Fréttablaðið - 15.10.2021, Blaðsíða 18
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
„Það er ekki stórt leyndarmál að ég
er með rúmfatadellu á háu stigi,“
segir Björn Þór og kímir. „Í gegnum
árin hef ég reynt að finna þau
allra bestu rúmföt sem hægt er að
nálgast hverju sinni og bjóða upp
á í versluninni. Sjálfur sef ég undir
vönduðum satínrúmfötum. Góð
rúmföt skipta einfaldlega lykilmáli
upp á góðan svefn.“
Afmælistilboð á
lúxus sængurfötum
„Tíminn flýgur og litla rúmfata
búðin okkar á þriggja ára afmæli
um þessar mundir. Til að fagna
þessum tímamótum verðum við
með vegleg afmælistilboð á vel
völdum lúxus sængurfötum,“ segir
Björn. „Þar á meðal verða einstak
lega mjúk 600 þráða rúmföt úr
eðalfínu satíni á flottu afmælis
tilboði.
Einnig erum við með 900 þráða
rúmföt á tilboði, sem eru hreint
út sagt himnesk. Þessi eru ný hjá
okkur og sameina bæði mjög háan
raunverulegan þráðafjölda og
mikil gæði. Þau eru alveg svakalega
fíngerð og mjúk. Þetta eru ein af
allra bestu rúmfötunum sem við
seljum.
Við saumum líka sjálf rúmföt úr
ítölskum efnum. Margrét Guð
laugsdóttir er listamaðurinn á bak
við handsaumuðu rúmfötin frá
Rúmföt.is. Hún býr yfir gríðar
mikilli reynslu og saumar þetta allt
saman listilega vel. Æðislega flott
efni sem eru sérofin fyrir okkur úr
langþráða egypskri bómull. Einnig
látum við sauma fyrir okkur úr
sömu efnum á Ítalíu, því Margrét
hreinlega annar ekki eftirspurn
inni.“
Þræðir og gæði
Að sögn Björns segir uppgefinn
þráðafjöldi ekki alla söguna.
„Þetta er mun flóknara en það.
Raunverulegur þráðafjöldi ræður
heilmiklu en flestir vefstólar vefa
ekki mikið meira en 300 þræði á
hverja fertommu. Þannig eru 600
þráða rúmföt oftast 300 þræðir
en þráðurinn er tvöfaldur. Með
stækkunargleri er hægt að telja
nálægt 450 þræði á hverja fer
tommu á 900 þráða rúmfötunum
okkar sem er alveg ótrúlega fín
gerður þráður. En hver þráður er
svo tvöfaldur við nánari skoðun.
Fjöldi þráða hefur með grófleika
efnisins að gera. Fáir þræðir þýða
gróft og óslétt efni, og fleiri þræðir
gera efnið mun sléttara, fíngerðara
og mýkra, svo framarlega að um sé
að ræða gæðaþráð. Ef gæði og hár
þráðafjöldi helst í hendur þá ertu
með góð rúmföt.“
Bara það besta, líka fyrir börnin
„Við kaupum líka inn hágæða
rúmföt frá verksmiðjum úti í
heimi. Margar þeirra framleiða
ýmis ódýrari rúmföt og svo rúmföt
úr betri efnum. Ég fer bara í allra
fínustu efnin og kaupi eingöngu
inn bestu rúmföt sem völ er á,“
segir Björn.
Rúmföt.is er einnig með úrval af
gæðarúmfötum fyrir barnasæng
ur í fallegum litum og mynstrum
sem heilla börnin. „Barnarúm
fötin hjá okkur eru fyrst og fremst
af miklum gæðum og eigum við
mikið af fallegum 300 þráða
rúmfötum fyrir börnin. Þetta eru
töluvert meiri gæði en þú færð í
öðrum verslunum, enda fram
leiða ekki margir gæðasængurföt
fyrir börn. Yfirleitt einblína menn
meira á myndirnar. En efnið í
rúmfötunum skiptir börnin jafn
miklu máli og fullorðna upp á
góðan svefn að gera.“
Sefur sjálfur undir 550 þráðum
„Í ár bauðst mér að kaupa 550
þráða rúmföt úr einföldum þræði.
Ég stóðst ekki mátið og keypti
Í tilefni þriggja
ára afmælis
verslunarinnar
eru forláta 600
og 900 þráða
hágæða rúmföt
á sérstöku af
mælistilboði.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
Margrét Guðlaugsdóttir er komin í
jólaskapið og saumar rúmföt í gríð
og erg. Hágæða rúmföt eru hin full
komna jólagjöf. MYND/AÐSEND
Svört hágæða rúmföt með geómetrísku mynstri.
Rúmföt.is býður upp á fallegt úrval af jólalegum rúmfötum. Í búðinni fást rúmföt í mismunandi
stærðum á ólíkar sængur. Þessi eru
úr ítölsku 700 þráða silkidamaski
með fallegu báu blómamynstri.
Hér má sjá hvít rúmföt með fínlegum röndum.
Barnarúmfötin eru bæði falleg og af miklum gæðum.
Í Rúmföt.is fást rúmföt frá flottustu
vefurum Ítalíu, til að mynda Quagli
otti sem vefur dúka og sængurföt
fyrir bresku konungsfjölskylduna.
nokkra kassa. Reyndar var efnið
bara til í hvítu og ofið sérstaklega
fyrir lúxussængur. Verksmiðjunni
úti fannst það dáldið skrítið að ég
væri að nota þetta efni í rúmföt.
Ég held að það hafi ekki verið
gert áður en það var ekkert mál
og þetta eru rúmfötin sem ég sef
undir sjálfur í dag.
Talandi um geggjuð rúmföt þá
pantaði ég inn örfá 1.400 þráða
rúmföt frá Ítalíu úr einum dýrasta
og mýksta bómullarþræði sem
framleiddur er. Þráðurinn er fjór
faldur og úr sérvalinni egypskri
Gizabómull. Á skalanum einn til
tíu mundi ég segja að þessi rúmföt
væru í það minnsta 25. Ég hef
aldrei á ævinni prófað jafnmjúk
rúmföt.“
Við eigum einnig gott úrval af
rúmfötum á lengri sængur og tvö
faldar. Þegar við opnuðum verslun
ina áttum við minna af þeim, en
fólk hefur verið duglegt að biðja
um þessar stærðir og höfum við
orðið við þeirri ósk. Sennilega er
þessi aukning vegna þess að þjóðin
hefur verið að þenjast út í allar
áttir,“ segir Björn og hlær.
Jólatörnin í glæsilegu rými
Að sögn Björns er jólatörnin að
hefjast. „Fólk er byrjað að koma í
búðina til að kaupa jólagjafirnar.
Við erum held ég eina verslunin á
Íslandi sem sérhæfir sig eingöngu í
hágæða rúmfötum og enn fremur
sú eina sem saumar sjálf. Hingað
kemur fólk aftur og aftur og margir
kaupa allar jólagjafirnar á einu
bretti. Kannski ekki á hverju ári,
en reglulega.“
Verslunin Rúmföt.is er staðsett
að Nýbýlavegi 28 og hefur tekið
nokkrum breytingum síðan í fyrra.
„Viðskiptavinir sem hafa mætt í
búðina síðustu daga hafa tekið
eftir að verslunin hefur stækkað
heilmikið frá því í fyrra. Eigandi
húsnæðisins réðst í framkvæmdir
og var húsnæðið tvöfaldað. Magga
saumakona er alveg hæstánægð.“
Guðdómlegir koddar
Rúmföt.is selur einnig guðdóm
lega kodda sem fleyta hverjum
og einum mjúklega inn í drauma
landið. „Við látum sérframleiða
fyrir okkur alveg frábæra hágæða
kodda. Þeir innihalda 100 prósent
gæsadún og fíngerðar smáfjaðrir til
að gefa réttan stuðning við háls og
höfuð.
Ég var sjálfur lengi búinn að
reyna að finna góðan kodda úti
í búð en fannst þeir allir vera of
þykkir eða eitthvað bæklaðir. Þann
ig að ég pantaði 20 prufur að utan
og valdi síðan tvær útgáfur sem við
bjóðum núna upp á. Tvær konur
sem keyptu þessa kodda komu
í búðina um daginn til að kaupa
fleiri kodda, og sögðu að þetta væru
einfaldlega bestu koddarnir sem
þær hefðu sofið á,“ segir Björn. n
Verslunin Rúmföt.is er staðsett að
Nýbýlavegi 28. Sími: 565 1025. Opið
alla virka daga frá klukkan 12 til
17.30 og á laugardögum frá klukkan
11 til 15. Skoðið úrvalið á glæsilegri
vefverslun rumfot.is.
2 kynningarblað A L LT 15. október 2021 FÖSTUDAGUR