Morgunblaðið - 08.05.2021, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2021
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það er nóg pláss fyrir okkur öll
og ekki á að þurfa að koma til
árekstra. Margt má laga með rétt-
um ákvörðunum í skipulagi.
Fræðsla er mikilvæg til að auka
skilning á milli mismunandi hópa,“
segir Dagný Bjarnadóttir lands-
lagsarkitekt, formaður reiðvega-
nefndar hestamannafélagsins Fáks
í Reykjavík. Hún ræðir um reið-
vegamál og deilur sem komið hafa
upp á milli mismunandi útivistar-
hópa um notkun á reiðvegum og
stígum.
Á síðasta ári urðu tíð slys á
hestafólki, sum alvarleg, oft á
þeim stöðum þar sem umferð ríð-
andi fólks skarast við aðra umferð
eða aðrir vegfarendur nota reið-
vegi. Hjá bráðamóttöku Landspít-
alans voru skráð 160 slys tengd
hestum á síðasta ári en talið er að
slík slys séu vanskráð, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu frá
Landssambandi hestamannafélaga
(LH). Taka ber fram að þarna er
átt við öll slys tengd hestum, slys
vegna svokallaðra árekstra við
aðra hópa eru aðeins hluti af
þeim. Dagný Bjarnadóttir segir að
þörf sé á að skrá þau slys betur,
hvar og þá hvernig þau verða.
Ástæður slysa má oft rekja til
þekkingarskorts, aðrir vegfar-
endur setji sig ekki í spor hesta-
fólks og öfugt.
Úr þessu er ætlunin að bæta
með fræðslustarfi. Ýmis samtök
vegfarenda, meðal annars hesta-
manna og hjólreiðafólks, hafa
komist að samkomulagi um að
standa saman að fræðslu til al-
mennings um það hvernig mis-
munandi hópar geta stundað heil-
brigða og örugga útiveru í sátt og
samlyndi. Sáttmáli þessa efnis
verður undirritaður í dag.
Styrkja þarf reiðveganetið
Dagný segir að hestamennskan
eins og hún er stunduð hér sé
menningararfur sem Íslendingar
eigi að styrkja og vera stoltir af.
Hún nefnir að þorp hesthúsa sé
við hvern þéttbýliskjarna á land-
inu, til dæmis í öllum sveitarfélög-
unum á höfuðborgarsvæðinu utan
Seltjarnarness. Um sex þúsund
séu skráðir í hestamannafélögin á
svæðinu en gera megi ráð fyrir að
tvöfalt fleiri stundi hestamennsku.
Hesthúsahverfin séu tengd með
reiðleiðaneti og tengist jafnframt
inn á net reiðleiða sem liggur um
allt land.
Hún segir mikilvægt að viðhalda
og styrkja þetta net. Hestafólk sé
háð því að reiðleiðanetið við hest-
húsahverfin virki því allir reiðtúr-
ar byrji og endi við hesthúsið.
„Því er mikilvægt að við lokumst
ekki inni vegna rangra ákvarðana
í skipulagsmálum og við hönnun
samgöngumannvirkja,“ segir
Dagný. Nefnir hún sem dæmi að
mikilvægt sé að göng undir Suður-
landsveg verði hönnuð með þarfir
hestafólks í huga, þau verði víð og
opin þannig að hestafólk veigri sér
ekki við að nota þau.
„Það má laga mikið af árekstr-
um milli hestafólks og annarra
vegfarenda með réttu skipulagi.
Stundum finnst mér vandinn vera
búinn til. Nefna má að hjóla- og
reiðleiðir eru lagðar hlið við hlið
þótt landsvæðið sé nógu stórt til
þess að hægt sé að hafa gott bil á
milli,“ segir Dagný.
Segir hún að sérþekkingu á
þessu sviði skorti. Segist hún oft
hafa orðið vör við það í starfi
sínu sem landslagsarkitekt að
skilning skorti á því hvernig
hestur hegðar sér og hvað beri að
varast við skipulag reiðstíga.
Ekki sé hægt að sækja þekk-
inguna til útlanda því aðstæður
séu hvergi þær sömu og hér.
Þess vegna verði að bæta leið-
beiningar sem hönnuðir geti haft
hliðsjón af við vinnu sína.
Allir fái að njóta sín
Dagný tekur undir þau orð að
fræðsla sé mikilvæg til að auka
skilning á milli mismunandi hópa
útivistarfólks og vegfarenda og
draga úr hættu á árekstrum. Hún
nefnir að nú á tímum kórónuveiru-
faraldursins stundi mun fleiri úti-
vist en áður og hjólafólki fjölgi.
Sumir freistist til að læðast inn á
reiðleiðir. Það geti ekki einungis
skapað hættu fyrir hestafólk held-
ur einnig eyðilagt stígana.
„Þetta er lúxusvandamál, við
höfum það svo gott að við getum
leikið okkur mikið. Það verður að
finna þessu farveg. Þörf er á
fleiri svæðum þar sem fólk sem
stundar hjólasport fær að njóta
sín án þess að lenda í árekstrum
við ríðandi fólk eða gangandi,“
segir Dagný.
Það er nóg pláss fyrir okkur öll
- Dagný Bjarnadóttir formaður reiðveganefndar Fáks segir að margt megi laga með réttu skipulagi
- Samtök hestamanna og hjólreiðafólks efna til fræðsluátaks um mismunandi þarfir útivistarhópa
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hestamaður Dagný Bjarnadóttir segir mikilvægt að menn geti haldið áfram að ríða á milli hesthúsahverfanna á
höfuðborgarsvæðinu og inn á net reiðvega landsins. Hún segir hægt að koma í veg fyrir slys með réttu skipulagi.
Dagný Bjarnadóttir og Katrín Halldórsdóttir, starfsmaður Vegagerðarinnar,
hafa fengið styrk úr rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar. Verkefnið kalla þær
„Samspil ríðandi umferðar og annarra vegfarenda á stígakerfi höfuðborg-
arsvæðisins“.
Áhersla verkefnisins að er huga að öryggi knapa á reiðleiðum og kort-
leggja hvar og hvernig hætta skapast af völdum annarrar umferðar, jafnt
farartækja sem útivistarhópa. Einnig hyggjast þær skoða útfærslur á inn-
viðum sem geta skapað hættu, svo sem undirgöngum, blindbeygjum, stað-
setningu skilta og staura og frágangi á yfirborði. Hafa þær kallað eftir
ábendingum frá hestamannafélögum á höfuðborgarsvæðinu. Efnið verður
dregið saman í skýrslu sem verður öllum aðgengileg. Vonast Dagný og
Katrín til þess að skýrslan geti orðið grunnur að hönnunarleiðbeiningum
um útfærslur á reiðleiðum og innviðum þeirra með öryggi knapa í huga.
Rannsaka hvernig slysin verða
SAMVINNA
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Framkvæmdir hafa staðið yfir á lóð
Vöku við Héðinsgötu í Reykjavík að
undanförnu. Búið er að fjarlægja
gáma sem komið hafði verið fyrir við
lóðamörk að Sæbraut. Óhætt er að
segja að ásýnd fyrirtækisins þar hafi
tekið stakkaskiptum síðustu mánuði.
Eins og Morgunblaðið hefur greint
frá var mikil óánægja meðal íbúa í
Laugarneshverfi með starfsemi
Vöku. Kvartað var undan hávaða og
mengun eftir að fyrirtækið var flutt
þangað í byrjun árs 2020. Þá krafðist
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur þess
að Vaka myndi bæta ásýnd og um-
gengni á lóð fyrirtækisins og héldi
starfseminni innan lóðar. Vaka fékk
tímabundið starfsleyfi í febrúar á
þessu ári.
Vaka verði mögulega áfram
„Við lofuðum að taka gámana fyrir
fyrsta maí. Það var skilyrði fyrir
starfsleyfinu,“ segir Reynir Þór
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Vöku. Hann segir að við þetta tæki-
færi hafi verið ákveðið að ráðast í
minniháttar jarðvegsskipti á lóð
fyrirtækisins. Lóðin verði í kjölfarið
sléttuð og sett upp girðing við lóða-
mörkin við Sæbraut.
Reynir segir aðspurður að hann
telji að sátt sé að nást um starfsemi
Vöku í Laugarnesinu. Fyrirtækið er
með starfsleyfi þar út þetta ár.
Stefnan er að flytja starfsemina á
lóðir fyrirtækisins í Mosfellsbæ og
Hafnarfirði. Reynir kveðst þó ekki
útiloka að sótt verði um að aksturs-
deild, dekkjadeild og varsla bíla hjá
fyrirtækinu verði eitthvað áfram í
Laugarnesinu en engin ákvörðun
hefur þó verið tekin um það. Úr-
vinnsla bíla verði í það minnsta flutt
á brott en mesta umstangið er í
kringum hana.
Um 150 bílar safnast upp
„Ég trúi því að öldurnar í kringum
Vöku sé að lægja. Ég tók við fyrir-
tækinu í júlí í fyrra og það hefur ver-
ið mikið starf að laga fyrirtækið og
fjármálin. Nú er uppbygging fram
undan.“
Reynir segir að nú þegar útlit er
fyrir frekari afléttingu samkomutak-
markana fari starfsemi Vöku að
glæðast. Erfiðlega hefur gengið að
halda uppboð á bílum síðasta árið.
„Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæð-
inu stefnir að uppboði 4. júní og svo
vonandi mánaðarlega eftir það. Það
hafa safnast upp um 150 bílar síðustu
mánuði. Við náðum einu uppboði í
mars og náðum þá að losa 70 bíla en
annars hafði ekkert gerst frá því í
júní í fyrra vegna Covid.“
Vaka fjarlægir umdeilda gáma
- Miklar breytingar á lóð fyrirtækisins í Laugarnesi - Telur sátt um starfsemina
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gjörbreytt Lóð Vöku við Héðinsgötu hefur breyst mikið síðustu mánuði.
Gámar hafa verið fjarlægðir og létt girðing kemur í þeirra stað á næstunni.
Sóðalegt Mikil óánægja var meðal nágranna þegar gámum var komið fyrir
í óleyfi. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur gerði athugasemd við þá ráðstöfun.