Fréttablaðið - 15.10.2021, Side 38

Fréttablaðið - 15.10.2021, Side 38
Þegar fólk úr mis- munandi listgrein- um mætist verður til kraftmikill skurð- punktur. Þóranna Björns- dóttir Sequences listahátíðin hefst í dag, föstudaginn 15. október, og stendur til 24. október. Sýningarstjórar eru Þóranna Björnsdóttir listamaður og Þráinn Hjálmarsson tónskáld. Sequences, sem nú er haldin í tíunda sinn, hefur það að mark­ miði að vera vettvangur fyrir fram­ sækna myndlist með sérstaka áherslu á tímatengda miðla. Að hátíðinni standa listamannareknu sýningarstaðirnir Kling & Bang og Nýlistasafnið. „Kominn tími til“ er yfirskrift hátíðarinnar og vísar í samfélagsrými augnabliksins sem hátíðin skapar sér hverju sinni. „Áherslur hátíðarinnar eru sér­ staklega tengdar samstarfi. Við skynjum að listamenn vilja eiga í samtali og samstarfi, hvort sem það er við samfélagið, söguna eða aðra listamenn,“ segir Þóranna. Á fjórða tug listamanna koma fram á hátíðinni. Meirihluti þeirra er í myndlistargeiranum en ein­ staka kemur þó úr ranni tónlistar. „Hátíðin er stofnuð af mynd­ listarmönnum sem vettvangur fyrir framsækna myndlist. Mynd­ list er mjög lifandi miðill, er tíma­ tengd, í föstu formi og getur átt sér stað á marga mismunandi máta. Ásamt því að hampa þessu hugum við einnig að samstarfi á milli list­ greina. Þeir listamenn sem koma fram á hátíðinni eru listafólk sem vill vinna þvert á listgreinar. Þegar fólk úr mismunandi listgreinum mætist verður til kraftmikill skurð­ punktur,“ segir Þóranna. Um yfirskrift hátíðarinnar Kom­ inn tími til segir Þráinn: „Við erum að leggja áherslu á þetta hverfula augnablik. Hátíðin er mótuð af þeim listamönnum sem taka þátt og svo hverfur hún og kemur aftur með öðrum áherslum.“ Meðal þeirra listamanna sem eiga verk á hátíðinni er kanadíski listamaðurinn Miles Greenberg, búsettur í New York. „Í Tjarnarbíói verður vídeósýning á sólarhrings­ löngu gjörningsverki hans, Oyster­ knife. Þessi gjörningur átti sér stað í streymi í Covid­lokunum í fyrra,“ segir Þráinn. Annar erlendur listamaður á hátíðinni er Julia Eckhardt. „Hún er Uppskeruhátíð og hreyfiafl Þóranna og Þráinn eru sýningarstjórar Sequences. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb @frettabladid.is BÆKUR Ég brotna 100% niður Eydís Blöndal Útgefandi: JPV Fjöldi síðna: 45 Þorvaldur S. Helgason Ég brotna 100% niður er þriðja ljóðabók Eydísar Blöndal, sem hefur á undanförnum árum getið sér gott orð sem ljóðskáld og aðgerðasinni. Sem skáld fetar Eydís slóðina á milli hins pólitíska og hins ljóðræna, jafnvægislist sem er vandmeðfarin, því það sem er kraftmikið og hvetj­ andi í pólitískri orðræðu, því hættir oft til að verða bitlaust og banalt þegar það er fært yfir í ljóðform. Þetta hefur þó heppnast nokkuð vel hjá Eydísi hingað til eins og hún hefur sýnt í fyrri bókum sínum, Tíst og bast (2015) og Án tillits (2017), þar sem hún fjallaði um þemu á borð við jafnréttisbaráttuna og kyn­ ferðisofbeldi með góðum árangri. Í nýjustu bókinni tekur Eydís fyrir loftslagsvandann og sam­ tvinnar baráttuna fyrir jörðinni við baráttuna við sjálfið. Titillinn er ein­ kennandi fyrir verkið, skemmtilega tvíræður og blátt áfram, en hann vísar bæði í líffræðilegt niðurbrot manneskjunnar eftir dauðann og andlegt niðurbrot hennar er hún tekst á við hörmungar heimsins. Þá vekur titillinn einnig upp skír­ skotanir í niðurbrot líffræðilegra og samfélagslegra kerfa sem óumflýjan­ legrar afleiðingar loftslagsbreytinga á komandi árum og áratugum. Bókin einblínir þó fyrst og fremst á hið andlega niðurbrot og mætti jafnvel lýsa henni sem ljóðsögu um kvíða. Þetta er persónulegt verk og meira að segja svolítið innhverft. Sum ljóðanna eru raunar svo per­ sónuleg í lýsingum á innra lífi ljóð­ mælanda að það getur verið áskorun fyrir lesanda að tengja við þau. Kvíðinn er sínálægur í ljóðunum en stundum svo óræður að erfitt er að henda reiður á honum. Á sumum stöðum líður ljóðmálið fyrir þetta og líkingarnar verða helst til almennar. „Þyngslin brjótast út með ekka­ sogum / f læða yfir uppþornaða árfarvegi / og skella á þér“, er ágætis dæmi. Þetta er fullkomlega viðeig­ andi lýsing á birtingarmynd sorgar en hljómar óneitanlega eins og eitt­ hvað sem við höfum heyrt áður. Eilífir plastpokar Bókin nær mestu f lugi þegar ljóð­ mælandi veltir fyrir sér dauðanum og sínum eigin dauðleika. Heims­ endir er yfirvofandi ógn í bókinni, bæði alltumlykjandi heimsendir loftslagsógnarinnar og staðbundn­ ari heimsendir endaloka lífsins. Höfundur sameinar þetta tvennt í sterkri mynd þegar hún lýsir plast­ pokunum sem hún erfði eftir föður sinn. Plastpokarnir, þessir eitt sinn hversdagslegu hlutir, eru núna orðnir eins konar táknmynd fyrir hirðuleysi mannkynsins gagnvart náttúrunni og því einkar kald­ hæðnislegt að þeir skuli lifa okkur „ósnertir og eilífir“ á meðan við brotnum niður og hverfum á braut. Martraðarkenndar lýsingar höf­ undar á síendurteknum kvíða­ hugsunum þar sem hún sér sjálfa sig príla yfir svalir íbúðar sinnar á fjórðu hæð og steypa sér niður á hellulagða stéttina, skapa einnig sterkar og óþægilegar myndir í huga lesanda og myndgera kvíðann sem einkennir verkið. Loftslagskvíðinn skín einna sterk­ ast í gegn í ljóðunum 2050, tveimur ljóðum sem fjalla um vangaveltur höfundar varðandi ártal sem kemur oft fyrir í umræðu um loftslags­ aðgerðir. Þessi ljóð eru nokkuð sterk og hefði undirritaður verið til í að sjá meira af sambærilegu í bók­ inni. Hugsanlega hefði verkið getað orðið margræðara með því að fjalla um viðfangsefni loftslagsbreytinga og loftslagskvíða frá fjölbreyttari sjónarhornum. Fegurð hversdagsleikans Ég brotna 100% niður fjallar þó ekki bara um niðurbrot, hún fjallar líka að miklu leyti um ástina og fegurð­ ina í hversdagsleikanum; berjamó, ísbúðir og appelsínutré í Kópavogi. Appelsínan sem prýðir kápu bókar­ innar gengur í gegnum verkið eins og leiðarstef, táknmynd fyrir hringrás lífsins sem byggist upp og brotnar niður til skiptis. Þetta virkar einkar vel og situr eftir í huga lesanda án þess þó að verða yfirþyrmandi, svo minnir á sítrónuna í bók Dags Hjart­ arsonar, Heilaskurðaðgerðin. Móðurástin spilar einnig sterkt hlutverk í bókinni sem talar vel inn í loftslagsþemað og mikilvægi þess að vernda jörðina til að vernda komandi kynslóðir. Bókin mun án efa snerta taugar hjá lesendum sem eiga börn, enda undirstrikar hún mikilvægi þess að hlúa að sér og sínum á sama tíma og barist er fyrir framtíð alls lífs á jörðinni. n NIÐURSTAÐA: Áleitið verk sem fjallar um stór málefni á persónu- legan máta. Dregur upp sterkar myndir af kvíða sem eru þó heldur innhverfar og almennar á köflum. Niðurbrot manneskju og mannkyns víóluleikari sem spilar á tónleikum í Hafnarborg verk eftir franska tón­ skáldið Éliane Radigue sem leggur ríka áherslu á samtal við flytjand­ ann. Verkin eru samin fyrir f lytj­ endur og út frá þeirra hljóðheimi og sýn. Fyrirlestur um Radigue verður haldinn í Listaháskólanum,“ segir Þráinn. Elísabet Jökulsdóttir er heiðurs­ listamaður hátíðarinnar og mun opna hátíðina með Sköpunarsögum í húsi Vigdísar, 15. október. „Elísa­ bet er þekkt fyrir ótrúlega krafta og töfra og samtal út á við. Hún er stöðugt að miðla mikilvægri rýni á samtíma sinn. Hún er góð fyrir­ mynd í listsköpun, er stöðugt leit­ andi,“ segir Þóranna. Sequences mun teygja anga sína í allar áttir. Á Akureyri sýnir Freyja Reynisdóttir í Kaktus, Gunnar Jóns­ son sýnir í Gallerí Úthverfu á Ísa­ firði og Anna Margrét Ólafsdóttir í Skaftfelli, Seyðisfirði. „Úti á landi eru fjölmörg öf lug listamanna­ rekin rými og okkur fannst tilvalið að fá nokkur þeirra til að vera með á hátíðinni í ár,“ segir Þráinn. Hvaða máli skiptir hátíðin? „Það fylgir þessari hátíð mikil gleði og eftirvænting og hefur alltaf verið svo. Við erum að fagna listaorkunni og listafólki sem er stöðugt að og hættir ekki,“ segir Þóranna. Þráinn bætir við: „Sequenses er uppskeru­ hátíð og hreyfiafl.“ Fjölbreytt dagskrá hátíðarinnar er á sequences.is. n Þessi ljóð eru nokkuð sterk og hefði undir- ritaður verið til í að sjá meira af sambærilegu í bókinni. 22 Menning 15. október 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 15. október 2021 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.