Morgunblaðið - 08.05.2021, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2021
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, fagnaði í gær úrslitum
fyrstu kosninganna sem fram fara í
landinu í kjölfar Brexit og kórónu-
veiru-
faraldursins.
Sérlega þótti
íhaldsmönnum
sætur stórsigur í
aukakosningun til
þings í Hartle-
pool í Norðaust-
ur-Englandi.
Verkamanna-
flokkurinn hafði
ráðið því frá
stofnun kjördæmisins árið 1974. Þá
féllu héraðsstjórnir í Norðymbra-
landi, Harlow, Redditch, Dudley og
Nuneaton & Bedworth Íhalds-
flokknum í skaut.
Bretar kusu í fyrradag á svo-
nefndum „ofurfimmtudegi“ bæði til
sveitarstjórna og einnig í héraðs-
kosningum, svo og aukakosningum
til þingsins í London. Þá var kosið til
skoska þingsins og þess velska. Úr-
slit þeirra gætu haft mikil áhrif á
Skota sem vilja segja sig úr lögum
við breska konungdæmið og öðlast
sjálfstæði. Í fyrstu úrslitum frá Eng-
landi í gær kom Íhaldsflokkurinn
sterkur út í ýmsum héruðum og bæj-
um. Vann Jill Mortimer, frambjóð-
andi flokksins, yfirburðasigur í
Hartlepool. Þótti það bitur pilla fyrir
Keir Starmer, leiðtoga Verkamanna-
flokksins, að kyngja en hingað til
hafði verið á vísan að róa fyrir flokk-
inn þar.
Varð þar 16% fylgissveifla til
Íhaldsflokksins frá síðustu kosning-
um. „Mjög hvetjandi niðurstaða,“
sagði Johnson og Mortimer sagði
sigur sinn réttilega „virkilega sögu-
legan“. Þingsætið losnaði er forveri
Mortimers sagði af sér vegna ásak-
ana um kynferðislega áreitni.
Niðurstöður sem fengnar voru
sýndu áframhaldandi þróun úr þing-
kosningunum í desember 2019 þegar
Brexit tröllreið umræðunni en þá
unnu íhaldsmenn nokkur gömul
Verkamannaflokksvígi sem kennd
voru við svoefndan „Rauðvegg“ sem
umgirti gömul og rótgróin verka-
mannahéruð í Norður-Englandi.
Niðurstöður í gær þykja til þess
fallnar að keyra upp þrýsting á Keir
Starmer um að endurbyggja Verka-
mannaflokkinn og endurheimta
hefðbundið fylgi sem flykkst hefur á
undanförnum árum yfir til Íhalds-
flokksins. Voru flokksmenn lamaðir
yfir árangri flokksins og sagði hátt-
settur flokksmaður, þingmaðurinn
Steve Reed, úrslitin sláandi.
Boris Johnson
fagnar stórsigri
- Íhaldsmenn góma rótgróin vinstrisæti
Mannréttindaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna (SÞ) gagn-
rýndi eftirför lögreglu eftir fíkniefnasölum inn í fátækra-
hverfi Rio de Janeiro í fyrrinótt en að minnsta kosti 25
biðu þar bana. Lögreglan var sökuð um misnotkun fólks
og aftökur án dóms og laga.
Mannskæðari lögregluaðgerðir hafa aldrei átt sér stað
í sögu borgarinnar en meðal þeirra sem liggja í valnum
eftir hana er lögreglumaður.
Íbúar sögðu að lögreglan hefði drepið grunaða ein-
staklinga sem vildu gefa sig fram. Þá hefði hún ráðist inn
á heimili án leitarheimilda. Sjálf harðneitaði lögreglan að
hafa haft nokkuð rangt við og kvaðst einungis hafa
brugðist við í sjálfsvörn.
Af borgum Brasilíu er ofbeldi einna mest í Rio de Jan-
eiro. Stór svæði í borginni eru undir stjórn glæpamanna
sem hafa tengsl við öfluga fíkniefnasmyglara. Fyrir
kemur að öryggissveitir eru sakaðar um ójafna valdbeit-
ingu í aðgerðum gegn glæpagengjum.
Í árásinni inn í fátækrahverfið Jacarezinho, eins hins
stærsta í Rio, tóku um 200 þátt og yfir sveif þyrla með
leyniskyttu um borð. Svæðið lýtur stjórn glæpamafíunn-
ar Comandii Vermelho, eða „Rauða ráðið“.
Lögreglan kvaðst hafa látið til skarar skríða til að
stöðva glæpagengi sem orðið hefðu uppvís að því að ráða
börn og táninga í raðir sínar í hverfinu, sem er norðan-
megin í borginni.
Á myndum frá sjónvarpsþyrlu má sjá grunaða hlaupa
eftir húsþökum en íbúarnir í örvæntingu sinni settu
myndskeið inn á netið af afar hörðum vopnaviðskiptum.
Sögðu þeir lögregluna hafa brúkað alltof mikið ofbeldi.
„Okkur er illa brugðið vegna drápanna,“ sagði tals-
maður SÞ, Rupert Colville. „Við minnum brasilísk yfir-
völd að beita skuli afli því aðeins að afar brýnt teljist.“
Þau skyldu í hvívetna virða lög, sýna aðgát, spyrja um
nauðsyn aflbeitingar og hóflegt vald. agas@mbl.is
Sökuð um aftökur án dóms og laga
AFP
Mikil óánægja Íbúar kofaborgarinnar Jacarezinho
mótmæltu í gær atburðunum innan hverfisins.
- Sameinuðu þjóðirnar
gagnrýna valdbeitinguna
Kínverskt bóluefni gegn kórónuveir-
unni hefur verið samþykkt til notk-
unar af hálfu Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unarinnar, WHO. Er Sinopharm
sjötta bóluefnið sem hlýtur samþykki
stofnunarinnar.
Þetta er fyrsta bóluefni frá landi
annars staðar en á Vesturlöndum til
að hljóta samþykki WHO. Nokkrar
milljónir manna hafa þegar verið
bólusettar með því í Kína og víðar. Þá
er sagt stutt í að annað kínverskt
bóluefni verði samþykkt, jafnvel í
næstu viku.
Farið er að bera á merkjum þess að
þriðja veirubylgjan sé í rénun, sagði
þýski heilbrigðisráðherrann Jens
Spahn í gær. Hann varaði samt við því
að rokið yrði til og aflétt aðgerðum
sem hemja áttu útbreiðslu kórónu-
veirunnar. „Nýsmit eru aftur á und-
anhaldi en eru enn aðeins of mörg. Og
úr þeim dregur ekki á sama hraða alls
staðar, en þau eru á niðurleið,“ sagði
Spahn. Í gær voru tilkynnt 18.485 ný-
smit þann sólarhringinn í Þýskalandi
en 27.543 daginn áður.
Þýska þingið samþykkti í gær ný
lög sem aflétta kvöðum af bólusettu
fólki og þeim sem hafa náð sér eftir
veikindi. Frá og með morgundeginum
þurfa þessir ekki að virða lengur út-
göngubann og kvaðir um félagslega
fjarlægð gilda heldur ekki um þá.
Saka Frakka um tafir
Áform Evrópusambandsins (ESB)
um að panta 1,8 milljarða skammta af
bóluefninu BioNTech/Pfizer eru í
uppnámi vegna tafa af hálfu Frakka,
að sögn þýska blaðsins Die Welt, sem
ber fyrir sig heimildir ú röðum dipló-
mata. Haft er eftir þeim að Frakkar
vilji að franskar lyfjaverksmiðjur fái
að koma að framleiðslunni. Hafa þeir
tafið kaupaferlið með kröfum um svör
við alls konar tæknilegum spurning-
um. agas@mbl.is
Kínverskt bólu-
efni samþykkt
- Frakkar sagðir tefja innan ESB
Eldflaugarbrak úr kínversku geimskoti í síðustu viku
hrapar jafnt og þétt í átt til jarðar en Kínverjar
halda því fram að óveruleg hætta sé á að það komi
niður á byggðu bóli. Þetta kemur ekki heim og sam-
an við álit sérfræðinga bandarísku geimferðastofn-
unarinnar NASA og Bandaríkjahers sem áður höfðu
varað við því að flaugin Miklaganga 5B gæti fallið til
jarðar á byggðum svæðum. Þeir sögðu flaugarbrakið
væntanlegt niður til jarðar í dag eða á morgun, en
erfitt væri bæði að tímasetja það hvar og hvenær.
Lloyd Austin, varnarmálaráðherra stjórnar Joes Bi-
dens, sagði engin áform um að skjóta brakið niður. Á
myndinni er Miklugöngu 5B skotið á loft í Wenchang
í Kína. agas@mbl.is
AFP
Kínversk geimflaug hrapar til jarðar
Boris Johnson