Fréttablaðið - 15.10.2021, Side 8
Umboðsmaður Alþingis
hefur ítrekað fyrirspurn frá
því í fyrra til menntamála-
ráðuneytisins og fjögurra
sveitarfélaga á bæði höfuð-
borgarsvæðinu og Akureyri,
um aðskilnað barna frá sam-
nemendum sínum og vistun
þeirra í sérstökum rýmum
grunnskóla.
lovisa@frettabladid.is
MENNTAMÁL Ábendingar sem borist
hafa umboðsmanni Alþingis varð-
andi innilokun barna í skólum,
benda til að hugsanlega hafi svör
yfirvalda um málefnið ekki lýst
stöðunni eins og hún er í reynd.
Hann hefur því óskað frekari svara.
„Eins og fram kemur í bréfinu er
tilefnið að þessu sinni ábendingar
sem okkur hafa borist sem benda
til þess að þau svör sem við höfum
áður fengið séu þá hugsanlega ekki
fyllilega nákvæm eða rétt og það er
verkefni umboðsmanns núna að
ganga úr skugga um hver staðan
er í reynd og ganga á eftir því að
við fáum réttar upplýsingar,“ segir
Skúli Magnússon, umboðsmaður
Alþingis.
Skúli segir að bréfið hafi nú þegar
leitt til þess að embættinu hafi borist
fleiri ábendingar. „Það virðist þann-
ig vera tilefni til að kanna þetta mál
frekar,“ segir hann.
Í bréfi umboðsmanns til mennta-
málaráðuneytisins kemur fram að
í kjölfar opinberrar umræðu um
„innilokun grunnskólabarna í sér-
stökum herbergjum (sums staðar
svokölluð gul eða rauð herbergi) og
verklag í tengslum við hana“ og til-
kynninga frá foreldrum barna sem
hafi greint frá því að börn þeirra hafi
verið innilokuð, jafnvel einsömul,
hafi embættið ákveðið að óska á ný
eftir þessum upplýsingum því að
þær séu ekki í samræmi við þau svör
sem að embættið fékk í fyrra.
Umboðsmaður spyr í þessu sam-
bandi hvort borist hafi ábendingar,
kvartanir eða kærur vegna slíkra
mála frá síðasta svari. Hvort vart
hafi orðið við þessa framkvæmd í
skólum og hvort vitneskja sé um að
í einhverjum grunnskólum sé fyrir
hendi almennt skráð verklag um
hana.
Skúli segir að hlutverk umboðs-
manns sé að tryggja að borgararnir
njóti réttar síns í samskiptum við
stjórnvöld og þar undir falla réttindi
barna í skólakerfinu. „Við tökum
svona ábendingar alvarlega og ef
við teljum ástæðu til þá könnum
við þær frekar og reynum að sjá til
þess að mál séu færð til betra horfs,“
segir hann.
Óskað er eftir svörum frá stjórn-
völdum fyrir 1. nóvember. Sérstak-
lega er tekið fram að ef þar komi
fram upplýsingar sem gefi tilefni til
vettvangsheimsókna, verði farið í
þær.
Í bréfum til sveitarfélaganna
kemur fram að í fyrra þegar
málið var kannað hafi fjögur sveit-
arfélög greint samtals frá þremur til-
vikum á síðustu fimm árum þar sem
þeim hafði verið tilkynnt um inni-
lokun barna í skólanum. Voru tvær
tilkynningar í Mosfellsbæ og ein í
Reykjavík. Engar tilkynningar voru
í Hafnarfirði og ekki á Akureyri, en
þar var þó fjallað um agaúrræði sem
kallaðist einvistun.
Bæði samgöngu- og sveitarstjórn-
aráðuneytinu og umboðsmanni
barna var sent afrit af bréfunum til
upplýsingar. ■
Umboðsmaður vill upplýsingar um
skammarkróka í grunnskólunum
Umboðsmaður
hefur áður ósk-
að upplýsinga
frá skólum og
ráðuneyti um
innilokun barna
í þar til gerðum
lokuðum
rýmum. Nýjar
ábendingar
benda til þess
að svör sem
umboðsmanni
bárust hafi ekki
verið nákvæm.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Vel varin geit boðar jólin
Hin fræga IKEA-geit er komin upp fyrir utan verslunina í Garðabæ. Markar þetta upphaf jólanna í huga margra. Hinum megin við götuna, í Costco, hófust jólin
fyrir nokkru. Kveikt hefur verið í geitinni oftar en einu sinni og er hún nú vel varin bak við girðingu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Skúli Magnús-
son, umboðs-
maður Alþingis
Ferskur fiskur stóð undir 13 pró-
sentum útflutningsverðmæta
sjávarafurða árið 2020.
benediktboas@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Íslendingar f luttu út
vörur fyrir 620,3 milljarða króna
árið 2020, en inn fyrir 771,5 millj-
arða króna og voru vöruviðskipti
því óhagstæð um 151,2 milljarða
króna. Þetta kemur fram í tölum
Hagstofunnar sem birtar voru í gær.
Verðmæti útfluttra sjávarafurða
jókst um 3,7 prósent á milli ára en
verðmæti útfluttra sjávarafurða var
43,5 prósent af heildarútflutnings-
verðmætum. Útflutningur á áli og
álafurðum átti stærsta hlutdeild í
útf lutningi á iðnaðarvörum árið
2020 eða 33,5 prósent af heildarút-
flutningsverðmætum. Iðnaðarvörur
voru 48,1 prósent allra útflutnings-
verðmæta á síðasta ári.
Stærstu viðskiptalönd í vöru-
útf lutningi í fyrra voru Holland,
Spánn og Bretland, en 69 prósent
alls útflutnings fóru til ríkja innan
EES. Stærstu viðskiptalönd í vöru-
innflutningi voru Þýskaland, Nor-
egur og Kína. ■
Vöruviðskipti
óhagstæð í fyrra
benediktboas@frettabladid.is
SUÐURNES Greinst hefur mygla í
Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ.
Rætt var um málið á bæjarráðsfundi
sem fram fór í gær og lagði Friðjón
Einarsson, formaður bæjarráðs, það
til að stofnaðir yrðu tveir starfs-
hópar sem tækju strax til starfa, til
að kanna umfang vandans og leita
leiða til úrbóta eins f ljótt og auðið
er. Var tillagan samþykkt.
Mannvit hefur gert sex úttektir
á húsnæði Myllubakkaskóla frá
september 2019 og tekið sýni á
ýmsum stöðum í byggingunni.
Alltaf hefur mygla eða gró greinst
en sjötta skoðunin var framkvæmd
í lok febrúar. ■
Fundu myglu í
Myllubakkaskóla
birnadrofn@frettabladid.is
MENNTAMÁL Háskóli Íslands er í
fjórtánda sæti yfir fremstu háskóla
heims á afmörkuðum fræðasviðum
á Shanghai-listanum, sem jafnan er
talinn annar tveggja áhrifamestu
og virtustu matslista á þessu sviði
í heiminum. Hinn er Times Higher
Education listinn.
Háskóli Íslands er á þeim lista í
hópi 300 bestu háskóla heims á sviði
félagsvísinda, í 301. til 400. sæti á
sviði menntavísinda og í 501. til 600.
sæti á sviði viðskipta- og hagfræði.
Times Higher Education listinn yfir
háskóla sem standa fremst á sviðið
félagsvísinda byggir á mati á alls
870 skólum frá tæplega 90 löndum.
Þetta kemur fram á vefsíðu Háskóla
Íslands. ■
HÍ meðal þeirra
bestu á heimsvísu
8 Fréttir 15. október 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ