Morgunblaðið - 08.05.2021, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 08.05.2021, Qupperneq 34
34 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2021 Mikið hefur verið rætt um stöðu drengja í mennta- kerfinu undanfarið og ljóst að sam- kvæmt öllum helstu mælingum er staða þeirra alls ekki nógu góð. Ef við lítum á nið- urstöður úr al- þjóðlega könn- unarprófinu PISA síðan 2018 þá getur þriðjungur drengja sem útskrifast úr grunn- skóla ekki lesið sér til gagns. Al- þjóðaheilbrigðisstofnunin gerði úttekt sem leiddi í ljós að drengj- um liði verr í skólum hérlendis en stúlkum og að þeir fengju minni athygli frá kennurum. Ég ætla ekki að þykjast vera sérfræðingur í menntamálum en sem foreldri og samfélagsþegn vil ég sjá breytingar. Breytingar sem hafa það í för með sér að strákarnir okkar fái að blómstra á sinn hátt. Hættum að tala um vandamálið og byrjum á því að leita lausna. Stuðlum að fjölbreyttu skólakerfi þar sem áhugi og styrkleikar strák- anna fá að njóta sín svo þeir geti öðlast það sjálfstraust sem þeir þurfa til þess að læra að standa með sjálfum sér. Kerfið verður að vera opið fyrir breytingum, annars verður stöðnun og viðvarandi vandi skýtur rótum. Við verðum t.d. að skoða þann möguleika að velja námsefni sem hæfir betur áhuga- sviði drengja þegar kemur að lestri. Það ætti ekki að viðgangast að vera með allar þessar skelfilegu tölur á borðinu en sjá samt ekk- ert ákvæði um stöðu drengja í til- lögu að menntastefnu til 2030. Við verðum að bjóða upp á sveigjanleika í námi þar sem nem- endur eru ekki allir steyptir í sama mót. En til þess þurfum við að breyta kerfinu. Við búum að mörgum frábærum skólum og öfl- ugum kennurum en betur má ef duga skal. Tökum höndum saman og hugsum í lausnum. Búum til umhverfi þar sem allir fá að njóta sín og látum verkin tala. Hugsum í lausnum – ekki vandamálum Eftir Guðberg Ingólf Reynisson Guðbergur Ingólfur Reynisson »Mikið hefur verið rætt um stöðu drengja í mennta- kerfinu undanfarið og ljóst að samkvæmt öll- um helstu mælingum er staða þeirra alls ekki nógu góð. Höfundur er frambjóðandi í prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi og sækist eftir 3. sæti. beggireynis@simnet.is Nú um alllangt skeið virðist mér Ríkisútvarpið hafa lagt tugi milljóna í einhvers konar rann- sókn á fyrirtækinu Samherja, og aldrei heyri ég óráðsíu eða ills manns getið í þessum fjölmiðli, svo ekki sé einhver eða eitthvert fyrirtæki nefnt og það tengt Samherja. Í öllum þessum óhróðri heyri ég þess aldrei getið að fyrir- tækið hafi verið dæmt sekt í nokkru máli, þó málæði útvarpsins í sínum jötunmóð þrumi úr öllum kimum. Ég segi nú bara fyrir mig, að ef ég sætti þvílíkum of- sóknum, jafnframt því að ég væri að starfa að jafnmörgum þjóð- hagslega hagstæðum málum, og nýungum sem hafa fært atvinnu- lífið úr því að verka fisk í salt og skreið (að sjálfsögðu með öðrum framleiðendum) í framleiðslu matvæla á heimsmælikvarða, og veitt hundruðum manna atvinnu á hæstu launum, þá mundi ég segja að nú væri nóg komið. Ég mundi pakka saman og hætta. Ég mundi selja og flytja mig í rólegra umhverfi, eins og til dæmis Sýrlands. Ég býst samt við að þeir hjá Samherja séu mér meiri menn, en ef ef svo færi að þeir hættu? Er Ríkisútvarpið undir það búið að taka allt það fólk í vinnu sem hjá Samherja vinnur og með sömu laun? Er ekki kominn tími til að Ríkis- útvarpið sinni sínu hlutverki og aðrir sínu? Fyrirspurn til Ríkisútvarpsins Eftir Kristján Hall » Aldrei heyri ég óráð- síu eða ills manns getið í þessum fjölmiðli svo ekki sé einhver eða eitthvert fyrirtæki nefnt til og það tengt Samherja Kristján Hall Höfundur er eftirlaunaþegi. Alþingi samþykkti í júní 2019 nýjar laga- greinar þar sem rétt- indi barna í kjölfar fráfalls foreldris eru betur skilgreind en áður var. Þar segir meðal annars: Dánarvottorðið Þegar einstaklingur andast skal læknir sem gefur út dánarvottorð kanna hvort hinn látni hafi átt barn undir lögaldri. Reynist svo vera skal við- komandi læknir eins fljótt og unnt er tilkynna andlát foreldrisins til heilsugæslunnar þar sem barnið á lögheimili. Heilsugæslan Heilsugæslan skal, í samráði við félagsmálanefnd í því sveitarfélagi þar sem barn á lögheimili og for- eldri eða forsjáraðila, hafa frum- kvæði að samvinnu við skóla barns- ins. Þótt verkferlar séu nú mun skýrari en áður skortir enn nokkuð upp á að sérfræðiþekking og reynsla sé fyrir hendi á hverjum stað. Það er því mikilvægt að byggja upp miðlæga handleiðslu fyrir fagfólk í heilsugæslu og skól- um sem er aðgengileg alls staðar á landinu. Skólinn Samkvæmt aðalnámsskrá skulu leik- og grunnskólar hafa sérstaka áfallaáætlun sem hugsuð er sem vinnuáætlun um hver gerir hvað, í hvaða röð og hvernig, til að geta á sem faglegastan hátt brugðist við skyndi- legum áföllum nem- enda líkt og þegar for- eldri deyr. Samkvæmt nýju lögunum er það þó heilsugæslan sem ber ábyrgð á að veita barninu þann stuðning sem því ber samkvæmt lögum. Áfallateymi skóla á því rétt á að leita til fagaðila á heilsugæslu. Stuðningur við fagfólk Í könnunum sem Krabbameins- félagið lét gera meðal fagfólks í leik- skólum og grunnskólum kom fram skýr þörf fyrir gott aðgengi að fag- legum utanaðkomandi stuðningi við fagfólkið sem vinnur með börnum við þessar aðstæður. Nánari upplýs- ingar má nálgast á vef verkefnisins: https://www.krabb.is/born/ Hlutverk heilsu- gæslu og skóla þegar foreldri deyr Eftir Ásgeir R. Helgason Ásgeir R. Helgason » Samkvæmt nýju lög- unum er það heilsu- gæslan sem ber ábyrgð á að veita barninu þann stuðning sem með þarf í samstarfi við skóla og félagsmálanefnd. Höfundur er dósent í sálfræði við HR og sérfræðingur hjá Krabbameinsfélaginu. asgeir@krabb.is Þau ótíðindi berast að kaflaskipti verði í sögu Hallgrímskirkju og raunar alls menn- ingarlífs í landinu ef tónlistarmaðurinn Hörður Áskelsson tel- ur sig knúinn til að flytja sig um set það- an með allt sitt lið. Vitaskuld er í fleiri hús að venda, en starf Harðar og kóranna hans er á ein- hvern hátt orðið svo samgróið öllum vexti kirkjunnar að hér verður stórt skarð fyrir skildi. Sannleikurinn er sá að honum tókst að gera það tón- listarlíf sem þarna fór fram sam- bærilegt við það besta erlendis; ég mæli auðvitað með mínum leik- mannseyrum, en hef þó samanburð í einum 70 löndum þar sem ég hef drepið niður fæti. Hljómburður er ævinlega grund- vallaratriði við flutning tónverka (og predikana!) í stórum kirkjum og í fyrstu þótti mönnum þar upp á skorta í þessari háreistu og glæsi- legu kirkju. En fljótt tókst Herði og Ingu Rós, samverkakonum og sam- verkamönnum hans að sigrast á þeim vanda þannig að fyrirmynd varð og dýrasti lofsöngur til Guðs og lífs hljómaði þar skært. Jafnframt blómgaðist annað lista- líf í kirkjunni, til urðu ekki aðeins merkileg tónverk heldur og mynd- listarverk og jafnvel leiklist eins og þegar leikur Steinunnar Jó- hannesdóttur um eigin- konu sálmaskáldsins sem kirkjan dregur nafn sitt af spratt fram. Eiginkona mín var viðloðandi þetta starf um nokkur ár og varð ég þá vitni að því hversu það dró að sér listamenn í landinu og batt þá tryggðabönd- um við kirkjuna. Ef viðskilnaður Harðar og kór- anna góðu við þann stað sem hefur verið þeim svo hjartfólginn um ára- tugi er ekki beiskjulaus má ekki minna vera en þeim fylgi þakkar- vottur frá kirkjugestum. Þar tala ég fyrir hönd tuga ef ekki hundraða þúsunda landsmanna. Eftir Svein Einarsson Sveinn Einarsson »Ef viðskilnaður Harðar og kóranna góðu við þann stað sem hefur verið þeim svo hjartfólginn um áratugi er ekki beiskjulaus má ekki minna vera en þeim fylgi þakkarvottur frá kirkjugestum. Höfundur er leikstjóri. Þakklæti Atvinna Þór Bær skemmti öll laugar frá 20.00 ti ing sér um að allir sér vel á Þórskaffi dagskvöld á K100 l 00.00

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.