Morgunblaðið - 08.05.2021, Blaðsíða 44
44 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2021
Pepsi Max-deild karla
KR – KA.................................................... 1:3
Staðan:
KA 2 1 1 0 3:1 4
FH 1 1 0 0 2:0 3
Valur 1 1 0 0 2:0 3
Víkingur R. 1 1 0 0 1:0 3
KR 2 1 0 1 3:3 3
HK 1 0 1 0 0:0 1
Leiknir R. 1 0 1 0 0:0 1
Stjarnan 1 0 1 0 0:0 1
Keflavík 1 0 0 1 0:1 0
Breiðablik 1 0 0 1 0:2 0
Fylkir 1 0 0 1 0:2 0
ÍA 1 0 0 1 0:2 0
Lengjudeild karla
Grindavík – ÍBV ....................................... 3:1
Grótta – Þór .............................................. 4:3
2. deild karla
Haukar – Reynir S ................................... 0:2
Njarðvík – Þróttur V................................ 3:3
England
Leicester – Newcastle ............................. 2:4
Þýskaland
Stuttgart – Augsburg ............................. 2:1
- Alfreð Finnbogason var ekki í leik-
mannahóp Augsburg.
B-deild:
Hannover – Darmstadt ........................... 1:2
- Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik-
inn með Darmstadt.
Ítalía
B-deild:
Brescia – Pisa........................................... 4:3
- Birkir Bjarnason lék fyrstu 66. mínút-
urnar með Brescia en Hólmbert Aron Frið-
jónsson var ekki í hóp.
Venezia – Pordenone .............................. 0:0
- Bjarki Steinn Bjarkason var ónotaður
varamaður hjá Venezia. Óttar Magnús
Karlsson er meiddur.
Holland
B-deild:
Jong AZ – Excelsior ................................ 2:1
- Elías Már Ómarsson lék allan leikinn
með Excelsior og skoraði.
Jong PSV – Volendam ............................ 0:1
- Kristófer Ingi Kristinsson var ekki í
leikmannahóp Jong PSV.
Jong Ajax – De Graafschap.................... 1:1
- Kristian Nökkvi Hlynsson var ónotaður
varamaður hjá Jong Ajax.
Danmörk
Fallkeppnin:
OB – AaB .................................................. 1:0
- Aron Elís Þrándarson lék fyrstu 76. mín-
úturnar með OB, Sveinn Aron Guðjohnsen
var ónotaður varamaður.
B-deild:
Fredericia – Köge.................................... 3:0
- Elías Rafn Ólafsson varði mark Fred-
ericia.
50$99(/:+0$
Grill 66-deild karla
Hörður – Selfoss U............................... 40:33
Vængir Júpíters – Víkingur ................ 19:32
Kría – Fjölnir ........................................ 21:31
Staðan:
HK 16 14 0 2 484:343 28
Víkingur 16 14 0 2 426:374 28
Valur U 16 9 1 6 476:466 19
Fjölnir 16 8 3 5 456:418 19
Haukar U 15 8 1 6 397:398 17
Kría 16 6 3 7 426:442 15
Selfoss U 16 6 2 8 438:453 14
Hörður 16 5 1 10 453:510 11
Vængir J. 16 3 0 13 344:426 6
Fram U 15 0 1 14 358:428 1
Grill 66 deild kvenna
ÍR – Selfoss ........................................... 24:23
Fram U – HK U.................................... 25:29
Valur U – Fjölnir/Fylkir...................... 32:33
Afturelding – Víkingur ........................ 23:18
Lokastaðan:
Fram U 16 13 0 3 482:380 26
Afturelding 16 12 0 4 412:355 24
Valur U 16 11 1 4 464:396 23
Grótta 16 10 0 6 403:377 20
ÍR 16 9 0 7 389:378 18
HK U 16 7 1 8 415:425 15
Fjölnir-Fylkir 16 4 0 12 363:456 8
Víkingur 16 3 0 13 370:436 6
Selfoss 16 2 0 14 355:450 4
_ Afturelding leikur í úrvalsdeild 2021-22.
HK, Grótta, ÍR og Fjölnir-Fylkir fara í um-
spil um eitt sæti þar.
Frakkland
B-deild:
Besancon – Nice................................... 27:27
- Grétar Ari Guðjónsson varði 11 skot í
marki Nice.
Billere – Nancy .................................... 28:27
- Elvar Ásgeirsson var ekki í leikmanna-
hóp Nancy.
Þýskaland
B-deild:
Bietigheim – Emsdetten..................... 41:31
- Aron Rafn Eðvarðsson varði 10 skot í
marki Bietigheim.
.$0-!)49,
KR – KA 1:3
0:1 Hallgrímur Mar Steingrímsson 11.
0:2 Brynjar Ingi Bjarnason 28.
1:2 Guðjón Baldvinsson 45.
1:3 Hallgrímur Mar Steingrímsson 78.
MM
Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Brynjar Ingi Bjarnason (KA)
M
Guðjón Baldvinsson (KR)
Kennie Chopart (KR)
Kristinn Jónsson (KR)
Dusan Brkovic (KA)
Daníel Hafsteinsson (KA)
Hrannar Björn Steingrímsson (KA)
Andri Fannar Stefánsson (KA)
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson – 6.
Áhorfendur: 200, uppselt.
_ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og
grein um leikinn – sjá mbl.is/sport/fot-
bolti.
FÓTBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Hallgrímur Mar Steingrímsson átti
sannkallaðan stórleik fyrir KA þegar
liðið heimsótti KR í úrvalsdeild karla
í knattspyrnu, Pepsi Max-deildinni, á
Meistaravelli í Vesturbæ í 2. umferð
deildarinnar í gær.
Hallgrímur skoraði tvívegis í
leiknum og lagði upp annað mark
leiksins fyrir Brynjar Inga Bjarna-
son en
Guðjón Baldvinsson minnkaði
muninn fyrir KR í uppbótartíma
fyrri hálfleiks í stöðunni 2:0.
„Hallgrímur Mar Steingrímsson
átti glæsilegan leik; skoraði tvö og
lagði upp eitt. Auk þess skapaði hann
nánast öll færi KA sem hann komst
sjálfur ekki í. Brynjar Ingi Bjarna-
son er orðinn afar góður miðvörður,
ásamt því að hann er hættulegur í
vítateig andstæðinganna.
Allt of margir leikmenn voru undir
pari hjá KR. Pálmi Rafn Pálmason
hefur oft spilað betur, Ægir Jarl Jón-
asson sást varla, fátt gekk upp hjá
Óskari Erni Haukssyni, Atli Sig-
urjónsson skapaði lítið og Stefán
Árni Geirsson gerði varla neitt,“
skrifaði Jóhann Ingi Hafþórsson
m.a. í umfjöllun sinni um leikinn á
mbl.is.
Akureyringar tylla sér á toppinn
með sigrinum og eru með fjögur stig
í efsta sæti deildarinnar en KR er
með þrjú stig í fimmta sætinu.
_ Hallgrímur Mar Steingrímsson,
sem var að spila sinn 100. leik í efstu
deild, er nú orðinn markahæsti leik-
maður í sögu KA í efstu deild með 28
mörk en liðsfélagi hans Elfar Árni
Aðalsteinsson var sá markahæsti,
fyrir leik gærdagsins, með 27 mörk.
Stórleikur í Kaplakrika
Í kvöld fara fram þrír leikir en
fimm af þeim sex liðum sem eigast
við eiga ennþá eftir að skora mark í
sumar.
HK tekur á móti Fylki í Kórnum,
Breiðablik heimsækir Leikni í
Reykjavík í Breiðholtið og ÍA tekur á
móti Víkingi úr Reykjavík sem vann
1:0-sigur gegn Keflavík í fyrstu um-
ferðinni.
Annað kvöld mætast svo FH og
Valur í Kaplakrika í stórleik umferð-
arinnar og Keflavík og Stjarnan, sem
bæði eiga eftir að skora, mætast í
Keflavík.
Akureyringar
gerðu góða ferð
í Vesturbæinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fagn Akureyringar fagna fyrsta marki Hallgríms Mars á Meistaravöllum.
- Hallgrímur Mar Steingrímsson fór á
kostum - KR-ingar fundu aldrei taktinn
Þór frá Akureyri tryggði sæti sitt í
úrvalsdeild karla í körfuknattleik,
Dominos-deildinni, þegar liðið vann
fimm stiga sigur gegn Þór frá Þor-
lákshöfn í Icelandic Glacial-höllinni í
Þorlákshöfn í 21. umferð deild-
arinnar í gær.
Leiknum lauk með 108:103-sigri
Akureyringa en Dedrick Basile átti
stórleik fyrir Akureyringa, skoraði
33 stig og gaf tólf stoðsendingar.
Akureyringar fara með sigrinum
upp í 18 stig í áttunda sæti deild-
arinnar og eru nú fjórum stigum frá
fallsæti fyrir lokaumferðina.
Þórsarar frá Þorlákshöfn eru
öruggir með annað sæti deildarinnar
en þeir eru með 28 stig, tveimur
stigum meira en Stjarnan, og eru
með betri innbyrðisviðureign á
Garðbæinga.
_ Dominykas Milka skoraði 26
stig fyrir Keflavík þegar liðið fékk
Val í heimsókn í Blue-höllina í Kefla-
vík. Leiknum lauk með 101:82-
stórsigri Keflavíkur en ásamt því að
skora 26 stig tók Milka sjö fráköst
og gaf þrjár stoðsendingar.
Keflavík er með 38 stig í efsta sæti
deildarinnar og hefur aðeins tapað
tveimur leikjum í deildinni í vetur en
liðið hefur unnið ellefu leiki í röð.
Keflvíkingar, sem tryggðu sér
deildarmeistaratitilinn fyrir rúm-
lega viku, töpuðu síðast leik hinn 12.
febrúar gegn Val á Hlíðarenda en
hinn tapleikur liðsins var gegn
Stjörnunni í Garðabæ.
Valsmenn eru með 22 stig í sjötta
sæti deildarinnar, jafnmörg stig og
Grindavík og KR, en liðið getur ekki
endað neðar í deildinni þar sem
Tindastóll og Þór frá Akureyri eru
með 18 stig í sætunum fyrir neðan.
Ljósmynd/Árni Torfason
Bjargvættur Dedrick Deon Basile skoraði 33 stig fyrir Þórsara.
Þórsarar björg-
uðu sér frá falli
- Ellefti sigurleikur Keflavíkur í röð
_ Vladan Djogatovic, serbneski
knattspyrnumarkvörðurinn sem hefur
varið mark Grindavíkur undanfarin tvö
ár, er kominn til KA sem lánsmaður út
þetta keppnistímabil. Hann leysir af
hólmi Kristijan Jajalo sem handar-
brotnaði í síðustu viku og verður frá
keppni fram eftir sumri. Djogatovic,
sem er 36 ára gamall, var ekki í leik-
mannahópnum þegar KA sótti KR
heim á Meistaravelli í gærkvöld en
verður væntanlega tilbúinn á miðviku-
dag þegar KA leikur sinn fyrsta heima-
leik á tímabilinu gegn Leikni úr Reykja-
vík.
_ Fjórir
Íslendingar
keppa á Evr-
ópska vetrar-
kastmótinu sem
fram fer í Split í
Króatíu í dag og
á morgun. Guðni
Valur Guðnason
keppir í kringlu-
kasti og Hilmar Örn Jónsson í sleggju-
kasti í keppni fullorðinna. Mímir Sig-
urðsson keppir í kringlukasti og
Elísabet Rut Rúnarsdóttir í sleggju-
kasti í flokki kastara yngri en 23 ára.
Þeir Guðni Valur og Hilmar Örn eru
báðir með Ólympíuleikana í Tókýó í
sigtinu en Íslandsmetið sem Guðni
setti á síðasta ári er mun lengra en lág-
markið fyrir leikana, sem hann þarf
hins vegar að ná í sumar.
_ Kristinn Guðmundsson, annar
þjálfara karlaliðs ÍBV í handknattleik,
yfirgefur Vestmannaeyjar eftir tíma-
bilið og flytur til Færeyja. Handbolti.is
greindi frá því í gær að hann tæki við
kvennaliði EB frá Eiði á Austurey en
félagið leikur í úrvalsdeildinni þar í
landi í fyrsta skipti í langan tíma á
næsta keppnistímabili.
_ Körfuknattleiksdómarinn Sigmund-
ur Már Herbertsson dæmdi sinn tvö-
þúsundasta leik á vegum Körfuknatt-
leikssambands Íslands í fyrrakvöld,
leik Hauka og Hattar í úrvalsdeild
karla. Sigmundur hefur dæmt frá
árinu 1994. Hann hefur þrettán sinn-
um verið valinn
besti dómarinn
af leikmönnum í
úrvalsdeildunum
og hefur dæmt
fleiri alþjóðlega
leiki en nokkur
annar Íslend-
ingur, 223 tals-
ins. Sigmundur
var samt ekki
leikjahæstur í dómaratríóinu á Ásvöll-
um. Annar meðdómara hans var
Rögnvaldur Hreiðarsson, sá eini sem
áður hefur náð að dæma tvö þúsund
leiki, en þetta var 2.036. leikur Rögn-
valds.
_ Dallas Morgan leikmaður körfu-
knattleiksliðs Sindra frá Hornafirði er
Eitt
ogannað