Fréttablaðið - 15.10.2021, Síða 26
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr
@frettabladid.is
8 kynningarblað 15. október 2021 FÖSTUDAGURVETR ARDEKK
Á þessu ári hefur gúmmí
skorts orðið vart á heims
vísu vegna þess að eftir
spurn hefur aukist og
fram boð dregist saman. Það
stefnir ekki í dekkjaskort hér
á landi í vetur, en verð hefur
hins vegar hækkað.
Það hefur verið nokkur gúmmí-
skortur í heiminum á þessu ári og
nú þegar farið er að líða á haustið
virðist hann vera farinn að valda
verðhækkunum á dekkjum hér á
landi og hafa áhrif á dekkjafram-
boðið í Norður-Ameríku.
Bílaiðnaðurinn hefur lent í
mörgum áföllum að undanförnu,
sérstaklega í Bandaríkjunum.
Verksmiðjum hefur verið lokað,
Covid-smit hafa komið upp og
það hefur verið heimsskortur á
leiðurum, sem eru nauðsynlegt
hráefni í tölvukubba fyrir bíla. Nú
koma svo áhyggjur af gúmmískorti
í ofanálag.
Ýmsar ástæður fyrir skortinum
Ástæðurnar eru nokkrar.
Eftirspurn hefur verið mikil og
framleiðendur hafa ekki getað
gróðursett eins mikið af nýjum
gúmmítrjám og venjulega vegna
heimsfaraldursins. Þar sem það
tekur trén sjö ár að þroskast og
laufsjúkdómar og flóð hafa haft
neikvæð áhrif á trén sem eru til
staðar, hefur framboðið farið
minnkandi.
Á sama tíma hefur eftirspurnin
aukist mjög mikið í Kína, sem er
langstærsti neytandi gúmmís í
heiminum. Landið hefur jafnað
sig á heimsfaraldrinum hraðar en
önnur stór iðnvædd ríki og fram-
leiðsla og neysla hefur aukist hratt.
Ekki nóg með það, heldur hefur
líka verið skortur á flutningagám-
um, sem hefur gert vöruflutninga
erfiðari. Allt hjálpast þetta að til að
þrengja að gúmmímarkaðnum.
Fyrir vikið byrjuðu bandarískir
framleiðendur, sem drógu úr
pöntunum vegna faraldursins, að
reyna að kaupa gúmmí af miklu
kappi í desember síðastliðnum og
gögn Bloomberg sýna að gúmmí
náði hæsta verði sem það hefur
náð í fjögur ár í febrúar síðast-
liðnum.
Skortur í Norður-Ameríku
Vegna þessa hafa margir haft
áhyggjur af því að það verði ekki
nægt framboð af vetrardekkjum
þetta haustið. Óttinn við vöru-
skort er líka að neyða bílafram-
leiðendur til að endurskoða þá
viðskiptahætti að framleiða allt á
síðustu stundu og hafa lítinn lager,
Gúmmískortur veldur verðhækkunum
Íslendingar
þurfa ekki að
hafa áhyggjur
af dekkjaskorti
vegna gúmmí-
skorts í vetur, en
næsta vor eða
haust gæti hann
gert vart við
sig. En verðið á
dekkjum hefur
hækkað á milli
ára.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Hráefnaskortur
er orðinn svo
mikið vandamál
að bílaframleið-
endur hafa til-
kynnt að fram-
leiðsla muni
minnka um allt
að helming á
næsta ári.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
www.hardkornadekk.is
Naglana
burt!
FYRIRSPURNIR
info@hardkornad
ekk.is
611 77 99
Green Diamond eru einu umhverfisvænu
heilsársdekkin í boði. Kynntu þér málið.
*www.hardkornadekk.is/pages/profanir-dekk
sem hefur hjálpað þeim að halda
verði niðri og auka gróða. En þessi
aðferðafræði hefur komið í bakið á
þeim í faraldrinum.
Í vor sagði dekkjaframleið-
andinn Goodyear í viðtali við
CNBC-fréttastöðina að gúmmí-
skorturinn myndi ekki hafa nein
áhrif á framboð sitt, en svo kom
yfirlýsing frá fyrirtækinu fyrr í
þessum mánuði þar sem kom fram
að Norður-Ameríku myndi skorta
um 5 milljónir dekkja á þessu ári.
Sums staðar í Bandaríkjunum
og Kanada eru dekkjafyrirtæki í
vandræðum með að mæta eftir-
spurn og sumir dekkjasölumenn
þar mæla með því að fólk kaupi
dekk snemma til að tryggja sér þau
og setja þau svo undir bílinn síðar.
Aðrir segja að það sé óþarfi að hafa
áhyggjur nema fólk sé með mjög
sértækar og harðar kröfur.
Ekki skortur hér en verð hærra
Samkvæmt Félagi íslenskra bif-
reiðaeigenda, FÍB, er mjög lítil
hætta á dekkjaskorti hér á landi í
haust, en mögulega gerir hann vart
við sig á næsta ári. Verð hefur þó
hækkað.
„Þetta hefur verið í umræðunni
en fólk hefur ekki áhyggjur,“ segir
Björn Kristjánsson, tækniráðgjafi
hjá FÍB. „Birgðastaðan í landinu
er ágæt eftir seinasta vetur, þar
sem hann var frekar mildur, en
það sem hrjáir fólk eru tafir á
innflutningi, bæði vegna þess að
framleiðsla hefur farið hægt af stað
og vegna skorts á flutningagámum
og öðrum flutningaleiðum. Þetta
hefur leitt til einhverrar hækk-
unar á verði dekkja milli ára og
við ætlum að gera samanburð á
verðinu í ár og á því síðasta.
Mér sýnist ekki stefna í dekkja-
skort fyrir þennan vetur, en ef
ástandið heldur svona áfram gæti
hann gert var við sig næsta vor eða
haust,“ segir Björn.
Kubbaskorturinn verri
Tölvukubbaskorturinn sem hefur
verið viðloðandi síðastliðið ár
hefur aftur á móti haft mikil áhrif
á bílaiðnaðinn.
„Hráefnaskorturinn er svo
mikill að bílaframleiðendur hafa
tilkynnt að framleiðsla muni
minnka um allt að helming á
næsta ári vegna skorts á íhlutum,“
segir Björn. „Þetta er sérkennileg
staða sem er að koma upp, nú
vantar hluti sem manni dytti ekki í
hug og það stöðvar færibandið hjá
mörgum.“
Þannig tilkynnti Ford að fyrir-
tækið væri að byggja pallbíla án
nauðsynlegra íhluta og ætlaði
að bæta þeim við síðar og Gene-
ral Motors hætti framleiðslu á
tveimur bílategundum seint í mars
og sleppti tímabundið eldsneytis-
sparandi tækni í öðrum bílum.
Verðið á pallbílum Toyota hefur
líka hækkað.
Ástandið er orðið það slæmt að
tölvukubbaframleiðandinn Intel
hefur ákveðið að hefja framleiðslu
á tölvukubbum fyrir bíla til að
auka framboðið. ■