Fréttablaðið - 16.10.2021, Qupperneq 25
f lugfélaganna sem höfðu vaxið og
dafnað í kringum okkur og WOW
fylgdi þeim eftir með tilheyrandi
látum. Þetta kallaði á frumlegar
uppákomur í markaðssetningu sem
mörgum fannst ekki hæfa flugfélagi,
en við notuðum netið og samfélags-
miðla mjög grimmt. Fyrir vikið varð
sætanýtingin yfir 90 prósent á svo
til öllum okkar f lugum þrátt fyrir
gríðarlega fjölgun áfangastaða á
sama tíma.“
Haustið 2012 tók WOW yfir
Iceland Express og fékk fullt f lug-
rekstrarleyfi um líkt leyti „á met-
tíma“, eins og Skúli orðar það með
ljóma í augum. Og svo hófst Amer-
íkuf lugið vorið 2015 með nýjum
Airbus-vélum sem markaði stærstu
kaflaskilin, en við það snarbatnaði
reksturinn með vaxandi f lugflota
og fleiri áfangastöðum: „Það spáðu
margir því að Ameríkuflugið færi
með f lugfélagið, en staðreyndin
er sú að árið 2015 skilaði það hálfs
annars milljarða hagnaði og ári
Skúli dregur
ekkert undan
í uppgjöri sínu
við sögu WOW:
„Ég missti
fókusinn. Ég
fór að hugsa
meira um vöxt
Icelandair en
það sem WOW
gerði best.“
Ég fór að máta félagið
við sjálfan mig, frægð-
ina, uppganginn og
arðinn frekar en að
vera trúr upphaflegu
lággjaldastefnunni eins
og Ryanair og Wizzair
hafa gert alla tíð.
seinna var gróðinn fjórir milljarð-
ar. Þar með var búið að greiða fyrir
alla uppbygginguna og gott betur,
nokkuð sem engan óraði fyrir.“
Allir þekkja velgengni WOW,
Skúli, en hvað klikkaði?
„Við hættum að vera lággjalda-
flugfélag. Það er misskilningur að
fyrirtæki á þessu sviði verði lág-
gjaldaflugfélög við það eitt að bjóða
lág fargjöld. Það verður líka að hafa
lágan rekstrarkostnað og litla yfir-
byggingu. Eina leiðin til þess er að
hafa einsleitan f lota, yfir 90 pró-
senta sætanýtingu, f ljúga vélunum
400 tíma á mánuði, selja allt í gegn-
um netið og hafa einfaldleikann að
leiðarljósi. Því miður misstum við
sjónar á þessu.“
Hvernig þá?
„Með því að bæta breiðþotum
við f lotann, bjóða betri sæti og
fjölga áfangastöðum um of. Ég fór
að máta félagið við sjálfan mig,
frægðina, uppganginn og arðinn
frekar en að vera trúr upphaflegu
lággjaldastefnunni eins og Ryanair
og Wizzair hafa gert alla tíð. Raunar
með svo góðum árangri að hvorugt
þurfti ríkisaðstoð á tímum far-
sóttar. Ég missti fókusinn. Ég fór að
hugsa meira um vöxt Icelandair en
það sem WOW gerði best.“
Ráðlagt að fara í gjaldþrot
Á útmánuðum 2019 reyndi Skúli
og aðrir stjórnendur WOW að rifa
seglin með því að skila breiðþot-
unum og viðsnúningurinn varð
strax nokkur: „Reksturinn batnaði
hratt þrátt fyrir óvægna umfjöllun
og ég varð sannfærðari um það með
hækkandi sól að svona stórt félag
með 80 milljarða veltu kæmist fyrir
vind. En umfangið reyndist of
Helgin 25LAUGARDAGUR 16. október 2021 FRÉTTABLAÐIÐ