Morgunblaðið - 08.05.2021, Síða 10

Morgunblaðið - 08.05.2021, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2021 250.000 KR. AUKAHLUTAPAKKI FYLGIR NÝJUM I-PACE JAGUAR HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK SÍMI: 525 6500 Jaguar I-Pace er margverðlaunaður, rafmagnaður sportjeppi sem setti ný viðmið þegar hann leit fyrst dagsins ljós. Komdu og sjáðu af hverju hann fékk öll þessi verðlaun. Jaguar I-Pace. Verð frá: 9.590.000 kr. Velkomin í reynsluakstur Opið í dag frá 12–16 E N N E M M / S ÍA / N M 0 0 5 8 1 2 J Guðni Einarsson Skúli Halldórsson Landeigendur Hrauns og Ísólfs- skála hafa mótað í grófum dráttum stefnu um aðkomu þeirra að rekstri og uppbyggingu á gossvæðinu í Geldingadölum, sem er á þeirra landi. Þetta kemur fram í minnis- blaði starfshóps sem var skipaður til að leggja fram tillögur að uppbygg- ingu í kringum eldgosið til lengri og skemmri tíma. Hann skilaði minnis- blaði til atvinnuvega- og nýsköp- unarráðuneytisins. „Fyrirsjáanlegt er að áfangastað- urinn muni draga til sín verulega umferð ferðamanna á næstunni sem krefst nauðsynlegra innviða. Engir innviðir voru fyrir á svæðinu. Af þessum sökum er aðkoma margra annarra en landeigenda nauðsynleg til að bregðast við og samhæfa,“ seg- ir m.a. í minnisblaðinu. Landeigendur hafa ekki í hyggju að takmarka eða koma í veg fyrir umferð gangandi ferðamanna að gossvæðinu. Unnið er að því að koma rafmagni á svæðið og styrkja fjarskiptasamband. Bílastæði verð- ur útbúið á næstu vikum og að- gangsstýringu komið upp. Talið er að um 75.000 manns hafi þegar lagt leið sína á gosstöðvarnar. Víst þykir að heimsóknum á svæðið muni fjölga mjög þegar líður á sum- arið og að gossvæðið verði einn fjöl- farnasti áfangastaður landsins, ef ekki sá fjölfarnasti. Tilbúnir að flytja ferðamenn „Þeir sem geta ekki gengið að gosstöðvunum munu eiga möguleika á að koma með okkur, ef samkomu- lag næst um fyrirkomulag slíkra ferða,“ sagði Jón Páll Baldvinsson, formaður FETAR. Það eru lands- samtök um 80 fyrirtækja sem bjóða upp á ferðir um hálendið á sérbún- um bílum. FETAR hefur sent land- eigendum og skipulagsyfirvöldum á gossvæðinu erindi og óskað eftir samvinnu um að gera skipulagðar ferðir á svæðið með sérbúnum bílum mögulegar. „Það er hægt að hjálpa fólki, sem getur ekki gengið alla þessa leið eða hefur ekki tíma til þess, að komast að eldgosinu og skoða það. Það á t.d. við um ferðamenn sem hafa hér stutta viðdvöl. Það er hægt að nota sérbúin farartæki. Þau geta farið eftir skipulögðum vegslóðum í sam- ráði við landeigendur og skipulags- yfirvöld. Við erum tilbúnir að byrja slíkar ferðir með stuttum fyrirvara og að greiða landeigendum eðlilegt gjald fyrir það. Fyrirtæki í okkar röðum eru með sérbúna bíla með farþegaleyfi, til- skildar tryggingar og leiðsögumenn. Við höfum þjónustað bæði innlenda og erlenda ljósmyndara og kvik- myndatökumenn og flutt þungan búnað þeirra að gosinu. Þá höfum við ekið eftir sömu vegslóðum og við- bragðsaðilar, vísindamenn og lög- regla nota.“ Jón Páll telur að ekki þurfi að leggja í mikla vegagerð til að bílar félagsmanna í FETAR komist að gosstöðvunum. „Við höfum boðið fram aðstoð okkar við að stika nýjar leiðir nær eldgosinu,“ sagði Jón Páll. Margir sótt um akstursleyfi Umhverfisstofnun (UST) hefur borist fjöldi umsókna um leyfi til aksturs utan vega að gosstöðvunum í Geldingadölum. Þetta kemur fram í frétt stofnunarinnar. Fyrst eftir að gosið hófst var ekið inn í Meradali og að gosinu. Við- bragðsaðilar afmörkuðu bílastæði í dalbotninum og var stutt ganga það- an að eldgosinu. Nú er bílastæðið komið undir hraun, hrauntungur hafa sameinast og því ófært að gos- inu úr Meradölum. Undanfarið hafa viðbragðsaðilar ekið um Einihlíðar. Sú leið er mjög torfarin og í hliðar- halla og aðeins fyrir vana ökumenn á vel útbúnum ökutækjum. UST veitir ritstýrðum fjölmiðlum sem miðla upplýsingum til almenn- ings leyfi til aksturs á svæðinu. Fjöl- miðlar sem vilja aka að gosinu um Einihlíðar þurfa að skrá sig hjá UST. Akstur vegna almannavarna á vegum lögreglu, björgunarsveita og sjúkraflutninga hefur forgang. Gerð er krafa um að bílarnir séu að lágmarki á 44" dekkjum og á að hleypa úr þeim til að takmarka um- merki eftir aksturinn. Takmarka skal fjölda ferða og farartækja eins og kostur er. Ákvörðunin gildir til 26. maí. Ekki náðist í fulltrúa landeigenda við vinnslu fréttarinnar í gær. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Horft yfir Meradali og Geldingadali Á miðri myndinni má sjá vegslóð utan í hæð en hún var notuð til að aka upp úr Meradölum og að gosinu. Hraunið hefur umlukt hæðina og lokað leiðinni. Uppbygging áformuð á gosslóðum - FETAR hefur lýst vilja til að sinna farþegaflutningum að gosinu í samráði við landeigendur og skipulagsyfirvöld - Umhverfisstofnun hefur fengið fjölda fyrirspurna um leyfi til aksturs að gosinu Morgunblaðið/Einar Falur Náttúruundur Fjöldi fólks hefur lagt leið sína að eldgosinu. Ekki geta þó allir sem langar að sjá gosið lagt á sig gönguna sem það krefst. Ljósmynd/Aðsend Á Eyjafjallajökli Félagsmenn í FETAR annast ferðaþjónustu á sérbúnum bílum. Þeir hafa lýst sig reiðubúna til að flytja farþega að eldgosinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.