Morgunblaðið - 08.05.2021, Page 8

Morgunblaðið - 08.05.2021, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2021 Fæst í öllum helstu apótekum og Eyesland gleraugnaverslunum Nú fer í hönd tími frjókorna – ert þú klár? BLEPHACLEAN – lausn við þurrum augum, hvarmabólgu og frjókornaofnæmi BLEPHACLEAN eru hágæða blautklútar til að hreinsa mjúklega slím og húðskorpu af augnhvörmum og augnhárum. Þeir vinna vel á frjókornaofnæmi, hvarmabólgu og vogrís. Klútarnir innihalda rakagefandi og róandi efni sem draga úr bólgum og þrota á augnsvæði án þess að erta augu eða klútar sinnar tegundar sem eru klínískt sannaðir g p æði augnlæknum og húðlæknum. Má nota fyrir ungabörn frá þriggja mánaða aldri. a a virki o hafa verið rófaðir af b Fyrir börn og fullorna Vitleysan í höfuðborginni á sérengin takmörk. Dönsku bragga- stráin og fyrirhuguð pálmatrén eru, líkt og Vigdís Hauksdóttir borgar- fulltrúi Miðflokksins bókaði á fundi borgarráðs í vikunni, svipuð della og krafan sem nú er gerð til íbúa Voga- byggðar um nokkur grasstrá og einn berjarunna í örlitlum „garði“, 2,5-5,0 fm að stærð, sem fylgir íbúðum þar. - - - Þessi krafa, sem meirihlutinn hef-ur nú staðfest í borgarráði og gerir brátt einnig í borgarstjórn, er sögð gerð til að halda uppi „heildar- gróðurþekju“ og „líffræðilegri fjöl- breytni“ á svæðinu. - - - Íbúarnir hafa bent á að þessi ör-blettur nýtist ekkert og hann sést þar að auki ekki nema flogið sé yfir, enda er einnig gerð krafa um skjól- veggi. - - - Á sama tíma og þessi endaleysa erítrekað staðfest hjá ráðum og nefndum borgarinnar byggir borgin á fjölda grænna svæða í nafni „þétt- ingar byggðar“. Þá skipta „heildar- gróðurþekja“ og „líffræðileg fjöl- breytni“ engu og er þó um talsvert stærri svæði að ræða en fáeina fer- metra. - - - Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins íborgarráði bókuðu gegn af- stöðu meirihlutans og þeirri forræð- ishyggju sem í henni birtist, en slík sjónarmið breyttu engu. - - - Meirihlutinn vill þvinga þessa„garða“ upp á íbúa Voga- byggðar og við það situr. Örgarðarnir og forsjárhyggjan STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ „Þetta er snúið en kemur vel til greina. Við gerum okkar allra besta,“ segir Inga Berglind Birgis- dóttir, yfirhjúkrunarfræðingur á Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Til skoðunar er að læknir eða hjúkrunarfræðingur fari til Gríms- eyjar og bólusetji íbúana þar við kór- ónuveirunni. Eins og kom fram í Morgun- blaðinu í gær eru íbúar í Grímsey óánægðir með framkvæmd bólusetn- inga við kórónuveirunni og kvarta yfir háum kostnaði við að fara í bólu- setningu til Akureyrar. Einnig þarf fólk að taka sér tveggja daga frí vegna sprautunnar. Getur kostnaður við ferðalög numið tugum þúsunda og þá er vinnutap ótalið. Um 30-40 manns eru búsettir í Grímsey og hefur um þriðjungur þeirra þegar fengið sprautu. Ljóst er að mikið hagsmunamál er fyrir eyj- arskeggja að bólusett verði í eynni. „Þetta er allt í skoðun. Við höfum verið að vinna samkvæmt forgangs- listum og þetta fólk hefur fengið boð eins og aðrir,“ segir Inga Berglind. „Við höfum boðið þeim að koma ef þau eiga ferð til Akureyrar. Þá er þeim velkomið að hafa samband ef það er komið að þeim í röðinni og við erum með bóluefni,“ bætir hún við. freyr@mbl.is Bólusetning í Grímsey á teikniborðinu - Eyjarskeggjar hefðu annars þurft að taka á sig háan kostnað og vinnutap Ljósmynd/Auðunn Níelsson Grímsey Ráðgert er að íbúar verði bólusettir í eynni í stað Akureyrar. Borgarráð samþykkti á fimmtudag- inn drög að samningi við heilbrigð- isráðuneytið um byggingu hjúkr- unarheimilis sem reist verður á svæði við Mosaveg í Grafarvogi. Einnig voru samþykkt drög að vilja- yfirlýsingu um byggingu hjúkr- unarheimilis á Ártúnshöfða. Ný hjúkrunarrými verða allt að 344. Heilbrigðisráðuneytið og Reykja- víkurborg munu standa saman að byggingu hjúkrunarheimilis á Mosa- vegi 15. Í byggingunni verða um 132-144 ný rými. Samningurinn er gerður með fyrirvara um ákvörðun Alþingis um fjárveitingu á fjár- lögum, ákvörðun borgarstjórnar um fjárveitingu í fjárhagsáætlun og að breytingar á skipulagi gangi eftir. Framkvæmdasýsla ríkisins áætl- ar að heildarkostnaður verði um 7.697 milljónir króna, án búnaðar, miðað við 140 rými. Kostnaður við byggingu hjúkr- unarheimilis skiptist þannig að 85% greiðast úr ríkissjóði en Reykjavík- urborg greiðir 15%. Kostnaður sem fellur til við kaup á búnaði greiðist í sömu hlutföllum. Ráðuneytið og Reykjavíkurborg hyggjast einnig standa saman að byggingu hjúkrunarheimilis á Ár- túnshöfða. Í byggingunni verða allt að 200 ný rými. Samningurinn er gerður með fyrirvara um ákvörðun Alþingis um fjárveitingu á fjár- lögum, ákvörðun borgarstjórnar um fjárveitingu í fjárhagsáætlun og að breytingar á skipulagi gangi eftir. Kostnaðarskipting verður sú sama og við heimilið við Mosaveg. Skipulagsvinna fyrir Ártúnshöfð- ann er í gangi og áætlað er að hægt verði að hefja að hefja bygging- arframkvæmdir árið 2023 og taka megi heimilið í notkun árið 2026. sisi@mbl.is Allt að 344 ný hjúkrunarrými - Tvö ný hjúkrunar- heimili verða reist í Reykjavík Morgunblaðið/Sigurður Bogi Grafarvogur Hjúkrunarheimilið Eir. Nýtt heimili mun bætast við.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.