Morgunblaðið - 08.05.2021, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 08.05.2021, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2021 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það er nóg pláss fyrir okkur öll og ekki á að þurfa að koma til árekstra. Margt má laga með rétt- um ákvörðunum í skipulagi. Fræðsla er mikilvæg til að auka skilning á milli mismunandi hópa,“ segir Dagný Bjarnadóttir lands- lagsarkitekt, formaður reiðvega- nefndar hestamannafélagsins Fáks í Reykjavík. Hún ræðir um reið- vegamál og deilur sem komið hafa upp á milli mismunandi útivistar- hópa um notkun á reiðvegum og stígum. Á síðasta ári urðu tíð slys á hestafólki, sum alvarleg, oft á þeim stöðum þar sem umferð ríð- andi fólks skarast við aðra umferð eða aðrir vegfarendur nota reið- vegi. Hjá bráðamóttöku Landspít- alans voru skráð 160 slys tengd hestum á síðasta ári en talið er að slík slys séu vanskráð, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Landssambandi hestamannafélaga (LH). Taka ber fram að þarna er átt við öll slys tengd hestum, slys vegna svokallaðra árekstra við aðra hópa eru aðeins hluti af þeim. Dagný Bjarnadóttir segir að þörf sé á að skrá þau slys betur, hvar og þá hvernig þau verða. Ástæður slysa má oft rekja til þekkingarskorts, aðrir vegfar- endur setji sig ekki í spor hesta- fólks og öfugt. Úr þessu er ætlunin að bæta með fræðslustarfi. Ýmis samtök vegfarenda, meðal annars hesta- manna og hjólreiðafólks, hafa komist að samkomulagi um að standa saman að fræðslu til al- mennings um það hvernig mis- munandi hópar geta stundað heil- brigða og örugga útiveru í sátt og samlyndi. Sáttmáli þessa efnis verður undirritaður í dag. Styrkja þarf reiðveganetið Dagný segir að hestamennskan eins og hún er stunduð hér sé menningararfur sem Íslendingar eigi að styrkja og vera stoltir af. Hún nefnir að þorp hesthúsa sé við hvern þéttbýliskjarna á land- inu, til dæmis í öllum sveitarfélög- unum á höfuðborgarsvæðinu utan Seltjarnarness. Um sex þúsund séu skráðir í hestamannafélögin á svæðinu en gera megi ráð fyrir að tvöfalt fleiri stundi hestamennsku. Hesthúsahverfin séu tengd með reiðleiðaneti og tengist jafnframt inn á net reiðleiða sem liggur um allt land. Hún segir mikilvægt að viðhalda og styrkja þetta net. Hestafólk sé háð því að reiðleiðanetið við hest- húsahverfin virki því allir reiðtúr- ar byrji og endi við hesthúsið. „Því er mikilvægt að við lokumst ekki inni vegna rangra ákvarðana í skipulagsmálum og við hönnun samgöngumannvirkja,“ segir Dagný. Nefnir hún sem dæmi að mikilvægt sé að göng undir Suður- landsveg verði hönnuð með þarfir hestafólks í huga, þau verði víð og opin þannig að hestafólk veigri sér ekki við að nota þau. „Það má laga mikið af árekstr- um milli hestafólks og annarra vegfarenda með réttu skipulagi. Stundum finnst mér vandinn vera búinn til. Nefna má að hjóla- og reiðleiðir eru lagðar hlið við hlið þótt landsvæðið sé nógu stórt til þess að hægt sé að hafa gott bil á milli,“ segir Dagný. Segir hún að sérþekkingu á þessu sviði skorti. Segist hún oft hafa orðið vör við það í starfi sínu sem landslagsarkitekt að skilning skorti á því hvernig hestur hegðar sér og hvað beri að varast við skipulag reiðstíga. Ekki sé hægt að sækja þekk- inguna til útlanda því aðstæður séu hvergi þær sömu og hér. Þess vegna verði að bæta leið- beiningar sem hönnuðir geti haft hliðsjón af við vinnu sína. Allir fái að njóta sín Dagný tekur undir þau orð að fræðsla sé mikilvæg til að auka skilning á milli mismunandi hópa útivistarfólks og vegfarenda og draga úr hættu á árekstrum. Hún nefnir að nú á tímum kórónuveiru- faraldursins stundi mun fleiri úti- vist en áður og hjólafólki fjölgi. Sumir freistist til að læðast inn á reiðleiðir. Það geti ekki einungis skapað hættu fyrir hestafólk held- ur einnig eyðilagt stígana. „Þetta er lúxusvandamál, við höfum það svo gott að við getum leikið okkur mikið. Það verður að finna þessu farveg. Þörf er á fleiri svæðum þar sem fólk sem stundar hjólasport fær að njóta sín án þess að lenda í árekstrum við ríðandi fólk eða gangandi,“ segir Dagný. Það er nóg pláss fyrir okkur öll - Dagný Bjarnadóttir formaður reiðveganefndar Fáks segir að margt megi laga með réttu skipulagi - Samtök hestamanna og hjólreiðafólks efna til fræðsluátaks um mismunandi þarfir útivistarhópa Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hestamaður Dagný Bjarnadóttir segir mikilvægt að menn geti haldið áfram að ríða á milli hesthúsahverfanna á höfuðborgarsvæðinu og inn á net reiðvega landsins. Hún segir hægt að koma í veg fyrir slys með réttu skipulagi. Dagný Bjarnadóttir og Katrín Halldórsdóttir, starfsmaður Vegagerðarinnar, hafa fengið styrk úr rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar. Verkefnið kalla þær „Samspil ríðandi umferðar og annarra vegfarenda á stígakerfi höfuðborg- arsvæðisins“. Áhersla verkefnisins að er huga að öryggi knapa á reiðleiðum og kort- leggja hvar og hvernig hætta skapast af völdum annarrar umferðar, jafnt farartækja sem útivistarhópa. Einnig hyggjast þær skoða útfærslur á inn- viðum sem geta skapað hættu, svo sem undirgöngum, blindbeygjum, stað- setningu skilta og staura og frágangi á yfirborði. Hafa þær kallað eftir ábendingum frá hestamannafélögum á höfuðborgarsvæðinu. Efnið verður dregið saman í skýrslu sem verður öllum aðgengileg. Vonast Dagný og Katrín til þess að skýrslan geti orðið grunnur að hönnunarleiðbeiningum um útfærslur á reiðleiðum og innviðum þeirra með öryggi knapa í huga. Rannsaka hvernig slysin verða SAMVINNA Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Framkvæmdir hafa staðið yfir á lóð Vöku við Héðinsgötu í Reykjavík að undanförnu. Búið er að fjarlægja gáma sem komið hafði verið fyrir við lóðamörk að Sæbraut. Óhætt er að segja að ásýnd fyrirtækisins þar hafi tekið stakkaskiptum síðustu mánuði. Eins og Morgunblaðið hefur greint frá var mikil óánægja meðal íbúa í Laugarneshverfi með starfsemi Vöku. Kvartað var undan hávaða og mengun eftir að fyrirtækið var flutt þangað í byrjun árs 2020. Þá krafðist Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur þess að Vaka myndi bæta ásýnd og um- gengni á lóð fyrirtækisins og héldi starfseminni innan lóðar. Vaka fékk tímabundið starfsleyfi í febrúar á þessu ári. Vaka verði mögulega áfram „Við lofuðum að taka gámana fyrir fyrsta maí. Það var skilyrði fyrir starfsleyfinu,“ segir Reynir Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri Vöku. Hann segir að við þetta tæki- færi hafi verið ákveðið að ráðast í minniháttar jarðvegsskipti á lóð fyrirtækisins. Lóðin verði í kjölfarið sléttuð og sett upp girðing við lóða- mörkin við Sæbraut. Reynir segir aðspurður að hann telji að sátt sé að nást um starfsemi Vöku í Laugarnesinu. Fyrirtækið er með starfsleyfi þar út þetta ár. Stefnan er að flytja starfsemina á lóðir fyrirtækisins í Mosfellsbæ og Hafnarfirði. Reynir kveðst þó ekki útiloka að sótt verði um að aksturs- deild, dekkjadeild og varsla bíla hjá fyrirtækinu verði eitthvað áfram í Laugarnesinu en engin ákvörðun hefur þó verið tekin um það. Úr- vinnsla bíla verði í það minnsta flutt á brott en mesta umstangið er í kringum hana. Um 150 bílar safnast upp „Ég trúi því að öldurnar í kringum Vöku sé að lægja. Ég tók við fyrir- tækinu í júlí í fyrra og það hefur ver- ið mikið starf að laga fyrirtækið og fjármálin. Nú er uppbygging fram undan.“ Reynir segir að nú þegar útlit er fyrir frekari afléttingu samkomutak- markana fari starfsemi Vöku að glæðast. Erfiðlega hefur gengið að halda uppboð á bílum síðasta árið. „Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæð- inu stefnir að uppboði 4. júní og svo vonandi mánaðarlega eftir það. Það hafa safnast upp um 150 bílar síðustu mánuði. Við náðum einu uppboði í mars og náðum þá að losa 70 bíla en annars hafði ekkert gerst frá því í júní í fyrra vegna Covid.“ Vaka fjarlægir umdeilda gáma - Miklar breytingar á lóð fyrirtækisins í Laugarnesi - Telur sátt um starfsemina Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gjörbreytt Lóð Vöku við Héðinsgötu hefur breyst mikið síðustu mánuði. Gámar hafa verið fjarlægðir og létt girðing kemur í þeirra stað á næstunni. Sóðalegt Mikil óánægja var meðal nágranna þegar gámum var komið fyrir í óleyfi. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur gerði athugasemd við þá ráðstöfun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.