Fréttablaðið - 15.10.2021, Side 4

Fréttablaðið - 15.10.2021, Side 4
Gjörðir mannkyns hafa orsakað núver- andi ástand og gjörðir mannkyns geta bund- ið endi á þetta ástand. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra grænar rafhlöður Rafmögnuð verðmætasköpun Með rafhlöðuframleiðslu getum við búið til ný og spennandi störf, skapað meiri verðmæti og tekið virkan þátt í orkuskiptum framtíðar. landsvirkjun.is/framtidin bth@frettabladid.is ALÞINGI Tómas Tómasson, veitinga- maður og nýr þingmaður Flokks fólksins, segir að góðlátlegur brand- ari sem hann lét falla í þingmanna- skólanum um hvað hann hygðist gera að loknu kjörtímabilinu, hljóti að hafa leitt til misskilnings um að hann ætli sér ekki að stunda þing- störf sín af fullu kappi. Eftir þingmannaskólann kvisað- ist út að Tómas hygðist opna svo- kallaðan All day Breakfast stað. Ein- hverjir í hópi nýrra samþingmanna Tómasar skildu það sem svo að hann ætlaði sér að opna nýjan veit- ingastað samfara þingmennskunni. Spurningar vöknuðu í þingliðinu um hvort Tómas liti svo á að hann gæti stundað þingmennskuna í hjá- verkum. Fylgdi sögunni að Tómas hefði sérstaklega spurt um heim- ildir til fjarvista á Alþingi. „Nei, nei, nei, þetta er algjör mis- skilningur. Ég var spurður hvað ég ætlaði að gera að fjórum árum liðnum þegar kjörtímabilinu lyki. Þá verð ég 76 ára. Ég sló fram góðlát- legum brandara um að þá myndi ég opna svona All day Breakfast stað,“ segir Tómas og hlær við. „Ég sagði þetta bara til að segja eitthvað.“ Tómas, oft kenndur við Ham- borgarabúlluna, virtist pollrólegur yfir sögunum, nú þegar hann er orðinn opinber persóna. „Það er bara gaman að fólk skuli nenna að tala um mig.“ ■ Slær á orðróm um ætlað hálfkák í þingmennsku Tómas og Jakob Frímann Magnús- son, þingmenn Flokks fólksins sóttu þingmannaskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ráðstefnan Arctic Circle, þing Hringborðs norðurslóða, var sett í Hörpu í gær. Um 1.200 manns frá 50 löndum taka þátt í ráðstefnunni sem er fyrsta alþjóðlega ráðstefnan sem haldin er í Evrópu frá því að Covid-faraldurinn hófst. tsh@frettabladid.is NORÐURSLÓÐIR Ólafur Ragnar Grímsson, fyrr verandi forseti Íslands, setti Arctic Circle 2021, þing Hringborðs norðurslóða, í Hörpu í gær. Ráðstefnan er fyrsta alþjóðlega ráðstefnan sem haldin er í Evrópu, þar sem gestir mæta á staðinn, frá því Covid-faraldurinn hófst. „Þið eruð þátttakendur í tíma- mótaviðburði sem sendir skilaboð, ekki aðeins til samfélags norður- slóða heldur alls heimsins, að leik- vangur norðurslóða hafi breyst. Þær hafa færst frá því að vera afskekktur og óþekktur hluti plánetunnar yfir í að spila lykilhlutverk í umræðu alþjóðastjórnmála og loftslags- mála,“ sagði Ólafur Ragnar. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra hélt ræðu við setninguna þar sem hún fjallaði um yfirvofandi ógn af loftslagsbreytingum og neikvæð áhrif þeirra á norðurslóðir. Hún sagði nauðsynlegt að grípa til tafar- lausra aðgerða til að bregðast við þessari ógn og lagði áherslu á mikil- vægi alþjóðasamvinnu í baráttunni. „Síðasta ágúst sýndi skýrsla IPCC okkur mjög greinilega að ekkert svæði í heiminum er ónæmt fyrir þeim breytingum sem eru að gerast á loftslagi jarðarinnar. Augljóslega er þetta niðurdrepandi byrjun á ræðu og augljóslega eru verstu lofts- lagssviðsmyndir vísindamanna niðurdrepandi. En er von fyrir fram- tíðina? Já, það er von, því gjörðir mannkyns hafa orsakað núverandi ástand og gjörðir mannkyns geta bundið enda á þetta ástand,“ sagði Katrín. Ólaf ur Rag nar leiddi pall- borðsumræður með fulltrúum Bandaríkjastjórnar í málefnum norðurslóða. Lisa Murkowski, öld- ungadeildarþingmaður frá Alaska, David Balton, framkvæmdastjóri norðurslóðanefndar Hvíta hússins, Mike Sfraga, formaður Rannsóknar- nefndar Bandaríkjanna á norður- slóðum, og Jim Dehart, fulltrúi utanríkisþjónustu Bandaríkjanna í málefnum norðurslóða, ræddu markmið Bandaríkjamanna og breyttar áherslur þeirra á norður- slóðum. Mur kowski, sem er Repúblikani, sagði ríka ástæðu til að ítreka mikil- vægi fríverslunarsamnings Íslands og Bandaríkjanna fyr ir rík is stjórn Joes Biden Bandaríkjaforseta, sem lið í nýrri norður slóðastefnu. Að sögn hennar hefur áhugi Banda- ríkjamanna á norðurslóðum vaxið gífurlega á síðustu árum. Sagðist hún hafa þurft að æpa mjög hátt til að ná eyrum ráðamanna í þeim málum við upphaf stjórnmálaferils síns. „Áhugi Banda ríkj anna á norður- slóðum hef ur breyst gjörsamlega frá því að við hóf um þetta ferða- lag,“ sagði hún og vísaði til upp hafs Hringborðs norðurslóða sem hún hef ur sótt frá upphafi þess árið 2016. Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra Skotlands, hélt einnig erindi á ráðstefnunni sem hún sagði vera fyrsta alþjóðlega viðburðinn sem hún sækir í eigin persónu frá því í febrúar 2020, áður en Covid „sneri heiminum á hvolf“. Hún sagði skuldbindingar Skot- lands við norðurslóðir ekki byggjast á diplómatísku kurteisishjali heldur raunverulegri nauðsyn. Að sögn Sturgeon hafa ríkis- stjórnir heimsins ekki gert nóg til að uppfylla markmið Par ís ar sam- komu lags ins frá 2015 og lýsti hún Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP26, sem fer fram í heimabæ hennar Glasgow eftir tvær vikur, sem „mjög áríðandi“. „Það er oft auðvelt að ýkja mikil- vægi svona viðburða en ég held að það séu ekki ýkjur að segja að COP í Glasgow er besti möguleiki heims- ins og hugsanlega síðasti möguleiki heimsins til að setja sér þær skuld- bindingar sem munu gefa okkur möguleikann á því að takmarka hlýnun jarðar við 1,5 gráður,“ sagði hún. ■ Katrín krefst tafarlausra aðgerða Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra Skotlands, hafði greini- lega gaman af því að sitja á milli Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráð- herra, og Dorrit Moussaieff. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK ser@frettabladid.is VIÐSKIPTI „Torg er ekki til sölu,“ að sögn Helga Magnússonar, stjórnar- formanns félagsins sem gefur út Fréttablaðið, rekur sjónvarpsstöð- ina Hringbraut og nokkra vinsæla vefmiðla á borð við dv.is, eyjan.is, pressan.is, 433.is, hringbraut.is og frettabladid.is, en félagið á auk þess eigin prentsmiðju þar sem Frétta- blaðið er prentað. Að undanförnu hafa birst í fjöl- miðlum sögusagnir um að félagið væri til sölu, að hluta eða öllu leyti. „Það er rangt,“ segir Helgi. „Hins vegar höfum við fengið fyrirspurnir og óformleg tilboð í fyrirtækið eða hluta þess frá nokkrum aðilum að undanförnu. Þeim hugmyndum hefur öllum verið svarað neitandi og vísað frá með þeim orðum að ekkert sé til sölu hjá okkur.“ Hann segir að þeir aðilar sem rætt hafi við útgáfufélagið Torg geri sér ljóst að bjartir tímar geti verið fram undan í þessum rekstri eftir mjög erfiða tíma vegna veirufaraldurs- ins. Tap ársins 2020 hafi numið upp undir 600 milljónum króna. Það hafi allt verið fjármagnað með nýju hlutafé. „Nú horfir til betri vegar eftir að veiruvandinn er hættur að hafa áhrif á tekjuöflun fyrirtækisins og við væntum þess að hagur þess vænkist mjög við eðlilegar aðstæður í viðskiptalífinu,“ segir Helgi. ■ Torg ekki til sölu bth@frettabladid.is STJÓRNMÁL Ingibjörg Isaksen, odd- viti Framsóknarmanna í Norðaust- urkjördæmi, sem vann kosninga- sigur í kjördæminu, segir best að hafa sem fæst orð um ráðherrastóla meðan formenn flokkanna þriggja ræða stjórnarmyndun. Spurð hvort hún muni gera kröfu til ráðherraembættis svarar Ingi- björg að hún telji eðlilegt að horft verði til árangurs kjörinna fulltrúa í kosningunum. Ákvörðun sé svo í höndum formannsins og þing- flokksins. ■ Ráðherraval ráðist af árangri Ingibjörg Ólöf Isaksen, nýr þing- maður Framsóknarflokksins. MYND/DANÍEL STARRASON 4 Fréttir 15. október 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.