Morgunblaðið - 29.05.2021, Page 2
Ljósmynd/K. Haraldur
Haraldi Gunnlaugssyni brá heldur í brún á leið sinni í vinnuna á fimmtudags-
morgun þegar hann sá flórgoðapar sem búið var að gera sér hreiður á suð-
austanverðri bæjartjörninni í Ólafsfirði. Afar sjaldgæft er að flórgoðapar
verpi í byggð en að sögn Haraldar er þetta í fyrsta sinn sem vitað er til þess
að fuglar af þessari tegund geri sér hreiður á tjörninni í Ólafsfirði. Segist
hann jafnframt einungis vita af tveimur öðrum slíkum tilvikum hér á landi.
Fjölbreytt fuglalíf er nú við bæjartjörnina sem mögulega má rekja til þess
hve hægt hefur vorað í sveitinni í kring og talsverðan snjó er enn að finna
inni í dölunum þar sem fuglarnir eru vanir að halda sig. Þykir því líklegt að
flórgoðaparið hafi leitað til byggða í skjól frá kuldanum. hmr@mbl.is
Óvenjuleg sjón í Ólafsfirði
Flórgoðahreiður á bæjartjörninni
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2021
www.kofaroghus.is - sími 553 1545
369.750 kr
.
Tilboðsverð
697.500 kr
.
Tilboðsverð
449.400 kr
.
Tilboðsverð
34mm
34mm44mm
Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik
má finna á vef okkar
Afar einfalt er
að reisa húsin
okkar
Uppsetning te
kur aðeins ein
n dag
BREKKA 34
- 9 fm
STAPI - 14,98 fm NAUST - 14,44
fm
25%
afsláttur
25%
afsláttur
30%
afsláttur
TILBOÐ Á GARÐHÚSUM!
TIL Á LAGER VANTAR
ÞIGPLÁSS?
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Rjúpum fækkaði í öllum lands-
hlutum á milli ára. Þetta kom í ljós
við talningu Náttúrufræðistofn-
unar Íslands fyrir vorið 2021, sem
er nýlokið. Frá þessu er greint á vef
stofnunarinnar.
Á Vesturlandi og Vestfjörðum er
fækkun hafin, en þar var hámarki
náð síðasta vor. Í öðrum lands-
hlutum hefur fækkun varað frá
tveimur og allt að sjö árum.
Reglubundnar 10 til 12 ára sveifl-
ur í stofnstærð hafa einkennt ís-
lenska rjúpnastofninn.
Rjúpum fækkar í
öllum landshlutum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fugl Þróunin var á sama veg alls staðar.
Nýfæddum börnum á Íslandi fjölg-
aði um 6,5% á fyrsta ársfjórðungi
þessa árs í samanburði við fjölda
nýfæddra á sama tíma á síðasta ári.
Alls voru 1.152 nýfæddir ein-
staklingar skráðir hjá Þjóðskrá Ís-
lands á tímabilinu. Þá fæddust 68
íslensk börn erlendis á þessu tíma-
bili en voru 105 á síðasta ári. Á
sama tíma drógust nýskráningar
erlendra ríkisborgara saman um
40%.
Nýfæddum börnum
fjölgar á Íslandi
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Björgunarsveitir voru kallaðar út
nokkrum sinnum í gær, oftast vegna
foks á lausamunum. Davíð Már
Bjarnason, upplýsingafulltrúi
Landsbjargar, sagði við mbl.is að al-
mennt hefði verið rólegt í gær fram-
an af en svo hefði bætt í.
Garðhúsgögn og þakplötur
Tvær tilkynningar bárust björg-
unarsveitum vegna fokinna garðhús-
gagna á Suðurnesjum en einnig
barst tilkynning um fok á þakplötum
á Eyrarbakka.
Þá segir hann að eitthvað hafi ver-
ið um útköll í höfuðborginni, meðal
annars vegna lausamuna og veislu-
tjalda og gefur í skyn að einhverjar
sumarlegar útskriftarveislur utan-
dyra hafi fokið út í veður og vind.
Síðdegis í gær fauk sendibíll út af
vegi við álverið í Straumsvík. Varð-
stjóri slökkviliðsins á höfuðborgar-
svæðinu sagði að bílstjóri sendibíls-
ins hefði verið einn í bílnum og
sloppið með skrámur.
Hundleiðinlegt veður í gær
- Garðhúsgögn,
þakplötur og
veislutjöld fuku
Morgunblaðið/Eggert
Rok Þetta trampólín í Árbænum vildi heldur betur láta hafa fyrir sér í gær.
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Það var nýbúið að sá í sameiginlegan
túnskika nokkurra bæja í Vatnsdaln-
um þegar fór að hvessa í gær. Í kjöl-
far veðursins verða bændur að sá
aftur, meðal annars fyrir korni, þar
sem það fauk allt upp í sunnan-
áttinni. Sigurður Ólafsson og Gróa
Lárusdóttir á Brúsastöðum í Vatns-
dal segjast ekki hafa séð annað eins á
sinni tíð.
„Já, það þarf að sá í þetta allt sam-
an aftur,“ segir Sigurður en sameig-
inlegi túnskikinn sem um ræðir er
um 15 hektarar að stærð. Eflaust
hefur fokið ennþá meira af hans eig-
in túnum.
„Ég fór niður að stykkjunum okk-
ar áðan og þar fann ég haug af fræj-
um bara í skjóli sem höfðu fokið af
plægðum akrinum.“
Tjónið segir Sigurður að sé tölu-
vert enda þurfi að sá í allt saman aft-
ur, með tilheyrandi frækaupum.
„Allt kostar pening í dag,“ segir
hann.
Festi fjúkið á filmu
Gróa Lárusdóttir, kona Sigurðar,
birti myndband af moldarmekkinum
á facebooksíðu sinni í gær. Þar sést
hvernig fýkur stöðugt úr moldar-
flögunum líkt og um stórbruna sé að
ræða.
„Það var moldrok hérna úr flög-
um, já. Það var búið að sá hérna í
nokkur flög og þau tóku sig bara til
og færðu sig úr stað, alveg óumbeð-
in,“ segir hún við Morgunblaðið.
Muna ekki eftir öðru eins
Sigurður segir að hann hafi ekki
séð svona moldfok í sinni tíð sem
bóndi í Vatnsdal og að kona hans,
Gróa, hafi búið alla sína tíð í dalnum
og muni ekki annað eins.
Sigurður segir að skyggnið hafi
verið svo slæmt, þegar Morgunblað-
ið ræddi við hann síðdegis í gær, að
það hafi ekki sést til næsta bæjar í
um 800 metra fjarlægð.
„Konan mín er nú fædd og uppalin
hérna í sveitinni og hún man aldrei
eftir svona,“ segir Sigurður og bætir
við að hann voni að fari að rigna.
Þurfa að sá aftur í túnin eftir rokið
- Bændur í Vatnsdal segjast ekki muna annað eins - Sáðu fyrir korni sem fauk upp á víð og dreif
um Vatnsdalinn - Allt kostar pening í dag, segir Sigurður Ólafsson bóndi á Brúsastöðum um tjónið
Ljósmynd/Aðsend
Vatnsdalur Skyggnið var slæmt í gær og vart mátti sjá á milli bæja.