Morgunblaðið - 22.05.2021, Qupperneq 43
standa fyrir sínu. Leikmynd Evu
Signýjar Berger þjónar uppfærsl-
unni vel og búningar eru stílhreinir í
einfaldleika sínum. Bleik jakkafötin
sem einkenna fyrri hlutann víkja fyr-
ir svarta litnum og glimmeri eftir hlé.
Bestir eru samt brauðbúningarnir
sem stela hreinlega senunni í loka-
söngatriðinu fyrir hlé. Góð lýsing
Inga Bekk er síðan punkturinn yfir
i-ið.
Hin fjölhæfa Saga Garðarsdóttir,
sem réttnefnd hefur verið fyndlist-
arkona, hefur yfirumsjón með hand-
ritinu, en meðhöfundar hennar eru
Katla Margrét Þorgeirsdóttir,
Sigrún Edda Björnsdóttir, Sigurður
Þór Óskarsson og Halldór Gylfason.
Öll leika þau í sýningunni ásamt
Birni Stefánssyni og Davíð Bernd-
sen, en sá síðarnefndi samdi tónlist-
ina fyrir utan sitt lagið eftir hvorn,
Prins Póló og Snorra Helgason.
„Upphafslagið“ er mikill eyrnaormur
og stendur rýnir sig enn að því að
raula reglulega línuna „Það bara
verður að vera gaman“. Af öðrum
tónlistaratriðum verður að nefna
frábæran flutning Sigurðar Þórs á
„Makalaust“ og dásamlegan „Ástar-
dúett“ Halldórs, í hlutverki mannsins
sem aldrei er boðið í partí, og Kötlu
Margrétar, í hlutverki konunnar sem
enginn mætir í veislur til.
Uppáhaldsatriði kvöldsins var hins
vegar kórpartíið þar sem leikhóp-
urinn fór á kostum.
Styrkur Veislu felst í þeim sanna
tón sem í aðstæðunum birtast. Við
þekkjum flestöll þá tilfinningu að
vera utanveltu á ættarmóti eða vera
makinn í vinnustaðapartíi sem skilur
enga brandara kvöldsins, við höfum
flest heyrt veisluræðu þar sem ræðu-
haldaranum tekst einhvern veginn að
láta allt snúast um sjálfan sig, við
höfum örugglega öll fundið fyrir ein-
hvers konar veislukvíða og velt fyrir
okkur hvort veislan okkar sé nú
örugglega nógu vel heppnuð eða haft
áhyggjur af því hvort okkur takist að
brydda upp á nógu skemmtilegu
umræðuefni við hina gestina. Og eftir
því sem væntingarnar eru meiri þeim
mun styttra er í vonbrigðin.
Leikarar sýningarinnar standa sig
vel í hverju atriðinu á fætur öðru þótt
þeir fái mismikil tækifæri til að skína
í hlutverkum sínum. Saga er dásam-
leg í hlutverki konunnar sem tekur
að sér að mæta í veislur og vera veik-
asti hlekkurinn til að taka pressuna
um að vera skemmtileg af öðrum
gestum. Katla Margrét er frábær
sem konan sem er edrú og veit af því
með bíllyklana jafnt sem vandlæt-
inguna á lofti. Sigurður Þór er yndis-
legur í hlutverki fermingardrengsins
í miðjum mútum og góður sem kvíðni
veislugesturinn.
Veisla er kærkomin skemmti-
dagskrá fyrir veisluþyrsta lands-
menn. Hún bætir, hressir og kætir.
Það bara verður að vera gaman
» Í anda revíusýning-anna er Veisla laus í
reipunum, samsett úr
óskyldum grínatriðum
þar sem dans og tónlist
leikur stórt hlutverk.
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Þorrablótsnefndin „Veisla er kærkomin skemmtidagskrá fyrir veisluþyrsta landsmenn,“ segir í rýni um Veislu.
AF LISTUM
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Eftirvæntingin var nánastáþreifanleg í salnum þegarVeisla var loks frumsýnd á
Stóra sviði Borgarleikhússins um
liðna helgi, rúmu ári eftir að upp-
haflega stóð til að frumsýna hana á
Litla sviðinu. Eftir margra mánaða
þjálfun í nálægðartakmörkunum,
heimavinnu, sprittun og grímu-
notkun út af kórónuveirufaraldrinum
sem gengur yfir heimsbyggðina eru
mannmargar veislur og mannfagn-
aður hvers konar nánast eins og óljós
minning. Áhugavert verður að sjá
hvort við dettum sjálfkrafa í sama
farið þegar takmörkunum verður
alfarið aflétt eða hvort breyttar
venjur séu komnar til að vera.
Munum við til dæmis faðmast eins
glatt og heilsa fólki með handabandi?
Líkt og nafnið gefur til kynna bein-
ir Veisla sjónum sínum að öllum þeim
veislum sem við höfum misst af í
heimsfaraldrinum, hvort sem það eru
afmælin, þorrablótin, árshátíðirnar,
útilegurnar, ættarmótin, brúðkaupin,
fermingarveislurnar, matarboðin eða
Pálínuboðin. Í anda revíusýninganna
er Veisla laus í reipunum, samsett úr
óskyldum grínatriðum þar sem dans
og tónlist leikur stórt hlutverk. Grín-
ið er nær undantekningarlaust góð-
látlegt og augljóslega ekki ætlunin að
særa neinn þessa kvöldstund þar
sem stuðið er við völd. Margar hug-
myndir hreinasta afbragð og vel út-
færðar. Á stöku stað var samt eins og
brandarinn væri endurtekinn að
óþörfu. Ef ekki væri fyrir örfáa
neðanbeltisbrandara mætti segja að
Veisla henti allri fjölskyldunni sem
kærkomin stuðsýning sem kitlar
hláturtaugar eftir erfiðan vetur.
Leikstjórinn Bergur Þór Ingólfs-
son heldur fallega utan um alla þræði
sýningarinnar og þar nýtist reynsla
hans úr umfangsmiklum söngleikjum
síðustu ára afar vel. Hér er öllu til
tjaldað á Stóra sviðinu með veislu-
tertum í yfirstærð, reykvélum,
glimmeri í anda Mamma Mia! og
bakveggjum sem skipta litum líkt og
um söngatriði í Eurovision væri að
ræða, þar sem dansar úr smiðju
Unnar Elísabetar Gunnarsdóttur
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021
Myndlistartvíeykið og handhafar
Íslensku myndlistarverðlaunanna í
ár, Libia Castro og Ólafur Ólafsson,
verða með listamannaspjall í dag
kl. 13 í Hafnarborg í Hafnarfirði.
Munu þau fjalla um inntak sýning-
arinnar Töfrafundur – áratug síðar
sem þau standa að með Töfrateym-
inu. Sýningin er kafli í áratuga-
löngu og marglaga starfi lista-
mannanna sem einkennist af
félagslegri virkni og inngripi þar
sem þau kanna tengslin á milli list-
ar og aktívisma auk þess sem þau
vinna með kynngi listarinnar og
mögulegan kraft hennar til að
stuðla að samfélagslegum breyt-
ingum, eins og segir í tilkynningu.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Tvíeyki Myndlistardúóið Ólafur og Libia.
Ólafur og Libia í
listamannaspjalli
Fljúgðu nefnist
sýningu Huldu
Vilhjálmsdóttur
sem nú stendur
yfir í NORR11,
Hverfisgötu 18 í
Reykjavík, og
lýkur 17. júní.
Sýningin er á
vegum Listvals,
ráðgjafarþjón-
ustu sem
aðstoðar við myndlistarval.
Á sýningunni Fljúgðu má sjá
klippimálverk og portrettmyndir
og í þeim fyrrnefndu veltir Hulda
fyrir sér andstæðum á striganum,
að því er segir í tilkynningu, fín-
leiki mætir hráleika, matt efni mæt-
ir glansandi og ljósir litir dekkri lit-
um. Í sköpunarferlinu segist Hulda
lifa sig inn í verkin og engin ein
formúla höfð að leiðarljósi. Hulda
hefur haldið fjölda bæði einka- og
samsýninga heima og erlendis.
Hulda sýnir verk
sín í NORR11
Eitt af verkum
Huldu í NORR11.