Morgunblaðið - 08.05.2021, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2021
• Gist er á hinu glæsilega
Campoamor Golf Resort 4*
• Beint dagflug með Icelandair til Alicante
• Morgunverður alla daga og ein kvöld-
máltíð með drykkjum ásamt kvöld-
skemmtun með Ladda
• Akstur til og frá golfvöllum ásamt
umsjón og skipulagi á rástímum
• Golfbílar innifaldir á öllum hringjum
• Frítt vallargjald á golfvelli hótelsins
eftir kl. 15.00 alla daga
Félagar í félögum eldri borgara á Íslandi
fá 4.500 kr. afslátt ef bókað er í maí.
Golfferðir eldri borgara
til Costa Blanca haustið 2021
Sjá nánari upplýsingar á
www.ferdaskrifstofaeldriborgara.is
Allar upplýsingar eru veittar
í símum 783-9300 og 783-9301
frá kl. 9-18 á virkum dögum.
11 dagar
10 nætur
7 golfhringir
Verð kr. 299.000
m.v. gistingu í tvíbýli*
*Aukagjald vegna einbýlis kr. 39.500
Fyrsta ferð er 30. september – 11. október
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Berjarunnamálið í Vogabyggð er á
hraðferð innan borgarkerfisins.
Ágreiningur varð um málið á borg-
arráðsfundi á fimmtudaginn og því
fer það til endanlegrar afgreiðslu í
borgarstjórn eins og kveðið er á um í
samþykkt um stjórn Reykjavíkur-
borgar og fundarsköp borgar-
stjórnar.
Mál þetta hefur vakið mikla at-
hygli og verið til umfjöllunar í frétt-
um. Upphafið var það fyrirtækið ÞG
íbúðir ehf., sem selur íbúðir í hinu
nýja hverfi Vogabyggð, ritaði skipu-
lagsfulltrúa Reykjavíkur bréf í febr-
úar sl. með ósk um að felld yrði niður
kvöð í skipulagi um gróðurþekjur og
berjarunna innan sérafnotareita/
einkagarða íbúða. Segir fyrirtækið
að sérnotafletir/einkagarðar séu al-
mennt á bilinu 5-10 fermetrar og
gróðurþekjan væri því á bilinu 2,5-5
fermetrar.
Gróðurþekjan ekki íþyngjandi
Skipulagsfulltrúi vísaði málinu til
afgreiðslu hjá skipulags- og sam-
gönguráði, sam hafnaði beiðninni á
fundi 8. apríl. Ákvæði um gróður-
þekju í einkagörðum í Vogabyggð
væri ekki íþyngjandi og garðarnir
væru hluti af heildarmynd hverf-
isins. Var þessi afgreiðsla í samræmi
við niðurstöðu verkefnisstjóra
skipulagsfulltrúans.
Á fundi borgarráðs á fimmtudag-
inn var synjun skipulags- og sam-
gönguráðs staðfest með fjórum at-
kvæðum meirihlutaflokkanna. Já
sögðu Heiða Björg Hilmisdóttir
Samfylkingu, Þórdís Lóa Þórhalls-
dóttir Viðreisn, Dóra Björt Guðjóns-
dóttir Pírötum og Líf Magneudóttir
Vinstri grænum. Nei sögðu Eyþór
Laxdal Arnalds, Hildur Björnsdóttir
og Valgerður Sigurðardóttir, borg-
arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins.
Borgarfulltrúar meirihlutans
lögðu fram bókun þar sem m.a. kem-
ur fram að það sé á ábyrgð verktaka
að gróðurskilmálar séu virtir og að
hönnun styðji við þá skilmála, einnig
að kaupendur séu upplýstir um skil-
mála samkvæmt deiliskipulagi.
„Á þeim forsendum er ekki unnt
að verða við beiðni um deiliskipu-
lagsbreytingu. Komi fram aðrar
hugmyndir að hönnun sem hvort
tveggja koma til móts við óskir
væntanlegra íbúa og falla að kröfum
um heildargróðurþekju er mögulegt
að senda inn fyrirspurn á skipulags-
fulltrúa til að fá viðbrögð við því
hvernig þær nýju hugmyndir kunni
að samrýmast skipulagsáætlunum
fyrir svæðið.“
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins lögðu fram svohljóðandi
bókun: „Forræðishyggjan birtist
víða. Hér er hafnað þeirri ósk íbúa
og verktaka að íbúar fái að ráða
þeim litlu svæðum sem þeir hafa í
görðum sínum. Því erum við ósam-
mála og teljum að fólk eigi að hafa
athafnafrelsi á heimilum sínum og í
görðum. Þá vekur athygli að þótt
ekki eigi að tryggja íbúum frelsi um
ráðstöfun eigin garða, er ekki fyrir-
hugað að framkvæma lokaúttekt á
sérafnotareitunum. Á sama tíma og
íbúar eru skikkaðir til að rækta
pínulitla berjarunna er verulega
vegið að grænum svæðum borg-
arinnar sem henni hefur verið treyst
fyrir.“
Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins,
Vigdís Haukdóttir, bókaði að stóra
berjarunnamálið í nýju Vogabyggð-
inni væri á pari við pálmatrén í
sama hverfi og dönsku stráin við
braggann. „Hvort á maður að hlæja
eða gráta yfir svona stjórnsýslu.
Hér er um að ræða minnstu garða í
heimi. Hver „garður“ samkvæmt
skilgreiningu borgarstjóra og
meirihlutans verður 2,5-5,0 fer-
metrar og í „garðinum“ skuli vera
berjarunni.“
Sagði Vigdís að ekki væri hægt að
skálda svona vitleysu upp, en allt
væri greinilega hægt í Reykjavík.
Berjarunnar enda í borgarstjórn
- Ágreiningur var í borgarráði - Meirihlutinn tilbúinn að skoða nýjar hugmyndir - Forræðis-
hyggja segja sjálfstæðismenn - „Hvort á maður að hlæja eða gráta,“ spyr Vigdís Hauksdóttir
Morgunblaðið/Eggert
Vogabyggðin Nýtt hverfi við Elliðaárvog sem nú er verið að byggja upp.
Íbúarnir eru óánægðir með kvöð um berjarunna í einkagörðum sínum.
Morgunblaðið/Ómar
Bláberjarunni Í deiliskipulagi fyrir Vogabyggð er þess krafist að sérnota-
fletir skuli að lágmarki hafa 50% gróðurþekju og a.m.k. einn berjarunna.