúðaæskudraumum pakkað inn í lag sem minnti á Miami Vice, Sinclair Spectrum og annað hvert eins smells undur sem ég heyrði í útvarpinu þegar ég var tíu ára. Það er glæpur gegn mannkyninu að þetta lag hafi ekki farið áfram! Við vinnum þetta! Örstutt um lögin sem þurftu ekki að keppa. Spánn og Ítalía í ruglinu (eins og venjulega), Bret- land ágætt en Þjóðverjar kunna ekki að flippa (nema Guildo nátt- úrulega). Holland hins vegar með sterkt, ástríðufullt popp og Frakk- land frábært, stíll og klassi yfir einslags Piaf-leginni kaffihúsa- ballöðu. Kæru landsmenn. Góða skemmt- un í kvöld. Gangi ykkur vel með grillpinnana og heimatilbúnu at- kvæðaseðlana og fyrir alla muni, njótið skemmtunarinnar í kvöld. Eurovision er snilld! Og auðvitað vinnur Ísland. Tími til kominn. Engar áhyggjur af Gagnamagninu. Eða eins og Bragi frændi sagði, það er enginn sem hefur getað státað af því hingað til að hafa horft á sjálfan sig vinna Eurovisi- on. Rimman mikla í Rotterdam Aserbaísjan Efendi og dansmeyjar hennar á fyrra undanúrslitakvöldi. Georgía Tornike Kipiani murkaði lífið úr tónlistinni og komst ekki áfram. Sviss Albanski söngvarinn Gjon Tears syngur fyrir Sviss og gerir vel. Danmörk Fyr & Flamme hrifu pistilritara en komust ekki í úrslit. Rússland Manizha og vinir í skrautlegu atriði Rússlands í Eurovision. 42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021 1. Ísland (döh!) 2. Úkraína 3. Sviss 4. Rússland 5. Danmörk (viss ómöguleiki, en samt …) Áfram Ísland! ARNAR SPÁIR FYRIR UM EFSTU FIMM SÆTIN var hins vegar etníska tölvupoppið sem kveikti mest í mér. Aserbaíd- sjan og „Mata Hari“ var stórkost- legt, Rússarnir með óðinn til rúss- nesku konunnar var gæsahúð en

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.