Morgunblaðið - 08.05.2021, Blaðsíða 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2021
✝
Íshildur Þrá
Einarsdóttir
Söring fæddist 11.
desember 1936 í
Sjávarborg á Seyð-
isfirði. Hún lést 23.
apríl 2021 á Dval-
arheimilinu Lundi
á Hellu.
Foreldrar henn-
ar voru Einar Þór-
arinsson Söring, f.
20.10. 1913, d.
25.11. 2001, og Guðný Söring
Jónsdóttir, f. 19.10. 1914, d.
8.12. 1964. Íshildur var elst
systkina sinna, þau eru Val-
mundur Óli, f. 1938, Einar Trú-
mann, f. 1940, d. 2019, Þröstur
Bergmann, f. 1942, Níels, f.
1945, Agatha, f. 1947, Lísbet, f.
1968, og Gunnar, f. 1964.
Þann 19.2. 1961 giftist Íshild-
ur Sigurði Þorgilssyni, f. 19.2.
1936, d. 29.4. 1982, og eignast
þau saman sex börn. Fyrir átti
hún Birnu Borg Sigurgeirs-
dóttur, f. 4.5. 1956. Birna á fjög-
ur börn, tíu barnabörn og eitt
Ævar Svan, f. 29.3. 1973, eig-
inkona hans er Ragnheiður
Gísladóttir, f. 26.7. 1973, og eiga
þau tvö börn.
Fyrstu ár ævi sinnar dvaldist
Íshildur hjá ömmu sinni og afa á
Seyðisfirði og undi sér vel. Upp
frá því bar hún alltaf sterkar
taugar til Seyðisfjarðar. Fljót-
lega eftir að afi hennar fellur
frá flutti Íshildur til foreldra
sinna í Keflavík. Þegar Íshildur
var rúmlega tvítug réð hún sig
sem vinnukonu í Fljótshlíð. Þar
kynnist Íshildur verðandi eigin-
manni sínum, Sigurði Þorgils-
syni frá Ægissíðu í Djúpár-
hreppi. Þau giftast árið 1961 og
byrjuðu sinn búskap í Vest-
mannaeyjum, fluttu þaðan á
Ægissíðu, síðar á Helluvað á
Rangárvöllum en byggðu svo
einbýlishús á Útskálum 7 á
Hellu. Þar bjuggu þau saman
allt þar til Sigurður lést árið
1982. Íshildur bjó nokkur ár í
Reykjavík en flutti síðan aftur
heim á Hellu. Hún lagði stund á
prjónaskap, listmálun og ýmsar
aðrar handverksgreinar. Starf-
aði Íshildur m.a. í stórgripaslát-
urhúsinu á Hellu, við ræstingar
og við sundlaugargæslu.
Einungis nánustu aðstand-
endur verða við útförina sem fer
fram í dag, 8. maí 2021.
barnabarnabarn.
Börn Íshildar og
Sigurðar eru: 1) Ír-
is Björk, f. 5.11.
1960, eiginmaður
hennar er Guð-
björn Svavar Ingv-
arsson, f. 3.12.
1956, og eiga þau
þrjú börn og fimm
barnabörn. 2) Sig-
urborg Hulda, f.
19.12. 1961, eig-
inmaður hennar er Gunnar
Hólm Jóhannsson, f. 17.12. 1966,
og eiga þau fjórar dætur og eitt
barnabarn. 3) Torfi, f. 11.7.
1963, eiginkona hans er Olga
Kristjánsdóttir, f. 19.1. 1963, og
eiga þau fjórar dætur, fjögur
barnabörn og von á því fimmta í
ágúst. 4) Guðný Söring, f. 19.7.
1964, eiginmaður hennar var
Þórir Jónsson, f. 2.7. 1957, d.
5.1. 2015, og eiga þau þrjú börn
og eitt barnabarn. 5) Hafdís, f.
7.2. 1969, eiginmaður hennar er
Leifur Bjarki Björnsson, f. 24.8.
1980, og eiga þau fjögur börn. 6)
Mamma veiktist mjög alvar-
lega þegar ég var um 11 ára
gömul og upp frá því tóku oft við
erfiðir dagar þegar hún lenti á
spítala yfirleitt tvisvar sinnum á
ári vegna síns sjúkdóms.
Við systur hjálpuðumst þá að
við að skúra skólann fyrir
mömmu og að sinna heimilinu
ásamt pabba og tel ég að það
hafi bara tekist nokkuð vel hjá
okkur svona eftir á að hyggja.
Við systkinin tókum við
ábyrgðinni hvert af öðru eftir
aldursröð þar til kom að því að
eitt og eitt fluttist að heiman.
Við hjálpuðumst að við að sinna
því sem gera þurfti og til að
létta mömmu verkin í hennar
veikindum.
Pabbi var alltaf mjög stress-
aður þegar mamma lenti á spít-
ala, lengi vel hélt ég að honum
þætti erfitt að halda barna-
hópnum saman og hugsa um
heimilið en seinna áttaði ég mig
á því að hann var hræddur um
að einn daginn kæmi mamma
ekki lifandi heim aftur af spít-
alanum.
Pabbi minn dó þegar ég var
tæplega 18 ára. Tíminn sem kom
þar á eftir var mömmu mjög erf-
iður. Hún hafði ekki keyrt bíl í
tugi ára og pabbi hafði séð um
alla reikninga en mamma sá um
að reka heimilið sem hún gerði
vel.
Eðli mömmu var að gefast
aldrei upp þótt á móti blési og
eðlilega var ekkert annað í stöð-
unni en að taka á þessu stóra
verkefni, vera orðin fyrirvinnan
á heimilinu með mjög slæman
sjúkdóm sem hún vissi að gæti
dregið hana til dauða ef illa færi
í einhverju astmakastinu. Þá
með fjögur af börnum sínum
inni á heimilinu og tvö af þeim
enn í grunnskóla.
Mamma var sterk kona sem
tók því sem að höndum bar með
miklum styrk, það veganesti hef
ég tekið með mér út í lífið.
Eitt sinn er hún var búin að
vera mjög veik og var send á
Vífilsstaðaspítala gerðist það að
Ævar Svan litli bróðir minn
veiktist mjög alvarlega þá um 5
ára gamall. Hann fékk háan hita
og var alvarlega veikur, það var
spurning hvort hann þyrfti að
fara suður á spítala.
Það var ákveðið að halda
þessu leyndu en mamma vissi
allt, hún bara vissi! Hún hætti
ekki að spyrja fyrr en pabbi
sagði henni hvað væri í gangi.
Mamma fárveik, tilkynnti
lækninum að hún væri á leiðinni
heim og það þýddi ekkert að
reyna að stoppa hana. Doksi
settist því niður og samdi við
konuna, hún fengi að fara heim
ef hún lofaði að koma strax aftur
um leið og ástandið yrði betra.
Viti menn, fljótlega eftir að
mamma kom heim fór drengur-
inn að sýna batamerki og nokkr-
um dögum síðar fór mamma sátt
aftur á spítalann, enn fárveik.
Mamma var ekki margmála
kona, hún sat oft þögul og hlust-
aði en þegar hún sagði eitthvað
þá hlustaðum við og tókum
mark á því sem hún sagði því yf-
irleitt var það vel hugsað og
stundum allt of satt. Mamma
var trygg sínum og þeir sem
voru svo heppnir að vera inn
undir hjá henni áttu þar ævi-
langan vin.
Loksins hittast þau aftur,
mamma og pabbi, eftir öll þessi
ár, það er ég viss um að nú er
partý í Paradís.
Ég veit að hann Þórir minn
hefur einnig fagnað tengda-
mömmu sinni vel og innilega
þarna fyrir handan.
Elsku mamma, takk fyrir allt
og allt.
Þú veist, hver var skjól þitt, þinn
skjöldur og hlíf.
Það var íslenska konan sem ól þig og
gaf þér sitt líf.
Guðný Söring
Sigurðardóttir.
Amma var fyrirmyndarkona
og öðluðumst við dýrmætan
lærdóm af því að umgangast
hana, m.a. umhyggjusemi, að
hlusta, að gera ekki veður úr
smámunum, að hlutirnir eru
eins og þeir eru og það þarf að
vinna eftir því, hreinskilni, að
vera trú sjálfri sér og hnitmiðað
tal; í fáum áhrifaríkum orðum
kom hún máli sínu til skila og
fékk alla til þess að hlusta. Hún
var svo falleg og glæsileg kona.
Það var endalaust hægt að
dást að hlutunum heima hjá
henni. Allt frá smáu punti upp í
stórkostleg málverk. Sérstaklega
munum við eftir stórfenglegum
erni sem er eitt flottasta málverk
sem við höfum séð, ásamt nátt-
úrumálverkunum. Amma var svo
hæfileikarík og hreint út sagt
mögnuð í að mála myndir.
Með miklu þakklæti kveðjum
við þig amma. Það er heiður að
fá líf okkar litað af eiginleikum
jafn magnaðrar og harðkjarna
konu sem þú varst. Takk elsku
amma.
Og loks þegar móðirin lögð er í mold
þá lýtur þú höfði og tár falla’á fold.
(Ómar Ragnarsson)
Þráinn S. Þórisson
Sesselía Söring Þórisdóttir
Birta Sólveig Söring
Þórisdóttir.
Elsku amma okkar, hvíldu í
friði. Þín verður sárt saknað.
Amma kær, ert horfin okkur hér,
en hlýjar bjartar minningar streyma
um hjörtu þau er heitast unnu þér,
og hafa mest að þakka, muna
og geyma.
Þú varst amma yndisleg og góð,
og allt hið besta gafst þú hverju
sinni,
þinn trausti faðmur okkur opinn stóð,
og ungar sálir vafðir elsku þinni.
Þú gættir okkar, glöð við undum hjá,
þær góðu stundir blessun, amma
kæra.
Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá
í hljóðri sorg og ástarþakkir færa.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Kveðja,
Harpa, Karen,
Sonja og Díana.
Fyrir mér var amma aldrei
gömul kona, ekki þessi týpíska
eldri amma sem svo margir
eiga, enda var hún einungis 42
ára þegar ég fæðist.
Amma var alltaf stórglæsileg,
hafði afar fágaða framkomu,
sannkölluð hefðardama. Hún
var alls ekki skaplaus og gat al-
veg sagt sína meiningu ef henni
mislíkaði eitthvað en yfirbragð-
ið var þó alltaf yfirvegað og
maður bar mikla virðingu fyrir
henni og því sem hún sagði.
Þó amma hafi verið lungna-
sjúklingur frá því áður en ég
fæddist og oft mjög veik leit hún
alltaf vel út. Náði jafnvel að fela
það hversu veik hún var með því
að hafa sig alltaf vel til og fór
aldrei úr húsi nema máluð. Hún
var ein glæsilegasta kona sem
ég hef kynnst og gerði einnig
kröfur til manns um að vera vel
til fara. Oft fékk ég skammir ef
skórnir voru ekki nógu vel púss-
aðir. Það var lélegasta sort að
karlmaður væri í máðum leð-
urskóm. Oft lét hún mann pússa
skóna fyrir framan sig áður en
maður fór út frá henni aftur, að
maður tali nú ekki um ef leiðin
lá á ball eða á skemmtun, þó það
væri bara á skólaskemmtun í
grunnskóla.
Amma var mjög þrjósk og al-
gjör nagli. Uppgjöf var ekki til
og hún gerði einnig kröfur til
manns um að standa sig í vinnu
og öðru. Aumingjaskapur var
eitur í hennar beinum. Hún of-
gerði sér reyndar oft þegar hún
ákvað að fara í eitthvert verk.
Þá var ekki slegið slöku við fyrr
en verkinu var lokið og hún
jafnvel lögst í rúmið á eftir upp-
gefin.
Oftar en ekki fór amma ekki
á spítala fyrr en hún var svo
veik að maður vissi ekki alltaf
hvort hún kæmi aftur heim.
Hún þoldi ekki spítala og gaf sig
aldrei fyrr en í fulla hnefana.
Amma var mikill dansari og
það var frábært að sjá hana
svífa um dansgólfið. Við amma
deildum áhuga á dansi og ég
man enn þegar ég var 16 ára á
áramótaballi í Hellubíói þegar
amma bauð mér upp í dans. Það
var miklu flottara að dansa við
ömmu en jafnöldrurnar sem
kunnu lítið. Amma kenndi mér
nánast allt sem ég kann í dansi í
dag. Eitt sinn þegar ég var ung-
lingur kom danskennsla á Hellu
í línudansi og amma mætir heim
Íshildur Þrá
Einarsdóttir Söring
HINSTA KVEÐJA
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Valdimar Briem)
Takk fyrir okkur,
langamma.
Guðbjörn Svavar
og Jón Hólmgeir
Kristjánssynir.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta í yfir 70 ár
Við tökum vel á móti ástvinum
í hlýlegu og fallegu umhverfi HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
PÁLL INGI VALMUNDSSON
Gullsmára 7, Kópavogi
lést laugardaginn 1. maí á
hjúkrunarheimilinu Eir, Reykjavík.
Útför fer fram í Digraneskirkju mánudaginn 10. maí kl. 13.
Athöfninni verður streymt: skjaskot.is/pallvalmundsson
Klara Guðmundsdóttir
Valmundur Ingi Pálsson
Guðlaugur Heimir Pálsson Lizceth Zapata Almiron
Sólrún Lilja Pálsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæri bróðir, mágur og frændi,
VALDIMAR INGIBERGUR
ÞÓRARINSSON,
Skúlagötu 40b,
áður Gnoðarvogi 28,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 2. maí.
Útför hans fer fram frá Kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg
í Reykjavík mánudaginn 10. maí klukkan 15. Í ljósi aðstæðna
verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina.
Athöfninni verður streymt á
http://www.ohadisofnudurinn.is/ingi/
Hólmfríður Þórarinsdóttir Jón Þórir Jóhannesson
Elísabet Guðrún Þórarinsd.
og fjölskyldur
Okkar ástkæri
JÓN ÆVAR HARALDSSON
frá Eskifirði
lést á líknardeild St. Lukas Stiftelsen
í Hellerup miðvikudaginn 21. apríl.
Útförin fór fram 29. apríl frá Avedørekirke í
Hvidovre, Danmörku.
Vera Haraldsson
Lars Krygermeier Katya Gadgaard
Ragnheiður B. Haraldsdóttir
Huldís S. Haraldsdóttir Jóhann Á. Fannberg
Heimir Haraldsson Hróðný Kristjánsdóttir
Bjarnrún K. Haraldsdóttir Þorsteinn Gunnarsson
Júlíana Haraldsdóttir Einar Már Kristinsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
PÉTUR JÓNSSON
bifvélavirki,
frá Stökkum á Rauðasandi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
sunnudaginn 25. apríl.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 10. maí
klukkan 13. Athöfninni verður streymt á slóðinni
www.sonic.is/petur
Sveinbjörg Pétursdóttir
Jón Pétursson Ingunn Jónmundsdóttir
Pétur Pétursson Ásdís Emilía Björgvinsdóttir
Sigurður Pétursson
Þorleifur Einar Pétursson Haukur Hrafn Gunnarsson
Guðjón Pétursson Hulda Katrín Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
SIGRÍÐUR PÉTURSDÓTTIR,
Stella,
Garðabraut 10, Akranesi,
lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi, laugardaginn 1. maí.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 11. maí kl. 13.
Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju,
www.akraneskirkja.is. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu óska
aðstandendur eftir að þeir sem vilja koma hafi samband í síma
860-3935, Adda Lára, eða addal@internet.is.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hjúkrunar- og
dvalarheimið Höfða, Akranesi
Viktor Björnsson Díana Bergmann Valtýsdóttir
Helga Björnsdóttir Baldur Bjarnason
Ásdís Gunnarsdóttir
Björn Vignir Björnsson Sigrún Óskarsdóttir
barnabörnin