Fréttablaðið - 15.10.2021, Síða 6

Fréttablaðið - 15.10.2021, Síða 6
Best hefur gengið að inn- rita ung börn í leikskóla í úthverfum borgarinnar. Með fjölgun plássa lítur þó út fyrir að staðan verði svipuð í öllum hverfum hennar þegar nær dregur vori. Í mars er gert ráð fyrir að yngstu börn í leik- skólum verði í öllum hverfum borgarinnar á aldrinum 14 til 16 mánaða. lovisa@frettabladid.is SKÓLAMÁL Samk væmt áætlun Reykjavíkurborgar verða yngstu börnin í leikskólum borgarinnar á vormánuðum ekki eldri en 16 mánaða. Elst verða þau í úthverfum borgarinnar og yngst, 14 mánaða, í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum. „Almennt er staðan þannig að það hefur verið auðveldara að kom- ast inn með ung börn í hverfum í austurborginni, en með fjölgun leikskólaplássa á næstunni mun staðan vænkast verulega í mið- og vesturborginni,“ segir Skúli Þór Helgason, formaður skóla- og frí- stundaráðs, um bið eftir leikskóla- plássi í borginni í dag. Samkvæmt nýjustu tölum frá skóla- og frístundasviði Reykja- víkurborgar bíða innan við 20 börn 18 mánaða og eldri eftir því að komast inn á leikskóla í úthverfum borgarinnar, þar sem best hefur gengið að innrita, í samræmi við samþykkt viðmið um innritun barna í leikskóla við 18 mánaða aldur á hverju hausti. Það er í Árbæ, Breiðholti, Grafarholti og Úlfars- árdal og Grafarvogi. Til saman- burðar bíða 47 börn á sama aldri í Miðborg, Hlíðum og Vesturbæ og 44 börn í Háaleiti og Bústöðum og Laugardal. Skúli segir að ákjósanlegast væri að börn kæmust inn á sama aldri alls staðar í borginni. Þannig hafi það þó ekki verið vegna mis- munandi stærðar leikskóla, ólíkrar eftirspurnar eftir leikskólaplássi og svo framvegis. Gerð var spá á þremur tíma- punktum varðandi hversu gömul yngstu börnin verða í leikskólum borgarinnar og tekin inn í útreikn- ingana þau pláss sem á að bæta við í vetur í Ævintýraborgum og í þeim nýju leikskólum sem eiga að taka til starfa. Tímapunktarnir eru 1. janúar, 1. mars og 1. maí. Í úthverfum borgarinnar er gert ráð fyrir að yngstu börnin þann 1. janúar verði 14 mánaða, í Háa- leiti og Bústöðum og Laugardal er staðan verst, en þar er gert ráð fyrir að yngstu börnin á biðlista verði 25 mánaða, eða tveggja ára. Í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum er gert ráð fyrir að yngstu börnin verði eins árs. Þann 1. mars 2022 verður búið að bæta við Ævintýraborg við Vörðu- skóla, en með því bætast við 60 pláss í Vesturbæ, og annarri við Voga- byggð sem bætir 100 plássum við í Laugardal. Þá er staðan orðin nokkuð betri í Háaleiti og Bústöðum og Laugar- dal og er þá gert ráð fyrir að yngstu börnin verði 15 mánaða, yngstu börnin í úthverfum verða 16 mán- aða og í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum verða þau 14 mánaða vegna þess að þau munu þá hafa elst um tvo mánuði. Til að reikna út þörf þarf að taka til greina mannfjöldaspá og skoða hvar og hversu mikið er verið að byggja í nýjum hverfum. Skúli segir að fyrstu tillögum hafi verið skilað í mars 2018 og að þörfin sé meiri en gert var ráð fyrir þá, þegar miðað var við að þyrfti 700-750 ný pláss til að geta boðið börnum frá 12 mánaða aldri leik- skólapláss. Íbúum hefur hins vegar fjölgað meira í borginni en gert var ráð fyrir og þess vegna er nú verið að leggja lokahönd á endurskoðun áætlunarinnar með enn frekari fjölgun plássa á komandi misserum og árum. Nánar á frettabladid.is Þau yngstu sextán mánaða Það er að birta til í lelkskólamálum í Reykjavíkurborg, að sögn formanns skóla- og frístundasviðs. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Með fjölgun leikskóla- plássa á næstunni mun staðan vænkast veru- lega í mið- og vestur- borginni. Skúli Helgason, formaður skóla- og frístundaráðs birnadrofn@frettabladid.is LÖGREGLUMÁL Nauðgunum og of beldisbrotum tengdum nætur- lífinu hefur fækkað milli ára, sam- kvæmt upplýsingum frá Lögregl- unni á höfuðborgarsvæðinu, LRH. Ofbeldisbrotum sem slíkum fer þó ekki fækkandi og voru þau f leiri árið 2020 en árið 2019. Marta Kristín Hreiðarsdóttir, deildarsérfræðingur í upplýsinga- og áætlanadeild LRH, segir að ef rýnt sé í of beldisbrotin sjáist að heimilisofbeldismálum hafi fjölgað en að ofbeldisbrotum í tengslum við næturlífið í miðbænum hafi fækkað. „Skýrustu breytingarnar sem við sjáum eru í tengslum við nætur- lífið. Við sjáum töluverða fækkun ofbeldisbrota og þegar við skoðum dreifingu slíkra brota árið 2019 voru þau f lest um fjögurleytið á nóttunni, en árið 2020 og það sem af er ári 2021 eiga þau sér flest stað á milli klukkan 11 og 12 á kvöldin,“ segir Marta og vísar í því samhengi til breytinga á reglum um opnunar- tíma skemmtistaða. „Þetta þurfa ekki að vera bein orsakatengsl en það er ýmislegt sem mætti telja að hefði þarna áhrif,“ segir hún og vísar til minni ölvunar og vímu af völdum annarra efna þegar opnunartími er styttri. „Auð- vitað eru tengsl á milli neyslu vímu- efna og ofbeldisbrota,“ segir Marta. „Við höfum verið að kalla eftir því að taka upp samtal um betri nætur- lífsmenningu og að þar sé allt tekið með, bæði opnunartími og aðrir þættir. Tölurnar benda til þess að hægt sé að breyta einhverju til hins betra,“ segir hún. Marta segir einnig að á milli ára sjáist að heimilisof beldismálum hafi f jölgað á meðan of beldis- brotum í tengslum við næturlífið í miðbænum hafi fækkað. „Það sama sjáum við ef við skoð- um kynferðisbrot,“ segir Marta, en bætir við að dreifing kynferðisbrota hafi breyst. Tilkynningum um kyn- ferðisbrot í garð barna hafi fjölgað en nauðgunum, og þá sérstaklega nauðgunum tengdum næturlífinu, fækkað. Þá segir Marta aukna umræðu um heimilisof beldi og velferð barna, að öllum líkindum hafa haft áhrif á aukinn fjölda slíkra mála. Aukinn fjöldi brota geti einnig bent til þess að fleiri tilkynni brotin til lögreglu án þess að brotunum sjálfum hafi fjölgað. ■ Nauðgunum og ofbeldisbrotum sem tengjast næturlífinu fækkar verulega Lögreglan sér mikinn mun á ofbeld- isbrotum í tengslum við næturlífið. ser@frettabladid.is VIÐSKIPTI „Ég var andlega og líkam- lega gjaldþrota,“ segir Skúli Mogen- sen, fyrrverandi forstjóri WOW, í helgarviðtali Fréttablaðsins á morg- un. Í viðtalinu gerir Skúli upp sögu sína og félagsins. Hann ræðir um tapaða sjálfsmynd og erfiðleikana eftir að félagið fór í þrot árið 2019. Skúli viðurkennir að fall WOW megi rekja til þess að hann hafi per- sónulega farið of geyst: „Ég fór að máta félagið við sjálfan mig, frægðina, uppganginn og arðinn, frekar en að vera trúr upp- haflegu lággjaldastefnunni eins og Ryanair og Wizzair hafa gert alla tíð,“ viðurkennir hann í viðtalinu. Skúli segist hafa náð jarðtengingu á ný við að byggja upp ferðaþjón- ustufyrirtæki sitt í Hvammsvík sem verði ný upplifun fyrir erlenda ferðamenn – og íslenska. Þar leika sjóböðin stórt hlutverk að sögn Skúla, en þau ætlar hann að opna á vormánuðum 2022. Þar verð- ur 90 gráðu heitu vatninu í landinu blandað saman við ferskvatn ofan af fjalli, svo úr verður baðstaður í sjó fram. ■ Skúli rýfur þögnina eftir fall WOW Skúli við sjóböðin í Hvammsvík þar sem hann byggir nú upp ferðaþjón- ustu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 6 Fréttir 15. október 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.