Fréttablaðið - 15.10.2021, Qupperneq 19
KYNN INGARBLAÐ
Kynningar: Dekk1.is, Vaka, Arctic Trucks, BrimborgFÖSTUDAGUR 15. október 2021
Vetrardekk
Davíð Snær Jónsson er framkvæmdastjóri Dekk1. Hann segir einfalt að kaupa dekk á netinu og einstaklega þægilegt að geta pantað ódýra umfelgun í leiðinni hjá Dekk1 á Funahöfða. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Dekk1.is – dekk og umfelgun á betra verði
Dekkjanetsalan Dekk1.is býður dekk til sölu í gegnum netið á enn betra verði en almennt þekkist. Dekkin eru
send hvert á land sem er. Einnig er boðið upp á umfelgun á afar hagstæðum kjörum, eða frá aðeins 6.990 krónum.
„Dekk1.is er stærsta dekkjanet-
verslun landsins. Við sérhæfum
okkur í sölu dekkja á netinu og
með beinni sölu í gegnum netið
getum við boðið betra verð en
almennt hefur þekkst hér á landi,“
upplýsir Davíð Snær Jónsson,
framkvæmdastjóri Dekk1.is.
Undanfarin átta ár hefur Dekk1
verið eingöngu netverslun, en í
fyrra opnaði fyrirtækið dekkja-
verkstæði að Funahöfða 6 í
Reykjavík.
„Við fundum fyrir mikilli
vöntun á ódýrari umfelgun og
fengum margar fyrirspurnir um
umfelgun samhliða því að geta
keypt dekk á jafn hagstæðu verði
og við bjóðum,“ greinir Davíð frá.
Á verkstæði Dekk1 á Funahöfða
6 er hægt að fá umfelgun á afar
hagstæðum kjörum, eða frá aðeins
6.990 krónum.
„Okkar leiðarljós er að bjóða
besta verðið á landinu og leggja
þannig okkar af mörkum eftir
langt og strembið Covid-tímabil. Í
samstarfi við tímabókunarkerfið
og -appið Noona geta viðskipta-
vinir okkar bókað tíma í umfelgun
á snöggan og auðveldan hátt,
sem og á heimasíðunni okkar
Dekk1. is,“ útskýrir Davíð.
Einfalt, þægilegt og ódýrt
Með öflugri netverslun hefur
Dekk1 einfaldað aðgengi við-
skiptavina að vörunni sjálfri.
„Ferlið er mjög einfalt, þú ein-
faldlega slærð inn dekkjastærðina
þína, setur dekkin í körfuna,
gengur frá kaupunum og kemur
síðan í umfelgun til okkar að
Funahöfða 6 þegar þér hentar. Við
sendum dekkin jafnframt hvert á
land sem er, í samstarfi við Póst-
inn,“ upplýsir Davíð.
Dekkin sem fást á Dekk1.is eru
frá öllum helstu dekkjafram-
leiðendum heims og allt eru það
dekk sem reynast vel við íslenskar
aðstæður.
„Við bjóðum upp á negld og
ónegld vetrardekk, heilsársdekk
og sumardekk af öllum helstu
stærðum. HiFly-dekkin er flaggskip
Dekk1.is. Við fluttum þau fyrst inn
fyrir átta árum og hafa þau hlotið
mikið lof viðskiptavina og eru mjög
vinsæl meðal leigubílstjóra og hjá
bílaleigum landsins,“ segir Davíð.
Áralöng þekking og reynsla
Þessa dagana er í nógu að snúast hjá
Dekk1, enda er vetur konungur á
leiðinni fyrsta vetrardag, 23. októ-
ber.
„Dekkjatörnin er rosalega
skemmtilegt tímabil hjá okkur,“
segir Davíð. „Við erum með mjög
reynslumikið teymi, en meðfram
dekkjasölunni rekum við einnig
bílaleigu þar sem áralöng þekking
á dekkjum, viðgerðum og dekkja-
skiptum nýtist vel.“
Á Dekk1.is, sem er fyrsta dekkja-
netverslun landsins og sú stærsta á
Íslandi, fást yfir 1.200 mismunandi
dekkjategundir og dekkjastærðir.
„Netverslun hefur verið í mikilli
sókn hérlendis undanfarin ár,
enda er mun auðveldara að panta
sér dekk á netinu en nokkurn gæti
grunað. Fyrir örfáum árum hefði
þótt galin hugmynd að kaupa
dekk undir fjölskyldubílinn á
netinu og það tók tíma að koma
á markaðinn með jafn nýstár-
lega hugmynd og þessa. Okkar
styrkleiki í gegnum tíðina hefur