Morgunblaðið - 22.05.2021, Síða 45

Morgunblaðið - 22.05.2021, Síða 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. MAÍ 2021 Fenix • Slitsterkt og hitaþolið yfirborðsefni • Silkimjúk áferð við snertingu • Sérsmíðum eftir máli Gylfaflöt 6-8, 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is Myndlistarsýningin Milli tveggja heima verður opnuð í dag, laug- ardag, kl. 16 í Lýðræðisbúllunni, Bergstaðastræti 25B. Verður það síðasta sýningaropnunin í húsinu. Tvær myndlistar- og vinkonur sýna saman og hafa þær síðast- liðið ár átt í samtali með því að deila myndum með hvor annarri af vinnustofu sinni og sýnishorn- um úr skissubókum, að því er fram kemur í tilkynningu. „Þannig liðu vikur og mánuðir á tímum heimsfaraldurs, með samtali sem oft var án orða. Sér- legt áhugasvið vinkvennanna er hið óræða og samspil lita, afger- andi litafletir og grafísk nálgun á myndefni. Samtal þeirra spannar allt á milli himins og jarðar en hér er landslagið í forgrunni. Málverk í blandaða miðla sem saman gefa upp myndir af lands- lagi sem bæði virkar jarðneskt og handanheims,“ segir í tilkynn- ingu. Freyja sýnir útskornar vegg- myndir og vatnslitamyndir á pappír og Karen málverk unnin með akríl á striga. Milli tveggja heima í Lýðræðisbúllunni Vinkonur Karen og Freyja sýna saman. Sýning Katrínar Sigurðardóttur, Til staðar, verður opnuð í dag kl. 17 að Nýp á Skarðsströnd í Dala- sýslu. Er það ein af þremur sýn- ingum sem Katrín hefur unnið í jafnmörgum landsfjórðungum, þ.e. við Hoffell undir Vatnajökli, á Skarðsströnd við Breiðafjörð og í Svalbarðshreppi í Norður-Þing- eyjarsýslu. Hugmyndin að baki verkunum tengist samspili hráefnis á ákveðnum stað, mannlegu inngripi og ferlum náttúrunnar sjálfrar, segir í tilkynn- ingu og að sýn- ingin að Nýp innihaldi þrjú ljósmyndaverk Katrínar sem og heimildir um framkvæmd verkanna í formi ljósmynda og myndbands. Vegna fjöldatak- markana þurfa gestir að skrá heimsókn með pósti á nyp@nyp.is. Katrín sýnir að Nýp á Skarðsströnd Katrín Sigurðardóttir Andrými nefnist önnur sýningin í röðinni Uns á Borgarfirði eystri sem opnuð verður í dag kl. 14. Á henni sýna listamennirnir Anna Hallin, Inga Þórey Jóhannsdóttir, Kristín Reynisdóttir og Olga Berg- mann verk sín í sýningarrýminu Glettu í Hafnarhúsinu og hafa þær unnið ný verk sérstaklega fyrir sýningarrýmið. Má þar sjá skúlp- túra, teikningar og ljósmyndir. „Sýningin Andrými opnar á flæði á milli hins huglæga rýmis og hins áþreifanlega,“ segir í til- kynningu. Verk Ingu er unnið út frá hugmyndum um heimilið og þau efni sem mikilvægt er að taka með sér þegar flutt er á nýjan stað, verk Önnu Hallin er röð blekteikninga sem sækja inn- blástur í loft- myndir af flug- mannvirkjum og hinar ýmsu tengingar á milli þeirra, verk Olgu fjallar um þversögn sem felst í manngerðri náttúru og skoðar skynjun okkar og skilning á náttúrunni og hvernig sú upp- lifun er klippt og skorin og verk Kristínar sækir í hringinn sem hina endalausu línu. Andrými á Borgarfirði eystri Verk eftir Önnu Hallin Myndlistarsýningin Feigðarós — Dreamfields verður opnuð í Kling & Bang galleríi í Marshall-húsinu í dag, laugardag, kl. 15 til 18. Er það samsýning Önnu Hrundar Másdótt- ur, Ragnheiðar Káradóttur og Steinunnar Önnudóttur og ekki hefðbundin, að því er fram kemur í tilkynningu, heldur sameiginlegt verk þeirra þriggja, „innsetning þar sem höfundareinkenni þeirra flétt- ast saman og ummyndast er þær skyggnast inn í vinnuaðferðir og hugarheima hver annarrar, og leyfa tilraunagleði og slembilukku að leiða sig áfram,“ eins og þar stendur. Innsetningin samanstendur af skúlptúrum sem minna á landslag, umlykja áhorfandann og draga upp umhverfi sem er á mörkum þess manngerða og þess náttúrulega, segir í tilkynningu og að lykilþættir í viðfangi og efnisgerð verkanna séu samband manngerðra efna og nátt- úru, samþætting og sundrun. Textaverk eftir þekkta höfunda Samhliða sýningunni kemur út bókverk sem er hluti þess umlykj- andi heims sem innsetningin skapar. Í bókverkinu eru ljósmyndir sem unnar voru í aðdraganda sýningar- innar þar sem efnistilraunir eru settar í óvænt samhengi. Hluta þessara ljósmyndaverka má einnig sjá á sýningunni og í bókverkinu eru líka ný textaverk sem tengjast efni sýningarinnar. Þau eru eftir Berg- þóru Snæbjörnsdóttur, Guðrúnu Evu Mínervudóttur, Gunnar Theo- dór Eggertsson og Tyrfing Tyrf- ingsson. Tilraunagleði og slembilukka - Samsýning þriggja kvenna í Kling & Bang Feigðarós Kynningarmynd fyrir sýninguna sem opnuð verður í dag. Djasspíanistinn Sunna Gunnlaugs- dóttir er Bæjarlistamaður Kópavogs 2021. Valið var tilkynnt í Salnum í gær við hátíðlega athöfn. Í tilkynn- ingu frá bænum kemur fram að til- gangur útnefningarinnar sé að „varpa ljósi á þá fjölmörgu og hæfi- leikaríku listamenn sem búa í Kópa- vogi og hafa átt þátt í að auðga menningarlíf bæjarins í gegnum ár- in. Það er meðal annars hlutverk bæjarlistamanns að deila listsköpun sinni með bæjarbúum það ár sem hann er valinn.“ Sunna hefur margoft komið fram í Salnum í Kópavogi og er stofnandi tónlistarhátíðarinnar Jazz í Salnum. Hún nam djasspíanóleik við Tónlist- arskóla FÍH, William Paterson Col- lege í New Jersey og Pratt Univers- ity í New York þaðan sem hún lauk meistaraprófi. Sunna sat í stjórn Jazzhátíðar Reykjavíkur í fimm ár og situr í stjórn Europe Jazz Net- work. Hún hefur haldið tónleika um víða veröld og komið fram á mörgum af helstu djasstónlistarhátíðum heims. Hún hefur sent frá sér 11 geisladiska sem hafa hlotið frábærar viðtökur hér heima og erlendis og náð inn í efstu sæti vinsældalista á djassútvarpsstöðvum í Bandaríkj- unum og Kanada. Sunna hefur hlotið fjölda tilnefninga til Íslensku tónlist- arverðlaunanna og var valin flytj- andi ársins 2015 og 2019. Tríó henn- ar, með Þorgrími Jónssyni á kontra- bassa og Scott McLemore á trommur sem hefur notið mikillar hylli, var Tónlistarhópur Reykjavík- ur 2013,“ segir í tilkynningu. „Það er varla hægt að koma í orð hversu mikil hvatning þessi viður- kenning frá Kópavogsbæ er á þess- um undarlegu tímum. Það er skrítið að vera listamaður á tíma þegar ekk- ert má og oft erfitt að finna innblást- urinn til að skella sér í skapandi verkefni. Ég fann fyrir ótrúlegu þakklæti við þessar fréttir og það er ómetanlegt að finna það að aðrir hafi kunnað að meta mitt framlag undan- farin ár. Ég hlakka mjög til að starfa að nýju verkefni sérstaklega hannað fyrir Kópavogsbúa,“ er haft eftir Sunnu í tilkynningunni. Píanisti Sunna Gunnlaugsdóttir. Sunna bæjarlista- maður Kópavogs Arkitektinn Lina Bo Bardi, sem lést árið 1992, var í fyrradag sæmd heiðursverðlaunum Feneyjatvíær- ingsins í arkitektúr, Gullna ljóninu, fyrir ævistarf sitt og framlag til byggingarlistar. Hún fæddist á Ítal- íu árið 1914 og var skírð Achillina Bo en varð síðar þekkt undir nafn- inu Lina Bo Bardi. Hún starfaði fyrst í heimalandi sínu en fluttist árið 1947 til Brasilíu með eigin- manni sínum og stofnaði þar með honum tímaritið Habitat auk þess að starfa sem arkitekt og gegna ýmsum fleiri störfum. Þema tvíæringsins í ár er „How Will We Live Together?“ eða „Hvernig munum við búa saman?“ og sýningarstjóri hans, Hashim Sarkis, segir valið á Bo Bardi eiga mjög vel við þemað þar sem hún hafi náð framúrskarandi árangri á ýmsum sviðum, m.a. sem hönnuður, sýningastjóri og aðgerðasinni. Þá hafi hún teiknað kraftmiklar bygg- ingar sem sameinuðu byggingar- list, náttúru og samfélag. Í Brasilíu lét Bo Bardi mikið að sér kveða í hinu karllæga samfélagi arkitekta þar og kom víða við, ritstýrði m.a. tímaritum, stýrði söfnum, hannaði búninga fyrir leikhús og leikmyndir og hannaði byggingar fyrst og fremst með þarfir fólks í huga. Þær þekktustu eru í Sao Paulo, m.a. SESC Pompéia og Glerhúsið (Casa de Vidro). Bo Bardi er fyrsta konan sem hlýtur heiðursviðurkenningu tvíæringsins, að því er kemur fram í frétt The New York Times. Bo Bardi hlaut Gullna ljónið Wikipedia/Paulisson Miura SESC Pompéia Áður verksmiðja en nú samfélagsmiðstöð. Hér sést hluti af þeirri merku byggingu Bo Bardi í Sao Paulo þar sem hún bjó og starfaði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.