Morgunblaðið - 08.05.2021, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 08.05.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2021 „Þetta gekk bara mjög vel,“ segir Sigurður Trausti Traustason, um- sjónarmaður safneignar Listasafns Reykjavíkur, um viðgerð á lista- verkinu Brautryðjandanum, eftir Einar Jónsson, á fótstalli stytt- unnar af Jóni Sigurðssyni á Aust- urvelli. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu sl. mánudag voru skemmd- ir unnar á listaverkinu með því að spreyja á það með gylltri málningu. Um er að ræða afsteypu af þekktri lágmynd Einars, sem er í safni hans á Skólavörðuholtinu. Að sögn Sigurðar var brugðist hratt við um leið og fregnaðist af skemmdarverkinu og með aðstoð og ráðgjöf forvarðar Listasafns Reykjavíkur unnu tveir menn heil- an dag við að hreinsa listaverkið. Segir Sigurður að tekist hafi nokk- uð vel til og vonir standi til að lág- myndin sé komin í upprunalegt horf. Viðgerðinni lauk í gær með því að Brautryðjandinn var húð- varinn með sérstöku efni. Alma Dís Kristinsdóttir, safn- stjóri Listasafns Einars Jónssonar, er ánægð með hve hratt og vel var brugðist við að fara í lagfæringar á verkinu. Mennta- og menningar- málaráðuneytið hafi samið við Listasafn Reykjavíkur um að ráðast í það verkefni. „Þetta var nokkur aðgerð því sá sem spreyjaði á verkið hefur vand- að sig við þá iðju,“ segir Alma Dís. Afsteypan er 110 ára gömul og var sett á fótstall styttunnar af Jóni, sem Einar gerði einnig, og var vígð við Stjórnarráðshúsið árið 1911. Styttan var síðan færð á Austurvöll árið 1931. Einar vildi gæða styttuna meira lífi og taldi Brautryðjandann táknrænt verk fyrir hlutverk Jóns í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga. Gaf Einar afsteypuna í því skyni. „Við hvetjum fólk til að koma og sjá frumútgáfuna af Brautryðjand- anum í Listasafni Einars Jóns- sonar,“ segir Alma Dís en safnið er opið alla daga frá kl. 12-17, nema á mánudögum. Vegna fréttar í blaðinu sl. mánu- dag vildi Alma Dís árétta að umsjón með útilistaverkum í eigu Reykja- víkurborgar væri mjög skýr. Ábyrgðin á að sinna þeim úti- listaverkum, sem ekki væru í eigu borgarinnar, mætti hins vegar vera skýrari. „Hinn almenni borgari áttar sig kannski ekki á eignarhaldi lista- verka þegar hann er að njóta þeirra en aðalatriðið er auðvitað að vel sé hugsað um þau, sama hver á þau,“ segir Alma Dís . bjb@mbl.is Brautryðjandinn til fyrra horfs - Brugðist hratt við skemmdarverki Morgunblaðið/sisi Brautryðjandinn Á myndinni til vinstri sést „handbragð“ skemmdarvargs- ins en til hægri hefur verkið verið hreinsað og fært til upprunalegs horfs. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Dagur B. Eggertsson borgarstjóri kynnti á fimmtudag í borgarráði er- indisbréf starfshóps um sveigjanleg starfslok. Reykjavíkurborg er stærsti vinnuveitandi landsins en starfsmenn voru í mars sl. 10.760 í 7.926 stöðugildum. Langflestir eru hjá skóla- og frístundasviði, eða 4.783. Verkefni starfshópsins er að kortleggja ítarlega stöðu mála er varðar starfslok vegna aldurs og hvaða breytingar eru framundan, m.a. m.t.t. lagaumhverfis. Einnig að skoða hvaða vandkvæði og álitamál eru uppi sem lúta að fyrirkomulagi starfsloka og móta tillögur að breytingum sem svari breyttum þörfum Reykja- víkurborgar sem vinnuveitanda og starfsfólks borg- arinnar varðandi starfslok vegna aldurs. Lóa Birna Birgisdótt- ir, sviðsstjóri mannauðs- og starfsumhverfissviðs, verður for- maður starfshópsins, sem verður skipaður fulltrúum Reyjavíkurborg- ar og stéttarfélaga. Í greinargerð Lóu Birnu, sem lögð var fram í borgarráði, segir að mikilvægt sé að eldra starfsfólk fái raunhæf tækifæri til að starfa hjá borginni á meðan heilsa þeirra og starfsþrek leyfir. Þannig megi nýta starfshæfni, þekkingu og reynslu þeirra til að veita góða og árangurs- ríka þjónustu. Borgarstjóri hafi óskað eftir því við sviðið haustið 2019 að skoðað yrði hvernig hægt væri að vinna að sveigjanlegri starfslokum starfsmanna Reykja- víkurborgar. Láta af starfi 70 ára Fram kemur í greinargerð Lóu Birnu að um starfslok starfsmanna Reykjavíkurborgar gildi almennt sú regla að starfsmaður lætur af starfi eigi síðar en um næstu mánaðamót eftir að hann hefur náð 70 ára aldri. Á þessu er sú undantekning að yfir- manni er heimilt að endurráða starfsmann, sem hefur náð 70 ára aldri, í annað eða sama starf á tímakaupi, allt að hálfu starfi, án þess að það hafi áhrif á töku hans á lífeyri. Sú ráðning skal gilda í allt að tvö ár. Hins vegar hefur fram- kvæmdin verið sú að almennt er ráðið til eins árs í senn. Gagn- kvæmur ávinningur geti falist í því fyrir Reykjavíkurborg og starfsfólk hennar að þessi mál verði skoðuð. „Annars vegar getur verið óæski- legt að knýja fólk til að láta af störfum meðan það hefur enn gott starfsþrek og vilja til að halda áfram starfi. Hins vegar getur ver- ið æskilegt að gefa fólki kost á að hætta eða draga úr atvinnuþátt- töku fyrr en nú er,“ segir Lóa Birna. Skoða sveigjanleg starfslok - Starfshópur Reykjavíkurborgar skoðar fyrirkomulag starfsloka og mótar tillögur að breytingum - Fólk geti unnið lengur en til sjötugs - Starfsmenn yfir 10 þúsund Dagur B. Eggertsson Flugvél á vegum rússneskra stjórn- valda tók aðflug við Keflavíkur- flugvöll bæði í fyrradag og í gær, en flugvélin hafði fengið heimild til aðflugsæfinga á Íslandi. Hún lenti þó ekki á vellinum. Þetta staðfestir Guðjón Helgason, upplýsinga- fulltrúi Isavia, við Morgunblaðið. Nokkrar vélar af þessari gerð, Ilyushin Il-96-300, eru í flota stjórn- valda í Kreml. Flytja þær rússneska ráðamenn á milli landa í opinberum erindrekstri þeirra. Heimildir Morgunblaðsins herma að aðflugsæfingarnar hafi verið lið- ur í undirbúningi fyrir komu utan- ríkisráðherra Rússlands, Sergeis Lavrovs, til landsins. Lavrov hefur áður lýst áhuga sín- um á að mæta á ráðherrafund norð- urskautsráðsins sem haldinn verð- ur í Reykjavík 19. og 20. maí. Rússnesk stjórnvöld æfa aðflug á Íslandi Lögreglustjórafélag Íslands telur einsýnt að frumvarp Svandísar Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra um afglæpavæðingu neyslu- skammta fíkniefna muni valda auk- inni fíkniefnaneyslu ungmenna og jákvæðara viðhorfi þeirra gagnvart vímuefnum. Þetta segir í áliti sem félagið hef- ur sent velferðarnefnd Alþingis vegna frumvarpsins. Lögreglu- stjórar höfuðborgarsvæðisins og Norðurlands eystra, embætti rík- islögreglustjóra og embætti land- læknis hafa einnig lýst andstöðu við frumvarpið í umsögnum. Alls hafa 22 samtök og einstaklingar skilað inn umsögnum. „Tilefni frumvarps- ins er sagt vera sú stefnumörkun stjórnvalda að meðhöndla eigi vanda vímuefnanotenda í íslensku samfélagi í heilbrigðiskerfinu fremur en dómskerfinu. Því getur lögreglustjórafélagið verið sam- mála,“ segir í umsögn félagsins. Helstu sigurvegarar frumvarpsins séu ekki neytendur fíkniefna held- ur framleiðendur og seljendur þeirra. Lýkur umsögninni á að bera frumvarpið saman við fyrri stefnu velferðarráðuneytisins í áfengis- og vímuefnavörnum og telur félagið að frumvarpið uppfylli ekki mark- mið hennar. Sigur framleiðenda og seljenda vímuefna Skipholti 29b • S. 551 4422 Skoðið laxdal.is Yfirhöfnina færðu í Laxdal Skoðið // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Aðalfundur Aðalfundur Vörubílstjórafélagsins Þróttar verður haldinn í húsi félagsins að Sævarhöfða 12, fimmtudaginn 20. maí og hefst kl. 19:00. Dagskrá aðalfundar skv. 27. gr. laga Vörubílstjórafélagsins Þróttar. Stjórnin. Glæsileg 3ja herbergja íbúð á 3ju hæð í vönduðu lyftuhúsi fyrir 60 ára og eldri. Stæði í upphitaðri bílageymslu. Glerlokun á svölum. Þvottahús innan íbúðar. Húsvörður er starf- andi í húsinu. Í sameign hússins er húsvarðaríbúð og sameiginlegur samkomusalur. Töluvert félagsstarf er í húsinu og afar vel haldið utan um húsfélagsmál. Eignin er laus og til afhendingar við undirritun kaupsamnings. Verð kr. 67.900.000. Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða bjorgvin@eignatorg.is Skipholt 50b | 105 Reykjavík | s 510 3500 | www.eignatorg.is Björgvin Guðjónsson lg.fs. s 615-1020 / bjorgvin@eignatorg.is s 510-3500 OPIÐ HÚS þriðjudaginn 11. maí kl. 18:00-18:30 Strikinu 4, íbúð 316 Fasteignir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.