Fréttablaðið - 15.10.2021, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 15.10.2021, Blaðsíða 32
Bleiki dagurinn er í dag. Margir njóta þess að brjóta upp daginn og bjóða upp á bleikar sælkerakræsingar sem gleðja bæði hjarta og sál. Eva María Hallgríms- dóttir, ástríðubakari, sælkeri og eigandi Sætra synda, er ein af þeim sem njóta þess í botn að fá tilefni til að töfra fram kræsingar. sjofn@frettabladid.is Eva María elskar að verja stundum í eldhúsinu hjá sér, hvort sem það er til að elda góðan mat eða baka ein- hverjar sætar syndir. „Ég hef alltaf haft gaman af eldamennsku en bakstursáhuginn kom ekki fyrr en ég varð mamma og má með sanni segja að baksturinn hafi svolítið tekið yfir líf mitt, en sonur minn var ekki nema þriggja ára þegar ég fékk þá flugu í höfuðið að stofna kökuskreytingafyrirtæki og síðan þá hefur ansi mikið gerst enda komin meira en átta ár síðan.“ Tekur þátt í bleikum október Tekur þú þátt í bleikum október með einhverjum hætti? „Ég og fyrirtækið mitt tökum að sjálfsögðu þátt í bleikum október. Við höfum í mörg ár stutt við Bleiku slaufuna með sölu á bleikum bolla- kökum og kökum og 20% af allri sölu rennur beint til átaksins. Það er svo dásamlegt að sjá hvað fyrirtæki eru dugleg að taka þátt í þessu en ár eftir ár eru ótalmörg fyrirtæki að kaupa bleikar veitingar fyrir starfsmenn sína á bleika deginum hjá okkur til að gleðja starfsmenn og svo auðvitað að styðja við Bleiku slaufuna,“ segir Eva María. Finnst þér skipta máli að láta góð málefni eins og bleikan október sig varða og taka þátt? „Þetta er auðvitað gríðarlega mikilvægt málefni. Fræðsla er svo mikilvæg. Það getur nefnilega hver sem er lent í svona áföllum, krabba- mein gerir ekki greinarmun á fólki.“ Klæðist bleiku Bleiki dagurinn er vinsæll dagur til að brjóta upp hversdagsleikann með ýmsum hætti, gerir þú eitthvað í tilefni bleika dagsins? „Ég klæðist að sjálfsögðu bleiku í tilefni dagsins.“ Hér deilir Eva María með lesendum nokkrum af sínum uppáhaldsuppskriftum að sætum, bleikum syndum. Súkkulaðibollakökur með hindberjakremi og hvítu súkkulaði 190 g smjör (við stofuhita) 410 g sykur 3 egg 375 g hveiti 5 msk. kakó 1½ tsk. lyftiduft ¾ tsk. matarsódi 1 tsk. salt 3 dl mjólk 2 tsk. vanilludropar Bleiku syndirnar hennar Evu Maríu Eva María ætlar að klæðast bleiku í dag og bakkelsið verður í sama lit. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Ljúffengar bleikar Pavlovur sem líta æðis- lega út. Súkkulaðibollakökur með hind- berjakremi og hvítu súkkulaði. Hitið ofninn í 175°C. Hrærið smjör og sykur saman þar til blandan verður ljós og létt. Bætið eggjunum út í, einu í einu. Blandið þurrefn- unum saman og hrærið saman við eggin og sykurinn ásamt mjólkinni og vanilludropunum. Setjið deigið í bollakökuform og bakið í um 16-18 mínútur. Hindberjasmjörkrem 500 g smjör (við stofuhita) 500 g flórsykur 3 tsk. vanilludropar 2-4 msk. mjólk 2 dl frosin hindber Setjið hindberin í lítinn pott og bræðið við vægan hita, gott er sigta blönduna til að losna við steinana af hindberjunum og kælið svo. Hrærið smjörið í hrærivélinni þar til mjúkt og létt. Bætið flór- sykrinum við í litlum skömmtun og hrærið vel á milli. Því næst eru vanilludroparnir settir saman við og mjólkin og kremið hrært þar til það er létt og ljóst (sirka 3 mínútur). Þeytið svo hindberjasafann saman við kremið. Setjið kremið í sprautu- poka með stórum opnum stjörnu- stút eða fallegum rósastút (2D). Sprautið kreminu á hverja köku með því að byrja í miðjunni og snúið í hring. Bræðið hvítt súkku- laði í örbylgju og dreifið með skeið yfir bollakökurnar og skreytið með kökuskrauti eða ferskum berjum. Bleikar Pavlovur 6 stórar eggjahvítur 300 g sykur 2 tsk. kartöflumjöl ½ tsk. sítrónusafi ½ tsk. vanilludropar Bleikur matarlitur Byrjið á því að forhita ofn í 105°C. Þeytið eggjahvíturnar þar til þær eru meðalstífar. Bætið sykrinum rólega saman við. Þeytið svo í um það bil 10 mínútur uns stífþeytt. Bætið við smá bleikum matarlit í lokin til að gera Pavlovurnar bleikar. Notið sleikju og blandið varlega saman við sítrónusafa, vanillu- dropa og kartöflumjöl. Notið svo sprautupoka og rósastút og sprautið fyrst rós og svo hring í jaðrinum ofan á rósina til að mynda skál. Bakið í ofni í 75 mín- útur og slökkvið svo á ofninum, en leyfið þessu að vera þar í 30-60 mínútur í viðbót. Þeytið rjóma og skreytið með ferskum berjum. Getur verið gott að setja karamellu eða einhverja góða sósu (til dæmis hindberja- sósu – sjá uppskrift hér með bollakökunum) í botninn á Pav- lovunum, svo þeyttan rjóma og svo skreyta. Gott er að smella pavlovunum í loftþétt box í 30 mínútur áður en þær eru bornar fram til að mýkja þær en sumir vilja hafa þær stífar og þá þarf þess ekki. Hindberjamousse í kampavínsglösum 350 g frosin hindber ⅔ bollar sykur 1 pakkning gelatín-blöð og ¼ bolli vatn til að mýkja blöðin 1½ bolli kaldur rjómi Byrjið á að leggja gelatín-blöðin í vatn til að mýkja blöðin þar til þau eru búin að sjúga upp allt vatnið. Á meðan setjið þið frosin hindber, sykur og smá vatn í pott og hitið þar til berin leysast upp, ca. 5-6 mínút- ur. Setjið berjablönduna í blandara í eina mínútu eða þar til blandan er orðin alveg slétt. Smellið blöndunni aftur í pottinn og bætið við gelatín- blöðunum og hitið við vægan hita þar til blöðin eru uppleyst. Passið að hafa ekki of mikinn hita því blandan getur brunnið. Leyfið berjablöndunni að kólna. Þá er að þeyta rjómann og þegar rjóminn er orðinn stífþeyttur og berjablandan köld þá blandið þið rjómanum og berjablöndunni varlega saman í höndunum þar til blandan er slétt og samfelld. Finnið falleg kampavínsglös eða glös á fæti, gott að setja smá hindberja- sósu í botninn á glasinu, svo er tilvalið að setja smá mulið hafra- kex/súkkulaði eða makkarónur í botninn og svo músina ofan á það og skreytið. Svo setjið þið glösin inn í kæli þar til það á að bera þau fram. n LAGARLÍF 2021 Ráðstefna um eldi og ræktun Grand Hótel Reykjavík, 28. - 29. október Skráning fer fram á www.lagarlif.is Fimmtudagurinn 28. október 10:00 13:00 13:00 15:00 15:00 16:30 Gullteigur - Þróun byggða í tengslum við strandbúnað Gullteigur - Menntun Starfsfólks í skeldi Setur - Helstu hindranir á vegi þörungaræktunar Gullteigur Staðleysur og áhrif þeirra á umræður um laxeldi Setur - Skeldýrarækt Móttaka við barinn Föstudagurinn 29. október 9:00 9:00 11:00 11:00 13:20 13:20 15:00 Gullteigur - Öryggismál starfsfólks í skeldi Hvammur - Landeldi á Íslandi Gullteigur - Framboð af vöru og þjónustu (sjóeldi) Hvammur - Framboð af vöru og þjónustu (landeldi) Gullteigur - Leysveitingar til sjókvíaeldis Hvammur - Reynslusögur úr skeldi Ráðstefnuslit 4 kynningarblað A L LT 15. október 2021 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.