Fréttablaðið - 15.10.2021, Page 1

Fréttablaðið - 15.10.2021, Page 1
Sé nemandi fluttur í „gula herbergið“ fer hann ekki í list- eða verkgreinar, frímínútur eða íþróttir. 2 0 3 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F Ö S T U D A G U R 1 5 . O K T Ó B E R 2 0 2 1 Sequences hefst í dag Arctic Circle sett í Hörpu Menning ➤ 22 Fréttir ➤ 4 Foreldrar barns sem lokað var eitt inni og sent í svokallað „gult herbergi“ í grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, hafa sent kvörtun til menntamála- ráðuneytisins þar sem þess er krafist að ráðuneytið taki málið og meðferð barnsins til skoðunar. lovisa@frettabladid.is MENNTAMÁL Foreldrar barns sem var lokað eitt inni í skólastofu í skóla á höfuðborgarsvæðinu hafa kvartað til menntamálaráðuneytisins vegna málsmeðferðar barnsins, ámælis- verðrar framkomu starfsmanna skóla í garð þess, auk aðgerðaleysis skólaskrifstofu í málefni barnsins og framkomu starfsmanna sveitar- félagsins í garð foreldra. Auk þess að loka barnið eitt inni hefur það verið sett, ásamt starfs- manni, í svokallað „gult herbergi“. Barnið hefur ekki mætt í skólann frá því í september. „22. september var barnið lokað eitt inni í stofu í skólanum á meðan starfsfólk stóð fyrir utan og fylgdist með því í gegnum rúðu á hurðinni,“ segir í kvörtuninni, endaði það með því að móðir þess kom og róaði það. Foreldrar barnsins segja að öryggi þess hafi þarna verið ógnað. Það hafi í mörg ár glímt við sjálfsvígs- hugsanir og sjálfsskaðahugsanir. Atvikið hafa aukið kvíða barnsins auk þess sem það vantreysti fólki í kringum sig. Barnið mætti ekki nema einn heilan dag eftir þetta atvik í skólann og þá í fylgd annars foreldris síns sem ákvað þann daginn að senda það ekki aftur þangað. Fjallað er um „gula herbergið“ í verklagsreglum skólans um afleið- ingar vegna ógnandi hegðunar eða ofbeldis. Þar kemur fram að mikil- vægt sé að „nemandi læri að það borgi sig hvorki að sýna ógnandi hegðun né beita ofbeldi“ og að það þurfi að fylgja slíkri hegðun skýrar af leiðingar sem eigi að vera nem- andanum fyrirsjáanlegar en á sama tíma hóflegar og að þær megi ekki ná yfir of langan tíma. Sé nemandi f luttur í „gula her- bergið“ fer hann ekki í list- eða verkgreinar, frímínútur eða íþróttir. Hann fær ekki að borða með sam- nemendum sínum. Samkvæmt reglunum á alltaf að vera starfs- maður hjá nemandanum, en skýrt er í reglunum að hann á ekki að spjalla við nemanda og á að „sýnast upptekinn“. Umboðsmaður Alþingis óskaði upplýsinga frá sveitarfélögum í fyrra um vistun nemenda í sér- stökum rýmum. Í kjölfar svara var ákveðið að aðhafast ekkert en eftir ábendingar frá foreldrum, auk umfjöllunar í fjölmiðlum, hefur umboðsmaður tekið málið upp að nýju. SJÁ SÍÐU 8 Kvarta til ráðuneytis vegna innilokunar barns Almenningur lagði blóm og kerti á torg í miðbæ Kongsberg í Noregi, til minningar um þá fimm sem létust í árásinni á miðvikudagskvöld. Árásarmaðurinn er í haldi lögreglu. SJÁ SÍÐU 10 FRÉTTABLAÐIÐ/EPA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.