Fréttablaðið - 15.10.2021, Qupperneq 44
odduraevar@frettabladid.is
Víðförlir og ævintýragjarnir mál-
leysingjar hafa verið frekir til
fjörsins í fréttum undanfarið. Rost-
ungurinn Valli er jafnvel farinn að
narta í sporðinn á sjálfum Keikó,
eftir að tíðindi af Íslandsheimsókn
hans bárust út fyrir landsteinana
og hann skaust upp á stjörnuhimin
dýranna, þar sem þau eru mörg fyrir
á fleti.
Gústi með
lögmann
Ágúst Beinteinn
Árnason á í for-
r æðisdeilu v ið
yfirvöld vegna refs-
ins Gústa Jr. sem er
kominn með lögmann. Ekki hefur
fylgt sögunni hvað TikTok-stjarnan
Gústi Jr. raunverulega vill, eða hvort
lögmaðurinn muni gæta raunveru-
legra hagsmuna refsins.
Stjörnuhiminn
dýranna
toti@frettabladid.is
Stimplaðir PírApar voru áberandi
á kosningavöku Pírata í síðasta
mánuði þegar frambjóðendur og
stuðningsfólk merkti sig apanum,
sem barst þeim eftir ákveðnum
krókaleiðum og varð að lokum hluti
af hópnum.
„Við eignuðum okkur þetta í
sveitarstjórnarkosningunum 2018
og Dóra Björt tók upp hlaðvarpsþátt
þar sem hún útskýrði þetta hugtak
og síðan varð þetta reglulegur þátt-
ur sem heitir Pírapinn,“ segir Róbert
Douglas, upplýsingastjóri Pírata.
„Síðan máluðum við PírApann í
barnaherbergið og nú er hann hluti
af f lokknum.“
Eftir því sem næst verður komist
má rekja uppruna PírApans til inn-
hringjenda á Útvarpi Sögu sem mun
hafa orðið tíðrætt um til dæmis
„helvítis pírapana“ með frekar gegn-
særri vísun til þess að greindarvísi-
tala þeirra væri í lægri kantinum.
PírApinn stökk síðast fram í fullu
fjöri á kosningavöku Pírata í síð-
asta mánuði, þegar frambjóðendur
og stuðningsfólk stimplaði hann
meðal annars á handleggi sína með
tímabundnu vatnstattúi og teygðu
þannig brandarann eins og tyggjóið
sem slíkar augnabliksmyndir hafa
löngum fylgt. ■
Stimplaðir Pírapar
Píratar bera PírApa-stimpilinn stoltir.
Dóra Björt Guð-
jónsdóttir út-
skýrði PírApann
á sínum tíma.
Róbert Douglas
er ánægður með
liðsaukann í
PírApanum.
Umboðsmaður
Dimmu
Síðu st en alls
ekki síst er kvik-
myndastjarnan og
hrafninn Dimma.
Jóhann Helgi Hlöð-
versson, fyrrverandi ferðaþjón-
ustubóndi, fann hana kalda og
hrakta á Selfossi í fyrra. Síðan þá
hefur Dimma rakað inn auglýsinga-
tekjum, enda með öflugan umboðs-
mann.
Valli á eigin
vegum
R o s t u n g u r i n n
Valli sótti Horn-
firðinga heim og
f ljótt kom í ljós að
hann væri alþjóðleg
stjarna sem reglulega hefði komist
í heimsfréttirnar. Að minnsta kosti
á Írlandi. Valli fékk engan talsmann
og engan lögmann, en eignaðist
dyggan aðdáendahóp.
Keikó hafði
talsmann
Háhyrningurinn
og a lþjó ðleg a
k v i k m y n d a -
st jar nan Keikó,
sem var að vísu gefið
nafnið Siggi þegar hann var veiddur
við Reyðarfjörð 1979, var svo frægur
að hann var með Hall Hallsson sem
talsmann. Íslandsævintýrið entist
í fjögur ár, en því lauk þegar Keikó
drapst í Noregi 2002.
Hjólreiðakappinn og kaup-
maðurinn Jón Óli Ólafsson
segir það ekkert mál að fara
allra sinna ferða á reiðhjóli
allan ársins hring. Vel upp-
lýst hjólreiðafólk geti þannig
brunað í gegnum kuldann og
myrkrið á meðan það heldur
sínu striki á hálum stígum á
nagladekkjum sem í þessu til-
felli vinna með umhverfinu.
toti@frettabladid.is
„Það er nú búið að vera svona
þokkalegt veður en það styttist
hægt og rólega í þetta og það eru
f leiri og f leiri byrjaðir að athuga
nagladekk, ljós og allt þetta helsta,“
segir hjólreiðafíkillinn Jón Óli
Ólafsson í reiðhjólaversluninni
Berlín og leggur áherslu á að
ástæðulaust sé að hjólin stöðvist
yfir vetrarmánuðina.
Jón Óli fer sjálfur allra sinna ferða
á hjóli árið um kring og það segir sitt
um einurðina að hann hefur undan-
farin sumur freistað þess að hjóla
hringinn í kringum landið í einum
rykk í hinu árlega Cyclothoni.
„Fólk er að spá í bretti og bara
almenna yfirferð á hjólunum.
Þetta byrjar þegar það fer að dimma
seinnipartinn í ágúst og þá eru það
fyrst og fremst ljósin sem fólk spyr
um. Þetta eru ýmist ljós á hjólið eða
hjálminn. Glitaugu eða jafnvel vesti.
Eitthvað til þess að fólk verði meira
áberandi og ef fólk er vel búið þá er
ekkert sem hindrar.“
Bílar og hjól
Jón Óli segir að eftir að fólk er orðið
vel upplýst fari það að snúa sér að
dekkjunum og jafnvel spá í nagla-
dekk. Vetrardekkin séu yfirleitt ein-
hvers staðar á milli 26 til 29 tommur
og valið standi venjulega milli 100
til 120 nagla eða um og yfir 200.
Negld reiðhjóladekk eru að
vonum ekki jafn illa séð og nagla-
dekk undir bifreiðum, en Jón Óli
segir aðspurður að annars megi
segja að svipuð lögmál séu í gildi.
„Þetta er mjög svipað, þannig
lagað. Þegar þú ert kominn með
nagladekk á hjól er lítið mál að
hjóla í hálku og snjó. Fólk rennur
helst þegar það tekur beygjurnar
en á nagladekkjum borar þetta sig
bara niður í og heldur þér stöðugum
á hjólastígnum.“
Jón Óli bætir við að ólíkt því sem
ætla mætti þyngi naglarnir ekki
róðurinn og vitaskuld haldi margir
sínu striki án nagla. „Þú getur flogið
á hausinn en auðvitað fara sumir
bara pínu varlega á meðan aðrir eru
bara alltaf á f leygiferð. Það er ekki
mikill millivegur þarna,“ segir Jón
Óli og hlær.
Veðrið aldrei eins
„Ég hjóla allt árið og þegar upp er
staðið kemur á óvart hversu veðrið
spilar í rauninni lítið inn í. Það gerir
það alltaf eitthvað, en það er ekki oft
sem þú ert bæði með rigningu þegar
þú hjólar í vinnuna og aftur heim.
Það hittist mjög sjaldan þannig á
og þú lendir heldur ekki oft í snjó-
byl. Það kannski snjóar smá en svo
er það kannski aðallega vindurinn
sem við erum oftast að eiga við.
Núna eru margir komnir á raf-
magnshjól og það má segja að þau
núlli út vindinn og einhverja smá
hóla og hæðir. Ég held að rafmagns-
hjólin séu að taka góðan kipp hjá
f lestum hjólabúðum. Það er mikil
sala í þeim.“
Jón Óli telur víst að vinsældir raf-
magnshjólanna séu dálítið á kostn-
að heimilisbílsins. „Það er alltaf
eitthvað um að fólk er að losa sig við
annan bílinn og fá sér kannski eitt
eða tvö rafmagnshjól á móti. Það er
fínt að hafa þau með vegna þess að
stundum getur fólk alveg sloppið
við að vera á bíl. Þótt það eigi hann.“
Erum ekki alltaf í IKEA
Jón Óli bendir á að umhverfið njóti
þess vissulega að bílferðum fækki og
að tækifærin þar séu mörg. „Ég held
að ef við myndum setjast niður og
spá í allt það sem við gerum á bíln-
um þá gætu ótrúlega margir dregið
úr notkun hans og gert þetta frekar
á hjóli.
Þú ert ekkert alltaf að fara í IKEA
að kaupa þrjú rúm, hillur og eld-
húsinnréttingu. Þetta eru oft stuttar
ferðir og það má alveg sækja eitt-
hvað í ísskápinn og annað þannig á
hjólinu. Ég held að ótrúlega margir
gætu breytt þessu og það er bara
spurning um hvernig fólk vill leysa
úr þessum skemmtilega vanda.“ ■
Ferðast á nöglum fyrir náttúruna
Jón Óli Ólafs-
son smitaðist
af hjólabakt-
eríunni fyrir
nokkrum árum
og hjólar út
um allt árið um
kring og segir
skammdegið
enga hindrun ef
maður og hjól
eru vel útbúin.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Ég hjóla allt árið og
þegar upp er staðið
kemur á óvart hversu
verðrið spilar í raun-
inni lítið inn í.
28 Lífið 15. október 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 15. október 2021 FÖSTUDAGUR