Fréttablaðið - 15.10.2021, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 15.10.2021, Blaðsíða 12
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is En þá getur þjóðin samt verið viss um að formenn- irnir lögðu sig fram við að ná samkomu- lagi og tvöfeldni var ekki ríkjandi. Ljóst er að staðan í geðheil- brigðismál- um barna er grafal- varleg þrátt fyrir stefnu- yfirlýsingar síðustu rík- isstjórnar. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb @frettabladid.is Allnokkuð er um að því sé klínt á alþingismenn að þeir séu upp til hópa tækifærissinnaðir, lítt gefnir fyrir heiðarleika og sjái ekkert athugavert við að stunda bræðravíg af miklum móð. Um þetta finnast vitanlega alltaf einhver dæmi. Svik þingmannsins Birgis Þórarinssonar við flokk sinn korteri eftir kosn- ingar eru til dæmis afar ómerkileg gjörð sem á engan hátt er hægt að réttlæta. Á sama tíma sjáum við formenn þriggja flokka vinna að því að koma saman ríkisstjórn. Þar byggist vinnu- reglan á gagnkvæmu trausti og heiðarleika. Það er uppörvandi að verða vitni að því. Einhverjar raddir reyna með öllum ráðum að leiða formann Framsóknarflokksins í freistni með því að minna reglulega á hversu vel hann myndi taka sig út í hlutverki forsætis- ráðherra í ríkisstjórn þar sem Katrín Jakobs- dóttir og f lokkur hennar væru víðs fjarri. Ekki verður séð að formaður Framsóknarflokksins leggi við hlustir. Hann virðist ekki ætla að láta hégómann sigra skynsemina og heiðar- leikann. Nú skal ekkert fullyrt um að formenn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks nái saman á ný í ríkisstjórn, þótt úrslit kosninganna hafi sýnt að þjóðin vill það. Vel má vera að málefnaágreiningur reynist of mikill. En þá getur þjóðin samt verið viss um að formennirnir lögðu sig fram við að ná sam- komulagi og tvöfeldni var ekki ríkjandi. Flestir sjá fremur f ljótlega í gegnum stjórn- málamenn sem líta á það sem óhjákvæmi- legan hluta af starfi sínu að iðka tækifæris- mennsku og stunda stöðugar upphrópanir. Með tímanum fer syfja og leiði að grípa stóran hóp kjósenda í hvert sinn sem þessir stjórn- málamenn stíga fram, yfirleitt geltandi af vandlætingu, og ætlast til að vera teknir alvar- lega. Yfirvegun og ró myndi skila þeim meiri árangri. n Að sleppa tökunum Nú er kominn tími til að sóttvarnalæknir sleppi tökunum og hætti að skrifa minnisblöð. Yfirlýsingar hans um komandi flensutíma og nauðsynleg höft hljóma vægast sagt furðulega. Íbúar þessa lands hafa fram að þessu lifað með flensu án þess að kippa sér upp við það. Og þótt flensutímabil auki álag á heilbrigðiskerfið þá er galið að ætla sér að takmarka mannréttindi fólks vegna þess. n Heiðarleiki Á síðustu árum hafa málefni barna fengið aukið vægi og mörg mikilvæg skref verið stigin í þá átt að tryggja snemmtæka íhlutun. Eftir sem áður berast nánast dag- lega fréttir af löngum biðlistum, jafnvel til margra ára, eftir brýnni þjónustu við börn, og niðurstöður kannana og rannsókna sýna fram á hrakandi geðheilsu barna. Ein meginforsenda þess að stefna um snemmtæka íhlutun nái fram að ganga er að hún byggi á styrkum stoðum stofnana, sem búa yfir fagfólki, þekkingu, inn- viðum og úrræðum, þannig að unnt sé að bregðast við sveigjanlegri og eftir atvikum aukinni þjónustuþörf hverju sinni. Setja þarf stefnu sem gerir þjónustuveit- endum kleift að aðlaga þjónustuna að þörfum notenda, ólíkt því sem nú er, þar sem börn þurfa að sæta því að langir biðlistar eftir sérhæfðri þjónustu við þau, eru nánast án undantekninga. Það er óásættanlegt úrræða- leysi að börnum í leit að þjónustu sé vísað frá og sem veldur því að vandi þeirra vex og verður þannig erfiðari úrlausnar, þegar þau loks fá aðgang að þjónustu. Ljóst er að staðan í geðheilbrigðismálum barna er grafalvarleg þrátt fyrir stefnuyfirlýsingar síðustu ríkis- stjórnar um að efla geðheilbrigðisþjónustu á heilsu- gæslustöðvum og sjúkrahúsum, tryggja fjármagn til að standa undir rekstri barna- og unglingageðdeildar Land- spítalans og efla heilbrigðisþjónustu í framhaldsskólum, með áherslu á geðheilbrigði. Í Barnasáttmálanum er kveðið á um þá skyldu aðildarríkja að gera allar við- eigandi ráðstafanir til að réttindi þau sem viðurkennd eru í sáttmálanum, komi til framkvæmda. Í síðustu tilmælum barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna, frá árinu 2011, kom fram að íslenska ríkið verði að efla geð- heilbrigðisþjónustu fyrir börn og tryggja aðgang þeirra að greiningum og meðferðum auk þess að huga að fleiri úrræðum eins og t.d. sálfræðimeðferð og fræðslu. Umboðsmaður barna brýnir fyrir nýrri ríkisstjórn að gera geðheilbrigðismálum barna hátt undir höfði í nýjum stjórnarsáttmála og leggur áherslu á að hér nægir ekki velvilji, yfirlýsingar og fyrirheit, það er kominn tími til aðgerða. n Áskorun til nýrrar ríkisstjórnar Salvör Nordal umboðsmaður barna toti@frettabladid.is Klikkun Sögur af undarlegum kauptil- boðum benda til þess að fjöl- mennir Facebook-hópar myndaðir um sérviskuleg áhugamál eins og borðspil og víðavangshlaup séu orðnir eftirsótt söluvara. Stjórn- andi Borðspilaspjallsins hafnaði nýlega 100 þúsund króna tilboði og er síður en svo sá eini sem finnur fyrir slíkum áhuga. Líklegt þykir að bókstafleg klikkun sé að baki jafn áráttukenndum áhuga á því að sölsa ólíka Facebook-hópa undir sig og böndin berast að vef- miðlum sem sækist fyrst og fremst eftir klikkunum, músarsmell- unum, sem geta skapað vefaðsókn með deilingu efnis í fjölmennar nördagrúppur. Áhættufjárfesting Þannig væri vissulega feita gelti að flá í Hjóladót til sölu, með ríf- lega 44.000 meðlimi en þar hefur 50.000 króna tilboði verið hafnað. Umsjónarmenn Hlauparar á Íslandi, sem telur 4.310 hlaupara, létu heldur ekki glepjast af 15.000 krónum. Síðan er alls óvíst að slíkir hópar reynist þyngdar sinnar virði í klikkum og til dæmis líklegt að Hlauparar myndu taka til fótanna og stofna nýjan grasrótarhóp ef þeir yrðu seldir. Flóttinn sjálfur felur þó í sér góða viðskiptahug- mynd sem byggir á því að stofna reglulega nýjan hóp, selja, forða sér, stofna annan, selja hann og svo koll af kolli á meðan klikkunin varir. n Brautirnar eru fáanlegar með mjúklokun Mikið úrval rennihurðabrauta frá Þýsk gæðavara. Skútuvogi 1h - Sími 585 8900 www.jarngler.is SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 15. október 2021 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.