Fréttablaðið - 15.10.2021, Síða 48
frettabladid.is 550 5000RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf.DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is
Jóhönnu Vigdísar
Guðmundsdóttur
n Bakþankar
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
AFGREIÐSLUTÍMI
Mán.–fös. 10–18 | Lau. 11–16
www.betrabak.is
A F S L ÁT T U R
25%
KO M D U N Ú N A !
S T I L L A N L E G I R D A G A R
Verðdæmi: Serta Ocean Splendid
2 x 80 x 200 cm. Fullt verð: 649.900 kr.
Verð nú 487.425 kr.
Splendid Royal heilsudýnan frá Serta
er fimm svæðaskipt pokagormadýna
þar sem hreyfingar þínar trufla ekki
rekkjunaut þinn. Góður stuðningur er
við bakið en mýkra gormakerfi er við
axlir og mjaðmasvæðið. Þannig liggur
þú alltaf með beina hryggsúlu og nærð
hámarks hvíld. Hægt er að sérsníða
rúmið að þínum þörfum, velja um þrjá
mismunandi stífleika sem og fjórar
mismunandi toppdýnur. Áklæðið utan
um dýnuna er mjúkt og slitsterkt áklæði,
ofnæmisfrítt og andar vel.
SERTA OCEAN SPLENDID
STILLANLEGT RÚM
AÐ SOFA BETUR OG LÍÐA BETUR ER OKKUR ÖLLUM DÝRMÆTT
STILLANLEGIR DAGAR
DÝPRI OG BETRI SVEFN
Með því einu að snerta takka getur þú
stillt rúmið í hvaða stöðu sem er.
Saman hjálpa rúmið og dýnan þér að ná
hámarks-slökun, dýpri og betri svefni.
Svo vaknar þú endurnærð/ur og tilbúin/n
í átök dagsins.
Kvennaklefinn
Miðvikudaga kl. 20.00
Í þrjár vikur hafa tengdafor-
eldrar mínir, hjón á besta aldri frá
Suður-Afríku, dvalið hjá okkur.
Á hverju kvöldi í þrjár vikur hafa
þau fylgst með himninum, vongóð
um dansandi norðurljós. Verandi
með lifandi streymi upplýsinga um
sólgos og norðurljósaspár í símum
var ólíklegt að þau myndu missa
af dansinum. Í fjarveru miðnætur-
sólar býður góður gestgjafi upp á
almennileg norðurljós. Þegar ljósin
voru virk sást ekki til þeirra fyrir
skýjunum. Þegar skýjahulan lét sig
hverfa fóru ljósin í felur.
Téð hjón hafa jafnframt verið
dyggustu áhorfendur beinnar
útsendingar eldgossins í Geld-
ingadölum. Jútjúb hefur séð
þeim fyrir eldspýjum í rauntíma
í tvær klukkustundir á kvöldi, frá
upphafi. Því var haldið í langferð.
Þann 18. september tók eldgosið
sér frí. Þann 23. september lentu
háaldraðir en vongóðir ferðalangar
á Keflavíkurflugvelli, eftir langt og
lýjandi ferðalag með tilheyrandi
grímum og PCR-prófum. Síðan hef
ég farið inn á helstu fréttamiðla
landsins að meðaltali fimmtíu
sinnum á dag, í þeirri von að
kvikan fyndi sína leið. Þá batt ég
miklar vonir við jarðskjálftana
suðvestur af Keili og notaði hin
ýmsu smáforrit jarðskjálfta til
að missa ekki af hreyfingum yfir
tveimur á Richter.
En allt kom fyrir ekki. Mér tókst
hvorki að bjóða upp á norðurljós né
eldgos. Máttlitlir skjálftarnir björg-
uðu því sem bjargað varð. Ég tengi
auðmjúklega við líðan aðila í ferða-
þjónustu. Ljósin, gosin og skjálft-
arnir eru sennilega eins og flestar
aðrar lífsins gjafir. Þær birtast öðru
hvoru en aldrei eftir pöntun. Sem er
slæmt fyrir hagkerfið og örvænt-
ingarfulla gestgjafa. n
Lífsins gjafir