Morgunblaðið - 08.05.2021, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2021
LAND ROVER
DEFENDER 90
ER MÆTTUR!
LAND ROVER
HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK
SÍMI: 525 6500
LAND ROVER DEFENDER 90. Verð frá: 12.190.000 kr.
Sá sterkasti sem við höfum skapað. Verðugur arftaki
fyrirrennaranna sem sigrað hafa torfærur heimsins í 70 ár.
Í Defender eru þér allir vegir færir – og flestar vegleysur.
OPIÐ Í DAG FRÁ 12-16E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
0
0
5
8
1
4
L
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Ný frönsk netverslun býður Stella
Artois-bjór á 25% lægra verði en
hægt er að kaupa bjórinn á í Vínbúð-
unum. Kostar flaskan af 33 cl flösku
288 krónur í netversluninni, borið
saman við 389 krónur í ríkisversl-
uninni.
„Við höfum í rúman hálfan áratug
verið að flytja inn hágæðavín frá
bestu framleiðendum Búrgúndí-hér-
aðs og einnig frá Champagne. Áhug-
inn á þessari vöru hefur verið mikill.
Nú færum við út kvíarnar og höfum
stofnað fyrirtæki í Frakklandi sem
nefnist Santewines SAS og það rek-
ur netverslunina sante.is.“
Netverslunin
fullkomlega lögleg
Þessum orðum fer Arnar Sigurðs-
son víninnflytjandi um nýjustu við-
bótina í starfsemi sem hann hefur
byggt upp á síðustu árum. Bendir
hann á að Íslendingar hafi í tvo ára-
tugi haft heimild til þess að kaupa
áfengi beint af erlendum netversl-
unum en knúðir til að beina viðskipt-
um sínum til Vínbúðanna hér á
landi.
„Íslenskir birgjar mega ekki selja
vörur sínar til Íslendinga, jafnvel
þótt það séu í mörgum tilvikum ná-
kvæmlega sömu vörur og kaupa má
af erlendum netverslunum. Það sjá
það allir að það gengur ekki upp.
Með þessari nýju verslun batna
kjörin þannig að það er eins og að
fólk kaupi þrjár kippur af bjór en fái
þá fjórðu fría, þ.e. miðað við verðið
sem í boði er í Vínbúðunum.“
Arnar segir að það sölukerfi sem
byggt hafi verið upp í kringum Vín-
búðirnar sé orðið mjög samkeppn-
ishamlandi. Vísar hann þar m.a. til
nýlegrar fréttar Morgunblaðsins
þess efnis að tæplega árs bið væri
eftir því að komast með léttvín í
reynslusölu í Vínbúðunum.
„Hilluplássið er einfaldlega upp
urið og kerfið er gert til þess að
verja stöðu núverandi hillupláss-
hafa. Þeir vilja auðvitað ekki að
neytendur fái frjálst val um verslun
með áfengi.“
Vörulagerinn hér á landi
Þeir sem beina viðskiptum sínum
að Santewines SAS kaupa í raun
vöruna af franskri netverslun sem
heldur úti vörulager hér á landi.
Arnar segir að þetta sé allt í sam-
ræmi við lög og reglugerðir hér á
landi.
„Það hefur aldrei reynt á núver-
andi sölufyrirkomulag fyrir dóm-
stólum en atvinnufrelsi er stjórnar-
skrárvarið og reglugerðir mega ekki
innihalda íþyngjandi ákvæði um-
fram það sem lög segja til um.“
Arnar segir að ríkissjóður missi
ekki spón úr aski sínum þótt neyt-
endur geti nú nálgast vörur á lægra
verði en áður.
„Áfengisgjaldið borgum við í botn
strax við innflutning vörunnar. Svo
greiðum við virðisaukaskatt af þess-
um viðskiptum eins og allir aðrir.
Arðgreiðslur ÁTVR eru um millj-
arður á ári en almenn verslunar-
fyrirtæki eins og okkar borga bæði
fjármagns- og tekjuskatt sem munu
vega upp minnkandi tekjur ÁTVR
þegar verslunarfrelsið eykst.“
Arnar segir að fyrirtæki hans
leggi mikið upp úr forvörnum.
„Hver sem kaupir af okkur verður
að gera það með rafrænni auðkenn-
ingu sem tryggir að aðeins þeir sem
hafa aldur til geta keypt hjá okkur.
Þá er netverslunin besta leiðin til að
draga úr sýnileika áfengis. Útsölu-
stöðum ÁTVR hefur fjölgað úr 9 í 52
á síðustu árum og þeir eru allir á
mjög áberandi stöðum í bæjarfélög-
unum kringum landið. Netverslun
er hins vegar hvergi sýnileg nema
þeim sem þangað vill fara. Því ætti
þessi þróun að vera kærkomið skref
í augum þeirra sem í raun vilja
draga úr aðgengi að áfengi.“
Arnar segir að kórónuveiran hafi
einnig ýtt undir þörf fyrir verslun af
þessu tagi.
„Snertifrí netverslun með heim-
sendingu er augljóslega í anda
markmiða um sóttvarnir, öfugt við
þann verslunarrekstur sem er fyrir-
komulagið í kringum áfengisverslun
í dag.“
Arnar segir að verslunin hafi ver-
ið í undirbúningi um nokkurt skeið.
Hún verði opnuð í dag og hann von-
ast til þess að fyrstu vörurnar verði
afgreiddar úr húsi á Eyjarslóð 9 úti
á Granda núna um helgina.
Bjórinn er 25% ódýrari í nýrri verslun
Morgunblaðið/Eggert
Frjáls verslun Arnar Sigurðsson vill lækka verð á áfengi til Íslendinga.
- Arnar Sigurðsson, stofnandi Santewines SAS, vill bæta vínmenningu Íslendinga - Flytur inn vín frá
Frakklandi og þekktar bjórtegundir - Segir neytendur spara mikið á því að sneiða hjá Vínbúðunum
Snjó kyngdi niður á Heimaey í
Vestmannaeyjum í gærmorgun.
Það er mjög óvenjulegt þegar vika
er liðin af maímánuði að þar snjói
jafn hressilega og í gærmorgun.
Snjórinn hvarf fljótt aftur.
Sigurgeir Jónasson ljósmyndari
sagði að glampandi sól hefði verið í
Eyjum í fyrradag og vorið á næsta
leiti. Hann vissi að nokkur tjalda-
pör höfðu gert sér hreiður við flug-
völlinn. Þar var um fimm senti-
metra jafnfallinn snjór. Tjaldarnir
sátu sem fastast á þrátt fyrir snjó-
inn. Þegar einn stóð upp sást að
þrjú egg voru í hreiðrinu á mölinni.
Jóhann Óli Hilmarsson fuglfræð-
ingur segir að tjaldarnir eigi alveg
að þola þetta. Stærri íslenskir varp-
fuglar séu undir það búnir að fá á
sig hret á vorin. Tjaldurinn fer að
verpa í lok apríl. Parið skiptist á
um að liggja á eggjunum og eru
tjaldar einu vaðfuglarnir sem bera
æti í unga sína. Bæði karl- og kven-
fuglinn taka þátt í uppeldi ung-
anna. gudni@mbl.is
Óvenjumikil snjókoma í Vestmannaeyjum í gærmorgun
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Vestmannaeyjar Nokkur tjaldapör eiga sér hreiður meðfram flugbraut-
inni. Þeir verpa beint á mölina. Hreiðrið er þar sem auði bletturinn sést.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Hreiður Tjaldurinn lá á eggjunum og snjórinn var allt í kring. Snjórinn stóð ekki lengi við og hvarf aftur í gær.
Tjaldurinn lá á þrátt fyrir snjóinn