Fréttablaðið - 15.10.2021, Blaðsíða 17
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FÖSTUDAGUR 15. október 2021
Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
AÐSEND/KRISTINN INGVARSSON
starri@frettabladid.is
Menntakvika, sem er árleg ráð-
stefna Menntavísindasviðs Háskóla
Íslands, verður haldin á netinu
í dag, föstudaginn 15. október.
Menntakvika var formlega sett
í gær með opinni ráðstefnu um
hönnun skólahúsnæðis sem tæki til
menntaumbóta þar sem fjallað var
um skólahúsnæði og áætlanir yfir-
valda um hönnun og kennsluhætti.
Í dag er hins vegar boðið upp á
spennandi dagskrá en þá verða flutt
um 280 erindi í 76 málstofum.
Menntakvika hefur skapað
sér sess sem einn mikilvægasti
farvegur Háskólans fyrir miðlun
á þekkingu og rannsóknum sem
snúa að skóla- og frístundastarfi.
Viðfangsefni ráðstefnunnar í
ár eru afar fjölbreytt og má þar
nefna líðan framhaldsskólanema
í faraldrinum, börn á tímum kyn-
lífsvæðingar, hreyfingu grunn-
skólabarna, samfélagsmiðlanotkun
unglinga, skömm og kvíða ungra
kvenna og margt fleira.
Námsbraut í tómstunda- og
félagsmálafræði fagnar 20 ára
afmæli um þessar mundir og verður
lykilfyrirlestur Mennta kviku helg-
aður faginu. Mark Leather, dósent
við St. Mark & St. John háskólann í
Plymouth í Bretlandi, flytur erindi
um útimenntun og aðferðir heild-
rænnar menntunar.
Menntakvika er rafræn og öllum
að kostnaðarlausu. Dagskrána má
nálgast á mennta kvika.hi.is. ■
Rannsóknir
kynntar
Menntakviku
Hildur Þórðardóttir og Björn Þór Heiðdal hjá Rúmföt.is. Verslunin býður upp á úrval af gæðarúmfötum í öllum verðflokkum. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Himnesk rúmföt og guðdómlegir koddar
Björn Þór Heiðdal, eigandi verslunarinnar Rúmföt.is, elskar mjúk rúmföt. Í versluninni selur hann
landanum einstök hágæða rúmföt sem koma víða að úr heiminum úr allra vönduðustu efnum. 2