Fréttablaðið - 15.10.2021, Side 1
Sé nemandi fluttur í
„gula herbergið“ fer
hann ekki í list- eða
verkgreinar, frímínútur
eða íþróttir.
2 0 3 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F Ö S T U D A G U R 1 5 . O K T Ó B E R 2 0 2 1
Sequences
hefst í dag
Arctic Circle
sett í Hörpu
Menning ➤ 22 Fréttir ➤ 4
Foreldrar barns sem lokað var
eitt inni og sent í svokallað
„gult herbergi“ í grunnskóla
á höfuðborgarsvæðinu, hafa
sent kvörtun til menntamála-
ráðuneytisins þar sem þess
er krafist að ráðuneytið taki
málið og meðferð barnsins til
skoðunar.
lovisa@frettabladid.is
MENNTAMÁL Foreldrar barns sem
var lokað eitt inni í skólastofu í skóla
á höfuðborgarsvæðinu hafa kvartað
til menntamálaráðuneytisins vegna
málsmeðferðar barnsins, ámælis-
verðrar framkomu starfsmanna
skóla í garð þess, auk aðgerðaleysis
skólaskrifstofu í málefni barnsins
og framkomu starfsmanna sveitar-
félagsins í garð foreldra.
Auk þess að loka barnið eitt inni
hefur það verið sett, ásamt starfs-
manni, í svokallað „gult herbergi“.
Barnið hefur ekki mætt í skólann
frá því í september.
„22. september var barnið lokað
eitt inni í stofu í skólanum á meðan
starfsfólk stóð fyrir utan og fylgdist
með því í gegnum rúðu á hurðinni,“
segir í kvörtuninni, endaði það með
því að móðir þess kom og róaði það.
Foreldrar barnsins segja að öryggi
þess hafi þarna verið ógnað. Það
hafi í mörg ár glímt við sjálfsvígs-
hugsanir og sjálfsskaðahugsanir.
Atvikið hafa aukið kvíða barnsins
auk þess sem það vantreysti fólki í
kringum sig.
Barnið mætti ekki nema einn
heilan dag eftir þetta atvik í skólann
og þá í fylgd annars foreldris síns
sem ákvað þann daginn að senda
það ekki aftur þangað.
Fjallað er um „gula herbergið“ í
verklagsreglum skólans um afleið-
ingar vegna ógnandi hegðunar eða
ofbeldis. Þar kemur fram að mikil-
vægt sé að „nemandi læri að það
borgi sig hvorki að sýna ógnandi
hegðun né beita ofbeldi“ og að það
þurfi að fylgja slíkri hegðun skýrar
af leiðingar sem eigi að vera nem-
andanum fyrirsjáanlegar en á sama
tíma hóflegar og að þær megi ekki
ná yfir of langan tíma.
Sé nemandi f luttur í „gula her-
bergið“ fer hann ekki í list- eða
verkgreinar, frímínútur eða íþróttir.
Hann fær ekki að borða með sam-
nemendum sínum. Samkvæmt
reglunum á alltaf að vera starfs-
maður hjá nemandanum, en skýrt
er í reglunum að hann á ekki að
spjalla við nemanda og á að „sýnast
upptekinn“.
Umboðsmaður Alþingis óskaði
upplýsinga frá sveitarfélögum í
fyrra um vistun nemenda í sér-
stökum rýmum. Í kjölfar svara
var ákveðið að aðhafast ekkert en
eftir ábendingar frá foreldrum, auk
umfjöllunar í fjölmiðlum, hefur
umboðsmaður tekið málið upp að
nýju. SJÁ SÍÐU 8
Kvarta til ráðuneytis vegna innilokunar barns
Almenningur lagði blóm og kerti á torg í miðbæ Kongsberg í Noregi, til minningar um þá fimm sem létust í árásinni á miðvikudagskvöld. Árásarmaðurinn er í haldi lögreglu. SJÁ SÍÐU 10 FRÉTTABLAÐIÐ/EPA