Fréttablaðið - 15.10.2021, Side 13
n Í dag
Árni
Helgason
Landið er á Hólmsheiði norðan við Gunnarshólma.
Hólmsá liggur meðfram jörðinni.
Áhugasamir aðilar hafi samband við Helga Örn Jacobsen,
BP Shipping Agency Ísland ehf. í síma 892-8996 eða helgi@bpship.is
Egilsdalur - 23.06 hektara land til sölu
BP Shipping Agency Is. Ltd.
Eitt af því sem einkennir snjalla
handritshöfunda er hæfileikinn til
að halda söguþræðinum gangandi
jafnvel þótt komið sé talsvert inn
í þáttaröðina, áhuginn aðeins
farinn að dvína og plottið að
þynnast. Þá gildir að vera útsjónar-
samur, finna nýja vinkla og kynna
til leiks nýjar persónur.
Minnisblöð sóttvarnalæknis
eru ágætis dæmi um þetta. Óhætt
er að segja að þjóðin hafi lengi vel
setið límd yfir framvindu þeirra,
en eins og gengur hefur smám
saman dregið úr áhorfi og margir
farið að kalla eftir því að fram-
leiðslunni verði hreinlega hætt.
Allt þar til nýjasta vendingin kom.
Nú er ógnvaldurinn nefnilega ekki
lengur bara kórónaveiran heldur
snúa gamlir góðkunningjar sótt-
varnalöggunnar aftur: RS-vírusinn
og inflúensan. Þegar þessi þrenna
leggur saman krafta sína er voðinn
vís og ljóst að allt getur gerst.
Þetta opnar fléttuna upp á gátt og
spennan í kringum afléttingarnar
lifir áfram, jafnvel út þennan vetur.
Varfærni borgar sig
Ekki misskilja mig, Þórólfur er
vitaskuld fyrir löngu búinn að
sanna sig sem þjóðhetja okkar
Íslendinga, kom okkur ekki bara
í gegnum faraldurinn heldur var
hann í raun nokkurs konar land-
stjóri hér síðustu misserin. Þótt
einhverjum þyki hann tregur til
afléttinga er hann bara að vinna
vinnuna sína, gæta að því að við
förum frekar með gát en of geyst
af stað. Hann veit líka sem er að ef
ástandið fer úr skorðum síðar meir
þá beinast böndin að honum.
Þessi hugsun er ráðandi í dag. Að
vera frekar aðeins of varkár en of
kærulaus. Hættustigið er því víða
hátt stillt. Bara við það eitt að fara
inn á heimasíðu Veðurstofunnar
og kíkja á spá morgundagsins,
skella á manni ótal viðvaranir.
Raunar er yfirlýst neyðarástand á
nokkuð mörgum sviðum sam-
félagsins: í umhverfismálum, á
fasteignamarkaði, í lýðheilsumál-
um, vegna skjánotkunar barna, í
samgöngumálum og í heilbrigðis-
kerfinu, svo eitthvað sé nefnt.
Neyðarástand hefur að mörgu
leytið tekið yfir sem almenn lýsing
á því að úrbóta sé þörf, enda hefur
enginn þolinmæði fyrir einhverj-
um óræðum langlokum um að
ástandið sé „vandasamt“ eða „það
geti brugðið til beggja vona“. Þann-
ig málflutningur kæmist varla í tíu-
fréttirnar. Það er miklu afdráttar-
lausara og líklegra til árangurs að
lýsa yfir neyðarástandi og krefjast
tafarlausra aðgerða.
Eitt útilokar annað
Yfirleitt þegar ég heyri að það sé
neyðarástand finnst mér að ég þurfi
að bregðast við. Gera eitthvað, sýna
einhver viðbrögð eða hegðun til að
leggja mitt lóð á vogarskálarnar.
En það er ekki alltaf augljóst hvað
eigi að gera. Neyðarástand á einu
sviði getur útilokað neyðarástand
á öðru sviði. Til að bregðast við
neyðarástandi á fasteignamarkaði
er lagt til að brjóta nýtt landsvæði
undir byggð. Það fer hins vegar
ekki vel saman við neyðarástand
í umhverfismálum þar sem draga
þarf úr ferðum og akstri eins og
kostur er og byggja þétt. Hið sama
má segja um flugsamgöngur – við
ættum að reyna að minnka þær
vegna neyðarástands í loftslags-
málum en þá vandast leikar því
fyrr á árinu var hér neyðarástand í
atvinnumálum vegna þess hve fáir
ferðamenn komu til landsins. Við
þurfum því að forgangsraða einu
neyðarástandi umfram annað.
Nýr tónn
Í sinfóníu opinberra aðvarana
um neyð og hættustig kvað við
nokkuð nýjan tón um daginn
þegar forsætisráðuneytið og heil-
brigðisráðuneytið gáfu saman út
minnisblað sem rataði í fjölmiðla.
Þar var fjallað um takmarkanir
vegna sóttvarna og bent á að hlut-
fall þeirra sem hafa látist af Covid
frá 1. ágúst síðastliðnum sé 0,06
prósent af þeim sem hafa greinst
með veiruna. Enn fremur kom fram
að leggja þyrfti gagnrýnið mat á
hvað sé áunnið með takmörkunum
annars vegar og hins vegar hverju sé
til kostað og hversu mikils virði sú
fórn væri.
Umboðsmaður neföndunar
Þetta er áhugaverð hugsun sem
heyrist ekki oft og hefur víðari
skírskotun. Á tímum stöðugs
neyðarástands þarf að vega og
meta hve miklar fórnir við getum
fært. Ég hef stundum velt því fyrir
mér hvort það ætti að stofnana-
væða þessa nálgun. Sem mót-
vægisaðgerð við allar áhyggjurnar
yrði komið á fót embætti umboðs-
manns þeirra sem vilja anda með
nefinu? Embættið myndi tala fyrir
því að þótt hinn venjulegi borgari
sé allur af vilja gerður til að leggja
sitt af mörkum þá séu takmörk
fyrir því hversu lengi sé hægt að
búa við takmarkanir, skerðingar
og stöðugt hættustig. Þetta væri
embættismaður sem myndi skila
bjartsýnum umsögnum um
frumvörp, gefa út minnisblöð um
mikilvægi þess að vera léttur og
minna þingnefndir á að hlutirnir
hafa tilhneigingu til að bjargast.
Lógó embættisins yrði fjölskylda
að horfa á Netflix og borða nammi
og af því að öll opinber embætti
velja sér gildi, þá yrðu gildi þessa
embættis kæruleysi, bjartsýni og
„þetta reddast“. n
Neyðarástand er nýi hversdagurinn
FÖSTUDAGUR 15. október 2021 Skoðun 13FRÉTTABLAÐIÐ