Morgunblaðið - 08.05.2021, Page 49

Morgunblaðið - 08.05.2021, Page 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MAÍ 2021 K vikmyndin Nobody, eða Enginn, gæti varla verið einfaldari þegar kemur að persónusköpun og sögu- þræði. Handritshöfundur er sá sami og skrifaði hefndartryllinn John Wick og Nobody svipar hlægilega mikið til þeirrar myndar og fram- haldsmyndanna tveggja. Nema hvað nú er Keanu Reeves ekki að berja menn og skjóta á færibandi heldur Bob Odenkirk. Fyrir leikaravalið fær myndin sjálfkrafa eina stjörnu því hverjum hefði dottið í hug að gaman- leikarinn Odenkirk, þekktastur fyrir snilldarlega túlkun sína á siðlausa lögfræðingnum Saul í Breaking Bad og Better Call Saul, myndi fara með aðalhlutverk í ofbeldisfullri hasar- mynd og það á sextugsaldri! En jú, Odenkirk er hér mættur og lemur menn í klessu eins og hann hafi aldrei gert neitt annað. Og er bara helvíti góður í því, verður að segjast. Enginn sá sem titill myndarinnar vísar til er náungi nokkur að nafni Hutch Mansell sem Odenkirk leikur. Í byrjun myndar situr hann hand- járnaður og krambúleraður á lög- reglustöð og þegar tveir rannsóknar- lögreglumenn spyrja hver hann sé svarar hann: Enginn. Þar með vitum við það, þessi náungi er enginn, í raun bara hver annar sextugur úthverfa- pabbi sem leiðist í vinnunni og er löngu hættur að sofa hjá konunni sinni. Allir dagar eru eins hjá Hutch, hann vaknar og fer í vinnuna og fer reglulega út að hlaupa og gerir upp- hífingar á strætóskýli. Þannig hefst myndin á hraðklipptu endur- tekningarferli sem er spaugilegt og lofar góðu um framhaldið. Verst að myndin fellur fljótlega í gamalkunn- ugt mót og verður algjör klisja en skemmtileg klisja þó. Nótt eina er brotist inn á heimili Hutch og hafa þjófarnir lítið upp úr krafsinu. Þegar Hutch kemst að því að kisuarmbandi dóttur hans var stol- ið virðist mælirinn fullur og annar maður kemur í ljós. Hutch lendir í blóðugum átökum við nokkra vafa- sama náunga í strætisvagni og einn þeirra endar á sjúkrahúsi þar sem hann lætur lífið. Reynist sá vera bróðir rússnesks mafíósa, Yulians Kuznetsovs, sem leikinn er í kunnug- legum ýkjustíl af Aleksey Sere- bryakov. Mafíósinn kemst að því hver misþyrmdi bróður hans og leitar hefnda, sendir alla sína kóna heim til Hutch. En líkt og í John Wick er aðal- persónan í Engum ekkert lamb að leika sér við og að sjálfsögðu sérþjálf- aður fyrrverandi starfsmaður FBI, svokallaður hreingerningamaður. Þó mannfallið sé á endanum ekki nærri því eins svakalegt og í John Wick er það þó allnokkurt og Hutch kann ýmislegt fyrir sér þegar kemur að limlestingum. Enda þessi ósköp í miklum lokabardaga á vinnustað Hutch þar sem hann hefur komið alls konar gildrum fyrir, líkt og strák- urinn sem var aleinn heima í Home Alone hér um árið, nema hvað gildrur Hutch eru hreinar dauðagildrur og nú er Enginn heima og á heimavelli. Nobody er ofbeldismynd af því taginu sem fær mann til að skella upp úr, svo ýkt og kjánaleg er hún. Vond- ir Rússar eru hér mættir enn eina ferðina og lítilvægt atvik sendir aðal- persónuna fram af hengifluginu. Í John Wick var hundur Wicks drepinn sem leiddi af sér manndráp á færi- bandi en hér er það bara kisuarm- band. Handritshöfundurinn Kolstad gengur því enn lengra í kjánaskapn- um en ofbeldið er engu að síður subbulegt með tilheyrandi hljóðum, slettum og hugmyndaflugi. Í John Wick minntu slagsmálaatriðin meira á dans en slagsmál en hér eru slags- mál bara slagsmál með þungum höggum, skaðræðisópum, hníf- stungum og svo framvegis. Vondu kallarnir fá makleg málagjöld, eins og vera ber, og Hutch gengur undir lokin frá öllu saman með nokkrar skrámur. Fjölskyldunni, eiginkonu og tveimur börnum, kom hann í öruggt skjól en óvíst er hvað fram- tíðin ber í skauti sér. Mögulega eina eða tvær framaldsmyndir, Enginn kafli I og II. Odenkirk sýnir á sér algjörlega nýja hlið sem leikari, alvörugefinn og líkaminn vel þjálfaður (Odenkirk fór í stranga líkamsþjálfun í marga mán- uði fyrir hlutverkið eins og sjá má á YouTube) og engu síðri en Bruce Willis eða aðrir hasarleikarar komnir af léttasta skeiði. Aðrir leikarar, að Serebryakov undanskildum, fá held- ur lítið að gera og konur eru í algjör- um aukahlutverkum. Myndin fellur því hressilega á Bechtel-prófinu, eins og við var að búast. Connie Nielsen leikur eiginkonu Hutch og fær lítið annað að gera en að virðast áhyggju- full og gefa fjölskyldunni að borða. En hasarinn er góður og myndin hin prýðilegasta afþreying, þegar öllu er á botninn hvolft, þrátt fyrir að vera algjör klisja (að vali á aðalleikara undanskildu) og algjörlega fyrir- sjáanleg. Með meira spaugi, hug- myndaflugi og betra handriti hefði mátt nýta hæfileika Odenkirks betur og gera eftirminnilegri mynd, á því er enginn vafi, en á móti kemur að þessi mynd skilar því sem hún á að skila. Þetta er fínasta hasarmynd, einföld og auðgleymanleg en alveg þess virði að sjá í bió. Harðhaus Bob Odenkirk í hlutverki Hutch Mansells í harðhausamyndinni Nobody eða Engum. Enginn heima Laugarásbíó, Sambíóin Kringl- unni, Egilshöll og Keflavík og Smárabíó Enginn/ Nobody bbbnn Leikstjórn: Ilya Naishuller. Handrit: Derek Kolstad. Aðalleikarar: Bob Odenkirk, Connie Nielsen, Christopher Lloyd, RZA og Aleksey Serebryakov. Bandaríkin, 2021. 92 mínútur. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR Tvær sýningar verða opnaðar í Listasafninu á Akureyri í dag, laugardag, klukkan 12 til 17. Ann- arsvegar er um að ræða nemenda- sýningu Myndlistaskólans á Akur- eyri, Sjónmennt 2021, og hins vegar útskriftarsýningu nemenda listnáms- og hönnunarbrautar VMA, Kompakt. Sýningarnar standa til 16. maí. Sjö útskriftarnemendur eiga verk á sýningunni Sjónmennt 2021, tveir af fagurlistabraut og fimm úr listhönnun en þeir útskrifast að loknu þriggja ára námi í sérnáms- deildum. Átján nemendur Verk- menntaskólans á Akureyri eiga verk á sýningunni Kompakt en þeir völdu sér verkefni að vinna með út frá áhugasviði. Fjölbreytileg Eitt verkefni nemenda VMA á sýningunni sem verður opnuð í dag. Nemendasýningar opnaðar á Akureyri Tveir listamann- anna sem eiga verk á samsýn- ingunni Dýrs- legur kraftur í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi, þeir Einar Lúðvík Ólafsson og Sig- urður Ámunda- son, verða með leiðsögn um sýninguna í dag, laugardag, kl. 14. Nauðsynlegt er að skrá sig á heimasíðu safnsins. Á sýningunni stefnir sýningar- stjórinn Birgir Snæbjörn Birgis- son saman verkum Errós og fimmtán annarra listamanna. Verk Errós frá ýmsum tímum eru þar sett í samhengi íslenskrar samtímalistar. Verkin á sýning- unni eru fjölbreytt og vísa til og/ eða endurspegla á einn eða annan hátt þá fjölmörgu miðla sem Erró er þekktur fyrir. Leiðsögn um Dýrs- legan kraft í dag Sigurður Ámundason Myndlistarkonan Guðbjörg Lind opnar í dag, laugardag, klukkan 14 til 17 á Hlöðulofti Korpúlfsstaða sýninguna Brot af heild – á mörkum hugar og náttúru en það er einnig heiti á bók sem fjallar um myndlist hennar og mun koma út síðar á þessu ári í tilefni af sextugsafmæli Guðbjargar. Guðbjörg segir að á sýningunni megi sjá brot af heildarferli hennar og um leið lokasprett á undibúningi bókarinnar. Því er sýningin ekki hefðbundin yfirlitssýning heldur minningabrot héðan og þaðan af list- ferli hennar og sýningarrýmið því eins og hugarheimur listamannsins sem hvarflar frá einni minningu til annarrar. Guðbjörg á að baki 36 ára virkan myndlistarferil sem spannar fjölda einka- og samsýninga bæði hér heima og erlendis. Guðbjörg er fædd 1961 á Ísafirði en býr og starfar að list sinni í Reykjavík og á Þingeyri. Verk henn- ar eru í eigu helstu safna landsins auk margra opinberra stofnana og einkasafna. „Ég er með helling af verkum sem eru einskonar brot frá ferlinum sem ég er að skoða,“ segir Guðbjörg Lind en flest eru í hennar eigu og nokkur fengin að láni fyrir sýninguna. „Það er gott að setja þessi verk frá ferlinum upp saman, fá þannig fjarlægð á það sem ég hef verið að gera og nýta það við gerð bók- arinnar en vinnan við hana hefur verið tímafrek í vetur. Ég hef farið með ljósmyndara að hitta á verkin mín hér og þar, oft eft- ir að hafa ekki séð þau í mörg ár, og það hefur komið mér skemmtilega á óvart hvað ég er enn tengd þeim. Ég þekki hverja einustu pensilstroku í þeim; verkin eru eins og börnin mín.“ Það er einhver draugur í þeim Guðbjörg Lind sló á sínum tíma í gegn með verkum þar sem fossar voru áberandi og síðar hefur hún til að mynda málað eyjar í náttúrunni, aftur umluktar vatni. Hefur náttúr- an alltaf kallað á hana? „Já, það hefur alltaf verið vatn í verkunum. Kannski án þess að ég hafi gert mér grein fyrir því í byrj- un, þá var ég að mála einhverjar bunur sem féllu niður dökkar fjalls- hlíðar og rétt kanski glitti í him- ininn, en þar var ég auðvitað í hug- anum stödd á Ísafirði og að mála vötnin falla niður fjöllin allt í kring.“ Hún ítrekar að hún hafi mikið sótt sér upplifanir í náttúruna og það megi sjá í verkunum. „En undan- farið hef ég líka unnið seríu af verk- um innan úr húsum. Það kom til mín þegar ég fór að gera upp gamalt hús á Þingeyri og andinn í því læddist inn í verkin mín! Gluggar, dyr og veggir urðu mér að myndefni. Ég var í byrjun feimin við þetta, fannst ég ekki þekkja þetta, en þegar ég skoðaði það betur þá sá ég skyld- leika við hin verkin – gardínur voru kannski eins og fossarnir í hinum verkunum. Ég er alltaf að fást við birtuna, hvort sem ég er úti eða inni,“ segir hún. Og þegar blaðamaður hefur orð á því að það sé alltaf í verkum hennar viss stemning eða andi sem dragi fólk að þeim, þá svarar Guðbjörg hlæjandi: „Það er einhver draugur í þeim! Ég vinn mikið með áferðina og í henni reyni ég að koma til skila þess- ari birtu og andrúmslofti. Það er frekar hljóðlátt en læðist að okkur, og það hefur lengi leitað sterkt á mig.“ Sýningin stendur til 30. maí og er opin alla daga nema mánudaga frá kl. 14 til 17. efi@mbl.is Dulúðug „Ég er alltaf að fást við birtuna, hvort sem ég er úti eða inni,“ seg- ir Guðbjörg Lind um málverk sín en úrval frá ferlinum má sjá á sýningunni. „Ég þekki hverja einustu pensilstroku“ - Guðbjörg Lind opnar sýningu á úr- vali verka á Hlöðulofti Korpúlfsstaða

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.