Morgunblaðið - 08.05.2021, Page 1

Morgunblaðið - 08.05.2021, Page 1
Vil leiðalistann til sigurs Svefnlyfekki bestalausnin Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra ræðir umsig og sínar áherslur og hvers vegna hún vill leiða sjálfstæðis- menn í höfuðborginni í kom- andi þingkosningum. 8 9. MAÍ 2021 SUNNUDAGUR Reiðkötturvindanna Dr. MatthewWalker er einnhelsti svefn-sérfræðingurheims. Hanntalar á ráðstefnuí Hörpu íhaust. 12 Sérstakt lífá SvalbarðaHanna Rósa Hjálmarsdóttirmíkrósteingervingafræðingur kannvel við sig á hjara veraldar. 14 Gullbrandur er einstakur köttur sem elskar að fara á hestbak. 22L A U G A R D A G U R 8. M A Í 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 108. tölublað . 109. árgangur . HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 Fullvaxinn fjórhjóladrifinn rafmagnsbíll Settu saman þinn ID.4 GTX á www.hekla.is/gtx Verð frá 6.990.000 kr. Allt að 480 km. drægni (WLTP) AF STAÐ MEÐ HRYLLINGS- BÓKAKLÚBB FÓLK LEITAR AÐ SÉR Í SÖGUNNI MA-SAGA STEFÁNS 46ANÍTA OG BYLGJA 12 Þó að almanakið segi okkur að það sé komið sumar eru veðurguðirnir ekki á sama máli. Víða um land vöknuðu landsmenn upp í gærmorgun við dágóðan snjó í umhverfinu. Þannig var nokk- urra sentimetra jafnfallinn snjór á Þórshöfn. Nemendur grunnskólans þar nýttu hádegishléið í gær til hins ýtrasta, þegar stytti upp eftir dimm él, og bjuggu til snjókarla við skólalóðina. Þá snjóaði einnig í Eyjum. »4 Víða um land vöknuðu landsmenn upp við snævi þakta jörð Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Snjókarlagerð í hádegishléi nemenda á Þórshöfn Andrés Magnússon andres@mbl.is Franska fyrirtækið Santewines SAS hefur opnað netverslun með áfengi hér á landi. Viðskiptavinir þess geta nálgast vörur þess á lager hér á landi um leið og kaupin hafa átt sér stað eða fengið sent á grundvelli sam- starfs við fyrirtækið Dropp. Er þetta í fyrsta sinn sem almenningur á Ís- landi getur keypt áfengi hér á landi af innlendum vörulager án milli- göngu Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. Arnar Sigurðsson, sem á Sante- wines SAS, hefur um árabil flutt inn vín frá Frakklandi. Hann segir net- verslunina fela í sér mikið hagræði og sparnað fyrir neytendur. „Íslendingar hafa lengi haft heim- ild til þess að kaupa áfengi í gegnum erlendar netverslanir en það er fyrst núna sem vörurnar fást afhentar samdægurs. Þær eru komnar til landsins áður en viðskiptin eiga sér stað. Með þessu móti geta neytendur keypt þessar vörur án milligöngu ÁTVR og þar með sloppið undan þeirri 12-18 prósenta álagningu sem fylgir því að nýta sér þjónustu ríkis- verslunarinnar,“ útskýrir Arnar. Hann segir að með þessu fyrir- komulagi fari íslenska ríkið ekki á mis við tekjur af áfengissölunni. Öll opinber gjöld, s.s. áfengisgjald og virðisaukaskattur, skili sér til hins opinbera. Fyrrnefnda gjaldið er greitt við komu vörunnar til landsins. Tryggja betri forvarnir „Við leggjum líka mikla áherslu á að tryggt sé að enginn undir lögaldri geti verslað við okkur. Það er gert með rafrænu auðkenni.“ Arnar segir að þótt þessi háttur hafi ekki verið hafður á hér á landi til þessa sé verslunin öll í samræmi við lög. „Franska fyrirtækið Santewines SAS kaupir vínið af innflytjendum og framleiðendum og selur það svo ís- lenskum neytendum. Reglurnar eru skýrar hvað þetta varðar. Það er heimilt að selja vín úr landi og neyt- endum er heimilt að versla af erlend- um netverslunum.“ Selja vín án aðkomu ÁTVR - Frönsk netverslun með áfengi afhendir vörur sínar samdægurs á Íslandi - Starfsemin er í samræmi við íslensk lög og reglugerðir að sögn stofnandans M Bjórinn er 25% ódýrari »4 Þorskroð unnið hjá fyrirtækinu Kerecis kom sér vel í aðgerðum á Pétri Oddssyni sem slasaðist illa þegar hann fékk í sig mikinn straum í há- spennuvirki vest- ur á fjörðum síð- astliðið haust. Stór hluti líkama hans brenndist og aðgerðir á Land- spítala miðuðust við að bæta þann skaða, sem að miklu leyti tókst. Pétur útskrifaðist af sjúkrahúsi í vikunni og getur nú meðal annars kyngt niður mat og nærst eðlilega, sem honum var ómögulegt lengi eftir slysið. Eitt helsta tilhlökk- unarefnið nú er að fá samloku með roastbeef. »6 Endurheimtu húðina með þorskroðinu Pétur Oddsson Arnar Þór Jóns- son, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, hyggst gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í júní. Hann segir í sam- tali við Morgun- blaðið í dag að hann hafi tekið þá ákvörðun eftir mikla íhugun, en að hann hafi einnig fengið til þess hvatningu frá fjölda fólks. Arnar Þór hefur vakið athygli fyr- ir skrif sín um ýmis þjóðfélagsmál, þar á meðal þriðja orkupakkann, og segir hann að sér sé skylt sem ein- staklingi að standa vörð um sam- viskufrelsi og tjáningarfrelsi sitt. Þá hafi hann áhyggjur af því að ekki sé staðið nægilega vel að hagsmuna- gæslu Íslands gagnvart EES- samstarfinu. Þá telur hann að Ísland standi frammi fyrir mestu stjórnskip- unarkrísu sem nokkurt vestrænt lýðræðisríki hafi staðið frammi fyrir frá stríðslokum. »18 Arnar Þór gefur kost á sér - Skylt að standa vörð um frelsið Arnar Þór Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.