Morgunblaðið - 08.05.2021, Síða 47
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2021
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Þ
að var titillinn, Undir fossins
djúpa nið, sem vakti athygli
mína. Ég vissi vel hver
Pálmi var en það var þessi voldugi
titill sem ræsti mig. „Þetta verður
eitthvað,“ hugsaði ég með sjálfum
mér og viti menn, árum síðar stend
ég á tröppunum við heimili mitt og
handleik kjör-
grip mikinn. Höf-
undur stendur
fyrir framan
mig, með sællegt
bros á vörum og
það eðlilega.
Vinnslan við
verkið hefur tekið drjúgan tíma og
því gott að sjá fyrir endann á því.
Platan er á tvöföldum vínil, í
þykku, opnanlegu umslagi („gate-
fold“) og ljóst að hvergi hefur verið
slegið af í gæðakröfum. Stóreflis-
mynd af höfundi framan á, sóló-
verkið undirstrikað, og þegar um-
slagið er opnað blasa við myndir og
nákvæmar upplýsingar um hvert
og eitt lag en alls eru þau sautján
að tölu. Vínillinn sjálfur þykkur og
góður og „nærbuxurnar“ prýða
textarnir við lögin.
Sólóplata er í sjálfu sér rang-
nefni enda tugir manna sem leggja
gjörva hönd á plóg, sannkallað
landslið söngvara og hljóðfæraleik-
ara. Og er ekki að undra, enda hef-
Lífið er þar sem þú ert
Morgunblaðið/Styrmir Kári
ur Pálmi spilað með þeim öllum í
gegnum tíðina við hin margvísleg-
ustu tilefni.
Söngur er að mestu í höndum
Pálma eða eins og hann útskýrir
fyrir mér þar sem við stöndum á
tröppunum: „Mér fannst það rétt-
ast, úr því að verkefnið væri svona.
Annars hefði þetta hljómað eins og
einhver söngvarasafnplata.“
Pálmi er alla jafna önnum kaf-
inn við verktakavinnu um allan bæ,
eftirsóttur maður, sem skýrir þann
hraða sem vinnsluferlið hefur verið
í. „Plata þessi hefur mjakast áfram
og seytlað eins og klettaslæða í
huga mínum á síðustu árum og sér
nú fyrir endann á upptökum henn-
ar,“ sagði Pálmi á fjasbókinni …
fyrir þremur árum!
Á meðal hljóðfæraleikara eru
Benedikt Brynleifsson, Róbert Þór-
hallsson, Einar Þór Jóhannsson,
Unnur Birna Björnsdóttir, Matthías
Stefánsson, Birkir Freyr Matthías-
son, Björgvin Ploder, Sváfnir Sig-
urðarson, Eiður Arnarsson, Þórður
Högnason og … nei, nú hætti ég.
Þetta fólk pikkaði ég upp úr átta
fyrstu lögunum. Eins og sjá má er
mannvalið svakalegt.
En hvernig er tónlistin? Pálmi
leggur sig að mestu eftir ballöðu-
kenndu popprokki mætti segja en
reynsla hans úr leikhúsheiminum
kemur sér líka vel. Titillagið opnar
plötuna, skammlaus ástarsöngur,
blíður og fallegur og strax í næsta
lagi dúettar hann með sjálfri
Andreu Gylfadóttur. Lagið í sama
stíl og titillagið, ljúfkennt og þýtt
(þar sem ég rúlla yfir plötuna þarf
ég alltaf að standa upp og færa nál-
ina til. Ég elska það!). Björn Hlynur
Haraldsson syngur djassaða smíð,
„Um langan veg“, en aðrir söngv-
arar eru Jogvan Hansen, Valgerður
Þorsteinsdóttir, Dagný Halla
Björnsdóttir, Björgvin Halldórsson
og KK. Lag Björgvins er æði. Nema
hvað! Strengjalegin ballaða af
gamla skólanum (smá Gunni Þórð-
ar í gangi) og Bó syngur eins og sá
sem valdið hefur. KK syngur hið
ægifagra „Eftirsjá / Lag fyrir
Fróða“. Í því er harmur sem KK
kemur afskaplega vel til skila.
Og svo má telja. Þegar þetta er
skrifað er platan ekki komin út
stafrænt og ég er að gera þetta
„handvirkt“ eins og ég lýsti. Platan
snarkar á fóninum og hljómurinn
er hlýr, bústinn og umlykjandi. Sit
hérna við eldhúsborðið og pikka
þetta inn. Sólroði fyrir utan og eld-
gos ekki langt undan. Skip sigla út
flóann með Esjuna í bakgrunni. Það
er eitthvað rómantískt, tímalaust
og „íslenskt“ við þessa sólóplötu
Pálma og það er að feykja þessum
lýsingum á blað. Er það vel.
»
Titillagið opnar
plötuna, skammlaus
ástarsöngur, blíður og
fallegur og strax á eftir
dúettar hann með sjálfri
Andreu Gylfadóttur.
Pálmi Sigurhjartarson
á áratuga feril að baki í
íslenskri tónlist sem
lagahöfundur, meðleik-
ari og flytjandi. Hér
stígur hann fram fyrir
tjaldið sem sólólista-
maður á tvöföldu plöt-
unni Undir fossins
djúpa nið.
Í sviðsljósinu Undir foss-
ins djúpa nið er fyrsta sóló-
plata Pálma Sigurhjartar-
sonar.
Aðalheiður Guð-
mundsdóttir,
prófessor í ís-
lenskum bók-
menntum fyrri
alda, heldur
fyrirlestur um
Völsungasögu,
sögulegar heim-
ildir að baki
henni og hvernig
söguhetjur henn-
ar hafa þróast fram á okkar dag,
klukkan 14 í dag, laugardag, í Safn-
aðarheimili Dómkirkjunnar,
Lækjargötu 14. Allir eru velkomnir
meðan húsrúm og sóttvarnareglur
leyfa.
Fyrirlestur um
Völsungasögu
Aðalheiður
Guðmundsdóttir
Í vikunni var opnað svokallað
„pop-up“-bókasafn í gróðurhúsinu
á Lækjartorgi og taka starfsmenn
þar á móti gestum og gangandi
og kynna fjölbreytta starfsemi
menningarhúsa Borgar-
bókasafnsins.
Um helgina verður boðið upp á
fjölskylduvæna dagskrá á torginu,
Sirkus unga fólksins sýnir listir
sínar í dag kl. 13 og trúðavinkon-
urnar Silly Suzy og Momo
skemmta kl. 15. Á morgun, sunnu-
dag, kl. 14-16, verða svo búnar til
risastórar og litríkar sápukúlur
og þeir sem vilja spreyta sig í
sápukúlugerðinni geta skráð sig á
vefsíðu Borgarbókasafnsins.
Bókasafnið á torginu verður opið
til 15. maí kl. 12-18.
Sirkus, trúðar og
sápukúlugerð
Trúðslæti Trúðavinkonurnar Silly Suzy og
Momo skemmta kl. 15 á morgun.